Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Side 1
Nú mega veirurnar vara sig! Bls. 19 Einræktun: Hversu langt á tæknin að leiða okkur? Bls. 20 Einræktun: Um hvaö snúast deilurnar? Bls. 21 PlayStation Smokkar til fanga Hæstaréttardóm- ari í Bretlandi hef- ur kveðið upp þann tímamóta- dóm að samkyn- hneigðir fangar í breskum fang- elsum skuli fá ókeypis smokka, séu þeir harðákveðnir í því að taka þátt í því sem hann nefndi „óöuggt" kynlíf. Hann hafnaði því hins vegar að dæma núgildandi smokkastefnu stjórnvalda, að út- hluta aðeins smokkum til þeirra sem þegar væru smitaðir eða yfir- lýstir hommar, „órökrétta" eins og sækjandi málsins, hinn 37 ára gamli Glen Fielding, krafðist. Fielding á að baki átta ára fangavist og hefur lengi barist fyrir þessu máli. Hann heldur þvi fram að tregða stjórnvalda til að skapa föngum öruggt kynlíf setji þá og aðra íbúa landsins í stóraukna hættu á því að smitast af kynsjúkdómum. Lögmaður Fielding tók stórt upp í sig og sagði það grundvall- armannréttindi fanga að geta stundað kynlíf án áhættu. Kanar klaufskir með bomburnar Helgin í kringum þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna, 4. júlí, er engin há- tið hjá starfsfólki slysavarðstofa í Bandaríkjunum þar sem allt fyllist árlega af fólki með alls konar meiðsli, brunasár og fleiður um allan likamann. Á síðasta ári sinntu bandarískir læknar meira en 24 þúsund til- fellum af slysum tengdum flug- eldum, allt frá misalvarlegum brunasárum til beinbrota. Banda- ríkjamönnum er tamt að hugsa í tölum svo auðvitað hefur verið reiknað út vinnutap, sjúkra- og lögfræðikostnaður og annað sem þessi meiðsli kostuðu, allt í allt rúmlega 450 milljónir dollara. Læknar og sérfræðingar hvetja nú Bandaríkjamenn til aö fara á opinberar og öruggar flugelda- sýningar í stað þess að brenna peningunum sínum prívat og segja það óskiljanlegt hvernig þjóðin þrjóskast enn við að fýra upp á eigin spýtur. Hver veit nema við íslendingar gætum sagt Kananum eitt og annað um flug- eldaskothríð? Þetta vélvædda dans- fifl var þróað af rannsóknadeild japönsku vísinda- og tæknistofnunarinnar. Hér sést það í dúndrandi sveiflu á sýningu í Kyoto í Japan ásamt dansherranum. Ekki er hætta á að parið lendi nokkurn tímann úr takti því að vélmennið, sem er tæplega tveir metrar á hæð, lagar hreyfmgar sínar eftir hreyf- ingum mannsins og fylgir honum skref fyrir skref. Til þess notar vél- mennið fjórar myndavélar sem inn- byggðar eru í höfuð þess og nokkra hljóðnema. Sitthvað fleira er í hausnum, að sögn þeirra sem heið- urinn eiga af þessari merku upp- finningu, því að vélmennið ku búa yfir sömu námshæfileikum og mannlegur heili. Þá er spumingin hvort ekki var hægt að finna eitt- hvað þarfara fyrir blessaðan róbót- inn að gera en dansa út í eitt. Að minnsta kosti þarf hann ekki að hafa áhyggjur af blöðrum á fótum eftir hamaganginn en vera mætti að dansherrann skirrðist við að vanga við vélina í lokalaginu, enda væri það vel skiljanleg afstaða. Mosfet 45 Stærsti Mosfet útgangs- magnari sem völ er á í dag 4x45W. Kostir Mosfet eru línulegri og minni bjögun en áöur hefur þekkst. Aöeins vönduðust hljómflutningstæki nota MOSFET. Pioneer hefur einkarétt i 1 ár. MARCX Nýjasta kynslóð útvarpsmóttöku, mun næmari en áður hefur þekkst. 3 MACH16 Ný tækni i RCA (Pre-out) útgangi sem tryggir minnsta suð sem völ er á. 4 Octaver Hijóðbreytir sem aðskilur bassan. Pioneer er fyrsti biltækja- framleiðandinn sem notar þessa tækni sem notuð er af hljóðfæra framleiðendum. 5 EEQ Tónjafnari sem gefur betri hljóðmöguleika, á einfaldan hátt. 5 forstilltar tónstillingar. Vp i sem skapa Pioneer afdráttarlausa _>/■ sérstöðu j Þegar hLjómteekl sklpta máll DEH 2000 4x45 W magnari • RDS • Stafrænt útvarp • FM MW LW • 24 minni • BSM • Laudness • Laus framhlið • Aðskilin bassi/aiskant RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn 7.900stgr. 1 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.