Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 30 Sport Bland í poka Juan Antonio Samaranch, forseti Al- þjóða Ólympíunefhdarinnar, lét hafa eftir sér í vikunni aö hann heiði hætt störfum fyrr á þessu ári ef aðeins einn fjórði hluti Ólympíunefiidarinnar hefði snúist gegn honum. Hinn 79 ára gamli Samaranch iá undir miklum þrýstingi aö segja af sér fyrr á þessu ári þegar margir meðlimir Olympíunefhdarinnar urðu uppvísir að alis kyns svikum og prettum og að hafa þegið hinar ýmsu gjafir frá umsækjend- um Ólympíuleikanna. Samaranch bað um kosningu um það hvort hann ætti að sitja í embætti áfram. 86 sögðu já en aðeins 2 nei. ítalski markvörðurinn Massimo Taibi, sem er á mála hjá Manchester United, hefur undanfama daga dvalið í heimalandi sínu. Þar hefur hann verið við æfingar hjá lærimeistara sínum Lorenzo di Iorio, markvaröaþjálfara hjá Napoli. „Taibi óskaði eftir hjálp okkar við að koma honum í gott form þannig að hann gæti barist fyrir sæti sínu í Manchester-liðinu,“ sagði Filipo Fusco, framkvæmdastjóri hjá Napoli. Nigeriumaóurinn Kanu, sem leikur með Arsenal, hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við liðið. Kanu vill fá 4,7 milljónir króna í vikulaun á meðan Dennis Bergkamp, sem er hæst launaði leikmaður félagsins, er með 4,1 milljón króna á viku. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vonast til að geta náð samningum við Kanu en hann segir fé- lagið ekki tilbúið að ijúfa launaþakið. Mikil meiðsli herja á leikmannahóp Middlesbrough í ensku A-deildinni í knattspymu. Nú síðast uröu framheij- amir Brian Deane og Hamilton Ricard fyrir meiðsl- um og era þar með 9 leikmenn liðsins komnir á sjúkraiist- ann en á honum era leikmenn eins og Paul Ince, Paul Gascoigne og Gary Pallister. Coventry hefur gert samning við Thomas Gustafsson, 26 ára gamlan sænskan varnarmann sem leikiö hef- ur með AIK í Sviþjóð. Gustafsson verður þriðji Svíinn í herbúðum Coventry en fyrir era markvörðurinn Magnus Hedman og og bakvörður- inn Roland Nilsson en Gustafsson er einmitt hugsaður sem arftaki hans og það var Nilsson sjálfur sem mælti með landa sínum. Isolde Kostner frá ítaliu sigraði í risasvigi á heimsbikarmóti á skíðum sem fram fór í Val D’Isere í Frakk- landi í gær. Þýska stúlkan Hilde Gerg varð önnur og Pemilla Wi- berg, Svíþjóð, þriðja. Kvennahandboltinn i Noregi nýtur geysilegra vinsælda meðal þjóðarinn- ar. í fyrrakvöld fylgdust 880.000 manns með beinni útsendingu TV 2 i Noregi frá leik Noregs og Ukraínu i HMkvenna í handbolta en 420.000 sáu leik Rosenborgar og R. Madrid i meistaradeildinni á TV 3. -GH Islenskir körfuboltamenn í bandaríska háskólaboltanum: Vekja mikla athygli - eiga eftir aö gera garöinn frægan meö landsliðinu, segir Axel Nikulásson íslenskir körfuknattsleikmenn hafa vakið mikla athygli í háskóla- boltanum í Bandaríkjunum 1 vetur. Axel Nikulásson, fyrrum landsliðs- maður og þjálfari, hefur skynjað þetta en hann búsettur í Bandaríkj- unum og hefur fylgst grannt með ís- lensku strákunum sem hann þjálfaði marga hverja í unghngalandsliðinu. „1 Bandaríkjunum er samkeppni í körfuknattleiknum harðari en lýst verður í stuttu máh en einungis 1% leikmanna með menntaskólaliðum nær því að keppa á háskólastigi," segir Axel. Logi slegiö í gegn Meðal þeirra sem í ár reyna fyrir sér í Bandaríkjunum eru: Baldur Ólafsson (Reykjavik) sem leikur með Farleigh Dickinson-háskólanum í fyrstu deild háskólaboltans en Bald- ur er 206 cm á hæð, Morten Szmiedowicz (Grindavík) sem er 210 cm. Hann er að gera góða hluti með menntaskólaliði sínu í Virginía-fylki og er fylgst grannt með honum af sumum af stærstu háskólum Banda- ríkjanna, Sævar Sigurmundsson sem er 199 cm á hæð (Þorlákshöfh) og Samaranch íhugaði að segja af sér Juan Antonio Samaranch, for- seti Alþjóða Ólympíunefndarinn- ar hefur viðurkennt að hafa íhugað afsögn í kjölfar hneyksl- ismálanna varðandi Salt Lake City. Samaranch, eins og fjölmargir meðlimir IOC, varð fyrir þung- um ásökunum í kjöifar mútu- mála og eftir að upp komst að hann ásamt fleirum hafði þegið gjafir frá aðhum sem sóttu um að fá að halda Ólympíuleika. Sjálfur þáði Samaranch gjafir sem voru langt umfram leyfileg mörk. Samaranch sagði í gær að hann hefði sagt af sér ef fjórð- ungur meðlima IOC hefði farið fram á afsögn. Mikill meirihluti studdi hann hins vegar í leyni- legri atkvæðagreiðslu. -SK Jogbra brjóstahaldari Hannaður af konum fyrir ko Heildsöludreifing: Ágúst Ármann hf Lýður Vignisson (Stykkishólmi) keppa með háskólaliði í Alabama sem bauð þeim skólastyrk vegna getu þeirrar í íþróttinni, Njarðvík- ingurinn Logi Gunnarsson hefur í vetur slegið í gegn með menntaskóla- hði sínu í New Jersey og Axel segist fá reglulega símhringingar frá há- skólum sem áhuga hafa á þessum sterka leikmanni. Loks má nefna Reykvíkinginn Jón Amór Stefánsson sem leikur í einu sterkasta mennta- skólaliði Bandaríkjanna (Artesia High School í Los Angeles) og er þar í byrjunarliði þrátt fyrir að vera yngsti maður þess. f fyrsta leik liðsins á þessu tíma- bili stimplaði Jón sig inn með 19 stig- um, þ. á m. 4 þriggja stiga körfur. í nýjasta hefti timaritsins SLAM, sem er víðlesnasta körfu- knattleikstímarit Bandaríkjanna, er fjallað um Artesia-liðið sem besta menntaskólalið Bandarikjanna. Dag- blaðið USA Today telur Artesia þriðja besta menntaskólalið Banda- ríkjanna þannig að ljóst má vera að íslendingar eiga verðuga fulltrúa á þessum vettvangi. Jón Arnór og Morten nefndir sérstaklega „Vert er að geta þess að fjöldi menntaskólaliða hér skiptir þúsund- um. Bæði Jón Amór og Morten hafa undanfarin tvö ár verið nefndir sér- staklega í hópi efnilegra leikmann í árbókinni „Blue Ribbon" sem fjallar um háskólalið en legguf einnig mat á leikmenn í menntskólaliðum sem lík- legir em til afreka í framtíðinni. Aldrei áður hafa íslenskir leikmenn verið nefndir til sögunnar á þessum vettvangi," segir Axel. Axel er ekki sammála því sem Stefán Ingólfsson ritaði í DV á dögun- um en þar talaði Stefán um að hæfl- leikafólki í körfuknattleik hefði fækkað á höfuðborgarsvæðinu. Axel bendir á fjölgun Reykvíkinga í drengja- og unglingalandsliðinu. Mikil og jákvæö þróun „íslendingar mega vera nokkuð sáttir við þróun íslensks körfubolta sL ár sem hefúr m.a. einkennst af framfórum og fjölgun i hópi leik- manna sem ná tveggja metra hæð. Mikil og jákvæð breyting hefur orðið á undanfomum árum og leikmenn eins og Friðrik Stefánson, Fannar Ólafsson, Hjalti Jón Pálsson, Her- mann Hauksson, Guðmundur Braga- son o.fl. em að gera góða hluti með félagshðum sínum og með íslenska landsliðinu. Fleiri hávaxnir leikmenn bíða síns tækifæris, en í Bandaríkjunum er mikih fjöldi efnilegra leikmanna sem eiga öragglega eftir að gera garðinn frægan með íslenska landsliðinu er fram í sækir.“ „Þegar Stefán segir mikinn skaða að miðherjar á íslandi geti ekki lengur brúkað stutt sveifluskot er hann að nota rangan mælikvarða á getu hávaxinna leikmanna. Ég vil þó nota tækifærið og þakka honum fyrir að hafa með einni setningu gert undirritaðan auk Einars Bolla- sonar að fyrirmynd íslenskra mið- herja því báðir notuðum við stutt sveifluskot í eina tið. Ástæður okk- ar Einars voru þó frekar að vega upp á móti mikilli þyngd, lítihi hæð og minni stökkkrafti. En hrósið ylj- aði og er hér þakkað," segir Axel. -GH Allt að verða til í Sydney Undirbúningur í Sydney í Ástralíu vegna Ólympíuleikanna á næsta ári er í fuhum gangi og gengur samkvæmt áætlunum. Gerð mannvirkja er að ljúka. Á dögunum var lokið við að byggja afar glæsilega tennishöh og var hún ein eftir af mann- virkjunum. Fyrirliði ástralska landsliðsins sem á dögunum tryggði sér sigur í heimsmeist- arakeppni landsliða, Davis-bik- arnum, opnaði höhina sem ekki er nein smásmíöi. Ahs eru 16 vellir í höhinni og við einn þeirra era sæti fyrir 10 þúsund áhorfendur, Höhin kostaði enga smáaura. Lokakostnaður hljóðaði upp á litla 1,8 milljarða króna. -SK Axel Nikuiásson segir marga efnilega körfuboltamenn í Bandaríkjunum. I kvöld Urvalsdeildin í körfuknattleik: Skailagrímur-Njarðvík ......20.00 Grindavík-KFÍ ..............20.00 KR-Hamar....................20.00 Haukar-Snæfell..............20.00 Keflavík-Akranes ...........20.00 1. deild kvenna í körfuknattleik: KR-Keflavík ................18.00 1. deild karla 1 körfuknattleik: ÍS-Þór Þorlákshöfn..........20.15 Sendið til: íþróttamaður ársins DV - Þverholti 11 105 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.