Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Page 3
-U\ ' LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 37 í íyrra varð strax ljóst að vélsleðaí- þróttin er aftur komin til að vera og gekk allt mótahald vel og var vel sótt af áhorfendum. En betur má ef duga skal og á þessu ári er búið að skipu- leggja mót í tugatali hérlendis, bæði ís- lands- og Evrópumeistaramót, að ekki sé minnst á heimsmeistarakeppni í vélsleðaakstri sem haldin verður á Ólafsfirði 6.-7. maí næstkomandi. Þar af leiðandi hefur verið mikil sala í sleðum, auk þess sem menn hafa verið að kaupa eða smíða sér keppnissleða. Við skulum aðeins forvitnast um nokkra skæða vélsleðakappa sem ætla að gera stóra hluti í ár. Þórir—Polarís Þórir Gunnarsson er einn okkar fremstu ökumanna í snjókrossi og hef- ur hann keppt á vélsleðum síðan 1989 og á að baki 3 íslandsmeistaratitla, þar af einn í snjókrossi 1997. Þórir hefur alltaf keppt á Polaris og hef- ur ekki í hyggju að breyta því. Hann hefur fest kaup á einum verklegasta vélsleða landsins sem er af gerðinni Polaris EDGE 800. Sleðinn er fram- leiddur hjá Polaris en þaðan fer hann í gagn- gerar breytingar hjá „tjún-fyrirtæki“ sem heitir PRO 5 og er út- koman vægast sagt frá- bær. í sleðann er settur 800 rúmsentímetra mótor sem skilar 140 hestöflum og fjöðrunin er einnig gerbreytt. Þórir segir að veturinn leggist mjög vel í sig og hann sé i góðu likam- legu formi, en hann er nýbúinn að fá sleðann og notar allan þann frí- tíma sem gefst til að keyra og kynnast nýja sleðanum. Að sjáifsögðu ætlar Þórir sér að sigra en hann sagði jafnframt að hann gerði ekki betur en hann gæti og ætti sína góðu og slæmu daga. Þetta með heimsmeistaramótið er náttúrlega með ólíkindum og vinnan sem unnin hefur verið er að skila sér á rétta staði, sagði Þórir að lokum. Alexander—Lynx Alexander Kárason heitir maðurinn sem átti hugmyndina að heimsmeist- aramótinu og hafði samband við WSA, sem er heimssamband keppnismanna á vélsleðum. Hann hefur keppt nokkuð reglulega síðan 1993 og varð Norður- landsmeistari 1998 og svo íslandsmeist- ari í fyrra. Alexander er nýbúinn að fá nýjan keppnissleða frá Lynx, af gerð- inni Rave Cross 2000, en það er sér- smíðaður keppnissleði sem aðeins er framleiddur í 7 eintökum frá verk- smiðju og fá þvi færri en vilja. Sleðinn er með 747 rúmsentímetra vél og er um 160 hestöfl. Alexander segir veturinn leggjast vel í sig og gott sé hve mikil nýliðun hefur orðið í sportinu. Hann hefúr ásamt Stefáni Bjamasyni og Árna Gr- ant stofnað keppnislið Lynx á íslandi, „Team Lynx“, og. ætla þeir félagar meðal annars að fara á Evrópumeist- aramótið í Östersund i Svíþjóð. Eins og áður sagði er Alexander upphafs- maðurinn að heimsmeistaramótinu á Ólafsfirði í vor og vinnur hann nú hörðum höndum ásamt félögum sínum í Vélsleðaklúbbi Ólafsfjarðar að því gera það að veruleika. Hann vildi koma því á framfæri að hann lýsir fúll- um stuðningi við nýja keppnissam- bandið í mótorsportinu, MSÍ, og telur að það sé það besta sem komið hefur ann en hann er með styrkingar á þeim svæðum sem mest þörf er fyrir þær. Einnig er hann með mun léttara húdd en aðrir sleðar. Þessi sleði er því mjög léttur og lipur. Hvað vélina snertir þá er hann mjög frábrugðinn öðrum sleð- um. Tekin var venjuleg 600 rúmsentí- metra vél og hún stækkuð (boruð út) í 674 rúmsentímetra. Einnig er hann með aðra gerð af púströri og engan hljóðkút. Þessar breytingar gera sleð- ann 26% kraftmeiri. Hann er því kom- inn upp i ein 135 hestöfl sem er allgott í 190 kílóa þungum sleða. Sárfaúinn til að standa á honum Stýrið er ailt öðruvísi en í öðrum sleðum. Bæði er það mun hærra og með öðru formi. Þetta er gert til að auðvelda aksturinn í mjög erfiðum að- Takið eftir laginu á stýrinu. Það er svona til þess að auðveldara sé aö standa sleöann og hanga til hliðar í kröppum beygjum. fyrir vélsleðasportið hingað til. Guðmundur—Arctic Cat Guðmundur Gíslason, aðstoðar- framkvæmdarstjóri B&L, lét í desem- ber flytja inn fyrir sig sérhannaðan keppnisvélsleða frá Arctic Cat. Sleðinn er af gerðinni Snow Pro frá Arctic Cat, sem B&L er með umboð fyrir, en þenn- an sleða er ekki hægt að kaupa í búð þar sem um sérsmíðað keppnistæki er að ræða, aðeins smíðað fýrir keppn- islið Arctic Cat. Hann er með vél frá Black Magic og með sams konar íjöðr- un og venjulegur sleði, nema hann er með stiilanlega gasdempara. Ekkert sem ekki þarf í keppni er sett á þenn- an sleða. Sem dæmi þá eru ekki ljós á honum að framan og engir mælar eins og hraðamælir eða snúningsmælir. Þetta er gert aðallega til að létta sleð- stæðum. Þróunin erlendis hefúr verið í þá átt að menn standi allan tímann á sleðanum. Dæmi um það er núverandi heimsmeistari, Blair Morgan, sem keyrir Arctic Cat Snow Pro-sleða, sá eini sem getur staðið allan tímann. Kosturinn við þetta aksturslag virðist helst felast í því að ökumaður sér bet- ur það sem er fram undan og einnig á hann að geta tekið betri lendingar eft- ir löng stökk. Ókosturinn er að fáir geta staðið á sleðanum alla keppnina því það reynir mjög mikið á styrk og þol ökumanns- ins. Sagt er að mótorkross á vélhjólum sé erfiðasta íþrótt í heimi og vélsleða- krosskeppni er ekki mjög frábrugðin þeirri keppnisgrein. Þvi þurfa keppnis- menn á vélsleðum að vera í mjög góðu líkamlegu formi bara til að geta klárað keppni. B&L hafa fengið til landsins 3 sleða af þessari gerð og keyrir Helgi Reynir frá Ólafsfirði einn þeirra og einn bíður eftir öku- manni inni í sýn- ingarsal. DV-bílar hittu aðeins á Guð- mund um daginn áður en hann hélt norður til æfinga með sleðann sinn og lagði fyrir hann nokkrar spuming- ar. í hvaða mótum ætlar þú að keppa í vetur? Stefnan er að taka þátt í sem flest- um. Hvað finnst þér um uppganginn í sportinu? Menn eru að taka við sér aftur eftir lægð. Þetta sport virðist vera mjög nátengt efnahagslíf- inu því það er mjög dýrt, enda eru lúx- ustollar á vélsleð- um, ólíkt því sem gerist t.d. í flug- sportinu. Áhuga- menn um flug fá ódýrt bensín og borga mjög lága tolla. Einnig má benda á það að við borgum vegaskatt þegar við kaupum bensínið en ekki notum við vegakerfið! Einkennilegt er því hvemig ríkið viil skattleggja áhugamál landsmanna. Miklar sviptingar eiga sér einnig stað innan félaga sem tengjast sport- inu. Auðvitað era sviptingar í félags- málum vélsleðaáhugamanna eins og hjá öðrum. Mitt álit á því er að gott mál sé að menn stofni félög og fram- kvæmi góða hluti sem snerta sportið. Samt skulu höfð í huga heildarhags- munamál vélsleðamanna, eins og bar- áttan við ríkið um að lækka aðflutn- ingsgjöldin á keppnissleðum. Ég vil taka það skýrt fram að B&L styður öll félög sem vinna að þvi að bæta og þjóna vélsleðamönnum. Hlutverk um- boðsaðila er að þjóna sínum viðskipta- vinum á sem bestan hátt og ekki get- um við gert neinn greinarmun þar á. Hvað keppni varðar þá er fyrirhug- uð heimsmeistarakeppni hér á landi í vor og það verður mjög spennandi að fá atvinnumenn til okkar. Þetta mun hleypa fersku blóði í sportið því að við getum margt lært af þessum mönnum. Em einhveijar nýjungar í sleðum frá Arctic Cat sem þið sjáið um að selja hérlendis? Já, við erum að fá nýjar vélar á næsta ári. Þær eiga að vera enn þá spameytnari og kraftmeiri. Hægt er að skoða heimasíðu Arctic Cat á slóðinni www.arcitc-cat.com en þar era allar Guömundur Gislason við Arctic Cat sleðann sinn sem er sérhannað keppnistæki. nýjustu upplýsingar um sleðana. Einnig höfum við stóraukið þjónust- una hjá okkur. Sem dæmi erum við núna með sérstaka símatíma á verk- stæðinu sem er nýtt og glæsilegt og með þrautþjálfuðum mönnum. -NG Fara með keppnislið til Wales - þáttpökkuð dagskrá hjá KTM-mönnum allt árið KTM-mótorhjól hófu innreið sína á íslenskan mótorhjólamarkað 1994. Karl Gunnlaugsson, umboðsaðili hjólanna, hefur verið keppandi á KTM frá þeim tíma og vann meðal annars íslandsmótið í sandspymu 1995. Árið 1999 var sérstaklega gott hjá KTM og voru hjólin söluhæst í flokki torfæruhjóla það ár ásamt því að keppnislið KTM íslands / Coca- Cola vann íslandsmótið í enduro og vann Einar Sigurösson öll mót árs- ins. Einnig keppti Karl Gunnlaugs- son í heimsmeistaramótinu í „All terrain raily" í Arabísku fursta- dæmunum með göðum árangri framan af. Fyrir næstu vertíð hefur KTM- umboðið ákveðið að styrkja Viggó Viggósson með KTM 380 SX keppn- ishjóli fyrir motocrosskeppni sum- arið 2000 ásamt því sem hann mun aka KTM 300 EXC í enduromótum ársins. Einar Sigurðsson mun aka KTM 380 SX-keppnishjól eins og Viggó Viggós- son fékk afhent viö hátíðlegt tækifæri á Sportcafé um daginn. KTM 250 SX í motocross og KTM 300 EXC í enduro-keppni ársins. Karl Gunnlaugsson mun aka KTM 380 EXC í enduro-mótum ársins og KTM 660 LC4-Raily í UAE desert challenge-keppninni í Arabísku furstadæmun- um. KTM verður einnig með keppnislið og mun kappkosta að aðstoða aðra keppendur sem aka KTM-hjólum. Um páskana er svo stefnan að Einar og Viggó fari til Bretlands í æfinga- búðir hjá Kurt Nicol, keppnisstjóra KTM-liðs- ins sem keppir i heims- meistaramótinu í motocross. Kurt Nicol er margfald- ur Bretlandsmeistari í motocross og ætti að geta kennt strákunum eitt- hvað. Keppnislið KTM ísland / Coca-Cola mun einnig taka þátt í al- þjóðamótinu í enduro, Wales 3 Days, sem fer fram í Wales í júní. Til gamans og kynningar á motocross-keppnum ársins mun KTM ísland lána útvarpsmanni FM- 957 KTM-hjól til keppni í öllum fiór- um mótum ársins. Stóri draumur- inn er svo að senda íslenskan kepp- anda á KTM LC4-Rally-hjóli í Paris- Dakar-keppnina um áramótin en hvað verður verður tíminnn að leiða í ljós. -NG Nissan Terrano II 2,4, 5 g. 1995 vínrauður ek. 98 þ. 1.490.000 Toyota Corolla 1,6 GLi, 5 d. 1993 rauður ek. 79 þ. 680.000 Honda Prelude 2,2 v. 2d. '03 115 b. 1480 þ. Honda Accord coupé V, 2d. '98 3þ. 540 9. Honda Accord LSI, uk.. 4d. '95 100 9. 1-250 9. Honda Accord EX 2,0,5 g., 4 d. '87 18011. 320 8. Honda Clvlc1.5LSI.5o.. 3d. ‘98 469. 1.2709- Honda Civlc 1,5 LSI. 4d. '98 24 9. 1.250 9. Honda Civlc Sl. ssk., 4d. '97 33 9. 1.1509. Honda Civlc LSI, 5 g.. 5d. '98 22 9. 1-570 9. Honda CR-V RVI.ssk., 5d. '98 65 9. 1.950 9. Honda Clvlc 1,3 DX,5g., 3H,'9Q 130 9. 3909. Chiysler Voyager V8, uk., 5 d., '81 153 9. 980 9. MMC Qarisma GDI, ssk.. 5d. '98 529. 1-500 9. MMC Lancer, 5 g.. 4d. '91 92 9. 499 9. MMCLancer.uk., 5d. '92 58 9. 640 9. MMC Lancer GL, 5 g. 4lL '93 115 9. 590 9. MMC Lancer SL 4xA. 5d. '93 89 9. 799 9. MMC Spacewagon, uk.. 5d. '93 137 9. 990 9. Suzukl Vltara V6, ssk., 5d. '96 45 9. 1.980 9. Suzukl Vltara JLX, 5 g., 5d. '96 53 9. 1.250 9. Toyota Corolla, uk., 4d. '96 56 9. 850 9. Toyola Corolla, ssk., 4d. '92 117 9. 730 9. Toyota Corolla, ssk.. 4d. '96 49 9. 950 9. Toyola Corolla GL 5 g.. 4d. '92 113 9. 7609. Volyo S40, uk.. 4 d. '96 219. 1.820 9. VW Goll Manhattan 2,0, 5d. '96 419. 1.2909. (H) NOTAÐIR BILAR Vatnagöröum 24 Sími 520 1100 Vélsleðar á hraðri uppleið - hreint ótrúleg tæki komin í sportið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.