Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1999, Blaðsíða 1
19
Chelsea
beittara
í 0-0
jafntefli
<3£>
Kristinn með ÍBV
- eðlilegt framhald af störfum hans, segir formaðurinn
í gær var gengið frá ráðningu
Kristins Rúnars Jónssonar sem
næsta þjálfara meistaraflokks ÍBV
karla. Tekur hann við af Bjarna Jó-
hannssyni sem stýrt hefur liðinu
síðastliðin þrjú ár.
Jóhannes Ólafsson, formaður
knattspymudeildar ÍBV, sagði ráðn-
inguna eðlilegt framhald af störfum
Kristins hjá félaginu undanfarið.
„Kristinn hefur verið aðstoðar-
þjálfari meistaraflokks síðustu tvö
sumur og þjálfað annan flokk. Krist-
inn hefur verið að gera það gott með
strákana. Þarna eigum við efnilega
stráka sem verða teknir grimmt inn
næsta sumar. Kristinn þekkir þessa
stráka mjög vel sem nýtist honum
sem þjálfara meistaraflokks. Þó að
við ætlum að stefna meira á heima-
menn er ekki þar með sagt að við
ætlum að slá af kröfunum. Við urð-
um íslandsmeistarar tvö ár í röð og
unnum tvöfalt í fyrra. Þessir titlar
verða áfram takmarkið," sagði Jó-
hannes við DV í gær.
Bjami Jóhannsson stýrir ÍBV í
síðasta sinn gegn ÍA á Hásteinsvelli
á laugardaginn. Undir hans stjórn
varð ÍBV íslandsmeistari 1997 og
1998 og bikarmeistari 1998. Jóhannes
segir að stjórnin sé þakklát Bjarna
fyrir gott starf.
Kristinn er 35 ára og best þekktur
sem leikmaður en hann lék um ára-
bil með Fram, alls 171 leik með félag-
inu í efstu deild og lék 11 landsleiki.
Kristinn lagði skóna á hilluna eftir
timabilið 1996 en þá tryggðu Fram-
arar sér sigur í 1. deildinni.
Kristinn hefur einnig þjálfað
yngri flokkana hjá Fram og stýrði 3.
flokki félagsins til íslandsmeist-
aratitils árið 1997 áður en hann gerð-
ist aðstoðarmaður Bjama.
Ekki er reiknað með miklum
breytingum á liði ÍBV. Þó gætu mið-
verðirnir reyndu, Hlynur Stefánsson
og Zoran Miljkovic, farið en sam-
kvæmt heimildum DV eru þeir báð-
ir í sigtinu hjá öðram félögum sem
spilandi þjálfarar. Enn fremur er
ólíklegt að ÍBV haldi Goran Aleksic
þar sem lið hans í Júgóslavíu,
Cukaricki Belgrad, sem lánaði hann
til ÍBV, hefur hug á að selja hann til
Frakklands eða Portúgals.
-ÓG/GH/VS
Kristinn Rúnar Jónsson.
Eyjólfur sá
kynþokka-
fyllsti
Eyjólfúr Sverrisson hefur verið
útnefndur kyn-
þokkafyllsti leik-
maður þýsku A-
deildarinnar í
knattspymu af
vikuritinu Bun-
te. Það vora 14
kvenkyns
íþróttafrétta-
menn í Þýska-
landi sem voru fengnir til að leggja
mat sitt á útlit og útgeislun leik-
mannanna og islenski víkingurinn
þótti bera af.
Þær þýsku völdu sitt draumalið
og í það komst einn Norðurlandabúi
auk Eyjólfs en það var Norðmaður-
inn Jan-Áge Fjörtoft sem leikur með
Frankfurt. -VS
Herbert hitti
vel í Vín
Herbert Amarson skoraði 22 stig
í gærkvöld þegar
lið hans, Donar
Groningen frá
Hollandi, tapaði,
86-73, fyrir Luga-
no/Bellinzona í
Sviss. Leikurinn
var liður í for-
keppni Korac-
bikarkeppninn-
£ir, þeirra sömu og lið Reykjanes-
bæjar fór á kostum í gegn London
Leopards í gærkvöld.
Herbert var öflugur fyrir utan 3ja
stiga linuna og hitti þar úr 5 skotum
af 9, og auk þess úr öllum þremur
vítaskotum sinum. Hann lék í 37
mínútur af 40. Staðan í hálfleik var
40-32 fyrir svissneska liðið og Don-
ar ætti að eiga þokkalega möguleika
á að snúa blaðinu við á sínum
heimavelli. -VS
Chianti Roberts,
leikmaður Keflavíkur,
og Purnell Perry,
leikmaður Njarðvíkur,
voru ánægðir með
stórsigur
Reykjanesbæjar á
London Leopards í
Evrópukeppninni í
körfubolta í gærkvöld.
DV-mynd Hilmar Þór
■