Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1999, Blaðsíða 1
19 Randy Bolden: Rekinn - í gær og Birmingham fenginn í staðinn Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur ákveðið að senda Randy Bolden heim þar sem hann stóð ekki undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar, að sögn Einars Einarssonar, þjálfara Grindavíkur, í gærkvöld. Ákvörðunin kemur nokkuð á óvart þar sem Bolden fór á kostum í Valsmótinu á dögunum en frá þeim tíma hefur hann hins vegar ekki náð sér á strik. Grindvíkingar hafa þegar ráðið leik- stjómanda í stað Boldens og það er eng- inn annar en Brenton Birmingham sem lék mjög vel með Njarðvíkingum á síð- asta tímabili. Hann er væntanlegur til landsins á morgun. Grindvíkingar fara til ísafjarðar um helgina og leika þar tvo leiki við KFÍ og þar verður Birmingham (að ofan) væntanlega mættur í slaginn. Fyrsti leikur Grindvíkinga í úrvalsdeildinni verður næsta fimmtudag gegn ÍA en annar leikurinn er einmitt gegn Njarð- vík þremur dögum síðar. -bb/VS Mikilvægt gegn Makedóníu: ísland beint í úrslitaleiki - um sæti á HM í Frakklandi 2001 Sigur íslands á Makedóníu í einvígi þjóðanna á dögunum tryggði landsliðinu í handknattleik ekki aðeins sæti í úr- slitakeppni Evrópumótsins í Króatíu. Hann kemur islenska liðinu líka í góða stöðu til að tryggja sér sæti í lokakeppni HM sem fram fer í Frakklandi árið 2001. ísland sleppur við undankeppni fyrir HM þar sem þátt taka 22 þjóðir, þar á meðal Júgóslavía og Ungverjaland, sem misstu af því að komast á EM. Island, ásamt níu öðr- um þjóðum, fer beint í úrslitaumferð og mætir liði sem vinnur sinn riðil í undankeppninni. Þar er leikið heima og heiman um sæti á HM. -VS Gleymdu að skipta: Halldór missir fjóra leiki Halldór Kristmannsson, fyrrum leik- maður ÍR og Breiðabliks, missir af fjór- um fyrstu leikjum KFÍ frá ísafirði í úr- valsdeildinni í körfuknattleik. Ástæðan er sú að ísfirðingar gleymdu að ganga frá félagaskiptum hans úr Breiðabliki í KFÍ fyrir síðustu mánaðamót. Skiptin áttu sér ekki stað fyrr en I gær og þar með verður Halldór ekki löglegur fyrr en eftir mánuð, þegar íjórar umferðir verða búnar í deildinni. Hann var í Bandaríkjunum síðasta vetur. Fjarvera hans getur reynst ísfirðingum erfið en þeir hafa misst nokkuð úr sínum leik- mannahópi frá því í fyrra. -VS Haukur Ingi hyggst óska eftir aö verða leigður frá Liverpool: „Vil fá að spreyta migM Italíu og oppnum Haukur Ingi Guðnason, atvinnu- maður hjá Liverpool, hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig hjá félaginu eftir áð Frakkinn Ger- ard Houllier tók við stjórn liðsins í fyrra. Haukur ætlar að ganga á fund stjórans í vikunni og ræða sína stöðu við hahn og sjálfur seg- ist hann vera tilbúinn að verða leigður til félags í neðri deildum. „Ég átta mig ekki alveg á þessu en Houllier hefur keypt marga leik- menn til félagsins síðan hann tók við stjórninni þannig að hann verð- ur að nota þá á undan mér til að sýna fram á að hann hafi ekki keypt þá til einskis," sagði Haukur í spjalli við DV i gær en hann fékk ekki að spreyta sig með Liverpool í leiknum gegn Hull í fyrrakvöld. Það var Roy Evans, fyrirrennari Houlliers, sem keypti Hauk Inga og á meðan Evans var við stjómvöl- inn var Haukur farinn að banka á dyr aðalliðsins. „Eðlilega vil ég fá að spreyta mig þvi á þessum aldri verður maður að fá að spila. Ég veit um marga unga stráka sem eru í svipaðri stöðu og ég og hafa verið leigðir til neðri deildarliða. Ég held að þetta væri besti kosturinn eins og staðan er í dag. Það er erfitt að sanna sig hér hjá Liverpool ef maður fær ekki að spila.“ Haukur missti mikiö til af undir- búningstímabilinu í sumar. Hann varð fyrir því óláni að fá matareitr- un i æfingaferð Liverpool í Sviss og það tók nokkuð langan tima að fá Hann segist vera búinn að ná sér og vera kominn í ágætt form, eins og sást vel í U-21 árs landsleiknum gegn Úkraínu á dögunum, en hann skorti leikæfinguna. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.