Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1999, Side 2
34 bílar
LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 1999 JLlV
Reynsluakstur - langbakurinn Renault Mágane Break:
Góðir aksturseiginleikar og rými
Mégane-bUamir frá Renault, sem
tóku við af 16-línunni fyrir flórum
árum, voru framleiddir í fjölbreyttari
útgáfum en fyrirrennarinn: stallbakur,
hlaðbakur, kúpubakur, að ógleymdum
fjölnotabílnum Scénic sem fullyrða má
að hafl orðið vinsælastur þeirra alira og
hefur Mégane þó fengið afar góðar við-
tökur. Og raunar fylgir Mégane-nafnið
ekki lengur Scénic-bílnum heldur er
hann orðinn sjálfstæð eining sem styrk-
ist enn á vetri komanda þegar aldrifs-
bíllinn Scénic Rx4 bætist í flotann.
En það var sem sé nú á miðju þessu
ári sem langbakurinn Break bættist í
Mégane-flölskylduna. Að sumu leyti má
segja að Scénic-flölnotabíllinn hafi upp-
fyllt þá þörf sem ef til vill var fyrir lang-
bak af þessari flölskyldu þar sem hann
má að verulegu leyti nota tfl svipaðra
þarfa og langbakinn. Þó er munur á
þessum bílum og langbakurinn lýtur öll-
um hefðbundnum lögmálum þeirrar út-
færslu og er sem slíkur likari fólksbíl,
en það er einmitt nokkuð sem reynt er
að leysa flölnotabilinn frá.
Fullmikið veghljóð
Mégane Break er framleiddur í verk-
smiðju Renault í Tyrklandi og er boðinn
hér með 1,6 lítra 107 ha. vélinni sem upp-
fylfir svokallaðan Evró 2005 staðal hvað
varðar vistmildi og spameytni. Enn sem
komið er fæst bíllinn aðeins með hand-
skiptingu en það er í sjálfu sér ekki slæm-
ur kostur: skiptingin er létt og lipur og
bíllinn einkar auðveldur í akstri. Meira
en það, hann er ljúfur í meðfórum, frísk-
BIFR EIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Honda CRV RVi, 5 g., '98,
blár, ek. 21 þ. V. 2.150.000
Toyota Corolla 4x4,1,8, '98,
rauður, ek. 28 þ.V. 1.370.000
Honda Accorrt EXI, ssk„ 4 rt. '01 102 b. 780 b.
Honrta Accorrt LSI, ssk.. 4 d. '05 100 b. 1.250 b-
Honda Clvlc Sl, ssk., 4 d. '07 33 b. 1.150 b.
Honda Clvlc LSI, 5 g., 5 d. A 22 b. 1.570 b.
BMW 316IA ss., 4d. 26 b. 1.850 b
BMW 520IA, ssk., 4 d. '92 120 b. 1.050 b.
Citroln XM turbo, 5 g., 5 d. '93 138 b. 890b.
Dallralsu Terlos 4x4, ssk„ S rt. '98 14 h. 1.390 b.
Jeep Granrt Cherokee, ssk„ d. '93 80 6. 1.550 b.
MMC Lancer, 5 o„ 4 rt. '91 92 6. 499 b.
MMC Lancer ssk., 5 d. 92 58 b. 640 b.
MMC Lancer GL, 5 g„ 4 d. '93 115 b. 590 b.
MMC Lancer sl, 4x4,5 d. '93 89 b. 799 b.
MMC Spacewagon, ssk., 5 d. '93 137 b. 990 b.
Nlssan Almnra. ssk.,4d. '97 21 6- 1.050 b.
Suzukl Sldeklck, 5 o„ 8 rt. '93 105 b. 870 b.
Toyola Axensls, 5 o„ 5 d. '98 26 h. 1.480 b-
Toyola Corolla, ssk„ 4 d. '92 117 h. 730 b.
Toyota Corolla, ssk., 4 d. '96 49 h. 950 b.
Toyota Corolia GL, 5 g., 4 d. '92 113 b. 760 b.
Tovola Corolla GL, 5 g„ 3 d. '92 73 b. 790 b.
Tovola Corolla G6,31. '98 42 h. 1.190 b.
Tovota Corolla XL. 5 o„ 6 rt. '97 40 b. 1.090 b.
Toyota Touring 4x4, 5 g., 5 d '91 130 b. 620 b.
Tovota 4Runner 4x4, 5 o„ 5 . '91 107 b. 1.090 b.
Volvo S40, ssk., 4 d. '96 21 h. 1.820 b.
Volvo V40 station ssk., 5 d. '97 22h 1.950 b.
VWVentoGL ssk., 4d. '93 50 b. 990 b.
Rhonda
NOTAÐIR BÍLAR
Vatnagörðum 24
Sími 520 1100
Aðgengi að Mégane Break er gott og þægilegt að umgangast bílinn.
ur og liggur vel. Rými í honum er aligott
í framsætum og vel viðunandi í aftursæti.
Farangursrými er prýðilegt, 460 lítrar
með aftursætið uppi, 1600 með aftursætið
fellt, og það er með því allra besta í þess-
um stærðarflokki langbaka.
Nokkur Ijóður er á ráði Mégane Break
hve mikið veghljóð er i honum. Þetta er
ekki síst áberandi í aftursæti og fólk þarf
að brýna sig nokkuð til að halda uppi
eðlifegum samræðum miili fram- og aft-
ursæta þegar kemur út á þjóðvegu lands-
ins. Vindhljóð er líka fulláberandi i aftur-
sætum, líkt og afturhurðimar lokist ekki
nógu vel, sem þó er ekki raunin. Vélar-
hljóð er hins vegar ekki teljandi.
Býsna vel búinn bíll
Það verður ekki af Mégane Break skaf-
ið að hann er vel búinn bíll. Líknarbelgir
eru flórir, tveir að framan og tveir á hlið,
og árekstursstyrkingar allar á þann veg
Með langbaknum Break er Mégane-fjöl-
skyldan frá Renault loks fullsklpuð.
Myndir DV-bílar, Teitur.
búnaður og gott rými. Verðið verður hins
vegar að skoða með tilliti til búnaðar
bilsins: 1.558.000 krónur.
-SHH
Nokkrar tölun
Vél: 4 strokka, 1598 cc, 107 hö. v. 5750
sn.mín., 148 Nm v. 3750 sn.mín. Eyðsla
skv. megmlandstaðli 5,9-9,61 á 100 km,
hröðun 0-100 10,3 sek.
5 gíra handskipting.
Fjöðrun: MacPherson með klofaspym-
um framan, að aftan langarmar með
snerilflöðrun og jafnvægisstöng.
Hemlar: Diskar framan, skálar aftan,
læsivöm.
Lengd-breidd-hæð: 4400-1700-1420 mm,
hjólahaf 2580 mm.
Farangursrými: 480/16001.
Eigin þyngd: 1125 kg.
Hjólbarðar: 175/65R14.
Verð kr. 1.558.000.
Umboð:
Bifreiðar og landbúnaðarvélar.
Mégane-bilarnir hafa fengið andlitslyft-
ingu og eru nú allir með sams konar
framenda.
að Mégane-bílamir sem slíkir hafa allir
komið ákaflega vel út úr öllum áreksturs-
prófum. Sætisbelti á framsætum era hæð-
arstiflahleg kippibelti með dempara.
Hann er með læsivarðar bremsur og akst-
urstölvu sem gefur hinar ýmsu upplýs-
ingar um vegalengdir og eldsneytisnotk-
un. Eins og aðrir Renóar er Mégane
Break með nærstýringu fyrir útvarpið,
svo nærri stýrinu að auövelt er að stjóma
útvarpinu með fmgri án þess að taka
hönd af stýri. Þá er hann með aksturs-
tölvu sem gefur upplýsingar m.a. um hve
langt bíilinn kemst á því eldsneyti sem
eftir er, hver meðaleyðslan er þessa
stundina, meðalhraðinn og annað þvilikt.
Auk þess má gefa aukaplús fyrir að bíll-
inn er með innbyggðan útihitamæli.
Afturrúðuþurrkan er skynvirk þannig
að hún fer af stað þegar sett er í bakkgír
ef bleyta er á rúðunni. Break hefur góða
og langdræga flarlæsingu sem sýnir með
Nokkrir langhaliar áþakkrar sterðar
Lengd Breidd Hæö Hjólahaf Farangursr. Vélarstærð Verö frá kr.
Corola 4320 1690 1445 2465 480/800 1,6 cc 110 hö 1.489.000
Elantra 4450 1700 1460 2550 360/1260 1,6 cc 110 hö 1.495.000
Focus 4438 1702 1451 2615 520/1580 1,6 cc 100 hö 1.733.000
Honda Civlc 4425 1695 1440 2620 405/907 1,5 cc 115 hö 1.598.000
Marea 4490 1740 1510 2540 500/1560 1,6 cc 103 hö 1.495.000
Megane Break 4440 1700 1420 2580 480/1600 1,6 cc 107 hö 1.558.000
Nublra II 4550 1720 1470 2570 550/1840 1,6 cc 106 hö 1.490.000
Peugeot 306 4345 1690 1410 2580 440/1510 1,6 cc 90 hö 1.450.000
Baleno 4375 1690 1460 2480 380/1370 466/1425 1,6 cc 96 hö 1,6 cc 100 hö 1.495.000
Golf 4340 1695 1430 2475 1.496.000
Volvo V40 4480 1720 1390 2550 413/1421 1,6 cc 100 hö 1.978.000
ljósum þegar læst er eöa lokið upp. Hann
er með góð kortaljós og þrjú bremsuljós,
og er þá nokkuð upp talið.
í heild er Mégane Break afar hefðbund-
inn bílL Helsti kostur hans er sem fyrr
segir prýðilegir aksturseiginleikar, góður
Mælaborðið er næsta hefðbundið
að öðru leyti en því að skjár akst-
urstölvunnar er inni í heildarklas-
anum og liggur eðlilega við sjón-
sviði ökumannsins. Það er meira
en sagt verður um þá suma.
Hyundai XG 30 sýndur um helgina
Lúxusbíllinn Hyundai XG 30 verður sýndur hjá Bifreiðum og landbúnaðar-
vélum nú um helgina. Þetta er að grunni til sami bíllinn og XG 25 sem sagt
var frá í DV-bílum 28. ágúst síðastliðinn, nema hvað þessi er með stærri vél
og mun meira borið í hann, t.d. er hann ieðurklæddur.
B&L efndu til svipaðrar ævintýraferðar í fyrra fyrir Land Rover eigendur sem þótti takast af-
bragðsvel.
Land Rover eigendur í ævintýraferð:
Fara á fiöil
og í hella
í dag eru Land Rover eigendur í flallaferð sem Land
Rover umboðið Bifreiðar & landbúnaðarvélar skipu-
leggur. Ferðinni er heitið um Kaldadal að Langjökli og
þaðan að stærsta hraunhelli á íslandi, Víðgelmi. Grillað
verður í Húsafelli og skipuleggjendur ferðarinnar eiga eitt
og annað uppi í erminni til að gleðja þátttakendur með og
skemmta þeim.
Að sögn Karl Óskarssonar hjá B&L var þátttakan
geysigóð og margir höfðu skráð sig til fararinnar þegar
um miðja vikuna.