Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1999, Page 2
20
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1999
21
Sport
Sport
Bland í poka
Viking Stavanger hefur áhuga á að
kaupa Steinar Adolfsson, landsliðs-
mann í knattspyrnu, frá Kongsvin-
ger, samkvæmt frétt í Stavanger Af-
tenblad. Kongsvinger er falliö úr A-
deildinni og i samtali við blaðið segir
Steinar að það sé ekki spennandi að
spila í næstu deild fyrir neðan, sér-
staklega ekki ef hann ætli að halda
sæti sínu í landsliðinu. Hnéskel
Steinars brotnaði í byrjun september
og spilar hann ekki meira á þessu
ári.
Bobby Robson, knatt-
spyrnustjóri hjá
Newcastle, hefur fengið
Argentínumanninn
Lucas Comineli aö láni
frá spænska liðinu
Grenada út þetta tíma-
bil. Hann er þriðji leik-
maðurinn sem Robson fær til liðs viö
félagið eftir aö hann tók við stjórn-
inni. Ísíðustu viku gekk Brasilíu-
maðurinn Fumaca í raðir Newcastle
frá Barnsley og um helgina keypti
Newcastle skoska landsliðsmanninn
Kevin Gallacher.
Þorvaldur Örlygsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliös KA í
knattspyrnu til tveggja ára. Þorvald-
ur lék með KA til ársins 1989 en hef-
ur síðan spilaö sem atvinnumaður í
Englandi með Nottingham Forest,
Stoke og Oldham. Hann er 33 ára og
mun jafnframt leika með KA-mönn-
um.
Stern John, 22 ára gamall leikmaður
frá Trínidad, er orðinn mjög eftirsótt-
ur og sækjast ensk knattspymufélög
mjög eftir honum. John hefur skorað
43 mörk í 54 leikjum fyrir Columbus
Crew í bandarísku atvinnudeildinni
og Leicester, Watford og Nottingham
Forest era nú komin í harða baráttu
um piltinn sem er með lausan samn-
ing um áramót.
Arnar Gunnlaugsson
lék i 70 mínútur með
varaliði Leicester þegar
það tapaöi, 1-2, fyrir
Watford á mánudags-
kvöldið. Þetta var annar
leikur Arnars eftir
langvarandi meiðsli og hann er sagð-
ur eiga langt í land með að ná fyrra
formi. Það veröur því eflaust einhver
bið á að hann fari að spila með
Leicester í A-deildinni.
Edson, fyrrum markvörður Santos í
Brasiliu og sonur knattspyrnugoðs-
ins Pele, var í gær dæmdur í sex ára
fangelsi í heimalandi sinu. Edson var
valdur að bilslysi fyrir sjö árum þar
sem einn maður lét lífið. Þar sem Ed-
son var ekki á sakaskrá fær hann að
stunda vinnu að deginum en þarf að
gista innan múranna að nóttu til.
Hertha Berlin, lið Eyjólfs Sverris-
sonar í þýsku knattspymunni, hefur
átt í gífurlegum vandræðum i haust
vegna meiðsla leikmanna. Nú er ljóst
að tveir þeirra, Rene Tretschok og
Rob Maas, fara í uppskurð á næstu
dögum og verða ekki leikfærir fyrr
en eftir vetrarfríið.
Enska knattspyrnufélagiö West
Ham gæti verið dæmt úr leik í UEFA-
bikamum fyrir að nota Króatann
Igor Stimac gegn Osijek frá Króatíu
á dögunum. Stimac fékk á sínum
tíma fjögurra leikja bann í Evrópu-
keppni þegar hann lék með Hajduk
Split og á enn eftir að taka út tvo síð-
ari leikina.
George Graham, framkvæmdastjóri
enska knattspyrnufélagsins Totten-
ham, hefur hug á að fá sænska lands-
liðsmanninn Yksel Osmanovski frá
Bari á Italíu og er tilbúinn til að
greiða fyrir hann 600 milljónir króna.
Birkir Kristinsson lék
ekki í marki Lustenau
gep Ried í austurrisku A-
deildinni_Ugærkvöld. Guö-
jón Þóröarson landsliðs-
þjálfari vildi fá hann strax
í islenska landsliðið í Par-
is og þangað var Birkir
mættur í gær ásamt öðrum landsliðs-
mönnum.
Mick McCarthy, landsliðsþjálfari íra
í knattspyrnu, framlengdi samning
sinn við írska knattspymusambandið
til ársins 2002. Hann verður því með
liöið fram yfir forkeppni heimsmeist-
aramótsins.
Grikkir sigruöu Albani, 2-0, i 2.
riöli forkeppni Evrópumóts landsliða
í knattspymi í Aþenu i gærkvöld. í
þessum riðli eru Norðmenn
langefstir með 22 stig og hafa þegar
tryggt sér sæti i úrslitakeppninni.
Slóvenía hefur 17 stig og Lettar hafa
13 stig.
-GH/VS/JKS
Natalia Gomzina og Anna Pavlicuk eru mættar í slaginn eystra og komn-
ar ■ Þróttarbúninginn.
Rússneskar í Þrótt
Tvær rússneskar stúlkur leika með Þrótti frá Neskaupstað í 1. deild
kvenna í blaki í vetur. Þær heita Natalia Gomzina og Anna Pavlicuk og
koma frá félaginu Trud í borginni Jaroslav. Ef að líkum lætur styrkja
þær verulega lið Þróttar sem varð í þriðja sæti 1. deildar í fyrra.
Þess má geta að Þróttur úr Neskaupstað átti sex Islandsmeistara af sjö
mögulegum í yngri flokkum á síðasta tímabili og blakdeild félagsins er
án efa ein sú öflugasta á landinu. -VS
1. deild karla í handknattleik
Aldrei að
gefast upp
- FH vann upp gott forskot ÍR og tók stigin tvö
„Ég get ekki verið annað en sátt-
ur við stigin tvö eins og leikurinn
þróaðist. Strákamir neituðu að gef-
ast upp og þeir eiga hrós skilið fyr-
ir góöan karakter. Ég var mjög
ánægður með vörnina og mark-
vörsluna en við eigum eftir að slípa
sóknarleikinn mikið. Við gerðum
mikið af tæknifeilum í fyrri hálfleik
og við færðum þeim á silfurfati
þetta forskot í byrjun," sagði Elvar
Erlingsson, þjálfari FH-inga, við DV
eftir hálf ævintýralegan sigur Hafn-
aríjarðarliðsins á ÍR-ingum í Aust-
urbergi í gær.
Lokatölur urðu, 22-25, en FH-ing-
ar áttu frábæran endasprett, þeir
komust fyrst yflr í leiknum þegar
tvær mínútur voru til leiksloka og
tryggðu sér sigurinn með því að
skora fjögur síðustu mörkin.
FH-ingar byrjuðu ekki gæfulega
og það stefndi í stórsigur heimanna
í fyrri hálfleik. Þegar 17 mínútur
voru liðnar af leiknum hafði FH að-
eins skorað eitt mark en ÍR-ingar
sjö og komu fimm þeirra úr hraða-
upphlaupum eftir klaufaleg mistök
FH-inga. Hafnfirðingarnir náðu að
rétta sinn hlut áður en blásið var til
leikhlés en þeim tókst að minnka
muninn niður í eitt mark. I seinni
hálfleik héldu ÍR-ingar þægilegu for-
skoti mest allan tímann og ekkert í
spilunum benti til annars en að
Breiðhyltingar væru að landa enn
einum heimasigrinum.
En FH-ingar eru þekktir fyrir allt
annað en að gefast upp og þegar
Magnúsi Árnasyni var skipt inn á í
FH-markið fóru hlutirnir að snúast
FH-ingum í vil. Magnús skellti í lás
og við það hljóp mikill hamur í fé-
laga hans. Leikur ÍR-inga hrökk í
baklás og FH-ingar færðu sér þaö í
nyt og unnu sætan sigur og sinn
annan í röð en ósigurinn var sá
fyrsti hjá ÍR á tímabilinu.
Stór galli á okkar góða liði
„Ég á mjög erfitt með að skýra
hvað gerðist í leik okkar en eitthvert
einbeitingaleysi greip um sig hjá okk-
ur. Við misstum niður gott forskot og
það er ekki í fyrsta sinn sem það ger-
ist. Við verðum að vinna í þessu því
þetta er stór galli á okkar góða liði,“
sagöi Ragnar Óskarsson, leikstjóm-
andi ÍR-inga, sem lék best heima-
manna ásamt Ólafi Sigurjónssyni og
síðan varði Hallgrímur vel í fyrri
hálfleik. fR-ingar em með gott liö en
þeir þurfa að halda haus og
einbeitingu allan timann ef þeir ætla
að ná langt í vetur.
Láras Long lék best í liði FH.
Hann skoraði sjö glæsileg mörk og
var með góða nýtingu. Gunnar
Beinteinsson lék einnig vel en
mennirnir sem fór langt með að
vinna leikinn fyrir FH voru Magnús
markvörður og Sigurgeir Ægisson
sem greip tækifærin vel sem hann
fékk í seinni hálfleik og skoraði 5
góð mörk.
-GH
ÍR 22(10) - FH 25(9)
Gunnleifur í Fram?
- leikur líklega með Ayr United í vetur
Samkvæmt heimildum DV era miklar líkur á að Gunnleifur Gunnleifsson,
markvörður úr KR, gangi til liðs við Fram fyrir næsta
tímabil. Gunnleifur fékk fá tækifæri með KR í ár og hugs-
ar sér nú til hreyfings þar sem nokkuð Ijóst er að Krist-
ján Finnbogason mun áfram verja mark íslands- og bik-
armeistaranna.
Gunnleifur vildi ekkert segja þegar DV bar þetta und-
ir hann en sagði hinsvegar nokkuð öraggt að hann færi
á næstu dögum til skoska B-deildarliðsins Ayr United.
„Það kemst endanlega á hreint um helgina en það
stefnir allt í að ég verði leigður til Ayr í fjóra mánuði.
Það gæti farið svo að fyrsti leikurinn minn yrði gegn
Celtic í deildabikarkeppninni strax næsta miðvikudag,"
sagði Gunnleifur við DV. -VS
Vinnum á eðlilegum degi
„Ég var mest óánægðastur með hve mótherjinn ýtti okkur alltof langt út í sókn-
arleiknum. Við tókum ekki nógu vel á þeim vanda og ennfremur var svissneska
liðið mun grimara. Lugano er sterkt en við náðum okkur því miöur aldrei á flug
í leiknum. Samt voram við inn í leiknum alveg þangað til að fimm mínútur voru
eftir. Á eðlilegum degi vinnum við þetta lið því það er ýmislegt sem við höfum
sem þeir hafa ekki. Við ætlum að vinna þá þegar við mætum þeim aftur á heima-
velli. Hittnin brást en við fengum ekki nógu mikið af góðum skotum og samvinna
manna var ekki góð. Við vorum líka ekki hreyfanlegir og ekki duglegh- að opna
fyrir hvorn annan. Þetta var fyrsti leikurinn í keppninni og ég held að menn hafi
dregið lærdóm af honum. Núna verður allt sett í gang og ég lofa betri leik gegn
finnska liðinu Huima í næstu viku,“ sagði Sigurður Ingimundarson, annai' þjálf-
ara liðsins, í samtali við DV eftir leikinn.
-JKS
Evrópukeppni félgasliöa í körfuknattleik:
Liðið lék
allt langt
undir getu
- Reykjanesbær tapaði fyrir Lugano, 94-76
Körfuknattleikslið Reykjanesbæjar tap-
aði fyrsta leik sínum í riölakeppni
Korac-keppninnar í gærkvöld þegar liðið
lék gegn Lugano frá Sviss. Lokatölur
leiksins urðu, 94-76, en i hálfleik var stað-
an, 40-37, fyrir svissneska liðið. Leikurinn
var í jámum lengst af og það var ekki fyrr
en fimm mínútum fyrir leikslok sem
Lugano seig fram úr og munurinn var í
lokin 18 stig. Þetta var fullmkill munur
þegcir á heildina er litið en Reykjanesbæj-
arliðið var að leika langt undir getu að
sögn Sigurður Ingimundarsonar sem er
annar af þjálfuram liðsins.
Sóknarleikur íslenska liðsins var strið-
ur í fyrri hálfleik og raunar í öllum leikn-
um. Hitnin, sem er einn sterkasti hlekkur
liðsins, brást því miður. Jafnt var á flest-
um tölum en það íslenska var með for-
ystu, 33-34, þegar skammt var til loka
fyrri hálfleiks.
Siðari hálfleikur þróaðist með svipuð-
um hætti og sá fyrri og jafnt var á öúum
tölum. í stöðunni, 74-74, fór að halla imd-
an fæti og Lugano tók leikinn smám sam-
an í sínar hendur. Reykjanesbæjarliðið
reyndi allt hvað það gat, breytti í svæðis-
vöm og reyndi að setja pressu á heima-
menn. Allt kom fyrir ekki og átján stiga
ósigur var staðreynd í lokin.
Liðið lék allt undir getu en segja má að
að Pumell Perry og Hjörtur Hjartarson
hafi staðið upp úr. Næsti leikur liðsins í
riðlinum verður 13. október gegn finnska
liðinu Humina í Keflavík.
Stigin: Pernell Perry 35, Hjörtur
Harðarson 13, Chianti Roberts 8, Teitur
Örlygsson 8, Hermann Hauksson 5, Guð-
jón Skúlason, Friðrk Ragnarsson 3, Frið-
rik Stefánsson 2. -JKS
1-0, 1-1, 7-1, 7-3, 9-4, 10-6, (10-9), 12-9, 15-11, 17-13, 19-16, 19-19,
22-21, 22-25.
ÍR:
Ragnar Óskarsson 9/4, Ólafur Sigurjónsson 7, Bjami
Frantson 2, Finnur Jóhannsson 1, Inghnundur Ingimundarson 1, Róbert
Rafnsson 1, Erlendur Stefánsson 1.
Varin Skot: Hailgrhnur Jónasson 9, Hrafn Margeirsson 0.
Brottvísanir: 6 mínútur. Rauó spjöld: Engin.
Vitanýting: Skoraö úr 4 af 4.
Áhorfendur: 300.
GϚi leiks (1-10): 6.
Dómarar (1-10): Guðjón Sigurðsson
og Ólafur Haraldsson (7).
FH:
Lárus Long 7, Sigurgeir Ægisson 5, Gunnar Bein-
teinsson 4, Guðmundur Pedersen 3/1, Brynjar Geirsson 2, Knútur Sig-
urðsson 2, Hálfdán Þórðarson 1, Sverrir Þórðarson 1.
Varin skot: Egidijus Petkkevicius 8, Magnús Ámason 8.
Brottvísanir: 4 mínútur. Rauö spjöld: Engin.
Vítanýting: Skorað úr 1 af 1.
Maður leiksins: Lárus Long, FH.
ÍR-ingurinn, Ingimundur Ingimundarson, stekkur hér upp að FH-vörninni. Finnur Jóhannsson,
Sigurgeir Ægisson og Ragnar Óskarsson fylgjast með. DV-mynd E.ÓL
Keflvíkingar báru sigur úr býtum í Eggjabikarnum f fyrra með viðeigandi
hætti, bikarinn góði fékk rembingskoss hjá Kristjáni Guðlaugssyni og
Sæmundi Oddssyni.
Perry skoraði 35 stig
Pemell Perry, Bandaríkjamaðurinn í sameiginlegu liði Keflvíkinga og
Njarðvíkinga, lék vel gegn Lugano í Evrópukeppninni i gærkvöldi og setti
niður 35 stig. Hér er Perry í leik gegn London Leoparts í undankeppninni
þar sem Suðumesjaliðið fór með sigur af hólmi.
Eggjabikarinn hefst í kvöld i fjórða sinn:
Fjórir leikhlutar
- prufukeyrsla á nýjum reglum í ár
Eggjabikarinn hefur göngu sína í
kvöld með þremur af átta viðureign-
um í 16 liða úrslitum. í Eggjabikar-
inn komast öll úrvalsdeildarliðin
auk fjögurra liða úr 1. deild sem
náðu bestum árangri á síðasta vetri.
Keppnin fer nú fram í fjórða sinn
og hefur hún verið mikil lyftistöng
fyrir annars rólega tíð í körfubolt-
anum á þessum tíma. Keppni hinna
fjögurra fræknu fer síðan fram 13.
og 14. nóvember í Laugardalshöll-
inni en til þess að komast þangað
verða liðin að vinna sig í gengum
tvær útsláttarumferðir með leikjum
heima og að heiman.
Ákveðið hefur verið að prafu-
keyra nýjar reglur í ár, þær sömu
og komast í gagnið næsta haust.
Þá á að fjórskipta leiktímanum
þannig, að spilað verður fjóra 10
minútna leikhluta. Leikhlé milli
fyrsta og annars leikhluta og 3. og 4.
era tvær mínútur en leikhléið sjálft
er síðan tíu mínútur. Hvort lið má
taka þrjú leikhlé í hvorum hálfleik
og liðsvillur fyrir bónuskot era fjór-
ar í hverjum leikhluta.
Eftir þessu fyrirkomulagi verður
spilað í Eggjabikamum í ár en 24
sekúnda skotklukka (í stað 30 sek.)
og 8 sekúndna reglan til að koma
bolta yfir í miðju (í stað 10 sek.)
verður að bíða fram til næsta
hausts.
Allt er þetta þáttur í reglubreyt-
ingum FIBA sem eiga að skella á
eftir Ólympíuleikanna í Sydney á
næsta ári.
Keppnin er styrkleikaröðuð,
hugsuð þannig að bestu liðin í
fyrra, Keflavík og Njarðvík, ættu
ekki að mætast fyrr en í úrslitum,
fari þau á annað borð alla leið í úr-
slitin í ár. í fyrstu umferð Eggjabik-
arsins mætast eftirtalin lið:
Fimmtudagur 7. október
ÍR-Grindavík 19.00
lA-Haukar 20.00
Skallagrímur-KR 20.00
Föstudagur 8. október
Valur-KFÍ 18.00
Stjaman-Keflavík . . . . 20.00
Hamar-Tindastóll . .. . 20.00
Þór Þ.-Njarðvik 20.00
Þór Ak.-Snæfell 20.30
Laugardagur 9. október
Grindavík-lR 16.00
KR-Skailagrímur 16.00
Haukar-Í A 16.00
Sunnudagur10 . október
KFÍ-Valur 20.00
Keflavík-Stjaman .. . . 20.00
Njarðvík-Þór Þ 20.00
Tindastóll-Hamar . .. . 20.00
Snæfell-Þór Ak 20.00
Keflvíkingar ósigraðir
Aðeins eitt lið hefur fagnað sigri í
Eggjarbikamum i þriggja ára sögu
hans en það er lið Keflavíkur.
Keflavík hefur unnið alla átján
leiki sína í keppninni og skorað
105,2 stig og hitt úr 10,4 3ja stiga
körfum að meðaltali í leik.
Fimm lið, (Keflavík, KR, Grinda-
vík, Njarðvík og Tindastóll), hafa
komist alla leið í Höllina og fjögur
af þeim, öll nema Njarðvík, hafa
spilað til úrslita. Öll þrjú árin hafa
þrjú lið skipt því á milli sín að spila
til úrslita gegn Keflvíkingum.
-ÓÓJ
Einn besti dómari
Evrópu dæmir í París
-r?~ Einn besti dómari í Evrópu nú um stundir, Þjóðverjinn
■ Bernd Heynemann, dæmir landsleik Frakka og íslend-
inga í forkeppni Evrópumóts landsliða í París á laugar-
n daginn kemur. Heynemann hefur geysilega reynslu að
•'9® jj baki og er í efsta dómaraflokki Knattspymusambands
Evrópu. Heynemann, sem kemur frá Magdeburg, er 45
ára og því kominn á aldur samkvæmt almanki UEFA.
W ^ Því er leikurinn á París með síðustu verkefnum hans
---jnnan uefa.
Aðstoðardómarar verða Harald Sather og Markus Scheibel en þeir
dæma mikið af leikjum í þýsku úrvalsdeildinni. Eftirlitsmaður UEFA á
leiknum verður Skotinn George Brian Smith. -JKS
Frakkland-ísland
Frakkar treysta
á Trezeguet
Frakkar binda miklar vonir við
framherjann David Trezeguet þegar
þeir mæta íslendingum í und-
ankeppni EM í knattspyrnuu í París
á laugardaginn. Hinn 21 árs gamli
Trezeguet, sem fæddur er í Argent-
ínu, hefur leikið mjög vel með
Mónakó í frönsku A-deildinni á
leiktíðinni og er markahæsti leik-
maður deildarinnar með 9 mörk í
jafnmörgum leikjum.
Roger Lemerre, þjálfari frönsku
heimsmeistaranna, getur varla
gengið framhjá Trezeguet þegar
hann velur byrjunarliðið. Nicolas
Anelka er ekki í leikmannahópnum
og þeir Thierry Henry og
Christophe Dugarry taka báðir út
leikbann og það eitt ætti að tryggja
Trezeguet sæti í liðinu.
Trezeguet hefur ekki átt sæti i
franska liðinu en hefur þess í stað
leikið með U-21 árs liðinu.
„Það hefur verið erfitt spila ekki
með A-liðinu en ég held að ég hafi
ekki átt skilið að vera í liðinu fram
að þessu,“ sagði Trezeguet sem gekk
ekki sem skildi með liði Mónakó á
síðustu leiktíð enda mörg lið á
Spáni og á Ítalíu sem voru að
krakka í hann á sama tíma og það
kom niður á leik hans. Hann skrif-
aði undir nýjan fjögurra ára samn-
ing við Mónakó í sumar og í haust
hefur hann farið á kostum í fram-
línu Mónakó með Argentínumann-
inn, Marcelo Gallardo, við hlið sér.
Liðið sem skorar á undan
vinnur leikinn
„Að spila með Gallardo í Mónakó
er eins og að spila með Zidane í
franska landsliðinu. Ég átti erfitt
eftir heimsmeistarakeppnina. Ég
var þreyttur og mér gekk illa hjá
Mónakó. Núna er allt annað uppi á
teningnum. Mér líður vel og er klár
í slaginn. Við höfum fengið góð
tækifæri í mörgum leikjanna í riðl-
inum en ekki nýtt þau og þetta verð-
ur að enda í leiknum gegn íslend-
ingum. Það lið sem fyrr skorar í
leiknum á laugardaginn mun vinna
leikinn,“ sagði Trezeguet. -GH
Soortkorn
Valsmenn hlustuðu ekki
Það vakti að vonum athygli í vor
þegar Magnús V. Pétursson, kaup-
maður og fyrr-
um knatt-
spyrnudómari,
spáði þvi í sam-
tali við DV að
Reykjavíkur-
stórveldin KR og
Valur myndu
falla úr úrvals-
deildinni í
knattspyrnu í
ár. Helmingur-
inn kom fram, Valur féll en KR
varð hinsvegar tvöfaldur meistari.
Magnús segir að skýringin á þessu
væri einföld. KR-ingar hafi tekiö
mark á sér, margir úr þeirra röð-
um hafi þakkað sér fyrir viðvörun-
ina og sagt við sig aö hún hafi eflt
þá til dáða. Valsmenn hafi hinsveg-
ar látið varnaðarorð sin sem vind
um eyru þjóta og því fór sem fór á
Hlíðarenda.
Þorleifur rekinn
Þorieifur Ananíasson, fyrrum
handknattleiksmaður með KAum
áratuga skeið,
hefur haldið
uppi reglulegum
og líflegum
fréttaflutningi á
heimasíðu KA
undanfarin
misseri. Þar til
7. september sl.
þegar skyndi-
lega birtust
„Lokaorð" frá
„Leibba“. Þar segist hann hafa ver-
ið rekinn vegna þess að stjórnar-
menn handknattleiksdeildar vildu
ekki lengur að á síðunni yrðu flutt-
ar fréttir í þessum dúr. „Ég mun
ekki verða skoðanalaus talsmaður
misvitra stjómarmanna sem nú
munu taka við síðunni eða leggja
hana niður eftir atvikum," segir
Þorleifur meðal annars í lokagrein-
inni. Og á þeim mánuði sem síðan
er liðinn hefur ekki birst ein ein-
asta frétt á síöunni.
Skrifaði fyrir HK
Þorleifur er þó ekki alveg hættur.
HK-ingar i Kópavogi sáu sér nefni-
lega leik á borði
og fengu hann
til að skrifa um
leik KA og HK á
dögunum á
heimasíðu HK.
Það var að von-
um hin athyglis-
verðasta grein
og hún hófst
þannig: „Mér
þykir þið hugað-
ir í Kópavoginum að sleppa mér
inná þessa saklausu heimasiðu
ykkar, dæmdum manninum. Ég
gat því ekki annað en tekið boðinu
um aö skrifa um leik KA/HK og
náði að laumast framhjá vökulum
augum stjómarmanna og vörpu-
legra dyravarða með blýantsstubb
og blaðsnifsi í KA-heimilið á fóstu-
dagskvöldiö."
Landskunnur sóðakjaftur
Síðan tók við mergjuð lýsing á
leiknum og að lokum sagði Þorleif-
ur: Ég trúi ekki
öðra en síðunni
ykkar verði nú
lokað og þið
reknir, sem ekki
nennið að skrifa
sjálfir heldur
fáið landskunna
sóðakjafta til að
tala ykkar máli.
Ef ekki, teldi ég
heppilegra að
hafa frekar stjórnarmenn eða
handboltamenn í næsta gámi sem
þið fáið frá okkur að norðan,“ og
vitnaði þar til þess að fleiri Akur-
eyringar hefðu verið í byrjunarliði
HK en KA.
Tæklaði síðast 19. maí
Viða er verið að stokka upp spilin
hjá knattspyrnufélögunum þessa
dagana og menn
eru að vonum
misánægðir
með árangur
sumarsins. 1
einum heyrði ég
sem var afar
óhress með leik-
menn sins liðs
og vildi losna
viö þá flesta og
fá aðra í stað-
inn. Ég nefhdi þá einn leikmann
liðsins og sagði að hann hlyti þó að
verða um kyrrt. „Sá andskoti!
Hann hefur ekki farið í tæklingu
síðan 19. maí,“ svaraði viðmæland-
inn aö bragöi.
Umsjón: Víðir Sigurðsson