Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2000, Qupperneq 3
JLlV LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2000
Lexus kemur í Kópavoginn
Glæsibíllinn Lexus kemur á ís-
lenskan markað um miðjan mars
þegar Toyota-
umboðið í
Kópavogi býður
kaupendum
sínum fólksbil-
ana IS 200 og
GS 300.
Lexusjeppinn
RX bætist síðan
i hópinn um
veturnætur.
Lesus er í
raun lúxusbíla-
framleiðsla
Toyota og er
ætlað að keppa
við helstu lúx-
usbíla heims. Á
íslandi miðast
sú keppni eink-
um við
Mercedes Benz
og BMW. Lexus
IS verður á við-
ráðanlegu verði fyrir marga, eða ná-
lægt 2,7 milljónum króna; GS bíl-
amir verða milli 4,5 og 5 milljóna
króna. Verð jeppans liggur ekki fyr-
ir að sinni.
Lexus IS 200 er
með 6 strokka
tveggja lítra vél.
Hún er af VVT-i
kynslóð Toyota-
véla, þar sem
skammstöfunin
stendur fyrir
breytilega ventla-
opnun og inn-
spýtingu (Vari-
able Valve Tim-
ining-injection).
Hún er 155 hest-
öfl með 195 Nm
snúningsvægi
við 4600 sn. mín.
Val er um 6 gíra
handskiptingu
eða 4 gira ECT-iE
skynvædda sjálf-
skiptingu. Af
staðalbúnaði má
Lexus IS 200 er vel búin iúxusdrossía á viðráðanlegu verði.
bílar 39
Lexus GS 300 keppir við fólksbíla i dýrari kantinum.
nefna hitastýringarkerfi (AC, stund-
um ranglega nefnt sjálfvirkur kæli-
búnaður), 6 diska geislaspilara í
mælaborði ásamt útvarpi með 6 há-
tölurum, skriðstilli (með sjálfskipt-
ingunni), ijóra líknarbelgi, hitaða
útispegla, læsivarðar bremsur og
rafeindastýrða spólvörn.
GS 300 er með 225 ha 6 strokka
vél, 298 Nm v. 4000 sn. min., með 5
gíra sjálfskiptingu sem einnig má
stýra handvirkt ef svo býður við að
horfa.
Lexusbílarnir fá hlutdeild í sýn-
ingar- og sölusvæði Toyota á Ný-
býlaveginum. -SHH
Torskilið
Sé beygt inn í Túnin í Mosfellsbæ kemur í Ijós að svokölluð miðlína er mjög
svo hægrisinnuð - aðeins mjóir bílar á leið inn í Túnin geta haldið sig rétt-
um megin við hana. Spurning hver réttarstaða bílsins á mjórri akreininni er
ef til áreksturs kemur.
pírumpár á
Vesturlandsvegi
Sums staðar tíðkast að listamenn
kríti myndir á stéttir og torg en lít-
ið mun vera um þá listgrein hér-
lendis. Hins vegar eru til menn sem
hafa atvinnu af vegmerkingum og
fara ugglaust eftir einhverjum fyrir-
mælum þar að lútandi, að minnsta
kosti í bland.
Á Vesturlandsveg i Mosfellsbæ, við
gatnamót sem kennd eru við Tún,
hafa nú verið teiknuð bein strik og
bogin sem ugglaust eiga að vera til
einhverra hagsbóta fyrir umferð af
Vesturlandsvegi og inn á hann um
þessi gatnamót. Þessi teikn eru hins
vegar þannig að menn þurfa
nokkurn tíma til að átta sig á hvað
þau þýða; þeir sem koma snöggt að
hafa ekkert ráðrúm til þess.
Pírumpárið er meira að segja gert
utan um og yfir miðlínuna sem fyr-
ir var án þess að gera tilraun til að
má hana út og verður að virða veg-
farendum til vorkunnar þó þeir átti
sig ekki á þessum strikum sem
óvænt verða fram undan þeim, og
það jafnvel utan úr myrkri - ef þau
eru ekki bara hulin snjó.
Þeir sem tíðum eiga leið þarna um
hljóta að taka viljann fyrir verkið
og vona að ekki hljótist verra af því.
-SHH
Sá sem hefur nógan tíma, birtu og önnur æskileg skilyröi getur meö góðum
vilja spáð í hvaö strikamerkin viö Tún í Mosfellsbæ eiga hugsanlega aö
þýöa. Ytri jaörar akreina hafa ekki verið strikaöir sem í góöu skyggni gæti þó
veriö til glöggvunar. Mynd DV-bilar SHH
r
Ný Ijósmyndabók um jeppaferðir:
r
A hálendi Islands
út er komin ný ljósmyndabók
með myndum af okkar fallega
landi en það sem gerir þessa sér-
staka er yrkisefnið sem í þetta
sinn er ofurjeppar í náttúru ís-
lands. Tæknimyndir gefa bókina
út og hefur Kjartan P. Sigurðsson
tekið vel flestar myndirnar í bók-
inni en Sigurður Steinþórsson
jarðfræðingur sá um texta sem er
á íslensku, þýsku, frönsku og
ensku.
Bókin er uppfull af fallegum
myndum sem lýsa ævintýraheimi
hálendisins sem er engum fær
nema á til þess gerðum farartækj-
um eins og ofurjeppum og fuglin-
um fljúgandi. Hún skiptist í kafla
um sögur hálendisferða, sumar-
ferðir, vetrarferðir og sérútbúnað
fyrir ofurjeppa og er tilvalin fyrir
alla sem hafa ánægju af ferðalög-
um með þessum hætti. Hér getur
einnig verið um forvitnilega bók
fyrir erlenda ferðamenn að ræða
þar sem þessi markaður hefur
opnast mikið á undarfornum miss-
erum og mikil gróska þar á ferð-
inni. Það er líka gaman að sjá að
verið er að gefa út bók með lifandi
myndum af fólki og farartækjum
við þessar aðstæður og er það til-
breyting frá annars ágætum bók-
xun um svipað efni. -NG
Rafsuöuviögerö uppi á jökli þar sem gert er við dempara með tveimur 12
volta rafgeymum. Góöur útbúnaður er nauðsynlegur á hálendi íslands og
ekki síst kunnátta fjallafaranna. Mynd 4X4: KPS
Vörpulegir Terrano II jeppar af árgerö 2000 - með breytingum viö allra hæfi. Næst okkur á myndinni er einn á 38
tommu dekkjum, þá á 33 tommu og loks einn óbreyttur meö öllu. Mynd DV-bílar PÖK
IH kynnir breyttan Terrano II
Ingvar Helgason hf. kynnti 2000
árgerðina af Nissan Terrano II um
síðustu helgi og sýndi við það tæki-
færi breytta jafnt sem óbreytta bíla
af þessari gerð.
Breytingamar á nýrri árgerð eru
einkum fólgnar í nýjum framenda
með nýju grilli og margspegla fram-
ljósum. Framendinn er nú orðinn
áþekkur stóra Patroljeppanum og
nýjustu gerð king cab.
Enn fremur eru nú allar gerðir
Terrano II með ABS-hemlakerfi og
tvo líknarbelgi. Mælaborð og inn-
rétting bílsins hefur fengið nýtt og
léttara yflrbragð. í fyrra bauðst
Terrano II fyrst með sjálfskiptingu
og jók það á vinsældir bílsins til
muna, enda þykir hún eiga einkar
vel við 2,7 1 túrbódísilvélina sem
bíllinn er boðinn með.
Þrátt fyrir endurbætur á bílnum
og aukningu á staðalbúnaði hefur,
að sögn Nissanumboðsins Ingvars
Helgasonar hf., tekist að halda verð-
inu nánast óbreyttu frá fyrri árgerð.
Ódýrasti þriggja hurða bíllinn kost-
ar samkvæmt verðlista 2.179.000
krónur en ódýrasti 5 hurða bíllinn
er á 2.419.000 krónur. Ódýrasti 5
hurða dísiljeppinn er verðlagður á
2.575.000 krónur. -SHH