Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Blaðsíða 3
20 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 29 Sport Geir Sverrisson og Kristín Rós Hákonardóttir með viðurkenningar sínar í gær. DV-mynd Pjetur Iþróttamenn ársins úr rööum fatlaðra: Kristín og Geir - Kristín Rós valin fimmta árið í röð Gudrti Bergsson er byrjaöur aö æfa á ný með Bolton eftir nárameiðsl- in og getur lík- lega spilað með liðinu gegn Car- diff i ensku bik- arkeppninni í knattspymu um helgina. Sigurður Jónsson fær sig hins vegar ekki enn góðan í tánni en hann hefur ekki getað leikið með Dundee United í Skotlandi í rúma tvo mánuði. Sig- urður lék með varaliðinu fyrr í vik- unni en var slæmur á eftir og þarf nú að fara til þriöja sérfræðingsins. Hin- ir tveir hafa ekki getað kveðið upp úr um hvort táin sé brotin eða löskuð á annan hátt. Guðjón Þórðarson hrósaði læri- sveinum sínum i Stoke fyrir mikinn baráttuanda í bikarleiknum við Darl- ington í fyrrakvöld í samtali við staðarblaðið Sentinel. Þar náði Stoke að skora sigurmark í framlengingu, manni færri. Bjarki Gunnlaugsson er ánægður með þrennuna sína fyrir Preston gegn Wrexham í fyrrakvöld. Hann var í annað sinn í byrjunarliði Preston í vetur og hefur gert 4 mörk i þeim tveimur leikjum. „Eg ætlaði að sanna mig og held að ég hafi gert þaö,“ var haft eftir Bjarka á frétta- vefnum Teamtalk í gær. Guðmundur Benediktsson hefur ekki getað æft með Geel í Belgíu það sem af er vikunni vegna meiðsla og óvist er að hann spili með liðinu um næstu helgi. Andrew Forbes heitir piltur sem gæti verið á leið til Lárusar Orra Sigurðssonar og félaga i WBA. Markaskor Forbes þaö sem af er vetri þykir heldur betur athyglisvert þvi hann hefur skorað 50 mörk, þar af 11 þrennur, fyrir utandeildalið sem heit- ir Andover. Alaves er komið í 7. sæti spænsku A- deildarinnar í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Racing Santander í gærkvöld. Julio Salinas, fyrrum miðherji spænska landsliðsins, skoraði sigur- markið en hann er 37 ára og elsti ieik- maður deildarinnar og lék í gærkvöld sinn 400. leik í efstu deild. Aberdeen vann Hearts, 3-1, í skosku A-deildinni í knattspyrnu í gærkvöld og er þar með komið með 9 stig í neðsta sætinu. Kilmarnock er næst- neðst með 12 stig. Alexander Högnason og Áslaug Ákadóttir voru kjörin bestu leik- menn meistara- flokka karla og kvenna hjá Knatt- spyrnufélagi lA á uppskeruhátíð fé- lagsins um síð- ustu helgi. Bald- ur Aðalsteinsson og Dúfa Asbjörns- dóttir voru útnefnd efnilegustu leik- mennirnir. Þá fékk Garðar B. Gunn laugsson, drengjalandsliðsmaður og bróðir Arnars og Bjarka, Donnabik- arinn svokallaöa. -DVÓ/VS Kristín Rós Hákonardóttir, ÍFR, og Geir Sverrisson úr Breiöabliki voru útnefnd íþróttamenn ársins í röðum fatiaðra í gær. Þetta er í annað sinn sem kjörið fer fram með þessum hætti, það er að velja karl og konu, en fyrir ári urðu Kristín Rós og Pálmar Guð- mundsson fyrir valinu. Þetta er því fimmta árið í röö sem Kristín Rós hlítur þennan titil. Kristín hefur verið lömuð frá því hún var 18 mánaða gömul en þá fékk hún vírus í höfuðið sem gerði það af verkum að hún varð spastísk vinstra megin. Hún byrjaði að æfa sund árið 1982 og hefur mörg und- anfarin ár verið ókrýnd sundrottn- ing heims í sínum flokki og hefur unniö til fjölda gullverðlauna á heims- og ólympíuleikum auk þess sem hún á í dag 5 heimsmet í 50 metra laug og í 25 metra laug. Islensku keppendurnir á Evrópu- meistaramótinu í sundi i 25 metra laug hefja keppni á mótinu í Lissa- bon 1 dag. Friðfinnur keppir í 100 metra flugsundi, Öm Arnarson í 200 metra skriðsundi, Lára Hrund Bjargardóttir í 100 metra skrið- sundi, Jakob Jóhann Sveinsson í 50 metra bringusundi, Ómar Snævar Friðriksson í 200 metra skriðsundi og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir í 100 metra baksundi. Öm Arna'rson er með bestan ár- angurinn fyrir mótiö í sinu sundi en hann er í 18. sæti af 28 í 200 metra skriðsundi í innilaug í Evr- ópu í dag. „Ég á von á góðum árangri ís- Geir Sverrisson keppir í frjálsum íþróttum en fotlun hans er að á hægri handlegg vantar fyrir neðan olnboga. Hann byrjaöi að æfa frjáls- ar íþróttir árið 1987 en þá hafði hann æft sund í nokkur ár. Geir hefur verið mjög sigursæll á sínum ferli bæði í sundi og frjálsum íþróttum. Á þessu ári var honum boðin þátttaka á Paralympics Revi- val í Þýskalandi en boð um þátttöku á slíku móti fá aðeins sterkustu ein- staklingar í heiminum i hverri grein. Þá var Geir valinn í landslið ófatlaðra til þátttöku í 4x400 metra boðhlaupi í Evrópubikarkeppni landsliða sem fram fór í Króatíu í sumar. Hér innanlands er Geir ósigrandi í sínum flokki en hann hefur einnig keppt með ófótluðum hér heima, meðal annars á Meistaramóti ís- lands og í bikarkeppni FRÍ. -GH lensku keppendanna hér í Lissabon. Hvort það dugi til íslandsmeta eða annarra afreka veröur bara að koma í ljós. Það eru allir í finu formi en þetta er alltaf spuming um aö halda haus þegar á hólminn er komiö. Þegar ólympíuleikar eru fram undan ríkir óvissa og maður veit ekki í hvemig formi bestu sundmennimir era. Hér era saman- komnir allir bestu sundmenn Evr- ópu aö undanskildum Rússanum Al- exander Popov. Allar aðstæður hér eru til fyrirmyndar," sagði Magnús Tryggvason, formaöur landsliðs- nefndar SSÍ, í samtali við DV í gær- kvöld. -JKS Vill spila I Newcastle Kevin Keegan, landsliðsþjálfari Englands í knattspymu, vill helst mæta Þjóðverjum í undankeppni HM á sínum gamla heimavelli í Newcastie, St. James Park. Leikir Englands í keppninni verða ekki háö- ir á Wembley vegna endurbyggingar þjóðarleikvangsins. Keegan væri líka til í að spila á Anfield í Liverpool, öðrum fyrrum heimavelli sínum, eða þá á Old Trafford, velli Manchester United. „Það er ekki aðalatriðið að spila á sem stærstum velli heldur þar sem stémningin er best,“ segir Keegan. -VS Evrópumeistaramótið í sundi í Lissabon: íslendingarnir eru í fínu formi - heQa keppni á mótinu í dag Roy Keane hleypur af 11 stlð eftir ad íjl hafa þrumað boltanum í \ mark Valencia i gærkvöld. Grótta/KR ekki langt frá því að komast í undanúrslit annað árið í röð: Þröstur hetjan - skoraði sigurmark Víkinga í framlengingu sekúndu *fyrir leikslok Víkingurinn Þröstur Helga- son endaði bikarævintýri 2. deildar liðs Gróttu/KR með því að skora sigurmark á síð- ustu sekúndu framlengingar og tryggja Víkingum 31-32 sig- ur í ótrúlegum spennuleik í 8 liða úrslitum bikarkeppni HSÍ á Seltjamamesinu í gær. Leik- urinn var frábær skemmtun og hafði upp á allt að bjóða. Grótta/KR byrjaði leikinn af krafti, nýtti sex fyrstu sókn- ir sínar og var yfir nánast all- an fyrri hálfleik. Víkingar jöfnuðu fyrir hlé og höfðu síð- an frumkvaíðið það sem eftir var leiksins en það er ekki hægt að bóka neitt gegn barátt- uglöðum Seltirningum sem hleyptu Víkingum aldrei frá sér og komust loks yfir 5 mín- útum fyrir leikslok eftir að hafa skoraði þrjú mörk í röð. Valgarð Thoroddsen jafnaði og tryggði Víkingi framleng- ingu en á síðustu mínútunni fengu bæði lið tvo möguleika á að eiga síðasta skotið en glopr- uðu bæði boltanum í bæði skiptin í mikilli taugaspennu. Víkingar komu ferskir inn í framlengingu og skoraðu tvö fyrstu mörk hennar og virtust klára leikinn er Þröstur Helga- son kom þeim í 29-31 þegar ein og hálf minúta var til leiksloka. En heimamenn margsönnuðu seiglu sína í þessum leik og enn og aftur náðu þeir að jafna. Eftir að Zoltan Bellanyi jafnaði leikinn úr víti 13 sekúndum fyrir leikslok fékk Gisli Kristjáns- son rautt fyrir að tefja, leiktím- inn rcmn út og flestir bjuggust við annarri framlengingu. Mjög góðir dómarar leiks- ins, Stefán Amaldsson og Gunnar Viðarsson, úrskurðuðu þó að sjö sekúndur væra eftir og þær nýtti Þröstur vel. Hann tók við boltammr rétt innan miðju, lék upp að punktalínu og þrumaði boltanum í netið og skoraði sitt 12. mark í leiknum, þaö fjórða í framlengingu og níunda eftir hlé. „Ég hugsaði eiginlega ekki neitt þama í lokin, við ætluð- um að reyna að spila okkur í gegn og það þróaðist þannig að ég fór beint upp í skotið enda sennilega svona markagráðug- ur. Við bjuggumst við erfiðum leik, þetta var finn sigur og góð æfing fyrir úrslitaleikinn," sagði Þröstur Helgason, hetja Víkinga, í gær. „Við áttum að klára þetta, við erum ekkert verra lið en þeir, það var skandall og óheppni að við féllum í fyrra, við erum með sterkt lið núna og þetta var okkar klaufaskap- ur,“ sagði Einar Baldvin Áma- son, fyrirliði Gróttu/KR, sem gerði mikilvæg mörk í lokin. Alexander Pettersons átti mjög góðan leik fyrir heima- menn og gerði 12 mörk, þar af niu í fyrri hálfleik, og átti auk þess 6 stoösendingar. Mörk Gróttu/KR: Alexander Pettersons 12, Zoltan Bellanyi 6/1, Sverrir Pálmason 4, Gísli Krist- jánsson 4, Einar Baldvin Ámason 3, Alfreð Finnsson 2. Hreiðar Guð- mimdsson varði 13 skot og Sig- tryggur Dagbjartsson 1. Mörk Víkinga: Þröstur Helga- son 12, Sigurbjöm Narfason 7, Val- garö Thoroddsen 5, Ingimundur Helgason 3/1, Hjalti Gylfason 3, Hjörtur Amarson 2. Hlynur Morth- ens varði 2 skot og Sigurður Sig- urðsson 13. -ÓÓJ Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu: „Góður dagur fyrir United" - sem vann góðan sigur á Valencia og Barcelona burstaði Sparta Prag Manchester United lék á köflum frábæra knattspymu gegn Val- encia í meistaradeild Evrópu á Old Trafford í gærkvöld. Liðið vann með þremur mörkum gegn engu og hefði sigur getað orðið enn stærri. Spænska liðið fékk að vísu sín tækifæri en fór illa með þau. Ole Gunnar Solskjær þakkaði það traust að vera valinn í byrjun- arliðið með góðu marki. „Þetta var góður dagur fyrir United í tvennum skilningi. í fyrsta lagi frábær úrslit og það að Roy Keane skrifaði undir nýjan fjögurra ára samning viö félagið. Hann átti góðan leik og kórónaði frammistöðuna með marki,“ sagði Alex Ferguson, knattspymustjóri United, eftir leikinn. Hector Raul Cuper, þjálfari Val- encia, sagði sína menn ólánssama að mæta enska liðinu í þessum ham en hrósaði engu að síður lið- inu fyrir góða baráttu. Það opnuðust allar flóðgáttir hjá Sparta Prag þegar það missti mann út af á 38. mínútu. Barcelona tók þá þegar leikinn í sínar hendur og áður en yfir lauk voru mörkin orðin fimm talsins. „Það var við ramman reip að draga eftir að við urðum einum færri,“ sagði Ivan Hasek, þjálfari Sparta. Eyjólfur Sverrisson og félagar í Hertha Berlín töpuðu fyrir Porto á útivelli. Sigur Porto var sanngjarn og átti Ungverjinn Gabor Kiraly stórleik í marki Hertha. Þýska lið- ið var hársbreidd frá því að jafna leikinn undir lokin þegar Michael Preetz átti skalla í stöngina og fram hjá. Eyjólfur lék allan leik- inn og komst ágætlega frá sínu. Fiorentina heppið Fiorentina mátti kallast heppið að sleppa með jafntefli í Bordaeux en heimamenn áttu mun hættu- legri færi í leiknum. -JKS MEISTARADEILDIN A-riðill: Porto - Hertha Berlin ......1-0 1-0 Drulovic (78.) Barcelona - Sparta Prag .... 5-0 1-0 Kluivert (44.), 2-0 Luis Enrique (45.), 3-0 Guardiola (59.), 4-0 Kluivert (63.), 5-0 Luis Enrique (76.) Porto 2 2 0 0 3-0 6 Barcelona 2 ] 1 0 6-1 4 Hertha 2 0 1 1 1-2 1 Sparta P. 2 0 0 2 0-7 0 B-riðill: Bordeaux - Fiorentina.......0-0 Manchester Utd - Valencia . . 3-0 1-0 Keane (38.), 2-0 Solskjær (47.), 3-0 Scholes (69.) Fiorentina 2 1 1 0 2-0 4 Manch. Utd 2 1 0 1 3-2 3 Valencia 2 1 0 2 3-3 3 Bordeaux 2 0 1 1 0-3 1 Keppni i meistaradeildinni heldur áfram 29. febrúar og þær Ijórar umferð- ir sem eftir eru verða þá leiknar með viku miilibili. Lið Fiorentina saknaði markaskorara síns, Garbriels Batistuta, sem var í leikbanni. Giovanni Trappatoni, þjálfari Fiorent- ina, sagði liðið með góða stöðu en það væri langt frá því öruggt áfram Mario Jardel hjá Porto er markahæstur í meistaradeildinni með 6 mörk. Luis Van Gaal, þjálfari Barcelona, sem hefur verið undir miklum þrýstingi síðustu vikumar, gat andað léttar eftir sigur í gærkvöld. -JKS/VS Ekki tapað 112 ár Víkingar hafa ekki tapað í átta liða úrslitum bikarsins í 12 ár og aðeins tvisvar í 18 leikjum í átta liða úrslitum frá upphafi keppninnar. Þeir verða því í undanúrslitunum í sjötta sinn á síðustu 10 árum. Víkingar hafa ásamt FH oftast komist alla leið í úrslitaleikinn eða típ sinnum og unnið bikarinn oftast eða sex sinnum. -ÓÓJ - NBA-DEILDIN Urslitin í nótt: Boston - Denver...........115-90 Walker 20, Pierce 15 - McDyess 20, Billups 19. Philadclphia - Ilouston . . . .83-73 McKie 16, Snow 16 - Francis 18, Mobley 14. Atlanta - LA Clippers.....99-81 Rider 38, Mutombo 16 - Taylor 22, Olowokandi 17. Charlotte - Golden State .113-106 Jones 30, Cloeman 17 - Starks 28, Jamison 26. Cleveland - Chicago.......107-93 Sura 29, Kemp 21 - Benjamin 15, Perdue 13. New Jersey - Milwaukee . .107-90 Marbury 25, Van Hom 20 - Robinson 25, Alllen 14. Sacramento - LA Lakers . .103-91 Webber 20, Williams 19 - O'Neal 27, Bryant 27. Utah - Dallas.............85-79 Malone 29, Russel 13 - Cabelios 19, Nowitzki 15. Seattle - Minnesota.......110-94 Payton 36, Baker 22 - Granett 22, Szczerbiak 16. Patrick Ewing og lið hans, New York Knicks, fengu í gær sekt, Ewing 700 þúsund krónur og Knicks 1,8 milljónir. Ástæðan er sú að Ewing, sem ekkert hefur leikið í vstur vegna meiðsla, hefur ekki farið að reglum NBA-deildarinnar um að veita fjöl- miðlum aðgang að sér á ákveðnum tímum. Sport Danir á varðbergi gagnvart íslandi: „Óttast íslendinga meira en Búlgari" Danir virðast almennt á því að íslendingar verða erfiðir andstæðingar í undankeppni HM í knattspyrnu, ef marka má viðbrögð þeirra við drættinum í Tokyo í fyrradag. Ummæli vamarmannsins Rene Henriksens eru athyglisverð en hann sagði við Politiken að hann óttaðist íslendinga meira en Búlgari. „Ég er ekkert smeykur við Búlgari því þeir hafa ekkert sýnt síðustu árin. Ég ótt- ast íslendinga mun meira því þeir eiga marga góða leikmenn víös vegar um Evrópu,“ sagði Henriksen. Morten Olsen, sem tekur við danska liðinu næsta sumar, tekur í sama streng. „íslendingar verða hættulegir, þeir eru líkamlega sterkir og leika mjög skipulega og sýndu í síðustu Evrópukeppni að þeir eru ekki bara hættulegir á heimavelli,“ sagði Olsen við Politiken. -VS Bitlausir Valsarar - engin fyrirstaöa fyrir fríska Framara Framarar áttu ekki í neinum vandræðum með bitlausa Valsara á Hlíðarenda í gærkvöldi þegar liðin mættust í 8 liða úrslitum bikar- keppninnar. Fram sigraði 19-22 eft- ir að hafa náð fjögurra marka for- skoti í hálfleik, 7-11. Leikurinn fór rólega af stað en Framarar voru mun ákveðnari og náðu tveggja marka forskoti, 1-3, eftir að Valur hafði skorað fyrsta mark leiksins. Framarar, sem léku ákveðna 5-1 vöm og klipptu út miðj- una hjá Val, vora ekki á því að láta forystuna af hendi, þeir juku mun- inn smám saman og leiddu með fjór- um mörkum í hálfleik. Framarar hófu seinni hálfleikinn af krafti, skoruðu fyrstu tvö mörkin en Valsmenn komu loks til baka, skoruðu fimm mörk á móti einu og minnkuðu muninn í tvö mörk. Lengra komust þeir ekki, Framarar með Robertas Pauzuolis í farar- broddi bættu einfaldlega í leik sinn og tryggðu sér öruggan sigur. Valsarar voru undarlega meðvit- undarlitlir í þessum leik. Þeir léku engan vegin af eðlilegri getu, létu varnarleik Fram koma sér úr jafn- vægi í alltof langan tíma og náðu sér aldrei á strik í sóknarleiknum. Davíð Ólafsson, Sigfús Sigurðsson og Axel Stefánsson léku þeirra skást en ungu strákamir i liðinu sem og jaxlamir Júlíus og Geir voru slakir. Robertas Pauzuolis bar sóknar- leik Fram uppi en hann ásamt þeim Oleg Titov og Gunnari Berg mynda óárennilegan múr í vörninni, múr sem Valsmenn náðu aldrei að brjóta. Mörk Vals: Daviö Örn Ólafsson 5, Sig- fús Sigurðsson 3, Snorri St. Guðjónsson 3, Markús Máni Michaelsson 2/1, Freyr Brynjarsson 1, Daníel S. Ragnarsson 1, Sigfús Sigurðsson 1, Bjarki Sigurðsson 1 og Július Jónasson 1. Varin skot: Axel Stefánsson 13. Brottvísanir: 6 minútur. Mörk Fram: Robertas Pauzuolis 7, Njörður Árnason 7/4, Gunnar Berg Vikt- orsson 5/2, Guðmundur Helgi Pálsson 2 og Róbert Gunnarsson 1. Varin skot: Sebastian Alexandersson 13/1. Brottvísanir: 4 mínútur, Rautt spjald: Róbert Gunnarsson. -ih Baráttusigur HK-inga - þegar þeir lögöu ÍR, 29-26 „Það var frábær stemning í hópn- um og við sýndum mikinn karakter. Þeir náðu að jafna nokkrum sinum en við hifðum okkur afltaf jafnharð- an upp aftur. Þessi leikur sýnir að þegar viö berjumst og tökum vel á erum við illviðráðanlegir,“ sagði Óskar Elvar Óskarsson, fyrirliði HK, eftir að hans menn komust í undanúrslit bikarsins með þriggja marka mun á ÍR, 29-26, í Digranesi í gærkvöld. Leikurinn var lengst af jafn en HK hafði þó yfirleitt frumkvæðið. Ragnar Óskarsson hjá ÍR og Óskar Elvar Óskarsson hjá HK fóra fyrir sínum mönnum í sókninni og var Ragnar sérstaklega öflugur í fyrri hálfleik, skoraði m.a. fimm af fyrstu sjö mörkum síns liðs. HK komst mest þremur mörkum yfir í hálf- leiknum, 10-7 og 15-12 en í leikhléi var staðan 15-13. Sami gangur var á leiknum í sið- ari hálfleik. HK komst alltaf 2-3 mörkum yfir en ÍR-ingar náðu alltaf að jafna. Þessi barátta hélst allt fram til leiksloka. ÍR-ingar minnkuðu muninn úr 27-24 í 27-26 og fengu gullið tækifæri til að jafna þegar rúm mínúta var til leiksloka. Þá fengu þeir hraðupphlaup en Ólaf- ur Sigurjónsson missti boltann og í staðinn skoraði Samúel Árnason fyrir HK úr hraðaupphlaupi og þar með voru úrslitin ráðin. Eins og Óskar sagði höfðu HK- menn sigur fyrst og fremst á barátt- unni og með henni getur liðið náð langt í bikarkeppninni. Óskar var bestur sinna manna en Samúel sýndi einnig góð tilþrif. Hjá ÍR-ing- um voru Ragnar og Ingimundur bestir auk þess sem 17 ára örvhent skytta, Einar Hólmgeirsson, átti góða innkomu i síðari hálfleik. Mörk HK: Óskar Elvar Óskarsson 9/4, Samúel Ámason 5, Hjálmar Vilhjálmsson 4, Guðjón Hauksson 4, Alexander Amar- son 3, Sverrir Bjömsson 3, Jón Bersi Ell- ingsen 1. Varin skot: Hlynur Jóhannesson 8, Kristinn Guðmundsson 3. Brottvisanir: 8 mín. Mörk ÍR: Ragnar Óskarsson 10/5, Ingi- mundur Ingimundarson 5, Erlendur Stef- ánsson 3, Einar Hólmgeirsson 3, Ólafur Sigurjónsson 2, Finnur Jóhannsson 2, Bjami Fritzson 1. Varin skot: Hrafn Margeirsson 7, Hall- grimur Jónasson 5. Brottvísanir: 8 mín. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.