Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1999, Qupperneq 2
20
+
21
Sport
Blcrnd í polca
Þjóðverjar stefna að góðum árangri í
Evrópukeppni landsliða í handknatt-
leik 1 Króatiu í janúar. Þeir kalla
landsliðið saman til æfinga strax eft-
ir áramótin. Dagana 7.-9. janúar tek-
ur liðið þátt í 4-landa móti á Kanarí-
eyjum ásamt Spánverjum, Slóvenum
og Portúgal. Helgina á eftir veröa síð-
an leiknir tveir landsleikir við Spán-
verja á heimavelli.
Gianlucca Vialli, knattspyrnustjóri
■ Chelsea, er sagð-
ur reiðubúinn
að kaupa Ro-
berto Baggio
frá Inter Milano
fyrir fjórar millj-
ónir punda.
Baggio lýsti þvi
yfir í vikunni að
hann vildi fara
frá Inter. Vialli og Baggio hafa um
árabil verið miklir vinir.
Svo gœti farið að Dean Holdsworth
færi frá Bolton til Lundúnaliðsins
QPR. Hann hefur ekki náð að festa
sig í sessi hjá Bolton en hann kom
þangað frá Wimbledon fyrir rúmum
tveimur árum. Gerry Francis, stjóri
QPR, er tilbúinn að greiða Bolton 750
þúsund pund fyrir leikmanninn.
Forráóamenn Portsmouth hafa
augastað á Joe Kinnear sem næsta
knattspyrnustjóra liðsins en Alan
Ball var vikið úr starfl í síðustu
viku. Kinnear hefur náð fullri heilsu
aftur eftir hjartaáfallið í fyrra en þá
var hann við stjórnvölinn hjá
Wimbledon.
Matthew Le Tissier hjá Sout-
hampton segir að hann sé tilbúinn að
yfirgefa félagið og leika þess í stað
meö liði í B-deildinni. Hann hefur
verið út i kuldanum í vetur og ef ekki
verður breyting á ætlar hann að
skoða sín mál eftir jól.
Celtic er á höttunum eftir öðrum
Brasilíumanni. Fyrr i vikunni keypti
liöið vamarmanninn Rafael Scheidt
og núna er miövallarspilarinn Moz-
art dos Santos kominn í spilið. Hann
er 19 ára gamall og þykir hið mesta
efni. Hann er falur fyrir 3 milljónir
punda og hafa mörg lið í Evrópu ver-
ið með hann undir smásjánni.
Jólahlaöboró handknattleiksdeildar
FH verður haldið að Hraunholti á
laugardaginn. Húsið verður opnað
klukkan 19 og hefst borðhald klukkan
20.30. Aðgangur er krónur 1500 og
greiðist við innganginn. Boöið verður
upp á skemmtiatriði og diskótek.
Fyrsta bikarmót Skiöasambandins í
skíðagöngu í vetur verður haldið i
Hlíðarfjalli við Akureyri um helgina
og hefur ekki áður verið haldið mót
svo snemma á tímabilinu. Flestir
bestu göngumenn landsins eru skráð-
ir til leiks, þar á meðal þeir landsliðs-
menn sem i vetur hafa stundað æflng-
ar í Noregi og Svíþjóð.
Belgíski landsliðsmaðurinn Branko
Strupar sem leikur með Genk í Belg-
íu, liði bræðranna Þórðar og
Bjarna Guðjónssona, gæti verið á
leið til enska A-deildarliösins Derby.
Jim Smith, stjóri Derby, yfirgaf
Pride Park, heimavöll Derby, áður en
leik Derby og Burnley var lokið á
laugardaginn en Smith hélt þá til
Belgíu til að fylgjast með Strupar í
leik gegn Mechelen.
Derby hefur leitað logandi ljósi að
sterkum sóknarmanni enda hefur lið-
inu gengið illa að skora mörk. Liðið
reyndi meðal annars að kaupa Eið
Smára Guðjohnsen en án árangurs.
Nú vonast Smith eftir því að fá Strup-
ar en hann hefur boöiö Genk 220
milljónir króna fyrir leikmanninn.
Þýski sundmaðurinn Mark Warn-
ecke, sem varð Evrópumeistari í 50
metra bringusundi á Evrópumótinu í
sundi um síðustu helgi, þarf að gang-
ast undir aðgerð á hné á morgun. Þar
með er ljóst að hann missir af heims-
bikarkeppninni sem fram fer í Shang-
hai og Hong Kong í næsta mánuði.
Jóhannes Karl Guðjónsson lék á
miðjunni hjá MWMaastricht sem
tapaði, 1-0, fyrir Nijmegen í hol-
lensku A-deildinni í knattspyrnu í
gærkvöld. MW er í 15. sæti af 18 lið-
um. PSV vann útisigur á Ajax, 1-3, i
uppgjöri efstu liðanna og skoraöi
Ruud van Nistelrooy öll mörkin fyrir
PSV. Liö hans er meö 38 stig, Ajax 35
og Heerenveen 34.
Panathinaikos, lið Helga Sigurðs-
sonar í grísku knattspyrnunni, hefur
gert „lifstíðarsamning" við hinn 35
ára gamla Pólverja Krystof Warchy-
cha. Hann hefur leikið með félaginu
í 10 ár og verður þar eins lengi og
hann spilar knattspyrnu.
-JKS/GH/VS
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999
Eiður Smári Guðjohnsen:
„Besta markið
á ferlinum"
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri enska B-deildar-
liðsins Bolton, á ekki orð til að lýsa hrifningu sinni
með mark Eiðs Smára Guöjohnsen í leiknum gegn
Wimbledon í fyrrakvöld og stjórinn hrósar Eiði há-
sterkt í breskum fjölmiðlum í gær. Allardyce segir
markið eitt þaö besta sem hann hefur séð.
„Eiður hefur skorað 10 mörk í 20 leikjum. Félagar
hans í liðinu hafa verið aö búa til færi fyrir hann en
sjáifur hefur Eiður oft veriö að skapa sér færin upp á
eigin spýtur. Eiður hefur sýnt mér það aö hann er
orðinn klassaleikmaður og hvað eftir annað fór hann
illa með varnarmenn Wimbledon í leiknum. Ég vO sjá
Eið leika jafn vel í deildinni og hann hefur verið að
gera í bikarleikjunum," sagði Allardyce.
„Þetta er besta markið sem ég hef skorað á ferlinum.
Ég ákvað að fara fljótlegustu leiðina að markinu. Ég
fór fram hjá nokkrum leikmönnum Wimbledon, að ég
held, og þegar ég var kominn í færi beið ég eftir aö
markvörðurinn færi niður,“ sagði Eiður. Hjá Sky var
tilþrifum Eiðs líkt við sjálfan George Best.
Eiður fékk gullið marktækifæri rétt á eftir en
honum brást bogalistin. „Ég ætlaði ekki að trúa þessu
og ég vil ekki að vera með neinar afsakanir. Úr svona
færi á að skora,“ sagði Eiöur. -GH
Hætta þrír
í Grindavík?
Útlit er fyrir að þrír leik-
manna knattspyrnuliðs Grinda-
víkur leggi skóna á hilluna fyrir
næsta tímabil. Baráttujaxlinn
Hjálmar Hallgrímsson hefur lík-
lega leikið sitt síðasta tímabil og
þá er óvíst að Ólafur Ingólfsson
verði með Grindavikurliðinu
vegna anna í námi og vinnu, að
sögn Jónasar Þórhallssonar,
stjórnarmanns í knattspyrnu-
deild Grindavíkur.
Varnarmaðurinn Sveinn Ari
Guðjónsson er þegar fluttur til
Djúpavogs þar sem hann var ráð-
inn framkvæmdastjóri fisk-
vinnslufyrirtækis en þessir þrír
eru í hópi reyndustu manna
Grindavíkurliðsins. -bb/VS
Bland í noka
Sigurður „RavanellV'
Hallvarðs-
son, bjarg-
vættur
Þróttara úr
Reykjavík í
1. deildinni
í knatt-
spyrnu í
sumar og oft áður, er
genginn til liðs við 3.
deildar lið Hauka. Það
virðist því enn veröa bið
á því að þessi gamal-
kunni markaskorari leggi
skóna á hilluna. Haukar
hafa einnig fengið Elmar
Atlason og Helga Þóró-
arson sem léku með FH i
1. deildinni 1998.
Spœnsku bikarmeistar-
arnir i Valencia eru í
vondum málum eftir að
hafa tapað fyrri
viðureignnni í
2. umferð bik-
arsins, 0-3, fyrir
B-deildarliðinu Osasuna.
Bæði Barselónuliðin,
Espanyol og Barcelona,
máttu sætta sig við
markalaus jafntefli. Bar-
celona gegn C-deildarlið-
inu Poli Almeira en Esp-
anyol gegn B-deildarliði
Albacete.
Önnur spcensk A-deild-
arliö sem töpuðu fyrir
neðri deildarliðum eru
Oviedo 2-3 fyrir Logrones
(B), Real Mallorca 1-2 fyr-
ir Ourense (B), Alaves 0-1
fyrir Real Union (C) og
Real Betis 0-1 fyrir Mer-
ida (B) en öll fá þau tæki-
færi að bæta fyrir slæma
frammistöðu á heimavelli
í seinni leik liðanna.
-VS/ÓÓJ
Þýska bikarkeppnin í handbolta:
Wuppertal skellti Lemgo
góður leikur Heiðmars Felixsonar
Wuppertal
vann
óvæntan
sigur á
Lemgo,
26-24, í 16-
liða úrslit-
um þýsku
bikar-
keppninn-
ar í hand-
knattleik í
gærkvöld,
eftir framlengingu. Staðan að lokn-
um venjulegum leiktíma var 22-22.
Heiðmar Felixson átti góðan leik
með Wuppertal og skoraöi 4 mörk,
eitt þeirra úr vítakasti. Dagur Sig-
urðsson spilaði einnig vel og gerði
2 mörk. Markahæstir voru Stig
Rasch með 8 mörk og Ingo Strauss
með 7.
Ólafur Stefánsson skoraði 3
mörk fyrir Magdeburg sem vann B-
deildarlið HGErlangen á útivelli,
25-28. „Þetta var ekki nógu góður
leikur en við unnum þó án þess að
lenda í teljandi vandræðum," sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari Magde-
burg, við DV eftir leikinn.
Essen steinlá í Frankfurt, 28-21,
en Patrekur Jóhannesson lék ekki
með Essen vegna tognunar, sem
ekki er alvarleg.
Úrslitin í bikarkeppninni:
Wuppertal - Lemgo............26-24
HG Erlangen - Magdeburg .....25-28
Frankfurt - Essen............28-21
Bad Schwartau - Bielefeld ...38-18
Aue - Flensburg..............23-30
Gummersbach - Post Schwerin . . 31-24
Minden - Leutersbach ........30-23
Kiel - Nordhorn............í kvöld
-VS
Heiðmar Felixson lék
vel gegn Lemgo.
Enski deildabikarinn:
Dramatik
- Arnar skoraði úr víti, Leicester áfram
Þaö fylgdi mikil dramatík báð-
um leikjum enska deildabikars-
ins sem fram fóru í gær. Tveir
leikir fóru fram í keppninni, ann-
ar í átta liða úrslitum
en hinn í 16-liða úrslit-
um og enduðu þeir báð-
ir í vítakeppni. Líkt og
Eiður Smári Guðjohn-
sen átti mikinn þátt í
að koma Bolton áfram í
undanúrslit kvöldið
áður, skoraði Arnar
Gunnlaugsson af miklu
öryggi úr fyrstu víta-
spyrnu Leicester sem
sló út Leeds, 4-2, í um-
ræddri vítakeppni.
Leicester komst þar
með í átta liða úrslitin
og spilar við Fulham í
næstu umferð. Þetta
var fyrsti leikur Amars með aðal-
liðinu á tímabili eftir langvinn
meiðsli en hann kom inn á í upp-
hafi framlengingar. Leeds lék ein-
um manni færra alla framleng-
inguna eftir að Lucas Radebe var
rekinn út af. Tvö síðustu víti
Leeds af fjórum hittu ekki mark-
ið og Muzzy Izzet skoraði úr síð-
ustu spyrnu Leicester og tryggði
sigurinn.
í hinum leik kvöldsins vann
West Ham Aston Villa 5-4, í víta-
keppni eftir að leiknum hafi lokið
með 2-2 jafntefli. t þeim leik var
ekki aðeins dramatík tengd víta-
keppninni því bæði lið skoruðu
mark á síðustu mínútu venjulegs
leiktíma. Ian Taylor og Dion
Dublon komu Aston
Villa tvisvar yfir í
leiknum en Frank
Lampard og Paolo Di
Canio jöfnuðu, Di
Canio af öryggi úr
vítaspyrnu á síðustu
sekúndum leiksins.
Það kom síðan aftur í
hlut Gareth Southgate
að misnota víti fyrir
Aston Villa í bráða-
bana en líkt og með
Englandi á EM 1996 lét
hann markvörð verja
frá sér vítið. Báðir
fr amkvæmdastj ór ar
liðanna, John Gregory
(Aston Villa) og Harry Redknapp
(West Ham), hrósuðu honum fyr-
ir það hugrekki sem hann sýndi
með að ganga fram og taka víti,
minnugur umrædds dags fyrr
rúmum þremur árum. Shaka
Hislop markvörður West Ham,
var hetjan með því að verja vítið
en félagar hans í liðinu nýttu
fimm af sex vítum.
West Ham mætir sigurvegaran-
um úr leik Leicester og Fulham
en í hinum leik undanúrslitanna
mætast Bolton og Tranmere.
-ÓÓJ
Arnar Gunnlaugs-
son skoraði af ör-
yggi úr fyrstu víta-
spyrnu Leicester
gegn Leeds.
Ná HK-ingar að hefna?
HK-ingar fá möguleika til að komast í úrslitaleik bikarkeppninn-
ar í handbolta í fyrsta sinn og bæta upp tap á sama stað því líkt og
fyrir tveimur árum, þegar Framarar slógu þá út úr undanúrslituin-
um í Framhúsinu, drógust liðin aftur saman í Safamýrina í ár.
Dregiö var í beinni útsendingu sjónvarpsins i gærkvöld og í hinum
leiknum mætast Víkingar og Stjörnumenn í Víkinni en leikirnir
fara fram 9. febrúar næstkomandi.
Hjá kvenfólkinu fengu þau tvö lið sem standa ofar i deildinni í
vetur heimaleik. Valsstúlkur fá Stjömuna í heimsókn á Hlíðarenda
og Grótta/KR tekur á móti ÍR-stúlkum á Nesinu en báðir þessir leik-
ir fara fram 8. febrúar. -ÓÓJ
lan Taylor hjá Aston Villa
skorar fyrsta markið í
spennuleiknum gegn West
Ham í deildabikarnum í
gærkvöld. Það var West Ham
sem fagnaði sigri að lokum
eftir vítaspyrnukeppni.
Reuter
Fyrsta jafnteflið gegn ítölum í Hollandi:
Baráttu-
stigi náð
- Magnús Már jafnaði fyrir ísland í 20-20
íslenska landsliðið í handbolta, skipað
eingöngu leikmönnum sem leika hér heima
á íslandi, gerði 20-20 jafntefli gegn ítölum í
gær í fyrsta leik á Haarlem handboitavik-
unni í Hollandi eftir að ítalir höfðu leitt
7-10 í hálfleik. Þorbjöm Jensson landsliðs-
þjálfari var nokkuð sáttur við fyrsta leik
liðsins á mótinu sem stendur til 19. desem-
ber og þátt taka auk þessara tveggja liða
Rúmenía, Pólland, Holland og Egyptaland.
ísland átti nokkuð erfiða byrjun í leikn-
um, margir leikmanna íslenska liðsins
voru að stiga sín fyrstu spor í landsliðinu
og ítalir náðu góðri fomstu framan af leik.
íslensku strákarnir tóku sig á er leið á og
unnu loks seinni hálfleik, 13-10, og sýndu
þjálfaranum hvað er í þá spunnið.
Þetta var mikiil baráttuleikur og til
marks um það kom fyrsta markið ekki fyrr
en sjö mínútur voru liðnar af leiknum en
það var einkum góð islenska vörn sem skil-
aði jafnteflinu i seinni hálfleik.
Þetta var sjöundi landsleikur þjóðanna
frá upphafi en Island hafði unnið fyrstu sex
landsleikina, þann fyrsta 1975 og þann sið-
asta 1995, 23-20, en að sögn Þorbjöms var
ítalska liðið að mestu skipað sömu leik-
mönnum og léku í þessum leik í Austurríki
fyrir rúmum fjórum árum. ítalir eru með
leikreynt og hávaxið lið en fremstur í
flokki fór skyttan Marcelo Montalto sem
gerði alls sex mörk í leiknum.
„Við eltum þá mestallan leikinn því við
hleyptum þeim of mikið fram úr okkur í
byrjun. Liðið okkar var svolítið óskrifað
blað fyrir þennan leik og því fylgdu smáerf-
iðleikar í byrjun. Það var þó margt mjög já-
kvætt í þessum leik og þá sérstaklega það
að fá ekki meira en 20 mörk á sig. Við get-
um samt spilað betri vörn og við verðum
að halda okkar dampi og gera áfram betur
og betur því það er ýmislegt sem við getum
lagað í sókn og vörn,“ sagði Þorbjörn.
Allir fengu að spreyta sig
Allir fengu að spreyta sig en gerð var
undantekning á reglum IHF á tæknifundi
mótshaldara og 15 leikmenn fá að vera á
skýrslu í hverjum leik. Ragnar Óskarsson
leysti skyttuhlutverkið hægra megin ásamt
einu örvhentu skyttu liðsins, Daníel Ragn-
arssyni og Alexander Amarson spilaði sem
fremsti maður í 5:1 vöm fyrri hluta leiks.
Alexander skoraði meðal annars tvö mörk
eftir hraðaupphlaup en það vom línumenn
liðsins, hann og Magnús Már Þórðarson,
sem skoruðu rétt tæpan helming marka
liðsins, átta af 20. Alexander fékk reyndar
tækifæri í stöðunni 19-19 til að skora úr
hraðaupphlaupi og koma íslandi í fyrsta
sinn yfir en ítalirnir komust upp með að
brjóta á honum, náðu boltanum og komust
aftur yfir aftur, 20-19. Það var síðan Magn-
ús Már sem jafnaði leikinn áður en ís-
lenska vörnin varðist síðustu sókn ítala.
Mörk Islands: Magnús Már Þórðarson 5, Alex-
ander Arnarson 3, Ragnar Óskarsson 3, Ingi-
mundur Ingimundarson 3, Sverrir Björnsson 2,
Guðjón Valur Sigurðsson 1, Amar Pétursson 1,
Hilmar Þórlindsson 1, Ólafur Sigurjónsson 1.
Sebastian Alexandersson byrjaði í markinu og
lék fyrri hálfleikinn en í hálfleik tók Bergsveinn
Bergsveinsson við og var Þorbjörn ánægður með
frammistöðu þeirra beggja. -ÓÓJ
Nafn íþróttamanns
Nafn:........................... .................................. Sími_____
Heimilisfang--------------------—-----------------------—--------------------
Sendið til:
íþróttamaöur ársins
DV - Þverholti 11
105 Reykjavík
Leeds mætir Roma
- Arsenal dróst gegn Deportivo La Coruna
Dregið var til 4. umferðar í UEFA-
bikamum í Sviss í gær. Ensku liðin
sem eftir eru í keppninni drógust
gegn liðum frá Ítalíu og Spáni. Leeds
mætir AS Roma og verður fyrri leik-
urinn í Róm. Arsenal á fyrri leikinn
gegn spænska liðinu Deportivo La
Coruna á Highbury í Lundúnum. Nú-
verandi UEFA-meistarar, Parma,
leika gegn Werder Bremen og eiga
fyrri leikinn á heimavelli.
Leikjunum er annars skipt niður
frá 1 upp í 8 og er þá þegar ljóst
hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum
keppninnar.
Leikur 1. er viðureign Parma og
Werder Bremen. Leikur 2. er viður-
eign Juventus og Celta Vigo. 3. viður-
eign AS-Roma-Leeds, 4. viðureign
Real Mallorca og Monaco, 5. viður-
eign Slavia Prag og Udinese, 6. viður-
eign Borussia Dortmund og Gala-
tasaray, viðureign 6. Atletico Madrid
og Lens og 8. viðureignin er leikur
Arsenal og Deportivo La Coruna.
I 8-liða úrslitum mætast síðan sig-
urvegarar í 4. og 6. leik, 8. og 1. leik,
2. og 7. leik og loks í 3. og 5. leik.
Fyrri leikimir í 16-liða úrslitunum
verða 2. mars og þeir siðari 9. mars.
8-liða. Viðureignimar í 8-liða úrslit-
unum verða 16. og 23. mars.
-JKS
+
Nokkur lið i þýska handboltanum standa illa fjárhagslega:
Niðurskurður boðaður
- þjálfari og leikmenn Schutterwald lækkaöir í launum
Fjárhagsstaða nokkurra liða í
þýsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik er mjög bágur. Nú er svo komið
fyrir einu þeirra, Schútterwald, að
það boðar niðurskurð í launum frá og
með næstu áramótum. Félagið ætlar
að lækka laun þjáfara, leikmanna og
starfsmanna um helming ellegar geta
menn tekið poka sinn. Schútterwald
hefur gengið afleitlega á þessu tíma-
bili og er langneðst í deildinni. Liðið
hefur tapað 14 leikjum og gert eitt
jafntefli. Þetta hefur haft m.a. þau
áhrif að áhorfendur hafa mætt illa á
heimaleikina hjá liðinu.
Áætlað er að tapið verði um 15
milljónir þegar tímabilinu lýkur í
vor. Forsvarsmenn vilja nú grípa
strax í taumana og horfa til framtíð-
ar með uppbyggingu í huga. Þess má
geta að félagið heldur upp á 100 ára
afmæli á næsta ári.
Schútterwald er ekki eina liðið
sem stendur illa. Nettelstedt, Frank-
furt og Minden eru sögð eiga við
sama vandamál að stríða.
Launakostnaður liðanna í úrvals-
deildinni er mikill og skærustu
stjömumar hafa hátt í 40 milljónir
króna í árslaun. Það spáðu þvi marg-
ir fyrir nokkrum árum að þessi hái
launakostnaður myndi fyrr en síðar
segja til sin. Spænsk og frönsk félög
stóðu ffammi fyrir miklum íjárhags-
vanda á sínum tíma en eru núna að
rétta úr kútnum. -JKS
Sport
2% ITALIA
Bikarinn, 16-liða úrslit
Bologna - Inter Milano ... 1-3 (2-5)
Piacenza - Roma...........0-3 (1-3)
Parma - Cagliari.........2-2 (2-3)
Fiorentina - Perugia.....2-0 (2-1)
Udinese - Venezia.........2-0 (2-3)
Lazio - Ravenna .........4-1 (5-2)
AC Milan - Atalanta......3-0 (5-3)
Juventus - Napoli .. . .(3-1) í kvöld
Bikarmeistarar Parma féllu gegn
botnliði A-deiIdarinnar, Cagliari, sem
hefur ekki unnið deildaleik í vetur.
Sinisa Mihajlovic skoraöi tvívegis
úr aukaspyrnum fyrir Lazio gegn B-
deildarliði Ravenna. Simon Inzaghi
og Alen Boksic skoruöu hin mörk
toppliðsins.
Christian Vieri skoraði tvö marka
Inter gegn Bologna.
-VS
NBA-DEILDÍN
Úrslit leikja í nótt:
Boston - Utah Jazz .......86-96
Walker 36, Anderson 14 -
Malone 27, Eisley 15.
Indiana - Chicago.........102-91
Croshere 21, Smits 19 -
Willoughby 21, Benjamin 16.
Charlotte - Minnesota ... 103-98
Coleman 20, Jones 19 -
Sealy 27, Brandon 16.
New Jersey - Cleveland . . 111-101
Van Horn 27, Marbury 23 -
Kemp 36, Person 22.
Orlando - Millwaukee . . . 99-116
Atkins 15, Abdul-Wahad 15 -
Allen 29, Robinson 25.
Philadelphia - Toronto .... 93-91
Iverson 37, Hughes 12 -
Carter 19, McGrady 18.
San Antonio - Houston . . . .83-77
Duncan 20, Robinson 14 -
Francis 24, Anderson 13 -
Vancouver - Sacramento .106-109
Bibby 26, Dickerson 22 -
Webber 21, Stojakovic 17.
j) ÞÝSKALAND |
Frankfurt - Leverkusen...1-2
1-0 íjörtoft (20.), 1-1 Beinlich (47.),
1-2 Beinlich (87.)
Kaiserslautem - Freiburg . . . 0-2
0-1 Ramdane (57.), 0-2 Korell (86.)
Unterhaching - Hamburger .. 1-1
0-1 Mahdavikia (26.), 1-1 Seitz (67.)
Wolfsburg - Ulm .........1-2 <
0-1 van de Haar (38.), 0-2 van de Haar
(47.), 1-2 Biliskov (62.)
Schalke - Dortmund 0-0
Bayern M. 16 10 3 3 31-13 33
Leverkusen 16 8 7 1 27-17 31
Hamburger 16 7 7 2 33-18 28
Bremen 16 7 5 4 34-22 26
1860 M. 16 7 5 4 26-20 26
Dortmund 16 6 7 3 20-13 25
Stuttgart 16 7 3 6 19-18 24
Kaisersl. 16 7 2 7 20-28 23
Hertha 16 5 7 4 22-24 22
Schalke 16 4 9 3 21-19 21
Unterhach. 16 5 5 6 17-18 20
Wolfsburg 16 5 5 6 21-29 20
Freiburg 16 5 4 7 23-22 19
Rostock 16 4 5 7 22-35 17
Ulm 16 4 4 8 16-25 16
Duisburg 16 2 7 7 17-24 13
Frankfurt 16 3 2 11 17-24 11
Bielefeld 16 2 5 9 12-29 11
Stefan Beinlich tryggði 10 leikmönn-
um Leverkusen mikilvægan sigur í
Frankfurt með marki, hans öðru í
leiknum, rétt fyrir leikslok. Skömmu
áður var Zoran Mamic hjá Leverku-
sen rekinn af velli en með sigrinum
er lið hans áfram á hælum Bayern
Múnchen.
Unterhaching, sem leikur í fyrsta
skipti i efstu deild, hefur enn ekki *
tapað heimaleik og Hamburger, nýja
liðið hans Rikharðs Daóasonar,
mátti sætta sig við jafntefli þar.
Helgi Kolviósson lék allan leikinn
með Mainz sem gerði 0-0 jafhtefli við
Mönchengladbach í B-deildinni.
Mainz er í 9. sæti með 22 stig en efst
eru Köln með 37 stig, Cottbus með 31
og Núrnberg með 27 stig.