Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 7
heimasíöa vikunnar
Parið Guðrún Eva Mínervu-
dóttir rithöfundur og Hrafn Jök-
ulsson rannsóknarblaðamaður og
rithöfundur hafa ekki sést mikið
á götum borgarinnar upp á
síðkastið. Ástæða er sú að þau
fóru í mánaðarlanga ferð um
Króatíu en eftir heimkomuna
hafa þau haldið til á sveitabýli og
setið þar við skriftir. Eflaust fer
vel um þau fjarri glys og glaumi
umheimsins að sinna sínum
helstu hugðarefnum og margt
óvitlausara fyrir rithöfunda.
Blaðamaður Fókuss heyrði að
skötuhjúin væru í bænum um
þessar mundir til að ná í matvæli
og meiri pappír og sló á þráðinn.
Hrafn svarar en vill lítið tjá sig
um sveitahreiðrið. „Já, þú getur
svo sem fjallað um þetta ef þér
finnst það frétt,“ segir rannsókn-
arblaðamaðurinn sem er vanur
að skrifa um Franklin Steiner,
meintan flkniefnabarón, og aðra
slíka fugla. Hann komenterar þó
eftir smáhik: „Jah, jú, við erum
uppi í sveit og ég er að fara að
taka bílpróf og svona.“ Það er
Hrafn Jökulsson og Guðrún Eva Mínervudóttir dvelja nú á sveitabýli þar sem
þau sitja við skriftir.
greinilegt að Hrafni líður vel í þessa dagana og því síður fjöl-
sveitinni. Að minnsta kosti yirð- miðlaumfjöllun.
ist hann ekki sækja í hringiðuna
Heimasíða vikunnar er http://www.is-
landia.is/~juljul/julli/andlmal/amal.htm
Framtíðarspá
og drauma-
ráðningar á Netinu
„Kærleiksvefur Júlla" er
heimasíða vikunnar að þessu
sinni. Hún er búin til af Dalvík-
ingnum Júlíusi Júlíusarsyni, sem
er þekktur fyrir að gera flottar
vefsíður, og setti hann m.a. upp
glæsilega jólasíðu fyrir áramótin.
Kærleikssíða Júlla er væmin í
meira lagi og hæflr því vel sem
heimasíða vikunnar þar sem Val-
entínusardagurinn og konudag-
urinn eru nýbúnir. Hér er að
finna ástarljóð og önnur róman-
tísk ljóð, sem og heilræði og fyr-
irbænir. Einnig getur fólk látið
spá fyrir sér og draumar eru
einnig ráðnir. Sætar engla- og
rósamyndir prýða síðuna og allar
stelpur ættu að fá sting í hjartað
við það eitt að sjá þær. Þetta er
síða sem yljar manni pottþétt um
hjartaræturnar.
11:35 'M X ‘ 8