Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2000, Side 7
33 "\T LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000
45
m*r
Litli bróðir Range Rover
Minnsti Land Roverinn er jeppling-
ur að nafni Freelander. Hann er aðeins
fáanlegur með aldrifi og er ekki méð
millikassa eins og aðrir Roverar eru
frægir fyrir. Freelander er samt vel bú-
inn bíll og að sumu leyti eins og
minnkuð útgáfa af Range Rover. Hann
er útkoma fyrsta samstarfsverkefnis
BMW og Land Rover-verksmiðjanna.
Vel búinn og ömggur
Bíllinn sem DV-bílar höfðu til próf-
unar var með 97 hestafla dísilvélinni, i
útgáfu XEDi. í þeirri útfærslu kemur
hann með HDC eða „Hill Descent
Control" sem þýða mætti sem brekku-
viðnám. Það virkar með rafeindastýr-
ingu og notar hemlalæsivömina til að
hafa stjóm á bílnum í bröttum brekk-
um og færir jafnvel átak milli hjólanna
ef þurfa þykir. Brekkuviðnámið held-
ur þannig bílnum á 9 km/klst. og
minnkar hraðann jafiivel niður í 7
km/klst. ef ójafnt er undir. Þessi bún-
aður reyndist vel í prófun og auðveld-
ar akstur í miklum halla niður á við tO
muna þar sem nóg er að halda í stýrið
og ýta á takkann sem er á gírstöng-
inni. í bílnum er einnig spólvöm sem
hjálpar mikið til í hálku. Aldrifið virk-
ar svo þannig að afturdrifið tekur ekki
við sér fyrr en framhjól fara að spóla
en þar á spólvömin að hjálpa við að
skipta átakinu á milli hjólanna.
Hemlalæsivöm er staðalbúnaður í
þessari útfærslu Freelander og með há-
tækniþekkingu BMW er boðið upp á
eina af fullkomnustu læsivömum sem
þekkist í jeppa í dag. Hún fær skilaboð
frá hemlakerfmu 250 sinnum á sek-
úndu og við prófun á malbiki, þöktu
sandi, virkaði hún einstaklega vel og
læsti aldrei hjóli þótt beygt væri snögg-
lega. Þess háttar yfirborð er eitthvert
það erfiðasta fyrir svona búnað og þvi
merki um gott kerfi ef hann ræður vel
við það.
Þægindi í akstrí
í hefðbundnum bæjarakstri er
Freelander afar þægilegur bíll og þótt
hann viðist mikill að framan kemur
það ekki að sök i akstri. Fjöðrunin er
Stór hliðarhólf rúma jafnvel litla
skjalatösku og haldiö á þeim er
mátulegt fyrir eina kókflösku sem
rúllar þá ekki um allan bíl á meöan.
einn aðalkostur hans og er ættuð frá
Range Rover og skiptir þar litlu máli
hvort ekið er á malbiki eða möl -
mátulega stíf fjöðrunin bókstaflega
rennur yfir allar ójöfnur án þess að
þeir sem í bílnum em verði þess varir.
Dísilvélin virkar vel í bæjarakstri og á
milli 2500 og 3000 snúningum svaraði
hún vel. Togið í henni var einnig all-
gott á þessu snúningssviði og hélt jafn-
vel við í fimmta gír í brattari brekkum
borgarinnar. Þegar komið er út fyrir
borgina er þægilegur ferðahraði um 90
km/klst. í fjórða gír eða 110 km/klst. í
fimmta. Dísilvélin í Freelander er líka
hljóðlát og lítið veghljóð í bílnum
þannig að þjóðvegaaksturinn lagðist
mjög vel í hann.
Ekkí mikill
torfærubfll
í prófúnarakstrinum var komið að
löngum snjóskafli á Krýsuvikurleið-
inni sem var raunar snjór sem safnast
hafði saman í eina dældina. Skaflinn
var langur og mjór og hafði bráðnað til
hliðanna þannig að aðeins var hægt að
aka eftir honum miðjum. Greinilegt
var að eitthvert ökutæki hafði komist
yfir hann áður og þurft að hafa fyrir
því. Á nokkrum stöðum var eins og
hjól hefðu sokkið vel niður í blautan
snjóinn. Ákveðið var að reyna við
skaflinn með gát en eftir skamma
stund sat bíllinn fastur á maganum í
miðjum skaflinum. Þá komu í ljós
helstu ókostir hans
ásamt lítilli veghæð.
Þar sem núna þurfti
lítinn snúning til að
losa hann kom í ljós
að þegar afturdrifið
kom inn við svona lít-
ið viðnám hætti fram-
drifið að snúa fram-
hjólunum nema vél-
inni væri snúið dug-
lega en eins og áður
sagði hentaði það alls
ekki við þessar að-
stæður. Vélina virtist
líka vanta afl á lág-
snúningi og vildi helst
drepa á sér nema gefið væri vel inn.
Það má nefna á móti að dekkin sem
undir bilnum voru hentuðu heldur
engan veginn í akstri við svona að-
stæður og grófari dekk hefðu eflaust
hjálpað mikið.
Gdður ferðabfll
Freelander er þægilegur í allri um-
gengni og gott pláss í honum fyrir
fimm. Hurðimar eru stórar og maður
situr hátt í bílnum þannig að útsýni er
gott yfir fyrirferðarmikið húddið.
Reyndar kemur það ekki að sök því að
hann er vel rúnnaður á homum og því
lítil hætta á að reka hann utan í, t.d.
þegar bakkað er í stæði. Mjög gott
Tölulegar
upplýsingar
Land Rover
Freelander XEDi
Vél: dísil, túrbína með millikæli.
Strokkafjöldi: 4.
Rúmtak: 1998 rúmsentímetrar.
Hestöfl: 97 v/4200 sn.
Snúningsvægi: 210Nm/v2000 sn.
Viðbragð 0-100: 14,6 sekúndur.
Eyösla í blönduóum akstri:
7,7 lítrar.
Gír og drif: 5 gíra með sídrifi.
Hemlar: Læsivarðar diskabremsur.
Fjöörun framan: Sjálfstæð gorma-
fjöðrun með jafnvægisstöng.
Fjöörun aftan: Sjálfstæð gormafjöðr-
um meö samsíða liðum.
Lengd: 4382 mm.
Breidd: 1805 mm.
Hæö: 1757 mm.
Hjólahaf: 2555 mm.
Veghæó: 193 mm.
Sporvídd framan/aftan:
1534/1545 mm.
Farangursrými: 563/1313 lítrar.
Verö: 2.830.000.
Umboö: B&L.
Eins og sjá má opnast afturhleri vel og allur í einu en rúöan fellur upp í fals
og sér rafmagnsbúnaður um aö hún falli kirfilega aö stöfum.
Innanrými er gott og nóg af hólfum alls staðar, t.d.
er annaö hanskahólf undir stýrinu ef vel er gáö.
Grand Vitara dísill sýndur um helgina
Suzuki bílar í Skeifunni sýna
um helgina Grand Vitara dísil
sem er ný viðbót við þær
þrjár bensínvélar sem einnig
er hægt að velja í þessa nettu
jeppa. Dísilvélin er 2-4
strokka, 87 ha., með snún-
ingsvægi upp á 216 Nm þeg-
ar við 2000 snúninga á mln-
útu, sem hlýtur að teljast
gott fyrir bil sem er aðeins
1475 kg aö eigin þyngd.
Eyðsla samkvæmt meginlandS'
staðli er 7,4-10,5-8,6 miðað við lang-
keyrslu-borg-
arakstur-
meðaltal.
Þessar
eyðslutölur
Eini útlitsmunurinn á
dísilútgáfunni af Suzuki Grand
Vitara er loftinntak á vélarhúsi
dísilbílsins sem ekki er aö finna á
bensínbílunum.
Grand Vitara dísill er fáanlegur
hvort heldur vill með 5 gíra hand
skiptingu eða 4 gíra sjálfskiptingu.
Með handskiptingu eru sambærilegar
eyðslutölur um hálfum lítra minni í
hverju tilviki.
Að búnaði til er enginn
murnu' á Suzuki Grand
Vitara dísil og bensin-
bílunum, nema hvað
læsivarðir hemlar
eru aukabúnaður á
dísilbílnum. Grand
Vitara dísill kostar frá
2.395.000 krónum og er þá
íslensk ryðvöm innifalin.
Sýningin er opin laugardag og
sunnudag, klukkan 12-17 báða dagana.
-SHH
eiga við sjálf-
skipta bíl-
inn.
-NG
Plúsar:
Fjöðrun
Innanrými
Hljóðlátur
Einfaldar línur einkenna framendann líkt og aöra hluta bílsins og auöveldar
þaö öll þrif.
pláss er í honum þegar búið er að fella
niður sætin og kostur hversu vel hefúr
verið hugsað fyrir því að hafa
geymsluhólf um allan bílinn. Freeland-
er er þvi þægilegur borgarjeppi og
hentar vel tU ferðalaga ef ekki er farið
í miklar vegleysur. Við þarmig aðstæð-
ur er helst tU of lágt undir hann, eða
193 mm undir lægsta punkt. Fyrir þá
sem langar í fuUvaxinn Range Rover
er þessi jepplingur ágætis stökkpaUur,
enda mun ódýrari heldur en stóri
bróðir. Verðið er reyndar í hærri kant-
inum fyrir jeppling, eða 2.350.000 kr.
fyrú ódýrustu útfærsluna og upp í
2.830.000 kr. fyrir þennan.
Brekkuviönámshnappurinn er á
þægilegum staö, ofarlega á gír-
stönginni.
Minusar:
Vantar afl á lágsnúningi
Hljómtæki
Skemmtilega hönnuö linsulaga Ijós, auk utanáliggjandi hástæös bremsu-
Ijóss, gefa afturhluta bílsins skemmtilegan svip.