Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Síða 2
36
LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 33'’^/"
lar
Reynsluakstur BMW Touring 318:
Góð fjöðrun og sjálfskipting
Vitaskuld er þaö afturendinn á Touring-bílnum sem gerir hann helst frá-
brugðinn fólksbílnum. Langbaksformið gefur honum aukiö notagildi. Eins
og á 5-línu langbaknum er hægt að Ijúka glugganum upp sérstaklega og
óþarft að opna með hleranum öllum.
Myndir DV-bílar, Hilmar Pór
BMW 318 var tekinn til prófunar hér
fyrir rúmu ári en nú er kömin lang-
baksútfærsla af sama bíl. Fyrir után
annað sköpulag á yfirbyggingu er
helsta mismuninn að finna í því að nú
er komin ný og betri sjálfskipting. Hún
er raunar kölluð sportronic sem er
annað heiti fyrir valskiptingu - sem
sagt þess konar sjálfskiptan gírkassa
að með þvi að færa skiptistöngina eitt
hak til hliðar er hægt að handstýra
skiptingunni. Þá verður kassinn ekki
lengur sjálfskiptur heldur raðskipt-
ur/handskiptur. Ökumaður getur ráð-
ið hvaða gír hann notar hvetju sinni
með þvi að velja einn gír upp eða nið-
ur eftir því hvað hentar.
Almennt séð nýtist valskipting best
þannig að auðveldara er að skipta nið-
ur og fá út meiri snúning og þar með
betra viðbragð með handskiptiforminu
en sjálfskiptingunni. En þegar BMW
Hér sést skiptistöngin meö val-
skiptiforminu vinstra megin viö sig.
Fram af henni vinstra megin er
tengirofinn fyrir ASC-stöðugleika-
stýringuna - en sitt hvorum megin
eru rofarnir fyrir rúðuvindurnar f
fremri hurðunum!
Touring 318 á í hlut verður að viður-
kennast að sjálfskiptingin tók alltaf
fram því skiptimunstri sem ég gat not-
að. Hún svaraði alltaf á stundinni og
skiptimunstur hennar er fuilkomnasta
sjáífskiptimunstur sem ég hef átt sam-
Skipti við.
Góð stöðugleikastýring
Eins og stallbakurinn var langbak-
urinn búinn ASC-stöðugleikastýring-
unni. Nú gafst gullið tækifæri til að
prófa hana til hlítar. Hún er ótrúlega
góð hvað varðar spymustýringu í
átaki - spólvöm, ef við viljum nota það
orð. Afturhjóladrif er oft rógborið sem
afleitt í snjó og hálku. Ég prófaði
BMW-langbakinn þannig að ég reyndi
hann hvað eftir annað í verulega gler-
hálli brekku, stöðvaði hann og tók ör-
ugglega og óaðfinnanlega af stað aftur.
Jafhvel þegar ég reyndi að gefa ótæpi-
lega hafði stöðugleikastýringin vit fyr-
ir mér - og bílnum - og sló af þannig
að hann næði spymu og gæti spunnið
sig upp.
Annað var uppi á teningnum þegar
stýringin var tekin af, sem hægt er að
gera með einu handtaki á snertirofa.
Þá var auðvelt að spóla - en jafnvel þá
er hægt að fara mjúklega að og ná
þokkalegu gripi. Taka ber fram að
þrátt fyrir ASC snýst þessi bíll eins og
aðrir á glærri hálku - þó minni hætta
sé á því.
Rétt er að taka
fram að reynslu-
bíilinn var búinn
góðum, vel negld-
um vetrardekkj-
um.
í rauninni 319
Þó þessir bílar
séu enn af gömlum
vana nefndir 318
væri réttara að
kalla þá 319 því
vélin sem áður var
1800 cc er nú orðin
næstum 1900 cc.
Hún gefúr 118 hö.
sem dugar þessum
bíl ágætlega. Hún gefúr góða milli-
hröðun og samspil vélar og afbragðs
sjáifskiptingar gerir bílinn mjög
skemmtilegan í akstri. BMW kann líka
lagið á því að búa bíla þannig úr garði
að þeim verður ekið af miklu öryggi en
jafnframt með tiifinningu fyrir því
sem verið er að gera. Fyrir bragðið
verður aksturinn skemmtilegur og
áhyggjulaus.
Hér er hægt að
endurtaka það sem
sagt var um stallbak-
inn: „Óhætt er að
fullyrða að virkt ör-
yggi, akstursöryggi,
er eitt það besta í
þessum bíl sem finnst
í þessum stærðar-
flokki. Hvað óvirkt
öryggi - árekstursör-
yggi - áhrærir er
BMW 3 fyrsti bíllinn
sem er með líknarg-
ardínur sem staðal-
búnað. Þetta eru loft-
pulsur sem sprengj-
ast niður úr loftinu
yfir hliðargluggum til vamar ef bíllinn
verður fyrir höggi á hlið af ákveðnum
þunga. Bíllinn er einnig með hliðar-
belgi í framsætisbökum og að sjálf-
sögðu með hefðbundna líknarbelgi fyr-
ir ökumann og framsætisfarþega.
Þannig er BMW 3-Iínan nýja fyrsti
ijöldaframieiddi bíll-
inn með sex líknar-
þelgi. Þar að auki
eru líknarbelgir á
hlið fyrir aftursætis-
farþega fáanlegur
aukabúnaður í þenn-
an bíl þannig að sá
sem vill vera afar vel
varinn getur haft 8
líknarbelgi í BMW-.
inum sínum.“
„Það er ekki að-
eins að þessi fjöðrun
stuðli að afbragðs veggripi heldur er
hún líka afar dugleg að eyða ójöfnum -
venjulegar hraðahindranir eins og þær
tíðkast í borg Ingibjargar valda þess-
um bíl furðu litlum óþægindum."
Innandynur
Sæti eru frekar hörð í þrjú-línunni
almennt en þau eru vel formuð og
þægileg. Tæknimenn BMW hafa fund-
ið rétt jafnvægi milli mýktar og mót-
unar. Innanrými í bílnum er allgott,
líka aftur í, þó eins og i svo mörgum
bílum sé þægilegast að ekki þurfi fleiri
BMW 318i -
nokkrar tölur
Vél: 4 strokka, 1895 cc, 118 hö. v.
5500 sn.mín., snúningsvægi 180
Nm v. 3900 sn.mín. Jafnvægisásar
sem gefa þýðari gang. Hröðun
0-100 10,9 sek. Hámarkshraði 202
km/klst. Eyðsla skv. meginlands-
staðli: 11,4-6,2-8,1 lálOOkm m.v.
borgarakstur-langkeyrslu-meðaltal.
Drif á afturhjólum, rafeinda-
stýrð stöðugleikastýring. 4 gíra
tölvustýrð sjálfskipting með val-
skiptingu.
Fjöörun framan: MacPherson
með stöðugleikabúnaði (anti-dive).
Fjöörun aftan: Langarmar og
tvívirkir stefnuarmar og jafnhæðar-
stilling (anti-dive, anti-squat).
Læsivaröar diskabremsur
(ABS) allan hringinn.
Lengd-breidd-hæö: 4478 1739
1415 mm, hjólahaf 2725 mm.
Farangursrými: 435/1345 I.
Beygjuradíus: 5,25 m.
Eigin þyngd: 1365 kg.
Dekk: 205/55x16.
Verö: frá kr. 2.750.000 (handskipt-
ur), 2.890.000 (sjálfskiptur).
Umboö: B&L, Grjóthálsi.
en tveir að deila með sér rýminu þar.
Farangursrými er prýðilegt en senni-
lega geldur bíllinn þess að nokkru að
vera langbakur þannig
að meiri dynur verður
í innanrými hans held-
ur en í bíl með skotti,
raunar meiri en ég
haföi búist við frá
þessum framleiðanda,
þessari árgerð. Vera
má líka að vetrardekk-
in hafi aukið á þennan
dyn.
Miðað við hvað í
þennan bil er lagt er
verðið ekki hærra en
við er að búast. Grunn-
verð á handskiptum bíl af þessu tagi er
2.990.000 krónur. Sjálfskiptingin er á
140 þúsund. Reynslubíllinn var á
álfelgum sem kosta 120 þúsund þannig
að heildarverð hans var 3.250 þúsund
krónur. -SHH
Kostir:
Rásfesta, fjöðrun, auðveld stjómun,
góð sjálfskipting,
virk stöðugleikastýring.
Ókostir:
Fullmikill innandynur.
Afturhlerinn opnast hátt upp og
er ekki fyrir þegar menn at-
hafna sig aftan viö bílinn.
Heföbundinn 318-framendi
og ekki leynir sér hvernig
tíöarfarið var meöan bíllinn
var í reynsluakstrinum.
Vel séð fyrir eigendum Chrysler/Jeep
Nú, þegar ljóst er orðið að Jöfur
mun ekki starfa öllu lengur, ekki
sem bílaumboð að minnsta kosti, er
líka ljóst að þangað verður ekki leit-
að lengur um kaup á eða varahluti í
Chrysler/Jeep. Raunar hafði því
umboði verið sagt upp fyrir nokkru
og tengslin milli Chrysler og Jöfurs
verið afar losaraleg, svo ekki sé
meira sagt.
Bílaverkstæðið Bíljöfur í Kópa-
vogi, sem að mestu eða öllu leyti
byggðist á gömlum starfsmönnum
Jöfurs, hefur löngum sérhæft sig í
þjónustu við Chrysler/Jeep. í ný-
legri fréttatilkynningu segir að
verkstæðið hafi sérstakar
bilanaleitartölvur frá
Chrysler og stillingartölvur sem
hvorar tveggja hafi verið uppfærðar
til að gagnast bílum allt upp í ár-
gerð 2000.
Bílabúðin H. Jónsson & Co, sem
áður var í Brautarholti, er nú kom-
in í sama hús og Bíljöfur að Smiðju-
vegi 70 í Kópavogi. Bilabúðin H.
Jónsson hefur löngum sérhæft sig í
varahlutum fyrir ameríska bíla og
með hliðsjón af því hvemig málum
er komið með Chrysler/Jeep á ís-
landi hefur BHJ nú lagt sérstaka
áherslu á að eiga góðan lager af
varahlutum í þá bíla. Sérpöntun
varahluta í gegnum BHJ ef með þarf
gengur greitt fyrir
sig.
Stefna Daim-
lerChrysler
hefur frá
samein-
ingu
Daimler
Benz
Bíljöfur og Bflabúöin H. Jónsson í Kópavogi þjóna eigendum Chrysler/Jeep
á íslandi.
Gagnvart minni mörkuðum i Evr-
ópulöndum hefur þetta þýtt að
Chrysler og undirmerki þess hluta
samsteypunnar hafa færst undir
umboð Mercedes Benz. Þvi má víst
telja að þegar Chrysler kemur aftur
til íslands með formlegum hætti,
sem næstum örugglega verður inn-
an fárra vikna, fer hann til Ræsis
hf. og verður þar allt á einni hendi,
sala nýrra bíla, þjónusta og „orig-
inal“ varahlutir. Þar með má segja
að þá verði Chrysler „kominn
heim“ aftur því upprunalega var
Ræsir hf. stofnað sem Chrysler-um-
boð árið 1942 og þar var umboð fyr-
ir Chrysler, Dodge, Plymouth og
Fargo fram til 1965. SHH
Ræsir hf. á Skúlagötunni - uppruna-
lega stofnaö sem Chrysler-umboö.
Nú má fullyröa aö Chrysler fari þang-
aö aftur.
og Chrysler verið sú að umboð fyrir
framleiösluvörur fyrirtækisins væri
aðeins eitt á hverju svæði, hvort
sem bfilinn ber þríhymdu Benz-
stjömuna eða þá fimmhyrndu frá
Chrysler - sem raunar hefur nú ver-
ið breytt í merki sem minnir á
vængi. Chrysler hefur ekki verið
áberandi á Évrópumarkaði en eftir
sameininguna hefur þetta breyst.
Þar sem Chrysler kemur nú inn aft-
ur eða sem nýr aðili hefur megin-
umhyggjan beinst að þeim sem þeg-
ar eru orðnir viöskiptavinir
Chrysler.
Slegist um Kia-umboðið
Um þessa helgi ræðst hverjir fá
umboö fyrir Kia-bílana eftir að
umboð þeirra, Jöfur hf„ fór á
hausinn. Ástæðan fyrir taprekstr-
inum er sögð vera að of lítil
álagning var á öllum merkjum
Jöfurs og því fór sem fór. Kia
stefnir hins vegar í að verða vin-
sælt merki ef marka má áhuga
söluaðila á umboðinu en sam-
kvæmt heimildum DV-bfla slást
fimm um það umboð núna. Einn
af þessum aðilum er Suzuki-um-
boðið, sem selur Suzuki-vélhjól,
og ljóst er að þar fengi merkið
enga samkeppni frá öðrum bílteg-
undum. Um helgina verða staddir
hér forsvarsmenn verksmiðjanna
frá Kóreu og í framhaldi af fund-
um þeirra með söluaðilum ræðst
hver hlýtur hnossið. Taka þarf
tillit til þess hver geti tekið við
sölu og hafi jafnframt nægilegt
húsnæöi undir svo viðamikla
starfsemi sem umsvif bílaumboðs
eru. -NG