Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 12
Védís Verslómær laumar sér upp í
þriðja sæti listans með lagið Hann.
Þetta er endurgerð á ballöðu
poppkóngsins Jackson, Ben.
Dæmigert að landinn skuli falla fyrir
væmnasta lagi Thriller-sýningarinnar.
Fáum eitthvað hresstí staðinn.
vikuna
24.2- 02.3 2000
vika
Topp 20
(OV) Orginal (órafmagnað)
Sálin hans Jóns míns
Vikur
á lista
0 3
(02) The Doiphins Cry Live 4r 13
(03) Hann („Ben“ úrThriller) Védís HervörÁrnadóttir (Versló) t 4
(04 ) OtherSide Red Hot Chilli Peppers t 9
(05) MariaMaria Santana 9
06 Freistingar Land&synir t 2
(07) Re-Arranged Limp Bizkit n z
(08) Show Me the Meaning of Being Lonely Backstreet Boys t 6
(09) Sexbomb (Remix) Tom Jones t 9
10 Cartoon Heroes Aqua / 3
@ The Great Beyond R.E.M. 8
@ GoLetltOut Oasis t 4
(13) IHaveaDream Westlife n 4
(l4) SexxLaws Beck 14 8
7 5) Under Pressure (Rah Mix) Queen & David Bowie 4" 9
(16) / Learned from the Best Whitney Houston 4r 11
(77) RainbowCountry Bob Marley& FunkstarDe Luxe 4r 7
(78) Backinmylife Alice Deejay t 3
(79) What a girl Wants Christina Aquilera t 10
(20) Caught out there Kelis t 3
Sætin 21 til 40
(S) toppiag vikunnar 21. If 1 Could Turn Back the Hands ofTime R. Kelly n 11
. 22. American pie Madonna X 1
4 vikunnar 23. Kiss (When the Sun Don’s Shine) Vengaboys -f 3
24. BetterBeGood Páll Óskar 6
X njíttalistanum 25 ^ Quarashi 'f- 6
JoJ stendur i stað 26. Viltu fiitta mig i kVÖId Greifarnir og EinarÁgúst t 7
^ hækkar sia frá 27 Only God Knows Why Kid Rock t 2
■ stðjstu viku 28. Girl with the Sparkling Eyes Bellatrix t 4
i lækkar sia frá 29. Whatever You Need Tina Turner f 2
síðjstu viku 30 Feelinsogood Jennifer Lopez X 1
fall vikunnar 31. Dr. love Smokinbeats j 4- 6
32. Northen Star Melanie C. 4 7
33. Byebyebye Nsyne X 1
34. Glorious Andreas Johnson 4 5
35. PureShores All Saints t 2
36. Okkarnótt Sálin hans Jóns mins 4, 12
37- Takeapicture Filter X 1
38. Backatone Brian McKnight 4 4
39- Tonite Phats& Small ! 4 5
40. off the wall (enjoy yourself) Wisdome X 7
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá íslenskum
rokkhundum að sambrýndu Gallagher-bræðurnir í Oasis
eru að koma með sína fjórðu plötu. Dr. Gunni kíkti á málið.
Noel nugsar
til framtíðar
Nýja Oasis-platan heitir „Stand-
ing on the Shoulder of Giants“.
Noel sá setninguna á röndinni á
nýju 2 punda myntinni, skrifaði
hana niður í fylliríi en gleymdi
einu ess-i aftan við „shoulder“.
Þetta er tilvitnun í vísindamann-
inn Sir Isaac Newton sem skrifaði
vini sínum árið 1676: „Ef ég hef séð
lengra en aðrir er það af því ég hef
staðið á öxlum risa.“
Það má deila um hvort Oasis
hafi séð lengra en aðrar sveitir, en
svo sannarlega hafa þeir staðið á
öxlum risa. Þeir sem lengst vilja
ganga kalla tónlist sveitarinnar
sálarlausa stælingu á Bítlunum
kryddaða með Sex Pistols og Stone
Roses.
Flestir þekkja sögu Oasis og
„Brit“-rokkið sem hún stóð fyrir á
síðustu öld. Þó „Brit“ sé harla
þreytt klisja er Oasis enn þá grið-
arlega vinsæl hljómsveit á Bret-
landi, enda bræðumir áskrifendur
að forsiðum slúðurblaðanna og
alltaf nægir skandalar í kringum
þá. Fyrsta smáskifan af nýju plöt-
unni, rokklagið „Go Let It Out“, fór
beint í fyrsta sæti smáskífulistans
og það má búast við öðru eins þeg-
ar stóra platan kemur út eftir
helgi.
Vill ekki
gera fullkomna plötu
Noel hefur ekki dópað i tvö ár og
Liam hefur róast, enda orðinn
pabbi (og syngur m.a.s. um það í
sínu fyrsta frumsamda lagi á nýju
plötunni). Samt er nýja platan sú
sýrðasta til þessa og innan um
rokkið glittir í áhrif frá danssen-
unni, enda Mike „Spike“ Stent
(Massive Attack, Björk) á tökkun-
um. Við hlið bræðranna standa
nýir menn; Gem (úr Heavy Stereo)
á gítar, Andy Bell (úr Ride og
Hurricane #1) á bassa og trommar-
inn Alan White. Noel fannst skrýt-
ið fyrst að sjá ekki Bonehead og
Guigsy, sem höfðu verið með síðan
1993, á sviðinu, „en aðalmunurinn
er að Oasis er tónlistarlega miklu
betri núna því Gem og Andy eru
svo góðir hljóðfæraleikarar," segir
hann.
Noel viðurkennir að síðasta
plata, „Be Here Now“, hafl verið
„pub rock bollocks", en hann er
stoltur af þeirri nýju: „Fyrstu þrjár
plöturnar voru fyrir lýðinn, lögin
voru til að syngja á fylliríi. Á þess-
ari plötu heyrist betur hvaða tök
við höfum á hljóðfærunum. Ekki
endilega hvað við erum góðir, held-
ur hversu góðir við getum orðið í
framtiðinni."
Noel sér fram á langa framtið í
rokkinu, jafnvel það að Oasis hætti
að spila á tónleikum og verði hljóð-
verssveit, eins og Bitlamir gerðust
1966. „Ég gæti unað mér vel í hljóð-
verum sem eftir er, að búa til tón-
list. Þessi plata er góð, en næsta
verður enn betri, og þannig á við-
horf þitt að vera til þess sem þú ert
að gera. Ég myndi ekki vilja búa til
fullkomna plötu þvi þá væri ég bú-
inn að vera. Ég heyri smágalla í
öllum nýju lögunum, en samt er
þetta besta plata sem þú átt eftir að
heyra þetta árið. Og svo koma
10-20 Oasis-plötur á eftir þessari.“
Engin ógnun á
sjóndeildarhringnum
Noel er opnari fyrir tónlist en
Liam, sem helst hlustar ekki á tón-
list sem kom út eftir 1969. Eitt af
því sem Noel langar til að gera er
sólóplata. „Já, mig langar að drífa
það af áður en ég verð of gamall og
úr sambandi við það s.em er að ger-
ast i klúbbum og á tónleikum." Sú
plata yrði meira í dansgírnum, seg-
ir Noel, enda er hann mikill aðdá-
andi Chemical Brothers og Fatboy
Slim.
En hvernig skyldi Noel líta á
stöðu Oasis?
„Ég vona að okkar verði ekki
minnst sem „stærsta bands tíunda
áratugarins sem hvarf á nýjum
áratugi“,“ segir hann. „Ég sé ekki
neitt á sjóndeildarhringnum sem
gæti ógnað okkur. Ég sé hvorki
neina nýja tónlist vera að þróast né
nýjar stjörnur vera að fæðast.
Næstu flmm árin gætu því alveg
eins orðið okkar.“
Og Noel er stoltur af litla bróður
og bætir við: „Við þurfum ekki
endilega að gleðja aðdáendur okkar
og verða gamlir popparar sem
spilasitjandi og strjúka á sér hök-
una. Ég vil halda æskugleðinni og
stælunum og það ætti að vera auð-
velt eins lengi og Liam stendur fyr-
ir framan hljóðnemann. Ef ég sem
enn þá lög þegar ég verð 43 ára
mun hann syngja þau eins og hann
sé 21 árs.“
Risavaxið hvítasunnurokk
Um hvítasunnuna, 10. og 11. júní, verður Laug-
ardalurinn vettvangur stærstu tónleikaveislu
sem hefur farið fram á íslandi. Búist er við allt að
tólf erlendum atriðum sem spila í Skautahöllinni
og Laugardalshöllinni og um allan Laugardalinn
veröa svo smærri atriði. Nú er unnið að því aö
bóka erlendu böndin og er þeim skipt í fjóra hópa
eftirtónleikum: goðsagnir rokksins, dans/teknó,
nýtt rokk og djass/heimstónlist. Það ætti að
koma í Ijós á næstu tveim vikum hvaða hljóm-
sveitir koma hingað en ekki var hægt aö toga eitt
einasta nafn upp úr skipuleggjendunum. Þeir
segjast ekki vilja koma af stað kjaftasögum eða
vekja falskar vonir. Fullyrt var þó að samningavið-
ræður stæðu yfir við stór nöfn og áhugaverð.
Sé litið á hvaða bönd verða „á ferðinni" á festi-
vöiunum í sumar má slá því fram með miklum
fyrirvara að einhver af þessum böndum gætu
mætt á klakann í júní: The Cure, Gomez, Pearl
Jam, Oasis, Iron Maiden, Groove Armada,
Rage Against the Machine, Moby, Beastie
Boys, Leftfield og R.E.M., en við seljum það
auðvitað mun ódýrar en við keyptum það. Þeim
sem vilja frekari upplýsingar er bent á heima-
síðu festivalsins: www.reykjavikfestival.is, en
þar birtist dagskráin jafnóðum og hún skýrist.
Veröa Pearl Jam í Höllinni í júní?
f Ó k U S 25. febrúar 2000