Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1999, Síða 4
22
FIMMTUDAGUR 22. JULI 1999
Sport
i>v
Bland í nolca
imarkahrókur en í 218 leikjum
| fyrir Dortmund skoraði hann
1102 mörk.
Svissneski knattspyrnumaður-
inn Stephan Chapiusat, sem
leikið hefur með þýska A-deild-
arliðinu Dortmund undanfarin 8
ár, er genginn til liðs við sviss-
neská A-deildarliðið Grasshopp-
ers. Chapuisat, sem á að baki 73
landsleiki fyrir Sviss, er mikill
Lothar Matt-
haus, hinn
mjög svo leik-
reyndi leik-
maður Bay-
ern Miinchen,
segir mjög
líklegt aö
hann gangi í raðir MetroStars,
sem leikur í bandarisku atvinnu-
mannadeildinni, í janúar á
næsta ári. Mattháus, sem á enn
eitt ár eftir af samningi sinum
við Bæjara, er enn að spila með
landsliðinu og verður fyrirliði
þess í álfukeppninni sem hefst á
laugardaginn meö leik Þjóðverja
og Brasilíumanna.
Spœnska stórliðió Real Ma-
drid bætti enn einum ieikmanni
í sínar raðir í gær en þá keypti
liðið brasilíska varnarmanninn
Julio Cesar. Þetta er 20 ára gam-
all miðvörður sem leikið hefur
með Valladolid á Spáni. Hann er
sjöundi nýi leikmaðurinn í her-
búðum Madrídarliðsins en hinir
sex eru: Steve McManaman, El-
vir Balic, Edwin Congo, Ger-
emi, Njitap, Michael Salgado
og Ivan Helguera. Keppnistíma-
bilið á Spáni hefst 22. næsta
mánaöar.
Manchester Vnited sigraði kin-
verska liðið Shenuha, 0-2, í æf-
ingaleik í gær en liðið er i æf-
ingaferð i Austurlöndum. Það
voiu Teddy Sheringham og Ole
Gunnar Solskjœr sem skoruðu
mörk meistaranna. Þetta var
þriðji leikurinn þar-sem Ástral-
inn Mark Bosnich stendur á
miHi stang-
anna hjá
United og
hann hefur
enn ekki
fengið á sig
mark.
Þórður Guðjónsson skoraði 2
mörk fyrir Genk þegar liðið sigr-
aði hollenska liðið Roda, 3-2, i
æfmgaleik um síðustu helgi. -GH
Nýr FIFA-listi:
ísland áfram
í 46. sæti
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu er í 46. sæti á nýjum
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins sem geflnn
var út í gær. Þetta er sama sæti
og íslendingar voru í fyrir mán-
uði en liðið hefur ekkert leikið
frá því síðasti listi kom út.
Frá því um síðustu áramót
hefur íslenska landsliðið hækk-
að um 18 sæti en liðið var í 64.
sæti í lok desember.
Engar breytingar eru á fimm
efstu þjóðunum. Nýkrýndir Am-
eríkumeistarar, Brasilíumenn
styrktu stöðu sína í toppsætinu
en á eftir koma heimsmeistarar
Frakka og Tékkar koma svo í
þriðja sætinu.
Staða 20 efstu þjóðanna er
þessi, í sviga fyrir aftan er stað-
an fyrir mánuði síðan:
1. Brasilía . 835 (1)
2. Frakkland . 762 (2)
3. Tékkland . 753 (3)
4. Ítalía . 726 (4)
5. Þýskaland . 720 (5)
6. Argentina . 719 (8)
6. Krótaía . 719 (7)
8. Spánn . 714 (6)
9. Rúmenía . 694 (9)
lO.Noregur 690 (11)
ll.Mexíkó 688 (14)
12.Portúgal 682 (12)
13.Holland 680 (10)
14.England 672 (13)
15.Svíþjóð 666 (15)
16.Paragvæ 647 (21)
17.Danmörk 632 (17)
18.Kólumbía 629 (32)
19.Marokkó 626 (18)
20.Austurrlki 625X19)
46.ísland 532 (46)
46.Ghana 532 (46)
48.Ungverjaland 531 (46)
49.Trinidad 529 (60)
50.1ran 527 (44)
Úrúgvæ upp um 32 sæti
Landslið Úrúgvæ, sem tapaði
fyrir Brasilíu í úrslitaleik Amer-
íkukeppnninnar, er hástökkvari
listans að þessu sinni en Úrúgvæ
fer upp um 32. sæti, úr 74. sæti í
það 42. Perú fer upp um 24 sæti
og er í 41. sæti og þá taka
Kóiumbíumenn stórt stökk en
þeir fara upp um 14. sæti, úr 32.
sæti í það 14.
Af öðrum þjóðum má nefna að
Finnar eru í 59. sæti, N-írar í 70.
sæti og Færeyingar í 104. sæti en
þeir hafa hækkað um 21 sæti frá
þvi um áramót.
-GH
1. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu:
y ;. 'if - C1 a - .-V
Hjalti Jóhannesson og Baldur Bragason sameinast um að stöðva Sokol Prenga, sóknarmann SK Tirana, í leiknum í
Albaníu í gær. Reuter
ÍBV er komið í 2. umferð í for-
keppni meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu eftir sigur, 1-2, gegn al-
banska liðinu SK Tirana í síðari
leik liðanna í Tirana í gærkvöld.
ÍBV vann einnig fyrri leikinn í Eyj-
um, 1-0, og því samanlagt, 3-1. ÍBV
mætir í næstu umferð ungverska
liðinu MTK Búdapest og verður
fyrri leikurinn í Eyjum í næstu
viku.
Frammistaða Eyjamanna er góð
þegar mið er tekið af erfiðu ferða-
lagi og aðstæðum á leikstað en í
kringum 30 stiga var meðan á leikn-
um stóð.
„Mjög ánægður"
„Ég er mjög ánægður með að lið-
ið skuli vera komið áfram. Eftir
leikinn heima og eftir að skoða
þann leik á myndbandi vel og vand-
lega sá ég að við áttum möguleika
gegn þeim hér úti. Við gerðum tvö
mörk úr skyndiupphlaupum í fyrri
hálfleik og gátum síðan hæglega
bætt við fleiri mörkum í síðari hálf-
leik en heppnin var bara ekki með
okkur. Við lékum síðari hálfleikinn
mjög agað og pössuðum að þeir
hleyptu ekki leiknum upp. Þeir
sóttu þó meira en í fyrri háifleik en
sköpuðum sér aldrei hættuleg tæki-
færi. Ég tel okkur eiga jafna mögu-
leika gegn MTK Búdapest í næstu
umferð. Ég þekki raunar mótherj-
ann lítið en ég mun skoða hann
nánar eftir að heim verður komið,“
sagði Bjami Jóhannsson, þjálfari
ÍBV, við DV eftir leikinn í Tirana í
gærkvöld.
Liðsmenn albanska liðsins mættu
dýrvitlausir til leiksins en eftir
tuttugu minútna leik var sem allur
vindur væri úr þeim. Eyjamenn
komust æ meir inn í leikinn og það
var Steingrímur Jóhannesson sem
skoraði fyrra mark Eyjamanna á 33.
mínútu. ívar Bjarklind lagði bolt-
ann vel fyrir Steingrím sein skoraði
af stuttu færi.
Falleg og vel útfærð mörk
Á lokamínútu fyrri hálfleiks
bætti Ingi Sigurðsson við öðru
marki. Vörn Albananna var sundur-
tætt, Guðni Rúnar Helgason átti
góða sendingu fyrir markið, og þar
kom Ingi Sigurðsson aðvíðfandi og
skoraði með skcilla. Það var sérlega
vel að þessu marki staðið.
I síðari hálfleik fengu Eyjamenn
nokkur tækifæri til að bæta við
fleiri mörkum. í tvígang varði
markvörður SK Tirana mjög vel frá
Steingrími Jóhannessyni og hjól-
hestaspyma ívars Bjarklinds fór
rétt fram hjá markinu. Það var síð-
an átta minútum fyrir leikslok sem
Sokol Bulku minnkaði muninn með
góðu skoti.
Liðsheildin var sterk hjá ÍBV í
leiknum og það var öðru fremur
hún sem skóp þennan sigur. Liðið
lék enn fremur mjög agað frá fyrstu
mínútu til þeirra síðustu.
Lékum snjallan og skyn-
samlegan leik
„Við lékum snjallan og skynsam-
legan leik og þetta var raunar aldrei
spuming eftir að við náðum tveggja
marka forystu. Þeir urðu að sækja
eftir tapið í Eyjum og það gaf okkur
vissa möguleika. Fyrir vikið sóttum
við hratt og náðum upp úr því að
skora tvö mörk í fyrri hálfleik. Satt
best að segja átti ég von á þeim
grimmari en þeir sóttu að vísu
nokkuð stíft í byrjun en við tókum
vel á þeim,“ sagði Hlynur Stefáns-
son, fyrirliði ÍBV, í spjalli við DV
eftir leikinn.
Hlynur sagði að í síðari hálfleik
hefði ÍBV verið nær því að bæta við
en Albanamir að jafna metin.
„Næstu mótherjar eru sterkir.
Þetta er stöndugur klúbbur sem ver-
ið hefur að kaupa sterka leikmenn.
Við ætlum að vinna þá og koma
okkur í 3. umferð," sagði Hlynur.
-JKS
íslandsmótið í götuhjólreiðum:
Einar stakk af
Einar Jóhannsson varð ís-
landsmeistari i A-flokki í
götuhjólreiðum eftir mjög
hraða og erfiða keppni sem
fram fór á sunnudaginn.
Keppnisleiðin var mjög
krefjandi að þessu sinni og
var farið frá Reykjavík, yfir
Hellisheiði, niður Kamba og
upp Þrengsli þar sem enda-
mörk voru við Suðurlands-
veg, alls um 63 km. Einar
ásamt Styrmi og Gunnlaugi
náðu að slíta sig lausa frá
öðmm keppendum við Kol-
viðarhól og hjóluðu þeir
saman þar til í Þrengsla-
brekku er Einar tók á hon-
um stóra sínum og hjólaði þá
af sér og renndi einn í mark.
Gunnlaugur og Styrmir
háðu mikla baráttu um ann-
að sætið sem Styrmir vann.
í öðram flokkum urðu úr-
slit þau að Guðmundur Guð-
mundsson sigraði í B-flokki,
Emil Guðmundsson sigraði í
flokki 16-18 ára. í kvenna-
flokki var það Hildur Dröfn
Guðmundsdóttir sem kom í
mark ein keppenda á góðum
tíma en því miður voru ekki
aðrar konur með að þessu
sinni. Úrslit:
A-flokkur, 63 km.
1. Einar Jóhannsson 110,49
2. Styrmir G. Ólafsson 112,34
3. Gunnlaugur Jónasson 112,34
B-flokkur, 50 km.
1. Guðmundur Guðmundss. 88,38
2. Skúli Magnússon 92,35
3. Martial Nardeau 119,19
16-18 ára, 40 km.
1. Emil Guðmundsson 76,28
2. Haukur M. Sveinsson 76,28
3. Bjarki Bjamason 84,06
Kvennaflokkur, 40 km.
1. Hildur Guðmundsdóttir 99,08
-GH
SK Tirana- ÍBV (0-2) 1-2
0-1 Steingrímur Jóhannesson (33.)
0-2 Ingi Sigurðsson (45.)
1-2 Sokol Bulku (82.)
Lió ÍBV: Birkir Kristinsson - Guðni
Rúnar Helgason, Hlynur Stefánsson,
Zoran Miljkovic, Hjalti Jóhannesson
- ívar Ingimarssqn, Baldur Bragason,
Goran Aleksic (fvar Bjarklind 20.) -
Ingi Sigurðsson (Bjami Geir Viðars-
son 70.), Allan Mörköre (Sindri Grét-
arsson 75.), Steingrimur Jóhannes-
son.
Gul spjöld: Steingrímur, Miljkovic.
Áhorfendur: Um 5.000.
Dómari: ftalskur og dæmdi vel.
Aöstœður: Völlurinn góður og hitinn
um 30 gráður.
Goran Aleksic meiddist eftir 20 mín-
útur, fór úr axlarlið og gæti orðið frá
i 2-3 vikur. ívar Bjarklind, sem var
með magakveisu daginn áður, kom
itin á og stóð sig með prýði.
-JKS
Úrslitastund í
mótorkrossi
Úrslitin í íslandsmót-
inu í mótorkrossi ráðast
á splunkunýrri braut
við Lyklafell en keppnin
fer fram á laugardag og
hefst klukkan 14.
Vélhjólaíþróttaklúbb-
urinn hefúr fengið út-
hlutað landi undir braut
í graslendi við rætur
Lyklafells, sem er beint
á móti flugvellinum á
Sandskeiði.
Verður þessi keppni
haldin á nýju brautinni
sem mun vera mun
skemmtilegri en sú fyrri
og bjóða upp á betra
undirlag. Allt getur enn
þá gerst í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn.
Ragnar Ingi Stefánsson
leiðir íslandsmótið með
120 stig en næstir eru
Reynir Jónsson með 98,
Viggó Viggósson 94.
Það þarf ekki nema
eina bilun, þá gæti
Raggi misst af titlinum.
Keppnin hefst klukkan
14 á laugardaginn og má
búast við að næstu
menn leggi allt í sölurn-
ar til að leggja hann að
velli.
-NG