Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Page 2
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 IfeíJfljitl 11UI Ný aðferð við nettengingu í notkun í Reykjavík: Atta til fimmtan sinnum hraðari - símatengingin snigill í samanburði Margur fær nett kast af minnimáttar- kennd þegar talið berst að listum og fmnur jafnvel til andlegrar smæðar þegar hann heyrir jöfrana tala um hvarf- punktinn, endurreisnina og síð- ast en ekki síst póstmódemis- mann. Af þessum sökum þykir mörgum nánast óbærileg tilhugs- un að stinga nefl inn í lista- verkagallerí og njóta augna- konfektsins sem þar er á boðstól- um. Það er ekki síst vegna þess háttar fólks sem bandaríska net- galleríið NextMonet hefur verið stofnað á veffanginu NextMo- net.com. Fólk sem hefur raun- verulegan áhuga á listum en á erfitt með að koma sér af stað get- ur nú fundið flest sem það þarfn- ast á Netinu. 1 milljón nýrra safnara Galleríið hefur ekki aðeins hug á að höfða til nýríkra uppa sem vantar stöðutákn. Einkunn- arorð þess em að ná til allra sem eiga módem. í hvemi viku verða sérstakar kynningar á þremur óIíó raforkudreifingarkerfi til flutnings gagna. í framhaldi af því flutti ég til- lögu í stjórn veitustofnana um hvort og hvemig hægt væri að nýta þessa nýju tækni hérlendis. í framhaldi af því fór af stað undirbúningsvinna, viðræður og markaðskannanir. Þær lofuðu góðu svo verkefnið komst á koppinn. Núna, 18 mánuðum síðar, er það komið á framkvæmdastig með stofnun sérfyrirtækis, Línu ehf., um reksturinn og gerð samnings við Nor.Web. Fyrsta skrefið er þessi til- raunatenging og ef hún reynist vel verður farið á fullt meö verkefnið strax á næsta ári. Þá má reikna með að tvö til þrjú ár taki að koma kerf- inu í almenna notkun.“ Aðferð Nor.Web felst í því að not- endur Netsins eru tengdir við spennistöðvar um rafstrengi en spennistöðvarnar tengdar saman með ljósleiðara sem aftur tengist Netinu. Þessi tenging kemur í stað hefðbundinnar tengingar um síma- línu og hefur fjölmarga kosti um- fram hana. Flutningsgetan er einn megabiti, þúsund kílóbitar, á sek- úndu á móti 128 kílóbitum ISDN- tengingar, eða um átta sinnum meiri. Enn meiri munur verður ef miðað er við ISDN-tengingu sem bæði er notuð í síma- og tölvusam- band, 1000 kb. á móti 64 kb., eða fimmtánfaidur munur. Internet í auglýsingahléum Ýmsir aðrir kostir fylgja aðferð- inni, að sögn Helga: „Vel er hægt að sjá fyrir sér opn- un nýrra möguleika með þessari tengingu. Hin stóraukna flutnings- geta gerir það að verkum að flutn- ingur á hljóði og mynd, sem oft er átakanlega hægur eins og er, verður mun hraðari og auðveldari en það opnar aftur möguleika á aukinni og skilvirkari fjarvinnu sem ætti að nýtast fólki bæði við nám og störf. Einnig má nefna að þetta er fast- línutenging, það er: notandinn er tengdur allan sólarhringinn og þarf Flutningsgetan ereinn megabiti, þúsund kíló- bitar, á sekúndu á móti Í28 kílóbitum ISDN- tengingar; eoa um átta sinnum meiri. Enn meiri munur verður ef miðað er við ISDN- tengingu sem bæði er notuð í síma- og tölvu- samband, 1000 kb. á móti 64 kb.s eða fimmtánfaldur munur. ekki að hringja sig inn á Netið. Póstur kemur jafnóðum inn og öll . gögn eru afrituð sjálfkrafa á nótt- unni i móðurtölvuna sem er mjög mikilvægt öryggisatriði ef eitthvað fer úrskeiðis." Helgi segir að enn fleiri skemmti- legir möguleikar muni opnast not- endum: „Þar sem um fastlínutengingu verður að ræða verður hægt að tengja sjónvarpið Netinu. Þannig á fólk eftir að geta vippað sér yfir á Netið á dauðum tímum í dag- skránni, til dæmis í auglýsingahlé- um og svo framvegis.“ Notendur þróa Netið „Annars er ómögulegt að spá ná- kvæmlega fyrir um hvaða framfarir og nýjungar munu koma í kjölfar þessarar tengingar. Helsti tilgangur Orkuveitunnar með að beita sér fyr- ir málinu var einfaldlega sá að leggja til grundvöllinn en það er tölvufyrirtækjanna að nýta sér möguleikann og bjóða þjónustuna. Sem betur fer eru það notendumir sem þróa Internetið - þess vegna hefur það náð slíkum vinsældum sem raun ber vitni,“ segir Helgi að lokum. -fin NextMonet.com á vefnum: Net listarinnar - fangar nýja kúnna listamönnum auk þess sem fmna má þar fréttir, gagnrýni, vísbend- ingar og hollráð fyrir safnara og kaupendur. Galleríið hefur sett sér það háleita markmið að selja ekki aðeins listaverk á Netinu heldur reyna að stuðla að því að fleiri taki að safna listaverkum. Stefnt er á að á árinu 2003 hafi ein milljón manns bæst í þennan hóp. Listin sem til sölu er á NextMo- net.com kostar alit frá örfáum þúsundköllum upp i fleiri millj- ónir og er fimm daga skilafrestur á öllu sem frá því kemur. Sérstök nefnd reyndra listfræðinga, safn- ara og menntamanna velur það sem sýnt er. Fjölbreytileiki er einkunnarorð þeirra sem' reka galleríið en þó mun \úrvalið sveigja fremur að því sem telst hefðbundið í listum út frá fagur- fræðilegu sjónarmiði, ólíklegt er til dæmis að finna megi verk Damiens Hirst eða hans líka hjá NextMonet.com. Burt með bóhemin Að mati framámanna í lista- heiminum fyllir galleríið ákveðið tómarúm sem til staðar hefur ver- ið á þessum vettvangi og er al- í síðustu viku undirrituðu Lína ehf., nýtt fjarskiptafyrir- tæki í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, og breska fjarskipta- fyrirtækið Nor.Web samning um nettengingu 100 reykvískra heimila og fyrirtækja í gegnum raforkukerfi Orkuveitunnar. Reykjavík er sjöunda borgin sem Nor.Web gerir slíkan samning við en fyrirtækið hefur þróað aðferð til gagnaflutninga um raforkukerfi sem hefur verið í tilraunarekstri í nokkrum borgum í Evrópu undan- farið. Ein helsta ástæða þess að Reykjavík, og vonandi síðar ísland allt, telst fýsilegur kostur fyrir teng- ingu sem þessa er mikil og almenn tölvu- og internetnotkun lands- manna en kannanir sýna að tölvu- búnaður er á yfir 60 prósentum heimila hérlendis og yfir helmingur landsmanna hefur aðgang að Net- inu. Er það hærra hlutfall en al- mennt gerist í Evrópu. Almenn notkun eftir tvö til þrjú ár? Helgi Hjörvar, formaður borgar- Helgi Hjörvar við undirritun samningsins, annar frá vinstri í fremri röð, ásamt yfirmönnum Nor.Web og samstarfs- mönnum sínum hjá Línu ehf. Guðmundur Þóroddsson, stjórnarmaður í Línu, er Helga á hægri hönd en þriðji frá vinstri í aftari röðinni er Þorsteinn Sigurjónsson, verkfræðingur hjá Línu. stjórnar, er einn stjómarmanna hins nýja fyrirtækis: „Á haustmán- uðum 1997 birtist frétt í Financial Times um að dótturfyrirtæki Nortel hefði fundið tækni til þess að nota Ný og sérstök „uppfinning“: Hommalófalestur - geta lófatölvur greint kynhneigö? I!WjRiw*piwim!iiiiP!J"i Komið er á ' markaðinn í l' '-ð I / ■ j I Bandaríkjunum I 'v 1' 111 ; _ ]lvar annars staðar?- tölvu- forrit fyrir lófa- tölvur sem að sögn hönnuðanna á að geta þefað uppi kynhneigð fólks. Samkynhneigðir menn úti um all- an heim hafa lengi kannast við og notað það sem kallast á ensku „gaydar“, næstum yfirskilvitlegur hæfileikj til að geta sér til um kyn- hneigð sambræðra sinna. Nú hafa hugvitssamir náungar, sem ekki geta nafns, þróað búnað fyrir lófa- tölvur sem á að auðvelda þeim lífið sem ekki treysta hugboðum og sjötta skilningarvitinu. Tækið er sem stendur aðeins til í útgáfu fyrir karlmenn en í bígerð eru bæði lúxusútgáfa og önnur fyrir lesbíur. Eins og heyrnartæki... Þeir félagar kalla sig the Drunken Monkeys, eða Ölvuðu apa- kettina, og segja köllun sína vera þá að hjálpa fólki að kom- ast yfir feimni og for- dóma: „Þetta er eins og heymartæki. Ef sam- kynhneigðir menn kljást við þá fötlun að eiga í erflðleikum með að þekkja sína líka út úr fjöldanum viljum við endilega hjálpa þeim,“ segir annar þeirra, sem kallar sig Mr. Scratch. Tækið virkar þannig að þegar notandinn slær inn beiðni um „stöðu“ einhvers tiltekins við- fangsefnis af sama kyn- inu þá skannar græjan hann inn, les hugsanir hans og líkamleg ein- kenni og fellir að því búnu dóm um það hvort viðkomandi sé fyrir- hafnarinnar verður. All- ar niðurstöður eru sýndar á mjög svo vis- indalegan hátt og nær skalinn ailt frá „streit - Þetta er eins og heyrn- artæki. Ef samkyn- hneigðir menn kljást við þá fötlun að eiga í erfiðleikum með að þekkja stna líka út úr fjöldanum viljum við endilega hjáípa þeim. en forvitinn" upp í „mjög eldfimur“. Reyndar segja þeir félagar Ölvuðu apakettirnir að tækið hallist mjög til þess að greina nær síðari flokkn- um. Að sjálfsögðu er þessi græja ekk- ert galdratæki og getur ekki í raun greint muninn á sam- og gagnkyn- hneigðum enda forritið náttúrlega fyrst og fremst til gamans gert. Það kostar um 5 dollara og segja Ölvuðu apakettirnir að þó engin óyggjandi niðurstaða fáist geti notendur að minnsta kosti huggað sig við að tveir samkynhneigðir menn græði á öllu saman - nefnilega þeir sjálfir. Þetta hamingjusama par þurfti ekki að nota „gaydarinn“ til þess að mætast á miðri leið. Leonardo da Vinci þurfti ekki aðstoð internetsins til þess að koma Monu Lisu sinni á framfæri. mennt álitið komið til að vera, þar sem tilhneigingin víðast hvar í flestum greinum viðskiptanna virðist vera sífellt meiri verslun á Netinu. Enn einn kostur er ótalinn við þessa nýju stofnun og það er sá hagur sem listamennimir sjálfir hafa af henni. Ef vel tekst til mun galleríið stækka safnarahópinn margfalt og ná til nýrra hópa fólks. Það mun skapa meiri tekj- ur fyrir listamanninn sem getur þá eytt meiri tima við listsköpun sína. Getur verið að goðsögnin um svanga, fátæka listamanninn - bóheminn - verði loksins kveðin niður? -fin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.