Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1999, Side 4
riéiiaiui1
Leiöin til tunglsins:
Kapphlaupið
sem ekki var
- voru sovéskar geimferðir aðeins tannhjól í áróðursvél?
í þessum mán-
uði eru þrjátíu
ár liðin frá því
ódauðleg orð
fyrsta tunglfar-
ems, Neils Arm-
strongs, um lítil skref og risastökk
ómuðu um heimsbyggðina sem
fylgdist andaktug með hinum orð-
heppna Neil og félaga hans Buzz
Aldrin spígspora um í Hafi kyrrðar-
innar á tunglinu í tæplega sólar-
hring. Almennt var álitið að lending
Bandaríkjamannanna á tunglinu
væri endanlegt rothögg Sáms
frænda á trýni rússneska bjamar-
ins en þeir höfðu háð æsilegt kapp-
hlaup áleiðis til stjarnanna í hart-
nær tvo áratugi. Nú á dögum bend-
ir hins vegar ýmislegt til að kapp-
hlaupið hafi verið lítið annað en
orðin tóm.
Geimferðir
Upphaf sjöunda áratugarins var
erfiður tími fyrir bandaríska stjóm-
málamenn. Mörg og stór erfið
vandamál steðjuðu að þeim heima
og heiman. Heima fyrir ólgaði gríð-
arleg kynþáttaspenna, kalda stríðið
stóð sem hæst, innrásin á Svinaflóa
og skömmin sem þeirri hrakfór
fylgdi var þjóðinni enn í fersku
minni og til að bæta gráu ofan á
svart hafði erkióvinurinn, Sovét-
Rússland, orðið fyrri til að koma
manni út í geiminn með Yuri
Gagarín 12. apríl 1961.
I augum heimsins voru Bandarík-
in að heltast úr lestinni í tækni-
kapphlaupinu og Sovét-Rússland yf-
irburðaþjóð á sviði tækni og vís-
inda. Yrði þetta að veruleika væri
þess eflaust skammt að biða að sá
álitshnekkir yrði banabiti þess sem
Bandaríkjamenn elska og meta best,
s.s. „the great American way of
life“.
Loforð aldarinnar
Þannig varð það að aðeins hálf-
um öðrum mánuði eftir geimfór
Sovétmanna gekk John F. Kennedy,
forseti Bandaríkjanna, fram fyrir
skjöldu og hét því að Bandaríkin
myndu koma manni til tunglsins
áður en áratugurinn væri á enda. Á
pókermáli: „Ég sé ykkur og legg allt
undir.“
Yfirlýsing þessi útheimti lausn
gríðarlega flókinna tæknilegra
vandamála og krafðist jafnvel þekk-
ingar sem maðurinn kunni þá ekki
enn skil á og verður að skoða hana
í ljósi þrýstingsins sem hvíldi á
Bandaríkjunum að standa sig í
heimsveldaslagnum.
Það var ekki bara einlægur fróð-
leiks- og framfaraþorsti sem knúði
Kennedy heldur var áætlunin fyrst
og fremst pólitísks eðlis. Sanna átti
í eitt skipti fyrir öll hverjir væru
mestir og bestir.
Sigur á síðum dagblaðanna
Afleiðing hins djarfa loforðs
Kennedys varð enn harðari sam-
keppni Bandaríkjanna og Sovét-
manna í áætlunum tengdum geimn-
um, sem alla tíð hefur verið nefnt
„geimkapphlaupið", „kapphlaupiö
til tunglsins" eða álíka nöfnum. Það
hafði hafist áratuginn á undan og
fyrst komist í hámæli 4. október
1957 með skoti Sovétmanna á gervi-
tunglinu Spútnik. Afrekið kom
heiminum í opna skjöldu. Mánuði
síðar varð tíkin Laika fyrst lifandi
vera út i geim með skoti Spútnik H.
Báðir aðilar áttuðu sig strax á
áróðursgildi geimferða enda færði
Spútnik Sovétmönnum stóran sigur
á því sviði. Voru þeir meðal annars
svo ósvífnir, eftir að bandarísk
Vanguard-eldflaug sprakk í flugtaki
skömmu síðar, að bjóða Bandarikj-
unum aðild að hjálparstarfi sínu við
tæknilega vanþróuð ríki! Áróðurs-
gildiö varð upp frá þessu aðalmark-
mið Sovétmanna.
Kapphlaupið
var ekki kapphlaup
Það virðist sem sé að í raun
réttri sé hæpið að tala um kapp-
hlaup í þessu samhengi. Gögn frá
báðum aðilum sýna að á meðan
Bandaríkjamenn unnu hörðum
höndum við raunhæfar rannsóknir
og þróun tæknibúnaöar drifnir af
loforði Kennedys var Sovétmönnum
fyrst og fremst umhugað um „al-
mannatengslin". Eftir Gagarín varð
Sovétmönnum nefnilega smám sam-
an Ijóst að þeir gætu ekki haldið í
við Bandaríkjamenn, áætlanir
þeirra og tilraunir mislukkuðust og
þeir ákváðu því að fyrst þeir gátu
ekki unnið í raun og veru þá nægði
þeim sigur á síðum dagblaðanna og
í hugum fólksins.
Rússnesk rúlletta
Sovétmenn bjuggu svo vel að
geta hjúpað geimferðaáætlun sína
algerri leynd. Samfélag þeirra var
lokað og ríkið réð því sem það vildi
ráða - í flestum tilvikum öllu.
Þannig sögðu þeir ýmist hálfan
sannleikann eða beygðu hann um-
talsvert þegar þeir tilkynntu heim-
inum sigra sína. Áætlanir þeirra
voru oftar en ekki fljótfærnislegar,
illa hugsaðar og báru vott um virð-
ingarleysi gagnvart mannslífum.
Á grafinu má sjá helstu upplýsingar um för Appollo 11 til tunglslns, áhöfnina, tækni og gerð flaugarinnar. í Vísi fyr-
ir rétt tæpum þrjátíu árum, nánar tiltekið 16. júlí 1969, var fjallað um áhöfnina og birt viðtalsbrot við hana þar sem
komu fram ýmsar skemmtilegar upplýsingar, þ. á m. um hæð og þyngd þeirra (allir á bilinu 175 til 178 sm og 75 kíló),
hjúskaparstöðu (kvæntir fjölskyldumenn) og menntun (Aldrin og Armstrong menntaðir í geimvísindum, Collins út-
skrifaður flugmaður frá herskólanum í West Point).
Þeir Armstrong, Aldrin og Collins áttu það sameiginlegt að vera fáorðir menn og alvörugefnir og pössuðu því vel
inn í hina stöðluðu hetjumynd Bandaríkjamanna, s.s. „the strong, silent type“. Eftir því var tekið þegar Armstrong
kom til íslands sumarið áður tll æfinga að honum stökk varla bros og hann gerði ekki að gamni sínu eins og aðrir
sem þar voru í för.
Þetta er líklega frægasta myndin sem kom með þremenningunum aftur til jarðar, Buzz
Aldrin í gegnum Hasselblad-linsu Armstrongs. Innfellda myndin þarfnast engra
skýringa.
En þær gerðu sitt gagn. Sovét-
menn náðu sínum „Fyrstir til að ..."
- setningum inn í sögubækurnar:
Fyrsta konan í geimnum var rúss-
nesk, Valentina Tereshkova. Hún
var svo illa undirbúin að hún fékk
taugaáfall á braut um jörðu og
þurfti því að snúa aftur heim fyrr
en ella. Málið var þaggað niður.
Sovétmenn áttu sömuleiðis fyrsta
þriggja manna geimflugið. Að mati
almennings höfðu þeir þróað nýtt
geimfar í þeim tilgangi en hið rétta
Sovétmenn urðu fyrstir
út í geim með skoti
gervitunglsins Spútnik
á braut um jörðu.
Strax áttuðu bæði
stórveldin sig á áróð-
ursgildi geimferða.
Voru Rússar meðal
annars svo ósvffnir,;
eftir áð bandarísk
Vanguard-eldflaug
sprakk í flugtaki
skömmu síðar, að
bjóða Bandaríkjunum
aðild að hjálparstarfi
sínu við tæknilega
vanþróuð ríki!... í aug-
um heimsins voru
Bandaríkin að heltast
úr lestinni í tækni-
kapphlaupinu. Yrði
það að veruleika væri
þess eflaust skammt
að bíða að sá álits-
hnekkiryrði banabiti
þess sem Bandaríkja-
menn elska og meta
best, s.s. „the great
American way of life“.
Þá kom Kennedy til
skjalanna.
var að þeir höföu látið nægja að
breyta eins manns fari og troða
þremur þar inn - án geimbúninga.
Hefði geimfarið lekið meðan á flug-
inu stóð hefðu geimfaramir þrir lát-
ist.
Fyrsta geimgangan var einnig
Rússa. Þá var loftlás og strigagöng-
um bætt við hefðbundið Voskhod-
far. Geimfaranum lukkaðist gangan
ágætlega en hann komst ekki aftur
inn í göngin því búningur hans
hafði bólgnað svo mikið út. Hann
neyddist því til að tappa af sér súr-
efni og skríða svo fet í einu áður en
búningurinn þandist aftur út.
Segja má að ef velja ætti íþrótta-
líkingu yfir geimævintýri Rússa á
sjöunda áratugnum ætti gamall og
aldæmdur leikur eiginlega betur við
en „kapphlaup" - nefnilega rúss-
nesk rúlletta.
Hið eiginlega kapphlaup:
USA vs. tíminn
Hið eiginlega kapphlaup á þess-
um árum var þegar allt kemur til
alls sennilega einna helst milli
Bandarikjamanna annars vegar og
tímans hins vegar. Höfðu hinir fyrr-
nefndu tunglið sem marklínu en
hinn siðamefndi árið 1970. Og allir
vita hver kom fyrstur í mark.
-fin
Appollo 11 á lelð til tunglsins.
Á dagskrá einhvern tímann:
Stiklur á tunglinu?
- aldrei aö segja aldrei, segir Ómar Ragnarsson
„Þetta er flugstjórinn sem talar. Við lendum á tunglinu fyrr eða sfðar“ gæti
Ómar Ragnarsson sem best verið að segja á þessari mynd.
Ómar Ragnars-
son, fréttamaður
og skemmti-
kraftur, er eins
og kunnugt er
mikill flugá-
hugamaður og
var á þrítugsaldri þegar Armstrong
steig fæti á tunglið. Hvernig upp-
lifði hann þetta „risastökk mann-
kynsins"?
„Mér fannst þetta alveg stórkost-
legt ævintýri - eins og flestum öðr-
um jarðarbúum sem fylgdust með
þessu."
Var mikill áhugi fyrir geimferð-
inni á íslandi?
„Ég held að í fáum löndum hafi
áhuginn veriö meiri vegna þess að
tveimur árum áður höfðu geimfar-
arnir komið til íslands til þess að
æfa sig og íslendingar fylgst með
þeim þá. Þeir fóru í Öskju og ég
minnist þess að Ameríkanarnir
voru sérlega hrifnir af því hvað
Rússajepparnir voru góðir. Þeir
fjöðruðu svo miklu betur en þeirra
eigin Willy’s. Koma þeirra vakti
mikla athygli og undirbjó jarðveg-
inn fyrir hina raunverulegu ferð.“
Fáránlegir fram
tíðarloftkastalar
í dagblöðum frá þessum tima má
sjá að gert var ráð fyrir miklu
meira landnámi á tunglinu en síðar
varð raunin. Vonast var til að inn-
an sex ára, eða 1975, yrðu komnar
þar upp griðarstórar mannaðar
geimstöðvar og jafnvel var rætt um
ferðir til annarra pláneta. Hvaða
vonir gerði fólk sér til mannaðra
geimferða í kjölfar þessarar tíma-
mótaferðar? Var ekki mikil bjart-
sýni og sóknarhugur ríkjandi?
„Jú, svo sannarlega. Mér fannst
að minnsta kosti ótrúlegt hversu vel
þessi ferð hafði heppnast. En fólk
var almennt vel upplýst um það að
ekki voru raunhæfir möguleikar þá
á mönnuðum geimferðum til ann-
arra stjama vegna hinna gífurlegu
fjarlægða. Hins vegar leist fólki vel
á þann möguleika að senda könnun-
arflaugar til annarra reikistjarna -
sérstaklega til Mars til að rannsaka
þar fyrirbæri líkt og „skurðina"
sem ítalskur vísindamaður taldi sig
hafa séð en síðar kom í ljós að voru
náttúrlega ekki af manna höndum."
Ómar segir að á hans sokka-
bandsárum hafi flestir átt erfitt með
að sjá fyrir sér þau afrek sem tækn-
in gerir kleift að vinna. Þá flokkuðu
flestir svo háleit áform sem ferðir út
í geim í besta falli undh- bjartsýni
eða óraunhæfan vísindaskáldskap.
„Árið 1954, að mig minnir, haíði
ég hlýtt á erindi í útvarpinu um
geimferðir og eldflaugarskot. Mér
og mörgum öðram sem þetta heyrðu
fannst þetta alveg fáránlegir fram-
tíðarloftkastalar. Þá var reyndar
alls ekki reiknað með að neinu lif-
andi yrði skotið út í geim fyrr en í
fyrsta lagi eftir sirka tuttugu ár.
Þannig var skotið 1957, þegar
Rússar settu tíkina Laiku á braut
um jörðu, nánast ótrúlegur atburð-
ur. Tunglferðin ‘69 var ekki eins
stórt stökk því fólk var búið að fylgj-
ast svo lengi með aðdragandanum
og hún var fyrst og fremst endanleg
sönnun þess að Bandaríkjamenn
voru komnir fram úr Rússum á
tæknisviðinu.“
Spútnik og kjarnorku-
sprengjan minnisstæðust
Að mati Ómars stendur tvennt
upp úr í tækniframfórum á hans
ævi.
„Þá á ég við stór og óvænt stökk
sem enginn átti von á og fólk stóö
agndofa yfir. Annað er Spútnikskot
Rússa. Hitt er kjamorkusprengjan
1945. Þó ég væri bara fimm ára man
ég gjörla hvað fólk hrökk við þegar
það sá eyðingarmáttinn sem hún
bjó yfir. Svo þegar Rússar urðu
kjarnorkuveldi 1949 og kjarnorku-
kapphlaupið hófst magnaðist nátt-
úrlega þessi uggur enn frekar.“
Nú þegar almenningsferðir til
tunglsins eru sífellt líklegri mögu-
leiki, hvernig litist þér á að fá
kannski tækifæri til að gera Stiklu-
þátt um tunglið?
„Maður skyldi aldrei segja aldrei.
Ég hitti til dæmis mann á flugsýn-
ingu í Bandaríkjunum í hittifyrra
sem var einmitt að undirbúa einka-
ferðalög til tunglsins. Að hans sögn
eru ekki nema tvö þrjú ár í það.“
Átt þú pantað far með honrnn?
„Nei, reyndar ekki, en þeir sem
eiga peningana til þess ættu bráðum
að geta leyft sér þessar ferðir. Við
hin verðum líklega að bíða örlítið
lengur." -fln
Árið 1954, að mig
minnir, hafði ég hlýtt á
erindi í útvarpinu um
geimferðir og eldflaug-
arskot. Mér og mörg-
um öðrum sem þetta
heyrðu fannst þetta al-
veg fáránlegir framtíð-
arloftkastalar. Þá var
reyndar alls ekki reikn-
að með að neinu lifandi
yrði skotið út í geim
fyrr en í fyrsta lagi eftir
sirka tuttugu ár.
* -j
■JbJÚlf
:
Vísir fyrir 30 árum:
Tortúr fyrir skáldin
- skemmtilegt ef svo væri en ekki yrkisefni, sagöi Halldór Laxness
Forsíða Vísis mánudaginn 21. júlí
1969.
Uppsláttarefni
Vísis mánudag-
inn 21. júlí 1969
kemur ekki á
óvart enda for-
síður dagblaða
víðast hvar í
heiminum líklega allar á sömu lund
þann dag. Á baksíðunni var fyrir-
sögnin „Við kom-
um með friði í
nafni alls mann-
kyns“ en þau orð
stóðu á fánastöng
sem geimfararnir
settu upp á tungl-
inu. Einnig er sagt
nánar frá þvi hvað
þeir félagamir tóku
sér fyrir hendur
meðan á dvölinni
LÍÍJJJJJ
stóð. Aldrin skokkaði um eins og
„rugby" leikmaður, segir blaðið, og
tók nokkur dansspor að auki. Arm-
strong ræddi í síma við Nixon for-
seta um heimsins gagn og nauðsynj-
ar og gratúleruðu þeir hvor öðrum
með þann heiður að eiga frægasta
símtal sögunnar. Frásögn blaðsins
var sönn og rétt utan eins. Þar stóð
að þeir félagar myndu skilja eftir
uppréttan fána Bandaríkjanna. Svo
fór nú ekki því að flaggið datt um
koll í látunum þegar geimferjunni
var skotið á loft aftur. Táknrænt...?
Væri ég skáld ...
Það hefði nóbelsskáldinu að
minnsta kosti einhvem tímann
fundist. Þegar hann var inntur álits
á tunglævintýrinu sagðist hann jú
hafa fylgst með því „eins og hvurj-
um öðrum fréttum". Aðspurður
sagðist hann ekki sjá að atburður-
inn markaði einhver þáttaskil eða
önnur í sögu mannkynsins en tók
þó fram: „Mér finnst auðvitað bless-
unarlegt að mennirnir skuli hafa
lent þarna óskaddaðir."
Enn fremur var Halldór spurður
hvort hann teldi þetta hafa ein-
hverja þýðingu fyrir skáldin. Svar-
ið: „Kannski. Það er skemmtilegt ef
mennimir hafa lagt á sig þennan
tortúr fyrir skáldin. Ég er ekki
skáld, en væri ég skáld þá væri
þetta það síðasta sem ég myndi
yrkja um.“ -fln
Ég er ekki skáld, en
væri ég skáld þá væri
þetta það síðasta sem
ég myndiyrkja um,
sagði Halldór Laxness.
Bresk geimferðaáætlun frá 1937:
Maður með kaffi í stað tölvu
- og lúxusmatur fyrir geimfarana
För Bandaríkja-
manna var ekki
sú fyrsta sem
skipulögð var
til tunglsins.
Breska stjam-
til dæmis lagt
drög að könnunarferð til tunglsins
þremur áratugum áður en nauðsyn-
leg tækni til verksins var komin
fram, þ. á m. var eldflaugatækni
mjög skammt á veg komin og ekkert
vitað um aðstæður í geimnum. Ým-
islegt í áætluninni, sem var skyn-
samlega fram sett og hugsuð í þaula,
nýttist hönnuðum Appollo vel síðar
meir, til dæmis það að láta geimfar-
ið lenda lóðrétt á réttum kili með
aðstoð stýrieldflauga svo hægt væri
að fljúga því upp aftur.
Búningarnir áttu að vera rafhit-
aðir, úr sterku gúmmíi og leðri með
rúmgóðum hjálmi og súrefnisgeymi
á baki. Eins og sönnum Bretum
sæmir var geimforunum ekki hugað
neitt tros til matar úti í geimnum og
vel hugað að næringargildinu:
Brauð og smjör, ostur, búðingur,
kakó og súkkulaði var undirstaðan
en til að forðast einhæfni var einnig
gert ráð fyrir rúsínum, hunangi,
skinku og laxi!
Kaffi átti einnig að vera með en í
praktískum tilgangi eingöngu til
þess að forðast það að siglingafræð-
ingar sofnuðu yfir flóknum útreikn-
ingum sínum því á þessum tíma
stóð jafnvel ekki geimfórum sá lúx-
us til boða að láta tölvurnar um hit-
una. -fin
fræðifélagið haíði
y
t