Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1999, Síða 6
22 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 PQJg Köimur j'jJdJuj1 Final Fantasy VII á niður- settu verði Einn besti æv- intýra- og hlut- verkaleikurinn á PlayStation, Final Fantasy VII, er að koma út í Platínuseríunni svoköll- uðu. Platínuserían er safn PlayStation titla sem hafa selst sérstaklega vel. Sony, framleiðandi PlayStation, gefur leið- beinandi verð fyrir Platínu- leiki og er það verð um það bil helmingur af verði nýs titils. Final Fantasy VII hefur slegið öll met í sölu og hefur leikurinn selst i yfir 6 milljón- um eintaka um allan heim en serían í yfir 22 milljónum ein- tcika. Læðupokaleik- urinn Metal Gear Solid Hinn frábæri læðupokaleik- ur Metal Gear Solid þótti hafa aðeins einn galla - hann var of stuttur. Núna er að koma út í Japan viðbót sem inniheldur fleiri VR-þjálfunar- ■mhhhhi borð eða yfir 300 og sérstakan j aukaleik þar sem spilarinn er í hlutverki eins af óþokkunum eða bandamannsins Crimson Ninja. Eins og alltaf þá verður bið s á því að þessi viðbót komi út í ; Evrópu. Venjulega tekur biðin hálft ár eða jafnvel ár í sum- um tilfellum, frá því að titill kemur út í Japan og þangað til hann er kominn í búðir í Evr- ópu. Þá er bara að vona að í Konami bretti upp ermamar. Tribes í eintölu Netleikurinn vinsæli, Tri- bes, hefur hald- ið vöku' fyrir mörgum. Tri- bes, sem er fyrstu persónu skotleikur, spilaður á Netinu, i gríðar- stóru umhverfi og gegn mikl- um fiölda af óvinum, hefur verið mjög vinsæll meðal net- spilara. Nú geta allir þeir sem ekki hafa nettengingu eða líkar ekki við margmenni spilað leikinn sem einmenningsleik. Leikurinn sem á að heita Tri- bes Extreme mun innihalda fjöldann allan af einmennings- borðum og söguþráð. Þeir sem heldur kjósa netleikinn geta alltaf notað Tribes Extreme til | að æfa sig í bardagalistunum. Ef marka má viðtökurnar við netútgáfunni má búast við að Tribes Extreme verði ansi vin- íu\m* Wt ■íul'jiJ- VdVAt ÍÍjJ’VH- VáVút Vefsíöur opinberra stofnana í USA vinsælar til niðurrifs: „Hræðist þá hæfustu“ - alríkislögreglan í stríöi viö tölvuþrjóta Maður að nafhi John Eli- jah hefur hafið málsókn á hendur Microsoft-fyrirtækinu út af meintum kynþáttafordómum i Publisher 98. Málsóknin bygg- ist á þvi að í klippimynda- safni, sem er partur af Publisher 98, er orðið „monkey", eða apakött- ur, tengt svörtu fólki. Ef orðið monkey er slegið inn sem leitarorð í myndasafninu kemur upp mynd af lituðu pari sem situr á leikvelli. Talsmenn Microsoft-fyrir- tækisins segjast vera búnir að kippa þessu i liðinn. Segja þeir að svo óheppilega hafi viljað til að tengingin „monkey" sé við „monkeybars", eða klifur- grindur, sem séu einnig á um- ræddri mynd. /dJvuj1 Ofbeldissía hjá Microsoft Microsoft hef- ur tilkynnt um nýjan möguleika í uppfærslu á Windows 98, sem kemur út á næsta ári. Möguleiki þessi felst í þvi að foreldrar og forráðamenn geta stjórnað því hvaða forrit böm þeirra opna þegar unn- ið er í Windows-umhverfi. Foreldrar geta til dæmis heft aðgang bama sinna að of- beldisfullum leikjum. Þessi nýja tækni er enn þá í þróun en talsmenn Microsoft-fyrir- tækisins segja að þessi viðbót verði tilbúin eftir ár eða svo. Pl-fartölvan á góðu röli - hlutabréf í Apple hækka fyrir vikiö Á undanförnum mánuðum hefur geisað litil „styrjöid“ í Bandaríkjunum. Þessi styrjöld er háð af Álríkis- lögreglunni (FBI) gegn nokkrum hópum af tölvuþrjótum. Þessir tölvuþrjótar hcifa gert harða hríð að opinberum vefsíðum þar vestra. Hafa þessar árásir verið óþægilegar, ekki bara fyrir notendur vefsíðn- anna, heldur líka fyrir yfirvöld þar í landi. Þau hafa hingað til ekki get- að varist árásunum og virðist mikið vanta upp á stafrænar varnir hins opinbera en bara í síðustu viku vora gerðar tvær árásir á vefsíður opinberra aðila í Bandaríkjunum. Herinn á undir högg að sækja Sunnudaginn 27. júni síðastliðinn réðust tölvuþrjótar á vefsíðu banda- ríska hersins. Vefsíðan var óstarf- hæf í 9 klukkutíma og þurfti að skipta út og endurgera stóran hluta hennar. Það sem er kannski óheppi- legast varðandi árásina er að tölvu- þrjótamir notuðu smugu í tölvu- kerfi hersins sem herinn hafði vitað af í nokkrar vikur en ekkert gert til að bæta úr. Það var ekki fyrr en daginn eftir að herinn gat sett vef- síðuna í gang aftur. Það er ekkert nýtt að vefsíður bandaríska hersins verði fyrir árásum tölvuþrjóta. Ótal margir fingrafimir tölvuþrjótar virðast sjá vefsíður bandaríska hersins í hillingum sem nokkurs konar Everest alnetsins og æðsta takmark tölvuþrjóta. Stormviðvaranir í lamasessi Ein aðal veður- og stormviðvör- unarstofa Bandaríkjanna varð fyrir því að vefsíða þeirra, sem einmitt ■fh\ jj/jóhjj' Málaferli á hendur Microsoft Tölvuþrjótar hafa stundað umfangsmikla hryðjuverkastarfsemi á opinberum netsíðum í Bandaríkjunum og láta meira að segja ekki hinn almáttuga bandaríska her í friði. varar fólk við stormum og hamfór- um, var gerð óstarfhæf af tölvu- þrjótum. Á þriðjudaginn í siðustu viku gerðu þrjótarnir atlögu og löm- uðu vefsíðuna í hálfan sólcirhring. Veðurstofan, sem er á vegum ríkis- ins, er nýjasta tilfellið i árásum á opinberar vefsíður i Bandaríkjun- um. Mikil mildi þykir að landsvæð- in sem veðurstofan sér um voru laus við aftakaveður á meðan síðan var óstarfhæf. Tölvuþrjótarnir skildu eftir skilaboð „leam to fear the elite“ sem á íslensku myndi vera „lærið að hræðast þá hæfustu" sem er gott dæmi um tilefnisleysi árásarinnar. Hakk: Barnalegt grobb Þeir sem stunda skemmdarverka- starfsemi af þessu tagi era sumir að reyna koma einhverri skoðun á framfæri. í fæstum tilfellum þó, þvi í síðasta Heimi var sagt frá því að Apple væri jafhvel að hugsa um að hætta við framleiðslu á Pl- fartölvunni, sem miðast við ódýrari endann á markaðnum. Nú hafa komið fram fullyrðingar frá ábyrg- um aðilum þess efnis að framleiðsla fartölvunnar sé á réttu róli. Pl-fartölvan, sem kynna á til sög- unnar í næsta mánuði í Bandaríkj- unum, á að vera með sömu útlits- hönnunina og iMac-tölvan vinsæla. P1 á að mæta þörfum markaðsins fyrir ódýra en jafnframt kraftmikla fartölvu. Þegar fréttist að ekkert væri til í sögusögnum um að Pl-far- tölvunni yrði hent hækkaði verð á hlutabréfum í Apple-fyrirtækinu. Talsmenn Apple-fyrirtækisins vildu IdJvíjj* Steve Jobs fagnar því eflaust að P1 fartölvan er komin aftur af stað. ekkert tjá sig um fréttir síðustu viku en endurtóku fyrri ummæli sín að P1 væri á áætlun. Pl-tölvan er ein af meginstoðunum í næstu markaðssetningu tölva frá Apple, ásamt G3 powerbook-fartölvunni og hraðskreiðari G3-turntölvum. komið hefur í Ijós í yfirheyrslum á þeim tölvuþrjótum sem nást, að flest- ir virðast vera að eyðileggja einfald- lega til að sýna hvað þeir eru klárir. Einnig sýna árásimar að þær eru án markmiða, og virðast vera gerðar bara til að gera þær. Hingað til hafa refsingar fyrir skemmdir á vefsíðum verið vægar. Tæki og tól tölvuþrjót- anna hafa verið gerð upptæk eða í sumum tilfellum foreldra þeirra þar sem margir þeirra era ungir að árum. Það mætti því komast að þeirri niðurstöðu að „hakk“ sé barnalegt grobb. Komið hefur í Ijós í yf- irheyrslum á þeim tölvuþrjótum sem nást að flestir virðast vera að eyðileggja einfald- lega til að sýna hvað þeir eru klárir. Rafmagnsbíll frá Toyota Japanski bíla- framleiðandinn Toyota hefur í hyggju að setja á markað raf- magnsbfl árið 2003. Hönnun bílsins er vel á veg komin að sögn fyrirtækisins og ætl- ar Toyota-bílaframleiðandinn að reyna að gera útfærslu sina á vél bílsins að alþjóðlegum staðli í fram- leiðslu á rafmagnsbflum. Svo virðist vera að kapphlaup um Svo v&ðist vera að kappMaup um fyrsia fj&MairamiekMa raf~ magnstoBn séí upp- sigiingu. fyrsta fjöldaframleidda rafmagnsbíl- in sé í uppsiglingu. Þýsk-bandaríski bílaframleiðandinn Daim- lerChrysler AG hefur tilkynnt að þeir séu einnig að undirbúa fram- leiðslu á rafmagnsbíl. Hefur Daim- lerChrysler AG i hyggju að hafa fyrsta eintakið tilbúið árið 2004. Bú- ast má við að fleiri bílaframleiðend- ur blandi sér í slaginn. TOYOTA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.