Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1999, Blaðsíða 1
19
Pétur tekur við KR
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV
verður Pétur Pétursson næsti þjálfari
íslands- og bikarmeistara KR í knattspymu
og tekur hann við starfi nýskipaðs
landsliðsþjálfara, Atla Eðvaldssonar.
Fundur var hjá Rekstrarfélagi KR nú í
morgun og að öllu óbreyttu verður tilkynnt
um ráðningu Péturs á blaðamannafundi
síðar í dag.
Pétur var efstur á óskalista KR-inga sem
eftirmaður Atla og næstur þar á eftir var
Willum Þór Þórsson sem nýlega var ráðinn
þjálfari Hauka. Viðræður hafa staðið yflr við
Pétur síðustu daga og er búist viö því að
hann skrifi undir í dag eða á morgun.
Pétur er vel kunnugur vesturbæjarliðinu.
Hann lék með liðinu í nokkur ár og hefur
síðan verið virkur í starfi félagsins.
Pétur á farsælan feril að baki sem þjálfari.
Hann tók við liði Keflavíkur af Ian Ross
snemma sumars 1994 og undir hans stjórn
unnu Keflvíkingar 7 leiki, gerðu 2 jafntefli og
töpuðu 2 og enduðu í þriðja sæti. Árið á
undan þjálfaði hann lið Tindastóls og
sumarið 1995 þjálfaði hann lið Víkings sem
lék þá i 1. deildinni.
-GH
Leikmenn Galatasaray
fagna sigri sínum á AC
Milan en ítalarnir
ganga niöurlútír af
leikvelli enda liö þeirra
úr leik í ÉJ
Evropukeppninnifi
m
)t ^
20-2
Sýningarleikur
- hjá Ríkharði Daðasyni með Viking gegn Werder Bremen i kvöld
Framtíð Ríkharðs
Daðasonar, landsliös-
manns í knattspyrnu og
leikmanns norska liðsins
Viking Stavanger, kann
að ráðast eftir Evrópuleik
Viking gegn þýska liðinu
Werder Bremen sem
fram fer í Noregi í kvöld.
Fulltrúar sex liða
mæta
í það minnsta sex
knattspymulið eiga full-
trúa meðal áhorfenda í
Stavanger í kvöld sem
mæta gagngert til að
fylgjast með Ríkharði í
leiknum. Einn þeirra sem
ætla að mæta á leikinn er
Jim Jefferies knatt-
spymustjóri hjá skoska
A-deildarliðinu Hearts í
Edinborg en hann hefur
um hríð lýst yfir áhuga á
að kaupa Ríkharð fyrir
117 milljónir króna.
Jefferies hefur verið í
Englandi síðustu tvo
daga til að fylgjast með
leikmönnum en ætlar að
styrkja leikmannahópinn
hjá Hearts á næstu dög-
unum og hefur 450 millj-
ónir króna úr að spila.
Ræður miklu
Sjálfur segir Ríkharður
leikinn gegn Werder
Bremen koma til með að
ráða miklu um framtíð
sína sem knattspyrnu-
manns og hann segir að
ef hann nái sér ekki á
strik í leiknum minnki
það möguleika hans að
komast frá Viking.
Ríkharður á eitt ár eft-
ir af samningi sínum við
norska liðið. Forráða-
menn félagsins hafa sagst
reiðubúnir að selja Rík-
harð berist í hann gott til-
boð en þeir vilja ekki
missa hann fyrr en þátt-
töku félagsins i Evrópu-
keppninni lýkur.
-GH
Hoover á
förum frá
Njarðvík
Jason Hoover óskaði eftir því í gær
að verða leystur undan samningi við
körfuknattleikslið Njarðvikinga.
Hoover er sagöur hafa verða óánægður
meö frammistöðu sína með liðinu og sá
þann kost vænstan að hverfa heim til
Bandaríkjanna.
Hoover mun þó leika næstu tvo leiki
með Njarðvíkingum i úrvalsdeildinni
en á meðan verður leitað að eftirmanni
hans. Þetta er annar útlendingurinn
sem fer frá Njarðvíkingum á þessu
tímabili en áður hafði Purnel Perry tek-
ið pokann sinn.