Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 8
Varðskipið Þór háði marga hiidina í þorskastríðunum sem gengu yfir landann og hristist
og skalf þegar lætin stóðu sem hæst. Nú er ólfkt rólegra yfirbragð á skipinu sem liggur
við höfnina í Hafnarfirði. Það ver ekki auðlindir þjóðarinnar lengur heldur þjónar gestum
febrúar
Sagan
45 fyrir Krist: Júlíus Sesar fer
að ráðum stjörnufræðingsins
Sosigenes og bætir degi við fjórða
hvert almanaksár til þess að rétta
árið við. 1582: Aukadagur Július-
ar er löngu gleymdur og grafinn
og það er far-
ið að valda
vandræðum.
Því sendir
Gregory páfi
fjórtándi til-
skipun um að
bætt skuli við
aukadegi á
fjögurra ára
fresti. (Þetta
er nefnt
gregoríska
dagatalið sem
er mjög nærri skilningi okkar um
að árið sé 365,2422 dagar.) Á næstu
öldum samþykkja þjóðir heims til-
skipun Gregorys páfa. Þýskarar
samþykkja árið 1698, Englending-
ar 1752 og lokasigurinn vinnst
þegar Rússar taka daginn upp
1918.
Atburðir
1288: Skotland setti lög um að
29. febrúar skyldi vera eini dagur-
inn sem konur gætu beðið karl um
að giftast sér. Og ekki nóg með
það heldur voru karlamir sektað-
ir ef þeir dirfðust að segja nei.
1940: Hattie McDaniel fékk
óskarinn á þessum degi og varð
þar með fyrsti
^mmwixD
i<KM !)<[»
svertinginn sem
fékk verðlaunin.
Hún vann til
verðlauna fyrir
besta aukakven-
leikinn og var
það í myndinni
Gone with the
Wind sem vann
líka verðlaunin
fyrir bestu
myndina, leik-
stjórann, leikkonuna, besta hand-
ritið, klippingu og litkvikmynda-
töku.
2000: Líklega gerist ekki neitt á
þessum degi frekar en fyrri dag-
inn. Enda á dagurinn soldið erfitt
uppdráttar við að sanka að sér
stórviðburðum þar sem hann
kemur bara á fjögurra ára fresti
og hefur þar að auki ekki verið
viðurkenndur frá upphafi og auk
þess tekið sér pásur við og við.
og gangandi sem veitingastaðurinn Thor. Auður Jónsdóttir mælti sér mót við fyrrverandi
áhöfn á nýja veitingastaðnum og hlustaði á sögur úr þorskastríðunum.
„Við attum að
stugga við
og þýskum
togurum...
Áhöfnin á Þór mætir á veitinga-
staðinn Thor og það kjaftar á þeim fé-
lögum hver tuska þegar þeir fá sér
sæti í setustofu við hliðina á skip-
herrakáetunni. „Það er sama lyktin,"
segir Sigurður glaðhlakkalegur. Þeir
eru greinilega ánægðir með að vera
komnir um borð og byrja strax að
rifja upp sögu. Ég bið þá um að tala
hægar en sagan er ekki sögð mér til
heiðurs þvi þeir fullyrða strax að hún
sé ekki prenthæf. Síðan setja þeir sig
í stellingar til að segja prenthæfar
sögur og Helgi skipherra byrjar: „Ég
get sagt þér frá einum sem varð ansi
hræddur. Þá tókum við upp blaða-
mann frá Observer á Reyðarflrði. Það
var komið svartamyrkur þegar við
komum út á miðin og mættum
bresku herskipi. Aumingja blaðamað-
urinn var svo hræddur að hann
hneig niður fyrir framan brúarglugg-
ann og var þar allan tímann - en
greinin í Observer var alveg þokka-
leg, hann má eiga það.“
Púðurskot í myrkrinu
Helgi brosir að frásögninni lokinni
og bætir við að um þetta leyti hafi
hasarinn staðið sem hæst svo Bret-
arnir voru orðnir miklu harðari en
áður. Það er gaman að hlusta á mann-
inn tala. Hann er kvikur í hreyfing-
Hermann Jónsson bendir á gamla mynd af sér um
borö í Þór.
Hannes Ingvar Jónsson.
Valgeir Valdimarsson.
Þaö er ekki hægt að segja annað en að þeir Valgeir Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Islenska dansflokksins, og hæflleikalausi sálfræðineminn,
Hannes Ingvar Jónsson sem dreymir um frægð og frama, séu likir. Báðir
eru þeir aðeins búttaðir í kinnum og hafa alveg sama smekk hvað klæðnað
og gleraugnaval varðar. Þeir eru ailtaf afskaplega smart til fara og hafa
báðir hina prúðmannlegustu framkomu. Drengirnir deila einnig áhuga á
dansi en Hannes ku vera ágætisdansari en ekki höfum við heimildir fyrir
danshæfileikum Valgeirs en hann hlýtur þó að hafa lært einhver spor af
dansflokknum i gegnum tíðina. Strákarnir hafa einnig báðir gaman af því
að umgangast fína og fræga fólkið en Valgeiri liður einmitt hvergi betur en
í frunisýningarpartium og Hannes sækir einnig í hvers kyns fagnað þar sem
hann hugsanlega gæti látið frægðarljós sitt skína.
um, snaggaralegur og glaðlegur og
það er greinilegt að undirmenn hans
bera mikla virðingu fyrir honum. Það
hvarflar að manni að líklega hafi
drengilegur heragi ríkt um borð.
Skipverjar á íslenskum varðskipum
eru nefnilega einu íslendingarnir
sem hafa varið land og þjóð með byss-
um. Byssurnar voru þó aðallega til að
hrella óvininn því íslandskempurnar
skutu sjaldan alvöruskotum og héldu
sig oftast við púðurskot. Varðskips-
menn sýndu yfirleitt mikla úrræða-
semi í átökunum og höfðu lúmskt
gaman af því að hrekkja Bretana. T0
dæmis sigldu þeir upp að bresku
skipunum í myrkri og hleyptu púður-
skotum samtímis af tveimur fallbyss-
um til að hrella skipverja. Hálfdan
minnist þess líka að þeir hafl átt met
í að klippa á flest troO á skemmstum
tíma. „Við fengum leyfi tO að klippa
á troOin og nýttum það leyfl vel -
klipptum á fjögur troll á augabragði
og það fékkst ekki annað leyfi í
viku,“ segir hann og það er stríðnis-
glampi í augunum á honum. Skip-
herrann kímir og segir yfirvegaður:
„Kvótinn var búinn.“
Ægir skaut á Everton
„Við erum eini mannskapurinn á
íslensku varðskipi sem hefur verið
ræstur út til að bjarga
annarri íslenskri áhöfn,“
segir Sigurður og hinir taka
samþykkjandi undir. „Já, í
stærstu sjóorrustu á Norð-
ur-Atlantshafi eftir seinni
heimsstyrjöldina," segir
Hálfdan hlæjandi.
Sigurði er meira niðri
fyrir og rifjar upp hvernig
baOið byrjaði: „Varðskipið
Ægir skaut á breska togar-
ann Everton þann 23. maí
1973. Ég man dagsetninguna
nákvæmlega þvi tengda-
mömmu varð svo mikið um
að hún hringdi i Dísu sem
var komin á steypirinn og spurði
hvurslags maður það væri sem skyti
á breska fiskimenn. Dísu brá svo að
hún fór beint upp á spítala...
Nokkrum dögum seinna fór ég á Ár-
vakur,“ útskýrir hann og lítur til
skiptis á hina.
Hálfdan: „Árvakur var ekki eigin-
legt varðskip, það voru bara rifflar
um borð.“
Sigurður: „Já, við áttum að fara tO
Vestmannaeyja og mála Árvakur - og
vera í friði, ekki með nein ólæti. Þá
kemur skeyti frá höfuðstöðvum land-
helgisgæslunnar sem segir að við eig-
um að stugga við breskum..."
..og þýskum togurum á Selvogs-
banka,“ klárar Helgi brosandi.
Muniö þiö skeytiö orörétt?
Hálfdan: „Það er eins og þetta hafi
áOt saman gerst í gær.“
Skipið hristist og skalf
Það er þorskastríðið 1972 sem félag-
arnir eru nú að rifja upp en þá var
landhelgin færð í 50 mOur. „Eftir að
íslendingar klipptu á togvíra þýsks
togara varð aUt vitlaust. Nokkrir
breskir togarar tóku sig til og réðust
á Árvakur. Hann var hægfara og þeir
sigldu á hann. Áhöfnin á Árvakri
varði sig með rifflum og þá var Þór
sendur á vettvang."
ncigl SIMpiltJlfd. „VSIMUIf Vdl UlllllUgdU Ulll dU pcil IICCUU CIMM IMippUIIUIII.
„Tengdamömmu varð
svo mikið um að hún
hringdi í Dísu sem var
komin á steypirinn
og spurði hvurslags
maður það væri sem
skyti á breska
fiskimenn.“
Sigurður: „Æ, hvaö ég fylltist miklu
stolti við að sjá Þór bruna áfram."
Á myndinni má sjá breskan
dráttarbát elta Þór.
Hermann var faUbyssuskytta á Þór
og þegar Bretamir koma á staðinn er
hann á afturbyssu og Hálfdan á fram-
byssu. „Það voru þrír togarar á eftir
Árvakri og við skutum úr báðum
byssunum í einu á brýrnar á þeim.
Tveir létu sig strax en sá þriðji ekki.“
Helgi kryddar söguna kátur og seg-
ir: „Ég kaUaði til Hermanns skyttu:
„Láttu hann hafa eitt!“ En Hermann
var ekki búinn að hlaða byssuna þeg-
ar togarinn skrapast eftir síðunni á
Þór. Hermann lítur á togarann, á
skotið og aftur á togarann þegar hann
kastar skotinu með berum höndum
að honum. Skotið lenti í sjónum."
Hinir hlæja dátt og segja að varð-
skipið hafi hrist og skolfið þegar tog-
arinn klessti á það og hávaðinn hafi
verið feikUega mikiU.
„Við höfðum ekkert svigrúm til að
forða okkur frá þriðja togaranum og
Þór leggst 30-40 gráður á stjórnborða
þegar togarinn kemur skrapandi eftir
síðunni," segir Helgi og hlær þegar
hann minnist bresku skipverjanna.
„Mennirnir lágu flatir innan um fisk-
inn og skipstjórinn lá í brúargluggan-
mn, ég sá bara í nefið á honum."
„Æ, hvað ég fyUtist miklu stolti við
að sjá Þór bruna áfram," segir Sig-
urður og trega gætir í röddinni.
Bretunum
ógnað með kjöthníf
Benedikt hefur setið hljóður fram
að þessu og brosað út í annað 'en tek-
ur nú tU máls og segir að það hafi
aUtaf verið mikU ánægja um borð í
Þór og góður andi. Þeir jánka því aU-
ir sem einn.
Benedikt: „Munið þið þegar við
vorum á Selvogsbankanum og mætt-
um freigátunni. Þá var Geiri bryti..."
Geiri á Hafnarkránni?
„Já, hann,“ svarar Hálfdan og klár-
ar söguna fyrir Benedikt: „Við vorum
sem sagt nýbúnir að skera á einn tog-
ara þegar verndarinn kemur. Þá tek-
ur brytinn sig tU, æðir út í fuUum
kokkaskrúða með hníf og stál og
brýnir hnífinn vígalegur. Þcirna stóð
hann bara ógnandi og veifaði hnífn-
um beint framan í þá.“ Karlarnir
muna vel eftir atvikinu og skeUi-
hlæja.
Sigurður: „Já, þetta var alveg ótrú-
legt tímabU. Það er líka skondin saga
þegar við mættum Þór einhvern tím-
ann með breskan togara í eftirdragi.
Þá höfðu klippumar fest í „brakket-
inu“ og þeir stímdu með hann inn á
ísafjörð."
Helgi: „Já, okkur var umhugað um
að þeir næðu ekki klippunum."
f Ó k U S 25. febrúar 2000