Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.1999, Side 2
20
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1999
FIMMTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1999
21
Sport
rwT,nrm
Arsenalklúbburinn á íslandi efnir til
20. hópferðar sinnar i næsta mánuði.
Farið verður utan á 17 ára afmæli
klúbbsins þann 15. október á leik
Arsenal og Everton á Highbury og á
leik Arsenal og Barcelona í meistara-
deildinni á Wembley. Farið verður í
skoðunarferö á Highbury og fleira.
Heimferð er 20. október en líka er hægt
að fara í sólarhingsferð á leik Arsenal
og Barcelona. Allar nánari upplýsmgar
fást hjá Lúðvík á Úrval-Útsýn, í s. 569
9300 eða hjá klúbbnum.
LEK-golfmót var haldið á Hólmsvelli í
Leiru á dögunum og urðu úrslitin
þessi:
Karlar 55 ára og eldri, án forgjafar:
1. Sigurður Albertsson, GS.....80
2. Helgi Hólm, GS...............82
3. Jens Karlsson, GK............83
Karlar 55 ára og eldri, með forgjöf:
1. Steinn Erlingsson, GS........70
2. Guðjón E. Jónsson, GK........70
3. Helgi Hólm, GS...............72
Konur 50 ára og eldri, án forgjafar:
1. Sigrún Ragnarsdóttir, GKG .... 86
2. Kristín Pálsdóttir, GK ......91
3. Ingibjörg Bjamadóttir, GS ...91
Konur 50 ára og eldri, með forgjöf:
1. Sigrún Ragnarsdóttir, GKG .... 70
2. Ingibjörg Bjamadóttir, GS ...76
3. Lovísa Sigm-ðardóttir, GR ...78
Karlar 70 ára og eldri, með forgjöf:
1. Ólafur Á. Ólafsson, GR.......79
2. Bjami Guömundsson, GKG .... 81
3. Einar Markússon, GO..........85
Karlar 50_54 ára, án forgjafar:
1. Sturlaugur Ólafsson, GS.....82
2. Þorsteinn Geirharðsson, GS .... 83
3. Rúnar Valgeirsson, GS........88
Mótió var jafnframt síðasta viðmið-
unarmótið til landsliðs eldri kvenna,
sem mun taka þátt í Evrópumeistara-
móti eldri kvenna, sem fram fer á ítal-
íu í byrjun október. Liðið verður
þannig skipaö: Kristín Pálsdóttir,
GK, Inga Magnúsdóttir, GK, Sigríö-
ur Mathiesen, GR, Ingibjörg Bjarna-
dóttir, GS og Sigrún Ragnarsdóttir,
GKG. Liðsstjóri er Lucinda Gríms-
dóttir.
Franski landsliðsmaðurinn Ibrahim
Ba hefur verið lánaður til ítalska A-
deildarliðsins Pemgia út þessa leiktíð
frá AC Milan. Fyrir nokkm höfðu AC
Milan og enska A-deildarliðið Middles-
brough náð samkomulag um félaga-
skipti Ba en hann vildi vera um kyrrt
á Ítalíu.
Bandaríkjamaðurinn Maurice Green,
nýbakaöur heims-
meistari í 100 metra
hlaupi, vann auöveld-
an sigur I greininni á
móti í Tokyo í fyrr-
inótt. Green kom í
mark á 10,35 sekúnd-
um en heimsmet
kappans í greininni er 9,79 sek. Landi
hans, Curtis Johnson, varð annar á
10,40 sek.
Petya Pandareva frá Búlgaríu sigraði
í 100 og 200 metra hlaupi kvenna á
þessu sama móti. Hún hljóp 100
metrana á 11,36 sek. og 200 metrana á
23,27 sek. Mikil spenna var í 400 metra
hlaupi karla en þar sigraði Bandaríkja-
maðurinn Antonio Pettigrevj, heims-
meistari 1991, eftir harða keppni við
Alejandro Cardenas. Sigurtími
Pettigrews var 46,08 sek en Cardenas
kom i mark á 46,13 sek.
Andy Townsend, hinn 36 ára gamli
leikmaður Middlesbrough, er á leiðinni
til B-deildarliðsins WBA. Townsend
hefur ekki náð að vinna sér sæti í liði
Middlesbrough á þesari leiktíð.
Meira úr herbúóum Middlesbrogh.
Brasiltski miðjumað-
urinn Juninho hefur
fengiö atvinnuleyfi á
Englandi og getur þvt
byrjað að spila með
Middlesbrough. Hann
mun gangast undir
læknisskoðun í dag og
gæti orðið í leikmannahópi Boro á
sunnudaginn þegar það mætir Leeds.
Portúgalinn Luis Figo hjá Barcelona
hefur verið úrskuröaöur í þriggja
leikja bann í kjölfariö á rauðu spjaldi
sem hann nældi sér í þegar Barcelona
lék gegn Espanyol um síðustu helgi.
Figo, sem er varaliði Börsunga, var
rekinn í bað fyrir mjög ljóta tæklingu
og hann missir af leikjum liðsins gegn
Alaves, Real Betis og Valladolid.
Atli Samúelsson, handknattleiks-
maður úr HK, handarbaksbrotnaði í
leik með Kópavogsliðinu á æfmga-
mótinu á Akureyri um síðustu helgi.
Atli, sem kom til HK frá Þór á
Akureyri í sumar, missir því af
fyrstu 7-8 vikum tlmabilsins.
GH/VS
DV DV
Sport
Manasková að
bjarga Makedóníu
- tveir aðrir bætast í hópinn fyrir leikinn í Skopje
Stórskyttan Pepi Manaskov, sem
leikur með Celje Pivovama Lasko í
Slóveníu, kemur inn i lið Makedón-
íu sem mætir íslendingum í síðari
leik þjóðanna í undankeppni Evr-
ópumóts landsliða í handknattleik í
Skopje á sunnudaginn. Manaskov
var ekki með í fyrri leiknum í
Kaplakrika á sunnudaginn en hon-
um er ætlað að koma Makedóníu-
mönnum til bjargar sem töpuðu
fyrri leiknum með 9 marka mun.
Þetta verður síðasti leikur Mana-
skov fyrir Makedóníu en hann er 35
ára gamall og lék lengi með Hameln
í Þýskalandi. Hann hafði reyndar
gefið það út að hann væri hættur
eftir HM í Egyptalandi en lét til leið-
ast að spila leikinn gegn íslending-
um.
Þá hefur Stevce Stefanovski, þjálf-
ari Makedóníu, valið Boro Cur-
levski, sem leikur í Grikklandi, og
Uros Mandic, sem spilar með Prule
67 í Slóveníu, í hópinn en þeir voru
ekki með í fyrri leiknum.
Makedóníumenn hafa langt i frá
gefið upp alla von um að vinna upp
þennan 9 marka ósigur. Leikmenn-
irnir segja að þeir muni fá
geysiöflugan stuðning frá áhorfend-
um í Skopje sem munu fylla höllina.
Höllin í Skopje er mikil ljónagryfja
og þar hafa Makedóníumenn aÚtaf
náö að knýja fram þau úrslit sem
þeir hafa þurft til að komast í
úrslitakeppni HM eða Evrópu-
keppninnar síðustu ár.
-GH/VS
Spilum til sigurs úti
„Þetta ætti að duga nema það verði stórslys úti. Þeir
spila mikið á sömu mönnum og þegar leið á leikinn
voru þeir orðnir þreyttir. Við komum alltaf með
ferska menn inn á og spiluðum þetta á tíu mönnum.
Nú er bara að klára seinni leikinn. Það verður
dýrmæt reynsla, hann ætlum við að nota en jafnframt
spilum við til sigurs úti. Það gengur ekkert að ætla
halda mun í körfubolta, það vita allir að forysta i
körfubolta er ekki lengi að fljúga í burtu en þetta ætti
að duga,“ sagði Teitur Örlygsson. -ÓÓJ
Attum von á þeim
„Þetta gekk mjög vel. Við bjuggumst
við þeim betri og með meiri breidd því
þeir notuðu bara sex menn, þar til í
lokin. Við keyrðum bara á þá, hittum
vel og þeir brotnuðu. Þeir gerðu sér
ekki grein fyrir því að við værum
svona góðir og það varð okkur til
happs,“ sagði Guðjón Skúlason eftir
leikinn við DV.
„Við sögðum við sjálfa okkur fyrir
leikinn að 20 stiga forskot væri frábært
en 36 stig er mjög gott. Seinni leikurinn
verður þó erfiður og við verðum að
spila annan eins leik til að komast
Hér hiær enginn að okkur
„Mér hefur alltaf fundist gott að spila í Keflavík en
fyrri hálfleikurinn var einstakur,“ sagði Hermann
Hauksson sem gerði þrjár þriggja stiga körfur á
síðustu mínútu fyrri hálfleiks og alls átján stig. „Við
vissum ekki mikið um þá, spiluðum bara harða vörn
og keyrðum á þá. Vömin er síðan númer eitt tvö og
þrjú úti. Þeir bjuggust ekki við neinu af okkur og vom
bara að hlæja að okkur í upphitun en það kemur
enginn og hlær að okkur hér,“ sagði Hermann
Hauksson sem gerði 15 stig í fyrri hálfleik. -ÓÓJ
Hinir leikirnir jafnir
Ef lið Reykjanesbæjar kemst áfram í riðlakeppni Korac-bikarsins, eins og
allt bendir nú til, mætir það Nancy frá Frakklandi, sem situr hjá í forkeppn-
inni, og sigurvegurum í tveimur öðmm einvígjum. Þar fóra heimaliðin með
12 og 13 stiga sigra af hólmi og því getur allt gerst í seinni leikjunum. Luga-
no/Bellinzona frá Sviss sigraði Seixal frá Portúgal, 83-71, og Huima frá Finn-
landi vann Ulm frá Þýskalandi, 100-87.
Alls komast 32 lið áfram úr forkeppninni og 32 lið sátu hjá. Þessi 64 lið
mynda 16 fjögurra liða riðla sem leiknir verða frá 6. október til 17. nóvem-
ber. Tvö efstu lið í hverjum þeirra fara síðan áfram í útsláttarkeppni. -VS
sterkari
áfram. Við stefndum á að komast
áfram og það yrði frábært fyrir
íslenskan körfubolta ef íslenskt lið
kemst í riðlakeppni Evrópukeppninnar
í fyrsta skipti, sagði Guðjón Skúlason,
fyrirliði ÍBR.
-ÓÓJ
^ Reykjanesbær fór á kostum í körfuboltanum:
Islenskum
Birgir Leifur í öðru sæti
Birgir Leifur Hafþórsson er í 2.-3. sæti eftir tvo keppnisdaga af fjórum
í undankeppni fyrir úrtökumót evrópsku mótaraðarinnar í golfi sem
stendur yfir á Five Lakes golfvellinum í Essex-sýslu í Englandi. Birgir
Leifur, sem var efstur ásamt fjórum öðram eftir fyrsta daginn, lék á 69
höggum í gær og er samtals með 136 högg. Jafn honum er Paul Simpson,
en fyrstur er Simon Burnell sem hefur leikið á 135 höggum.
Staða Birgis Leifs er þvi vænleg en 28 efstu komast á sjálft úrtökumót-
iö. Þátttakendur í undankeppninni skipta hundraðum en henni er skipt
í fimm slík mót sem nú standa yfir í Englandi. -VS
Styrkleikalisti FIFA:
Island fellur
um eitt sæti
íslenska landsliðsliðiö i knatt-
spyrnu fellur niður um eitt sæti á
nýjum styrkleikalista Alþjóða knatt-
spymusambandsins, FIFA, sem gef-
inn var út í gær. í ágústmánuði var
ísland í 48. sæti en eftir landsleikina
tvo gegn Andorra og Úkraínu er ís-
lenska liðið í 49. sæti. Um áramótin
var ísland í 64. sæti og hefur því
hækkað um 15 sæti.
Brasilíumenn era sem fyrr í efsta
sæti listans en þeir hctfa trónað á
toppnum um nokkurt skeið. Tékkar,
sem hafa farið á kostum i und-
ankeppni Evrópumótsins, skjótast
upp fyrir heimsmeistara Frakka
upp í annað sætið og Spánverjar
fara úr 7. sæti upp í 4. sætið.
Landslið Palestínu er hástökkvari
listans að þessu sinni en það fer upp
um 22. sæti, úr 191. sætinu í 169.
sætið.
Rússar, sem eru með íslendingum
í riðli í undankeppni Evrópumóts-
ins, taka gott stökk upp á við eftir
gott gengi að undanfomu. Rússar
eru komnir í 19. sætið en voru í því
28. fyrir mánuði síðan. Efstu þjóð-
imar á listanum eru þessar, í sviga
fyrir aftan er staðan fyrir mánuði
síðan:
1. Brasilía ................ 838 (0)
2. Tékkland................. 772 (3)
3. Frakkland ............... 766 (2)
4. Spánn.................... 757 (7)
5. Þýskaland ............... 735 (5)
6. Króatía.................. 727 (8)
7. Argentína ................717 (6)
8. Italía ...................714 (4)
9. Noregur...................712 (11)
10. Mexlkó.................. 709 (9)
10. Rúmenía ............... 709 (10)
12. England................ 683 (14)
13. Portúgal................671 (12)
14. Holland ............... 668 (13)
15. Svíþjóð................. 667 (15)
16. Danmörk.................661 (17)
17. Júgóslavía ............. 656 (22)
18. Paragvæ................. 647 (16)
19. Rússland ............... 642 (28)
20. Bandaríkin.............. 621 (20)
49. ísland................. 536 (48)
Fyrir aftan íslendinga era þjóðir
er eins og Slóvenía (52.), Sviss (53.),
Finnland (58.) og N-írland (71.) Alls
era um 200 þjóðir á listanum. -GH
Úrvalsdeildin í knattspyrnu:
Tveir Víkingar í banni
Víkingar verða með tvo leikmenn í banni þegar þeir raæta Frömurum
í miklum fallbaráttuleik í lokaumferð úrvalsdeildinnar í knattspymu á
laugardaginn. Þetta eru framherjinn Sumarliði Ámason og vamarmað-
urinn Sigurður Sighvatsson sem skaut Víkingum svo eftirminnilega upp
í úrvalsdeildina á síðustu leiktið þegar hann skoraöi gegn Stjömunni á
síöustu sekúndum leiksins. Framarinn Sigurvin Ólafsson er einnig í
banni í þessum leik en honum var vikið af velli í leik Fram og Vals um
síðustu helgi.
Stefán Ómarsson úr Val var úrskurðaður í tveggja leikja bann og hann
leikur því ekki með Valsmönnum gegn Grindvíkingum í öðrum fallslag
og Grindvíkingcir verða án Óla Stefáns Flóventssonar sem fékk eins leiks
bann. Heimir Guðjónsson, ÍA, og Baldur Bragason, ÍBV, fengu eins leiks
bann og þeir missa af leik liðanna í Eyjum og KR-ingurinn Bjarki Gunn-
laugsson tekur út bann gegn Keflvíkingum.
Fimm leikmenn úr 1. deildinni vora úrskurðaðir í leikbönn og missa
þeir af leikjum sinna liða í lokaumfeðinni á fóstudaginn. Marinó Ó.lason,
Dalvík, fékk tveggja leikja bann og þeir Arnar Þór Valsson, ÍR, Stefán
Þórðarson, KA, Bjarki Már Ámason, Skallagrími og Gunnar M. Jónsson,
Skallagrími, fengu allir eins leiks bann.
-GH
Fannar Oiafsson reynir hér að opna leiðina fyrir Friðrik Ragnarsson gegn Lundúnaliðinu í Keflavík í gærkvöld. Leiðin var greið fyrir Reykjanesbæ sem sigraði með
yfirburðum í leiknum. Á innfelldu myndinni hugar Jón Jóhannsson að netinu í annarri körfunni eftir skothríð heimamanna. Jón var frægur markaskorari Keflvíkinga
í knattspyrnunni á árum áður og gekk undir nafninu Marka-Jón. DV-mynd Hilmar Þór
korfubolta
til sóma
- Englendingar teknir í bakaríið með 36 stiga mun
DV; Keflavík:
Hið sameinaða lið Njarðvíkur og
Keflavíkur, sem spilar undir nafn-
inu Reykjanesbær, tók á móti enska
liðinu London Leopards í gærkvöld
og var spilað í íþróttahúsi Keflavík-
ur. Reykjanesbær tók ensku gest-
ina í bakaríið og sigraði, 111-75, eft-
ir að hafa leitt í hálfleik, 53-37.
Eins og leikurinn spilaðist hefði
verið nóg að senda annaðhvort
Keflavík eða Njarðvík til að klára
dæmið gegn gestunum frá London.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi leiks en það átti eftir að breyt-
ast svo um munar. Reykjanesbær
tók öll völd á vellinum og sýndi
þeim ensku hversu vanmetinn ís-
lenskur körfuknattleikur er.
Heimamenn spiluðu mjög svo stífan
varnarleik og vora gestimir ekki
alltaf sáttir og voru duglegir að tuða
í dómurum leiksins á meðan
Reykjanesbæjarliðið skoraði hverja
körfuna af annarri.
Hittnin góð allan leikinn
Hitni heimamanna var mjög góð
allan leikinn og var spilað upp á frí
skot fyrir utan, sem Londonliðið
átti ekkert svar við, ásamt því að
mata Pumell Perry, Fannar Ólafs-
son og Friðrik Stefánsson inn í teig.
Það kom á óvart hversu fá svör
Londonliðið átti við leik Reykjanes-
bæjar og var ekkert breytt um leik-
aðferð þrátt fyrir að ekkert gengi
upp, hvorki í vörn né sókn.
Purnell Perry átti stórleik
Allir leikmenn Reykjanesbæjar
spiluðu vel í þessum leik og var
gaman aö sjá leikmenn úr tveimur
liðum ná svona vel saman og spila
eins og eitt lið. Pumell Perry,
Bandaríkjamaður Njarðvíkurliös-
ins, átti stórleik og er með styrk á
við þungavigtarboxara. Hermann
Hauksson átti frábæran fyrri hálf-
leik og leyfði öðrum að njóta sín í
þeim seinni. Þá áttu Guðjón Skúla-
son, Fannar Ólafsson, Teitur Ör-
lygsson, Hjörtur Harðarson og
Gunnar Einarsson allir mjög góðan
leik.
Hjá London Leopards var fátt um
fína drætti enda Englendingar
þekktir fyrir allt annað en
körfuknattleik. Hugmyndaleysið
var algjört og hægt var að sjá á leik-
mönnum liðsins að mótspyrnan
kom þeim virkilega á óvart. Liðið
var greinilega ekki vant því að spila
einungis með 2 erlenda leikmenn
þar sem 5 Kanar eru leyfðir í ensku
deildinni. Það sýndi sig í breidd-
inni sem var engin og var sóknar-
leikur liðsins borinn uppi af þrem-
ur leikmönnum. Robert Young-
blood og Peter Peppisch áttu ágæt-
isleik en aðrir voru úti á þekju.
Síðari leikurinn nánast
formsatriði
Það er ljóst að lið Reykjanesbæjar
er komið áfram í Evrópukeppni fé-
lagsliöa og seinni leikur nánast
formsatriði. Ekki kæmi á óvart að
leikmenn og þjálfarar Reykjanes-
bæjar kæmu heim með tilboð í vas-
anum frá enskum liðum
-BG
Eigum enga
möguleika
„Dómgæslan vai- okkur erf-
ið. Við fengum nokkra rugl-
aða dóma og á 20 ára ferli
mínum hef aldrei séð aðra
eins dóma og í kvöld. Við eig-
um enga möguleika í seinni
leiknum. ísland er land íss og
elda en þótt við notuðum alla
jarðorku íslands gætum við
ekki unnið ÍBR með 40 stigum
úti. íslensku leikmennimir
era sterkir fyrir utan en vant-
ar talsvert mikið upp á leik
sinn undir körfunum. Ég
vildi gera samning við alla ís-
lensku leikmennina sem hittu
þriggja stiga körfu i kvöld því
okkur vantar skotmenn í
Englandi," sagði Billy
Mimms, þjálfari enska liðs-
ins, eftir leikinn í gær.
-ÓÓJ
0-2, 15-8, 23-17, 32-23, 40-30, 47-34, (53-37). 61-41,
72-48, 85-55, 90-55, 100-62, 103-69, 11-75.
Stig Reykjanesbæjar: Purnell Perry 26,
Hermann Hauksson 18, Teitur Örlygsson 13,
Guðjón Skúlason 12, Hjörtur Harðarson 10,
Fannar Ólafsson 10, Gunnar Einarsson 9, Chi-
anti Roberts 6, Friörik Stefánsson 5, Friðrik
Ragnarsson 3.
Stig London Leopards: Peter Peppisch 20,
Robert Youngblood 18, Kenya Capers 12, Steph-
en Gianaolo 8, Mark Robinson 6, Mark Quashi 4,
David Attwell 3, Michael Martin 2.
Dómarar: Frá Svíþjóð og Lúxemborg.
Áhorfendur: Um 900.
Fráköst: Reykjanesbær 32, London Leop-
ards 34.
Vítahittni: Reykjanesbær 16/26, London
Leopards 23/27.
3ja stigaskot: Reykjanesbær 14/26, London
Leopards 4/11.
Maður leiksins: Pumell Perry, Reykja-
nesbæ.
Siöari leikur liöanna verður í London á þriðju-
daginn kemur.
Voru hissa
„Ég held að þeir hafi orðið
geysilega hissa, þeir urðu
pirraðir og réðu ekki betur
við þessa óvæntu mót-
spyrnu. Við spiluðum á öll-
um okkar 10 mönnum og all-
ir spiluðu vel í kvöld. Við
breytum ekki neinu fyrir
seinni leikinn enda lítur
þetta svo vel út að það er
engin ástæða til að breyta
til“, sagði Sigurður Ingi-
mundarson annar þjálfari
ÍBR en Friðrik Ingi Rúnars-
son hinn þjálfarinn var
einnig sáttur.
Frábær leikur
„Þetta var frábær leikur hjá
okkur. Við byrjuðum sterkt
og byggöum síöan upp for-
ustuna með skynsamlegum
leik. Menn voru á sömu línu,
spiluðu vel saman og það
skiptir ekki máli hvaðan gott
kemur ef menn vinna svona
vel saman. Mér finnst líklegt
að frammistaða okkar hafi
komið þeim mikið á óvart og
sett þá úr jafnvægi. Þetta er
samt bara fyrri hálfleikur,
núna eram við í leikhléi og
fóram yfir stöðuna og við
verðum að fara út í seinni
hálfleikinn til að sigra. Við
þurfúm líka aö sýna þá aö
viö getum spilað svona leik
aftur,“ sagði Friðrik Ingi
eftir leikinn í gær. -ÓÓJ