Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2000, Blaðsíða 48
56
'fflflff
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2000 JL>V
Líkamsrækt í frystitogurum:
Á fullt erindi til sjómanna
eins og annarra starfsstátta
- segir Guðmundur Hafsteinsson, vála- og skipaeftirlitsmaður hjá Granda hf.
dag er ^Q^/c ^fsláttur
af annarri auglýsingunni,
aW mil// himins
Smáauglýsingar
550 5000
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
Hlauparamolar
Skór til skiptanna
Hlaupaskór kosta peninga og oft
töluvert meira heldur en vandaðir
spariskór. Það er þó ekki einungis
vegna þess að framleiðendur okri á
skokkurum heldur miklu fremur
vegna þess að mjög er vandað til
framleiðslu þeirra miðað við þær
kröfur sem skokkarar gera í dag.
Vanir skokkarar vilja flestir eiga
hlaupaskó til skiptanna, jafnvel
ekki frá sama framleiðandanum.
Viðbrögð líkamans eru misjöfn og
fjölbreytni hefur oftast jákvæð áhrif
þar sem álagið á ákveðna hluti lík-
amans dreifist ef til eru skór til
skiptanna.
Hollar hnetur
Fyrir nokkrum árum voru hnetur
taldar vera frekar óholl fæða sem
innihéldi fitu sem vær skaðleg fyrir
likamann. Nýjustu rannsóknir
benda hins vegar til að sú fita sem
er í hnetum sé skaölaus með öllu.
Nú á dögum þykja hnetur vera sér-
lega hollar, meðal annars vegna
þess að þær innihalda mikið af trefj-
um. Um 20 hnetur geta innihaldið
um þrjú grömm af trefjum.
Góð fjárfesting
Við teljum þetta góða íjárfestingu
og hún er orðin að opinberri stefnu
hjá Granda hf. Líkamsræktarað-
staða um borð stuðlar að bættri
heilsu, vellíðan sjómanna og
auknum afköstiun.
Sams konar að-
prófanir á sjó-
mönnum að þeir
hafa tilhneigingu
til þess
að
staða er þegar komin í
frystitogarann Þernu og búið
er að finna
svæði í
Örfiriseynni
sem verður
tækjavætt með
vorinu. Líkams-
ræktarplássið í
Þemu er í minnsta lagi og mætti
vera meira.
Við komumst að því við þrek-
Þrekhjól má finna í velflestum frystitogurum landsins.
vinna létt og spara vöðvaaflið eins
og kostur er. Þó að það sé ágætt út
af fyrir sig þá verður það til þess að
ákveðnir vöðvar líkamans eru van-
ræktir, lungnaþreki er ábótavant og
úthaldið mætti vera meira. Hægt er
að bæta úr þeim ágöllum með reglu-
legri líkamsrækt um borð.“
Guðmundur sagði að sjómenn
á frystitogurunum væru
nokkuð duglegir að nýta sér
þessa þjónustu. „Segja má
að þátttakan komi í bylgj-.
um, en ætli það sé ekki
um það bil helmingur skip-
verja að jafnaði sem stunda
líkamsrækt um borð.“
Aðstaða sjómanna um
borð í frystitogurum hefur tekið
stakkaskiptum á síðustu áratug-
um. Til viðbótar líkamsræktinni
má geta þess að sjómenn eiga þess
núorðið kost í ílestum frystitogur-
um landsins að skella sér í gufu-
bað eða ljósabekki að vild. Vel-
flestir frystitogarar eru einnig
vopnaðir gervihnattasjónvarpi,
þannig að útilegumar, sem
oftasta taka 24-30 daga, eru allt
aðrar og ánægjulegri en þær
voru.
Guðmundur telur að íslend-
ingar séu í fararbroddi í þess-
um málum í heiminum. „Er-
lendir frystitogarar eru yfir-
leitt ekki með lík-
amsræktarað-
stöðu um borð
eftir því sem ég
best veit,“ segir
Guðmundur.
-ÍS
Ætla mætti að sumar starfsstéttir
fái svo mikla hreyflngu í sinni vinnu
að þær þurfi ekki á neinni líkams-
rækt að halda utan vinnunnar. Al-
kunna er að sjómenn þurfa að leggja
á sig töluvert líkamlegt erflði og því
dettur fáum í hug að þeir þurfi á
frekari líkamsþjálfun að halda.
Hins vegar hafa rannsóknir á
heilsufari sjómanna leitt í ljós að sjó-
menn hafa tilhneigingu tÚ þess að
haga vinnunni á þann hátt að hún
verði sem léttust fyrir lík-
amann og algengt er að sjó-
menn vanræki ýmsa
mikilvæga vöðva.
Tiltölulega stutt er
síðan þessar stað-
reyndir komu í ljós
og hafa þegar verið gerðar
ráðstafanir hérlendis til þess
að sjómenn geti viðhaldið
líkamlegu heilbrigði sinu
til jafns við aðrar vinnu-
stéttir. í flestum frysti-
togurum landsins hefur
verið útbúin aðstaða til
líkamsræktar um
borð. Guðmundur
Hafsteinsson, véla-
og skipaeftirlits-
maður, hefur haft
hönd í bagga með skipulagn-
ingu líkamsræktaraðstöðunn-
ar hjá Granda hf. í Reykjavík.
„Það var árið 1997 sem líkams-
ræktaraðstaða var fyrst sett upp í
frystitogaranum Snorra Sturlu-
syni. Plássið er dýrmætt í hverjum
togara en við höfum þó um 16 fer-
metra svæði fyrir nokkur tæki um
borö. Þar var sett upp þrekhjól, fjöl-
bekkur með lóðum og einnig róðrar-
tæki. TU stendur að fá hlaupabretti í
stað róðrartækisins," segir Guð-
mundur.
Fram undan
Febrúar:
29. Hlaupárshiaup Hreyfingar
Hefst kl. 18.30 við gatnamót
MUdubrautar og Réttarholtsveg-
ar. Hlaupið fer fram í 3. sinn
(fyrst 1992). Vegalengdir: 4,5 km
og 9 km með tímatöku. Flokka-
skipting ákveðin siðar. AUir sem
ljúka hlaupunum fá verðlauna-
pening. Verðlaun fyrir 1. sæti
karla og kvenna í báðum vega-
lengdum. Útdráttarverðlaun.
Skráning í Hreyfingu frá kl.
12.00. Upplýsingar á skrifstofu
Hreyfmgar í síma 568 9915.
Mars:
25. Marsmaraþon
Hefst kl. 9.30 við Ægisíðu,
Reykjavík (forgjafarhlaup,
skráning þarf að berast viku
fyrir hlaup). Vegalengd: mara-
þon með tímatöku. AUir sem
íjúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Upplýsingar: Pétur I.
Frantzson í síma 551 4096, sím-
boða 846 1756 og hlaupasíðu Fé-
lags maraþonhlaupara.
Aprfl:
8. Flóahlaup UMF Samhygðar
Hefst kl. 14.00 við Félagslund,
Gaulverjabæjarhreppi. Vega-
lengdir: 3 km, 5 km og 10 km með
tímatöku. Flokkaskipting, bæði
kyn: 14 ára og yngri (3 km), kon-
ur 39 ára og yngri, 40 ára og eldri
(5 km), opinn flokkur kvenna (10
km), karlar 39 ára og yngri, 40-49
ára, 50 ára og eldri (10 km), opinn
Uokkur karla (5 km). Verðlaun
fyrir þrjá fyrstu í hverjum Uokki.
Upplýsingar í síma 486 3318.
20. Víðavangshlaup ÍR og Elkó
Hefst kl. 13.00 við Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km
með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn: 12 ára og yngri, 13-15
ára, 16-18 ára, 19-39 ára, 40-49
ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri.
Keppnisflokkar í sveitakeppni
eru íþróttafélög, skokkklúbbar
og opinn flokkur. AUir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
ing. Verðlaun fyrir 1. sæti í
hverjum aldursflokki. Boðið
verður upp á kaffihlaðborð eftir
hlaup. Skráning í Ráðhúsinu
frá kl. 11.00. Upplýsingar i síma
565 6228, 560 5536 og ÍR-heimU-
ið við Skógarsel í síma 587 7080.
120. Víðavangshlaup Hafnaifjarðar
Hefst kl. 13.00 á Víðistaðatúni
í Hafnarfirði. Vegalengdir: 1
km, 1,4 km og 2 km með tíma-
töku og flokkaskiptingu, bæði
kyn: 5 ára og yngri (200 m), 6-7
ára (300 m), 8-9 ára (400 m),
10-12 ára (1 km), 13-14 ára (1,4
km), 15-18 ára, 19-29 ára, konur
30 ára og eldri, karlar 30-39 ára,
40 ára og eldri (2 km). Sigurveg-
ari í hverjum flokki fær farand-
bikar. Upplýsingar: Sigurður
Haraldsson i síma 565 1114.
20. Víðavangshlaup Vöku
Upplýsingar Fanney Ólafs-
dóttir í síma 486 3317.
20. Víðavangshlaup Skeiðamanna
Upplýsingar í síma 486 5530.
Maí:
1.1. maíhaup UFA
Hefst kl. 13.00 við Sportver.
Vegalengdir: 4 km og 10 km með
tímatöku og ílokkaskiptingu,
bæði kyn: 6 ára og yngri (1 km),
7-9 ára, 10-12 ára, 13-14 ára, 15-16
ára (2 km), 17-39 ára, 40 ára og
eldri (4 km eða 10 km). Verðlaun
fyrir þrjá fyrstu í öUum flokkum
og aUir sem ljúka keppni fá verð-
launapening. Útdráttarverðlaun.
Skólakeppni. Upplýsingar: Sig-
urður Magnússon í síma 898 0468
og 461 1150.