Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.01.2000, Blaðsíða 2
16 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 2000 17 Sport Sport Botmnum er ísland Sœunn Stefánsdóttir, leikmaður Gróttu/KR í 1. deild kvenna í hand- bolta, handleggsbrotnaöi illa í leik Gróttu/KR og Aftureldingar í gær og verður frá i 8-12 vikur en Sæunn hef- ur veriö einn af burðarásum liösins í vörninni i vetur. Framherjinn litríki, Fabrizio Ravanelli, gæti verið á leið til Liver- pool. Vegna meiðsla lykilmanna eins og Robbie Fowler og Michael Owen vantar Liverpool sárlega sóknar- mann fram á vor. Ravanelli hefur fengið fá tækifæri hjá stjörnum prýddu liði Lazio og það væri því alls ekki slæmur kostur fyrir hann að vera lánaður til Liverpool þar til tímabilinu lýkur. Inter tryggói sér i gær sæti í undanúrslitum ítölsku bikar- keppninnar í knattspyrnu þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn AC Milan. Inter vann þvi samanlagt, 3-2, Andriy Shevchenko kom AC Milan yfir eftir misheppnaöa sendingu frá Roberto Baggio en Baggio bætti fyrir mistökin þegar jafnaði mínútu síðar. Geojf Ogilvy, Wayne Smith og Chris Gray, allir frá Ástralíu, hafa forystu eftir fyrsta hring á opna Heineken- mótinu i golfi sem hófst i Perth i Ástr- alíu i gær. Þeir léku ailir á 67 höggum. Michael Campbell, Nýja-Sjálandi, Thomas Björn, Danmörku, Peter O’Malley, Astralíu, og Retief Goosen, S-Afríku, koma næstir á 68 höggum. Manchester United hefur sett hinn 21 árs stórefnilega Jonathan Green- ing á sölulista vegna þess að hann hefur neitað að skrifa undir nýjan samning viö félagið. Enska A-deildar liöió Bradford er að reyna að krækja í tvo sterka sókn- armenn. Þetta eru Stan Collymore, sem er á mála hjá Aston Villa, og Portúgalinn Jorge Cadete, sem leik- ur meö Benfica. Cadete, sem skorað hefur 38 mörk í 49 leikjum fyrir Ben- fica, hefur ekki átt fast sæti í liði Ben- fica í vetur og sjálfur segist hann til- búinn til að ræða við forráðamenn Bradford. Paul Scholes, miðjumaöurinn snjalli hjá Manchester United, lék allan tím- ann með varalið United í vikunni og kenndi sér ekki meins eftir leikinn. Scholes er nýkominn úr kviöslitsað- gerö og gæti orðið 1 leikmannahópi United sem tekur á móti Middles- brough á morgun. islend- ingalióió Bolton hefur feng- ið Allan Johnston að láni frá A-deildar- liðinu Sunder- land. Þessi 26 ára kantmaður mun taka stööu Ricardos Gardners sem verö- ur upptek- inn meö landsliði Jamaíku í febrúar. Hinn norski Egil Drillo Olsen, knattspymustjóri Wimbledon hefur augastaö á Mark Crossley, mark- verði Nottingham Forest, og sér hann fyrir sér sem arftaka Neil Sullivans. Samningur Sullivan rennur út eftir tímabilið og þykir vist að hann yfirgefi Wimbledon og reyni fyrir sér hjá einhverju öðru liði. -GH/-SK NBA-DEILDIN Urslitin í nótt: Charlotte-Detroit .......117-102 Jones 25, Cloeman 24, Wesley 24 - Stackhouse 34, Hill 28, Mills 11. Cleveland-Orlando........102-90 Murray 24, Kemp 20, Henderson 16 - Armstrong 21, Wahad 17, Magette 16. Dallas-LA. Clippers .......99-90 Nowitzki 24, Finley 20, Bradley 12 - Anderson 35, Odom 21, Taylor 15. Golden State-Houston . . . 115-110 Jamison 25, Cummings 23, Cafiey 19 - Francis 25, Miller 19, Bullard 17. San Antonio-Minnesota . . . 92-80 Duncan 20, Robinson 19, Johnson 18 - Garnett 26, Jackson 12, Peeler 12. Portland-Utah..............85-75 O'Neal 14, Stoudemire 13 - Gilliam 15, Stockton 12, Malone 12. Urslitin A-riðiU: Noregur-Úkraína . 19-16 Spánn-Þýskaland . 27-25 Frakkland-Króatía 26-26 Frakkland 5 4 1 0 127-110 9 Spánn 5 4 0 1 128-120 8 Króatía 5 3 1 1 122-114 7 Noregur 1 1 1 3 106-114 3 Þýskaland 5 0 2 3 110-119 2 Úkraína 5 0 1 4 104-120 1 B-riðiU: Slóvenía-Ísland 27-26 Rússiand-Svíþjóð . 25-28 Portúgal-Danmörk 26-28 Svíþjóð 6 6 0 0 143-115 12 Rússland 5 4 0 1 128-120 8 Slóvenía 5 2 0 3 128-131 4 Portúgal 5 2 0 3 123-133 4 Danmörk 5 2 0 3 126-133 4 ísland 5 0 0 5 121-137 0 Leikir um sæti: UndanúrsUt: Frakkland-Rússland ......lau 16.30 Svíþjóð-Spánn............lau 19.00 ÚrsUtaleikur: Sigurliðin í undanúrslitum . . su 16.30 Leikur um bronsið: Tapliðin í undanúrsliutum .. su 14.00 Leikur um 5-6 sætið: Króatía-Slóvenia.........lau 14.00 Leikur um 7-8 sætið: Noregur-Portúgal ........lau 19.00 Leikur um 9-10 sætið: Þýskaland-Danmörk .......lau 16.30 Leikur um 11-12 sætið: Úkraína-Ísland ..........lau 14.00 6-0 56% 6/6 20 Gjörbreytt íslenskt liö kom inn á í seinni hálfleik og Sló- venar skoruðu ekki í 9 mín- útur og ísland breytti stöð- unni úr 12-17 í 18-17. Á fyrstu 12 mínúturm hálf- leiksins skoraði liöið 9 mörk úr 10 sóknum sínum. n/ Guömundur Hrafnkelsson ijátti stórieik í seinni hálfleiknum og varði þá 56% skota Slóvena, alis 13 af 23 skotum sem hann fékk á sig i hálfleiknum og varði alls 20 skot í leiknum (44%). Slóvenar nýttu sér vel sofandahátt íslenska iiðsins i fráköstum og ails skoruðu Slóvenar 4 mörk beint eftir sóknarfráköst í leiknum, þar af þrjú i fyrri háifleik. Islenska liðið hefur verið lengur út af en 2 mínútur í ölium fimm leikjunum á EM og Slóvenar nýttu allar sex sóknir sínar, einum fleiri í leiknum i gær. Mikið munaði um þegar Guðmundur hrökk i stuö í markinu í seinni hálfleik og þá náði hann því sem engum öðrum markverði hefur tekist, að veija skot af línu frá Slóvenanum númer 19 (Zoran Ljubej) sem var 20. skot hans af línu á EM en Ljubej skoraði úr 4 af 5 skotum af línu í gær og fiskaði að auki 3 víti. Guöjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk úr 6 skotum á þeim 36 mínútum sem hann lék í leiknum í gær þar þrisvar eftir að hafa leyst inn á línu, lyklinum að því opna framliggjandi vöm. -ÓÓJ Croatia CUF Robert Sighvatsson var an vafa ein besti leikmaður islenska liðsins á EM í Króatíu og einn fárra sem stóðu undir nafni. Hér er Róbert í kröppum dansi í leik íslands og Slóveníu í gær en varnarmenn Slóvena áttu í miklum erfiðleikum með að hemja hinn sterka línumann. Reuter - sagöi Dagur Sigurðsson „Þaö ætlar ekki að ganga að vinna sigur í mótinu og hvað veldur því er erfitt að segja til um. Það sást strax í þessum leik að menn eru orðnir óöruggir og ekki klárir í varnarleiknum. Við vorum alltaf einu skrefi á eftir þeim í fyrri hálfleik og þeir setja á okkur 17 mörk sem segir sína sögu. í hálfleik var ákveðið að róa okkur niður og fara í leikinn af meiri skynsemi. Um leið og menn urðu afslappaðri fóru hlutimir að ganga betur. Við sýndum það á kafla í síðari hálfleik að við getum ýmislegt en það er bara ekki nóg. Við verðum metnir af stigum i þessu móti og hve langt við komumst og því sættum við ekki okkur engan veginn við niðurstöðuna. Það man enginn eftir því þegar mótinu lýkur hvort við áttum góðan leikkafla gegn Slóvenum i síðari hálfleik. Vörnin var hræðileg í fyrri hálfleik en við náðum á upphafskaflanum í síðari hálfleik að jafna og eftir það er leikurinn í jafnvægi. Á síðustu tíu mínútum leiksins fannst mér dómararnir missa tökinn á leiknum og það dró á vissan hátt tennumar úr okkur. Úr þessu sem komið er verðum við að mæta með réttu hugarfari í leikinn gegn Úkraínu og reyna hvað við getum. Það hefði verið gaman aö vinna þennan leik því það er óskaplega niðurdrepandi að tapa. Leikmenn hafa verið að fara út af línunni hver fyrir sig og það er vegna þess að menn em óstyrkir. Það er óhætt að segja að botninum sé náð,“ sagði Dagur Sigurðsson. -JKS Spurning hvort við erum í nógu góðu ástandi „Við ætlum ekki að rifa okkur upp úr því sleni sem búið er að vera að á liðinu allt mótið. Ég veit ekki hvernig þróunin verður en það verður að taka á þessu vandamáli. Við eigum einn leik eftir til að sýna okkar rétta andlit. Síðari hálfleikurinn gegn Slóveníu er einn skásti leikkaflinn í mótinu og ég ætla að vona að framhald verði á því. Við emm ekki á tánum í fyrri hálfleik og hann verður okkur að falli í leiknum. Slóvenamir hafa misst móðinn þegar þeir hafa lent undir í öðmm leikjum í mótinu og ég er viss um að ef okkur hefði tekist að ná tveggja marka forystu í síðari hálfleik hefðum við unniö,“ sagði Róbert Sighvatsson. - Af hverju hefur lióiö ekki náó sér á strik i mótinu? „Þetta er mjög erfið spuming og ég veit hreinilega ekki hvert maður á leita skýringa á því. Það er eflaust hjá okkur leikmönnunum sjálfum. Spumingin er hvort við erum í nógu góðu ástandi en hinu má ekki gleyma að nokkrir leikmenn vora að stíga upp úr meiðslum og léku ekki af fullri getu. Það verður að skoða það á næstum vikum hvað fór úrskeiðis." -JKS Bengt ánægður DV, Króatíu: Það verða Spánverjar sem leika gegn Svíum og Frakkar gegn Rúss- um í undanúrslitum EM í hand- knattleik á morgun. Bengt Johannsson, þjálfari Svía, var í sjöunda himni með leik sinna manna gegn Rússum. „Ég var hræddur um að liðið næði sér ekki á strik eftir að Stefan Lövgren meiddist. Ungu strákamir léku gegn Rússum af skynsemi og ég er stoltur af þeim. Við erum að ná góð- um tökum á 3-2-1 vöminni og Rúss- ar áttu fá svör við henni. Nú er ljóst að við mætum Spánverjum í und- anúrslitum og svo gæti farið að viö mættum Rússum aftur í úrslit keppninnar," sagði Bengt Johanns- son. -JKS Island leikur um 11.-12. sætið á EM í Króatíu gegn Ukraínu: 26 (12) - 27(17) 0-1, 1-1, 2-3, 4-4, 4-6, 6-8, 7-10, 9-10, 9-13, 10-14, 12-16, (12-17) 18-17, 120-19, 21-20, 25-24, 25-25, 26-25, 26-27. Mörk (Skot/Tapaðir): Valdimar Grímsson 7/4 (9/2), Guðjón Valur Sigurðsson 5 (6/0), Patrekur Jóhannesson 5 (12/4) ( 5 mörk og 3 stoðsendingar í seinni háifleiknum), Ólafur Stefánsson 4 (8/1), Gústaf Bjamason 2 (5/0), Dagur Sigurðsson 1 (3/3). Stoósendingar: Ólafur 8 (5 í seinni), Patrekur 5, Dagur 3, Valdimar 1. Varin skot: Guðmundur Hrafhkelsson 20/1 (45/5 á sig), Sebastian Alexandersson 0 (2/2 á sig). Brottvisanir: 8 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 4 af 4. Slóvenia Mörk: Uros Serbec 5/3, Andrej Kastelic 5/3, Zoran Lubej 4, Roman Pungartnik 3, Ales Pajovic 3, Renato Vugrinec 2, Iztok Puc 2, Tomaz Tomsic 2, Tettey Banvro 1. Varin skot: Beno Lapajne 13, Rolando Pusnik 3. Brottvisanir: 6 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 6 af 8. DV, Króatíu: Það ætlar ekki af landsliðinu að ganga á Evrópumótinu í handknattleik í Króatiu. í gær leit enn einn ósigurinn dagsins ljós þegar liðið mætti Slóvenum í lokaleik riðilsins og tapaði íslenska liðið öllum leikjum sínum í riðlinum. Eftir afspymulélegan fyrri hálfleik urðu algjör umskipti á liðinu í síðari hálfleik og um tíma leit út fyrir að ís- lendingar væru að taka leikinn í sínar hendur. Allt kom fyrir ekki og eftir æsispennandi lokamínútur voru það Slóvenar sem fógnuðu sigri,'27-25, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í leik- hléi, 17-12. Leikurinn var i jafnvægi var undir miðjan fyrri hálfleikinn og Slóvenar vora þó alltaf með eins til tveggja marka forystu en síðan skildu leiðir. Sem áður fór varnarleikur liðsins úr skorðum, markvarslan var engin og sóknimar stuttar. Slóvenar náðu frum- kvæðinu enn frekar og náðu mest fimm marka forystu. Staðan var þvi ekki beysin þegar gengið var til leikhlés og ljóst að eitthvað mikið þyrfti að gerast til að íslenska liðið kæmist inn í leik- inn að nýju. Þorbjöm Jensson hafði greinilega lesið vel yfir hausamótunum á sínum mönnum í leikhléi því það var sem allt annað lið mætti til leiks í upphafi síðari hálfleiks. Vömin tók sig saman í andlit- inu og forskotið sem Slóvenar höfðu brann upp á sjö mínútum. íslendingar jöfnuöu metin, 17-17, og komust yfir, 18-17. Slóvenar gerðu ekki mark í átta mínútur og vissu vart sitt rjúkandi ráð. Þjálfarinn Slóvena sá þann kost vænst- an að taka tíma og taka leik sinna manna í gegn. Þessi leikkafli íslenska liðsins var sá besti í keppninni til þessa. Skorað var úr hraðaupphlaupum sem ekki höfðu sést mikið í keppninni. Guðjón Valur Sigurðsson, nýliði í ís- lenska liðinu, lék vel á þessum kafla, steig varla feilspor og sýndi mikið ör- yggi í leik sínum. Slóvenar vöknuðu upp af svefninum og komust á ný inn í leikinn og smám saman varð leikurinn æsispenndi. ís- lendingar vörðust af kappi og fengu nokkrum sinnum tækifæri til að auka forskotið í tvö mörk sem hefði verið nauðsynlegt til að létta spennuna. Það tókst ekki og var Patrekur Jóhannesson mistækur þótt hann gerði góöa hluti inni á milli. Hann missti boltann í þrí- gang og eitt dauðafæri fór forgörðum. Lokamínútan var engu lík, tveir leik- menn íslenska liðsins fengu tveggja mínútna brottrekstra með stuttu milli- bili og tveimur færri skoraðu Slóvenar sigurmarkið í leiknum. Islendingar brunuðu í sókn en síðasta skot Dags Sigurðssonar varði slóvenska vörnin og sigurinn féll þeirra megin. islendingar fengu tækifærið til að tryggja sér fyrsta sigurinn í mótinu en eins og áður gekk fátt upp þegar mest á reið. Þessi leikur var mjög kaflaskiptur, fyrri hálfleikurinn var mjög slakur en í síðari hálfleik kviknaði neisti sem því miður tókst ekki aö fylgja eftir alla leið. Guðjón Valur Sigurösson var besti maður íslenska liðið í leiknum. Ólafur Stefánsson átti sína spretti og Patrekur Jóhannesson einnig. Það skemmdi hins vegar leik hans hve hann var mistækur á mikilvægum augnablikum. Nú, þegar riðlakeppnin er afstaðin, vakna margar spurningar og þá fyrst og fremst hvað fór úrskeiðis. Þeim spumingum velta menn eflaust fyrir sér löngu eftir að mótinu hér lýkur. Einni verður svarað strax með þeim hætti að liðið var langt i frá tilbúið í þennan slag, hvorki lík- amlega, andlega né hugarfarið. Liðið var of veikburöa til að standa sig í þess- ari keppni og stór hluti leikmanna virt- ist ekki í almennilegri æfingu. íslenska landsliðið í handknattleik stendur á tímamótum. Hvað á að gera til að spyrna við fótum og rétta skútuna við eftir þennan skell sem nú blasir við. Mikil vinna er nú fram undan fyrir þjálfarann og stjórn HSÍ að finna út hvað fór úrskeiðis og leita ráða til úr- bóta. Það lét eitthvað mikið undan sem margir vora búnir að sjá meira segja fyrir keppnina. Lykilmenn stóðu ekki undir væntingum af ýmsum ástæðum, meiðsli koma þar inni í og eins það að menn vora ekki í nægilegri æfingu. Þetta er umhugsunarefni þegar tímabil- ið er hálfnað. Handboltinn beið afhroð í Króatíu og það er verk að vinna að koma honum á sporið aftur. -JKS Dómarar (1-10): Litvinov og Khudoerko frá Rússlandi. (3). Tölurnar tala BSand í poka Áhorfendur: 500. Gœöi leiks (1-10): 8. „ Það gen ert upp hj - sagði Þorbjörn Jensson ef DV, Króatiu: „Það gengur ekkert upp hjá okk- ur og eina ferðina enn erum við að tapa þessu á síðustu stundu. Mér fannst við gætum allt eins unnið með einu marki eins og tapa með einu. Dómaramir voru hliðhollir Slóvenunum undir lokin en það er kannski ekki aðalatriðið. Við lékum síðari hálfleikinn miklu betur en þann fyrri eins og við höfum reynd- ar oft gert í þessari keppni. Sóknin var góð framan af síðari hálfleik en þá náðum við af miklu harðfylgi að vinna upp fimm marka forskot þeirra og gott betur en það,“ sagði Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari eftir leikinn við DV. - Þú merktir þá viss batamerki á liðinu ef litið er til síðari hálf- leiksins? „Já, ég held að eftir því sem við leikum fleiri leiki bætum við leik liðsins. Við gerðum margar skyssur í fyrri hálfleik. Slóvenarnir klipptu mikið fyrir framan og drógu okkur úr stöðunni. í leikhléi var ákveðið að breyta áherslunni á vöminni og þaö tókst með ágætum. Gegnum sneitt í mótinu hefur vömin leikið okkur grátt. Leikmennirnir, sem við erum með í liðinu, eru ekki van- ir að spila miðjustöðuna enda ekki vanir því hjá sínum félagsliðum. Það tekur bara miklu lengri tíma að fá 6-0 vörnina til að ganga upp held- ur 3-2-1 sem við höfum verið að leika sem mest í mótinu." - Fyrri hálfleikurinn verður liðinu að falli? „Já, við eyddum töluverðu púðri í að jafna leikinn og kannski var ekki meira eftir en til að halda í horfinu. Þegar við fengum brottrekstra á okkur fengum við í öllu falli tvö mörk á okkur á meðan eins reyndin varð, sérstaklega í fyrri hálfleik.“ - Hvernig líst þér á Úkraínu sem mótherja um 11. sœtið í mót- inu? „Ég hef ekki séð mikið til þeirra í mótinu. Þó sýnist mér þeir ekki ósvipaðir að getu og Slóvenar þannig að það verður erfiður leikur gegn þeim á laugardag. Þeir leika framliggjandi vörn eins og rúss- neska liðið. Núna þarf bara að leggj- ast yfir leik þeirra og vita hvort við náum ekki einum sigri á þessu móti. Við verðum að innbyrða sigur gegn þeim og reyna þannig við 11. sætið og sýna að við erum alla vega ekki lakari en það,“ sagði Þorbjöm Jensson. Hann sagðist hafa verið mjög ánægður með frammistöðu Guðjóns Vals í leiknum: „Ég er búinn að fylgjast lengi með honum í yngri landsliðsliðunum. Hann er mikið efni og þar fer fram- tíðarmaður í landsliði." -JKS T

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.