Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Blaðsíða 2
20
FIMMTUDAGUR 8. JÚLl 1999
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
21
Sport
Sport
Frá leik Sindra og ÍBV á Höfn í Hornafirði í gærkvöld. Eyjamenn sækja að marki heimamanna. DV-mynd Sigurður Mar
Bikarmeistarar ÍBV slógu „spútniklið“ Sindra út úr bikarnum:
Ævintýrið uti
- Eyjamenn skoruðu þrívegis á Hornafirði og Sindri átti aldrei möguleika
Islands- og bikarmeistarar ÍBV
eru komnir áfram í Coca-Cola-bik-
arnum eftir góðan útisigur á
Sindra frá Homafirði, 3-0, í gær-
kvöld.
Þar með lauk stórkostlegu ævin-
týri Hornfirðinga í bikarkeppninni
að þessu sinni en frammistaða
Sindra hefur vakið verðskuldaða
athygli og verið leikmönnum liðs-
ins og Hornfirðingum til mikils
sóma.
Vestmannaeyingar byrjuðu leik-
inn af krafti og áttu skot í stöng eft-
ir hálfrar mínútu leik og fór þá um
marga áhorfendur á heimavelli
Sindra.
Leikmenn Sindra virtust ekki
vera með í leiknum til að byrja með
og greinilegt á leik þeirra að þeir
töldu andstæðingana of sterka fyrir
sig. Heimamenn báru of mikla virð-
ingu fyrir andstæðingunum en
smátt og smátt komust Sindramenn
betur inn í leikinn og náðu þá að
sína sínar réttu hliðar.
Fyrstu 20 mínútur leiksins voru
Vestmannaeyingar meira með bolt-
an og á 23. mínútu fékk ÍBV auka-
spyrnu rétt utan vítateigsins hjá
Sindra. Skotið fór fram hjá. Fyrsta
færi Sindra leit dagsins ljós á 26.
mínútu þegar litlu munaði að Ár-
mann Smári slyppi í gegnum vöm-
ina og svo aftur stuttu síðar en
Hlynur Stefánsson, sem var eins og
klettur í vörn Vestmannaeyinga,
náði að afstýra hættunni.
Á 36. mínútu skorað Steingrímur
Jóhannesson glæsilegt mark með
skoti utan úr vítateig Sindra. Rétt
eftir markið átti Sindri gott færi, og
undir lok fyrri hálfleiks bjargaði
Birkir naumlega eftir gott gegn-
umbrot Ármanns Smára.
Staðan í leikhléi því 1-0 fyrir
gestina og gátu heimsamenn verið
sæmilega sáttir við þá stöðu.
Seinni hálfleikur einkenndist af
mikilli baráttu og sköpuðu bæði lið
sér nokkur marktækifæri.
Á 70. mínútu spiluðu Vestmanna-
eyingar sig skemmtilega í gegnum
vörn Sindra og skoraði Guðni Rún-
ar Helgason af stuttu færi.
Við þetta mark dró mjög af leik-
mönnum Sindra og tíu mínútum
fyrir leikslok innsiglaði Ingi Sig-
urðsson svo öruggan sigur Vest-
mannaeyinga og þar með var
bikarævintýri Homflrðinga á enda
runnið. Þrátt fyrir ósigurinn geta
leikmenn Sindra borið höfuðið
hátt. Liðið er tvímælalaust það lið
sem komið hefur mest á óvart í
sumar og frammistaða liðsins í
bikarnum verið skemmtilegt krydd
í bikarkeppnina. -SK
Skagamenn auðveldlega í undanúrslitin í bikarnum:
- er ÍA vann slakt liö Víkings, 0-5, á Laugardalsvelli
Skagamenn áttu ekki í miklum
vandræðum með að slá slaka Vík-
inga út úr átta liða úrslitum bikar-
keppninnar, en liðin mættust á
Laugardalsvelli i gær.
Skagamenn, sem nutu liðsstyrks
Stefáns Þórðarsonar í fyrsta sinn í
sumar, sýndu það strax á upphafs-
mínútum leiksins að þeir ætluðu
sér ekkert annað en sigur í þessum
leik. Á 5. mínútu slapp Kári Steinn
Reynisson inn fyrir vörn Víkinga,
þar sem Ögmundur Rúnarsson
markvörður braut á honum. Gylfi
Þór Orrason, góður dómari leiks-
ins, dæmdi vítaspyrnu sem Pálmi
Haraldsson tók, Ögmundur varði
spyrnuna en missti boltann frá sér
og Stefán Þórðarson sendi boltann
í markið. Víkingar reyndu hvað
þeir gátu að koma vörn Skaga-
manna í vandræði en vörnin var
þétt fyrir og hleypti Víkingum ekki
nærri markinu. Alain Prentrece
var næst því að koma boltanum í
netið þegar skot hans úr auka-
spymu fór rétt fram hjá markinu.
Alexander Högnason skoraði
annað mark ÍA á 26. mínútu eftir
að Kenneth Mahjane fleytti boltan-
um áfram inn í teig eftir horn-
spymu.
Hafi yfirburðir ÍA verið miklir í
fyrri hálfleik, þá voru þeir Edgjörir
í þeim síðari. Kenneth Mahjane
skoraði þriðja mark ÍA á 57. mín-
útu og Stefán Þórðarson íjórða
markið tveimur mínútum síðar.
Víkingar reyndu að bæta í sóknina
en Ólafur Þór Gunnarsson stóð
vaktina vel í marki ÍA og varði allt
sem að marki kom. Varamenn ÍA,
þeir Unnar Valgeirsson og Ragnar
Hauksson, gulltryggðu síðan stór-
sigur ÍA á 90. mínútu þegar Ragnar
skoraði eftir laglega sendingu frá
Unnari.
Stefán með nýja vídd
„Við áttum engan veginn von á
því að vinna þá 5-0 en það er
þannig í þessum fótbolta að það
getur allt gerst. Leikur þeirra riðl-
aðist nokkuð við það að fá mark á
sig svona snemma og við gengum á
lagið og spiluðum fínan fótbolta.
Menn vom ákveðnir í að leggja sig
alla fram. Við vitum hvemig bikar-
keppnin getur verið og í kvöld var
að duga eða drepast. Stefán kemur
með nýja vídd inn í okkar leik með
þessum krafti og liðið er allt að
koma til. Við erum til alls líklegir í
framhaldinu," sagði Alexander
Högnason, fyrirliði ÍA.
Var ekkert erfitt aö koma inn í
þennan leik, vitandi af Evrópu-
leiknum á laugardaginn?
„Nei, það er alltaf verið að tala
um álag. En þetta fækkar æfingum,
þær verða léttari og það er bara
miklu skemmtilegra að hafa nóg að
gera.“
íslandsmótið fór ekki glæsilega
af stað hjá ykkur Skagamönnum,
eruð þið komnir á beinu brautina?
„Það spilaði inn í það óheppni i
sumum leikjunum, en það þýðir
ekkert að gefast upp þó að illa
gangi i byrjun, það verður bara að
snúa bökum saman og gefa allt í
framhaldið. Við erum bjartsýnir og
höfum fulla trú á því að okkur eigi
eftir að ganga vel i framhaldinu,"
sagði Alexander.
Það var ekki laust við að það
væri meistarabragur á Skaga-
mönnum í þessum leik og Ijóst að
stemningin í liðinu í dag er allt
önnur heldur en hún var við upp-
haf íslandsmótsins. Stefán Þórðar-
son styrkir liðið mikið og Kenneth
Mahjani fellur betur og betur inn i
lið sem er vel mannað í öllum stöð-
um.
Víkingar hafa nú lokið þátttöku
sinni í bikarkeppninni og geta ein-
beitt sér að því að halda sér uppi í
deildinni, og miðað við leikinn í
gærkvöldi þá þurfa þeir að nýta
tíma sinn vel til þess verks.
-ih
Kenneth Mahjane átti góðan leik með ÍA gegn Vikingi í gærkvöld og hér er
hann í þann veginn að skora með glæsilegum skalla. DV-mynd E.ÓI.
Rallökumennirnir Þorsteinn P. Sverrisson og Witek Bogdanski:
í kennslu hjá einum
besta rallara heims
Rallökumennirnir Þorsteinn Páll Sverrisson og Witek
Bogdanski eru nýkomnir frá Póllandi þar sem þeir voru
í læri hjá pólska rallmeistaranum Krzysztof Holek. Þeir
félagar hafa nú selt Mözduna sem þeir hafa ekið á
undanfarið og verða þvi ekki með í þriðja ralli
sumarsins í nágrenni Hólmavíkur um helgina.
Krzysztof Holek er atvinnumaður, ekur á Subaru
Impreza, og hefur skilað góðum alþjóðlegum árangri,
m.a. oft unnið Pólska rallið, og á síðasta ári varð hann
10. í Portúgalska rallinu og 8. í RAC-rallinu breska en
hvort tveggja er heimsmeistarakeppni. Þorsteinn og Wi-
tek telja Holek hiklaust meðal 10 til 15 bestu rallöku-
manna heims.
180 milljónir í veganesti
Rallið í Póllandi er í uppsveiflu núna, áhugi almenn-
ings mikill og styrktaraðilapakki Holeks leggur sig á 2,5
milljónir dollara fyrir árið. Hann er svona hálfguð í
sínu heimalandi og snýr sér varla við öðruvísi en að
gefa eiginhandaráritun. Æfingabíllinn er einnig Subaru
Impreza og á afskekktum sveitavegi í Póllandi opnaði
hann Þorsteini Sverrissyni nýja vídd í rallinu, því eins
og Þorsteinn lýsti því: „Þegar Holek bremsaði loks fyrir
beygjur var ég löngu búinn að bremsa og var að rífa af
dagatalinu, slíkur var munurinn á okkur.“
Stefna hærra í rallinu
Þorsteinn og Witek ætla sér stærri hluti í rallinu í
framtíðinni. Mazdan, sem er fyrrverandi keppnisbíll
rallfeðganna Rúnars og Jóns og nú komin í eigu Fjölnis
Þorgeirssonar, er núna aðeins í 7. sæti yfir bestu bíla ís-
lenska rallflotans; þeir hafa fullan hug á að fá sér öflugri
bíl fljótlega og sáu marga góða gripi úti í Evrópu.
Fróðlegt að sjá hverju kennslan skilar
Kaupin á rallbílum í Evrópu eru auðveldari nú en
áður vegna tollfrelsis á keppnisbílum sem eru þá á
grænum númerum og eingöngu notaðir til íþróttaiðkun-
ar, en eins og svo oft þá er aðalspurningin um fjármögn-
un.
Það verður fróðlegt að sjá hvort kennslustundir hjá
Holek hinum pólska skila þeim Þorsteini og Witek góð-
um árangri í framtíðinni er þeir verða komnir á öflugri
bíl.
Þriðja rallið á Hóimavík um helgina
Þriðja Esso-rall sumarsins fer fram í nágrenni Hólma-
víkur og hefst klukkan 21.00 á fóstudagskvöld með smá
upphitun þegar ekin verður rúmlega kilómetra sérleið,
kölluð Strákaskarð, og er um 7 km frá Hólmavík.
Á laugardagsmorgun klukkan 8.00 hefst alvaran og
eknar verða sérleiðirnar Kaldrananes og Balar sín í
hvora áttina. Eftir matarhlé á Hólmavík verður Trölla-
tunguheiði ekin tvisvar í hvora átt auk Strákaskarðsins
stutta og keppninni lýkur mlli klukkan 16.00 og 17.00.
Sérleiðakílómetrarnir eru samtals 109 og eru 14 ökutæki
skráð til keppni. -ÁS
Knattspyrna
Það er ekki glæsileg
lesning sem blasir við
knattspyrnuaðdáendum
á íþróttasíðu DV þriðju-
daginn 6. júli, Jónas Þór-
hallsson, knattspyrnu-
frömuður í Grindavík
hættur.
Það undrar mig ekki
að sá mæti drengur
Jónas sé orðinn þreyttur
á vinnibrögðum dómara
í knattspyrnunni í ár.
Það eru ekki ófá skipti
sem dómarar hafa hrein-
lega tekið stig af Grinda-
víkingum, því liði sem
Jónas hefur starfað fyrir
og byggt upp síðastliðin
ár.
Það er sorglegt tO þess
að vita að hugsjónamenn
eins og Jónas Þórhalls-
son sjái sér ekki annað
fært en að láta af störf-
um tO þess að reyna að
vekja forystu KSÍ tO
meðvitundar um hversu
dómaramál í íslenskri
knattspymu eru í mikl-
um ólestri. Sjónvarpið
hefur sýnt svo ekki verð-
ur mótmælt að Grindvík-
ingar hafa oft og tíðum
verið að berjast við 14
manna hóp andstæðing-
anna inni á veOinum,
þegar dómari og aðstoð-
ardómarar em taldir
með. Þetta hefur gengið
svo bæði í úti- og heima-
leikjum liðsins.
Þorsteinn Páll Sverrisson og Witek Bogdanski hafa ekið þessari Mözdu
undanfarið en hafa nú selt bílinn. Þeir félagar hyggjast fá sér öflugri bíL og
eiga örugglega eftir að mæta sterkir til leiks eftir kennsluna í Póilandi.
Rangt varfarid með dagsetning-
ar í gær á tveimur aðalfundum,
handknattleiksdeOdar HK og að-
alstjórnar sem era haldnir 13. og
14. júlí klukkan 20.00 í Hákoni
digra en ekki í kvöld og á morg-
un eins og stóð í blaðinu í gær.
Randy Wittmann var í gær ráð-
inn þjálfari hjá Cleveland
Cavaliers í NBA-deOdinni í
körfuknattleik.
Hicham El Guerrouj frá
Marokkó setti í gærkvöld nýtt
heimsmet í mOuhlaupi er hann
kom í mark á 3:43,13 mínútum.
E1 Guerrouj setti heimsmet í
1500 metra hlaupi á sama veUi í
Róm á síðasta ári.
Heimsmet-
hafinn í 100
metra hlaupi
karla,
Maurice
Greene frá
Bandaríkj-
unum, sigr-
aði í 100
metra hlaupi á sama móti og
fékk tímann 9,85 sekúndur. Þar
með jafnaði hann þriðja besta
tíma sem náðst hefur í 100 metra
hlaupi karla frá upphafi.
Michael Johnson sigraði í 200
metra hlaupi á 19,93 sek. Annar
varð Abodele Thompson frá
Barbados á 20,12 sek. og þriðji
heimsmeistarinn Ato Boldon,
Trínidad, á 20,14 sek. -SK/-JKS
iðkuð Vlððf en I Rfijrnjavin
Svo virðist stundum
að þessi vinnubrögð
dómaranna sé hreinn
ásetningur þeirra. Sá
sem þessar línur skrifar
hefur staðið í sömu spor-
um og Jónas er í dag, þá
sem formaður knatt-
spyrnudeildar Reynis í
Sandgerði. Aðalástæða
þess að ég hætti afskipt-
um af knattspyrnumál-
um er sú sama og Jónas
ÞórhaUsson stendur
frammi fyrir í dag.
Þegar framámönnum
KSÍ er bent á þessar stað-
reyndir eru svörin aUtaf
þau sömu. „Þið eru bara
sárir yfir að hafa tapað
leiknum." Þessi orð hafa
forráðamenn KSÍ látið
faUa í þeim tilfeUum þar
sem ég sá mig knúinn tO
að kvarta yfir vinnu- .
brögðum dómara í leOtj-
um míns liðs, þau ár sem
ég var í forystu fyrir
knattspyrnudeild Reyn-
is.
Ekki verið að segja að
aUt sé slæmt í dómara-
gæslumálum KSÍ, en sá
skammtur sem Grinda-
vík hefur fengið í ár er
hliðstæður bví sem við
hjá Reyni fengum hjá
dómurum í mörgum
leikjum okkar í 1. deOd
árið 1997.
Starfsmenn KSÍ geta
ekki endalaust falið sig á
bak við það að menn séu
„bara sárir“ þegar for-
ustumenn félaganna
utan Reykjavikur sjá sig
knúna tO að finna að
vinnubrögðum KSÍ og
þeirra sem þar starfa,
dómara og annarra. Fyr-
ir nokkrum árum síðan
gengum við Jónas á fund
þáverandi formanns KSÍ
EUerts B. Schram vegna
hliðstæðra mála sem
sneru að liðum okkar
beggja. Eftir þann fund
virtist verða breyting á
dómgæslumálum til
batnaðar, því miður
virðist þetta hafa snúist
tO verri vegar á ný.
Það er von min að
knattspyrnan á íslandi
þurfi ekki að sjá á eftir
fleiri slíkum stoðum úr
íslenskri knattspymu
vegna mála eins og hér
koma upp. Er ekki kom-
inn timi tU að KSl-for-
ystan skOji það að það er
iðkuð knattspyna á fleiri
stöðum en í Reykjavík.
Að lokum vO ég lýsa
yfir fuUum stuðningi við
Jónas ÞórhaUsson og
óska honum aUs hins
besta í framtíðinni.
Sigurður Jóhanns-
son, fv. form. knatt-
spymudeildar Reyn-
is Sandgerði.
Úrvalsdeild kvenna 1999:
Sigurgangan
var stöðvuð
- Valskonur fyrstar til að halda hreinu
gegn Vöndu Sigurgeirsdóttur
Valskonur stöðvuðu 13 leikja
sigurgöngu KR-kvenna í úrvals-
deOd kvenna á þriðjudag og urðu
jafnframt fyrsta liðið til að halda
hreinu gegn KR-liðinu i 37
leikjum og enn fremur fyrsta liðið
sem heldur hreinu gegn liði undir
stjórn Vöndu Sigurgeirsdóttur,
þjálfara KR.
Nákvæmlega ár frá síðasta
stigatapi KR-stúlkna
KR-konur töpuðu síðast stigi
fyrir nákvæmlega einu ári, þá
líka á Hlíðarenda, nema að
heimastúlkur tóku þá öll stigin.
KR-konum hefur aldrei gengið
vel á Hliðarenda, aðeins unnið tvo
sigra þar í síðustu 14 leikjum og
þar af aðeins einn (2-0,1997) síðan
sumarið 1994.
KR-liðið hafði fyrir leikinn unn-
ið 13 leiki í röð og 36 af síðustu 37
leikjum og einnig skorað að
minnsta kosti eitt mark í 37 deild-
arleikjum í röð. Síðust til að halda
hreinu gegn KR, líkt og Ragnheið-
ur Jónsdóttir, markvörður Vals,
gerði á þriðjudag, var Blikinn Sig-
fríður Sophusdóttir 20. ágúst 1996
en þá stjórnaði einmitt Vanda
Breiðabliksliðinu.
Fyrsta núllið í 48. leik
Lið undir stjóm Vöndu höfðu
unnið 24 leiki í röð í efstu deild og
aUtaf náð að skora þar tO gegn
Val á þriðjudag að það kom loks
að því í 48. leik hennar sem þjálf-
ari í efstu deUd að boltinn vUdi
ekki inn hjá hennar liði.
-ÓÓJ
Opna Falbory-ísboltamótið
verður haldið á golfvelli Golfklúbbs Setbergs
laugardaginn lO. júlínk.
("Glæsileg verðlaun, með og án forgjafar?\
1. sæti 30.000 kr. vöruúttekt
2. sæti 20.000 kr. vöruúttekt
3. sæti 10.000 kr. vöruúttekt
V^______Þrenn nándarverölaun____J
Skráning í síma 565 5690