Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000 Roman Sebrle mætir f Höllina á ÍR-mótiö. Sebrle mætir Tékkinn Roman Sebrle, sem varð í 2. sæti í sjöþraut á nýafstöðnu Evr- ópumóti i frjálsum íþróttum, hefur boðað komu sina á stórmót ÍR sem fram fer í Höllinni um næstu helgi. Sebrle er í öðru sæti á heimslistan- um á þessu ári með 6358 stig og aðeins Evrópu- meistarinn Tomas Dvorak er með betri árangur. Sebrle keppti á stórmóti ÍR í fyrra og háði þar mikið einvígi við Jón Amar Magnússon sem sigraöi eftir hörkukeppni. Óvíst er á þessari stundu hvort Jón Amar verði með vegna meiðslanna sem hann hlaut í Gent en Ólafur Guðmundsson sem stóð sig vel í fyrra verður með. -GH Stjörnuliðið losaði sig loksins við bikarúrslitaleiksdrauginn: Seiglusigur Stjörnumenn unnu seiglusigur, 22-20, á KA í baráttuleik liðanna í 1. deild karla í handbolta í Garðabæ í gær en leiknum var frestað frá sunnudegi. Stjörnumenn höfðu fyrir leikinn tapað tveimur deildarleikjum í röð auk bikarúrslitaleiksins og virt- ist sem bikarleikurinn í Höllinni hefði sett liðið út af laginu. Liðið komst þó aftur á skrið í gær og vann mikilvægan sigur. KA-menn urðu enn einu sinni und- ir á lokasprettinum en í síðustu þremur leikjum liðsins sem aðeins hafa skilað einu stigi í hús hafa fimm stig tapast á síðustu mínútunum. Stjömumenn komust fyrst yfir í seinni hálfleiknum þegar 7 mínútur vora eftir og tryggðu sér síðan sigur- inn með því að skora tvö síðustu mörkin í leiknum. KA hafði góð tök á leiknum í seinni hálfleik og leiddi 15-17 um tiann miðjan en sex mínútur og fjór- ar markalausar sóknir gáfu Stjör- unni tækifæri á að koma sér aftur inn í leikinn og jafna. Leikurinn var annars jafn á flestum tölum og bar- áttan í lykilhlutverki allan leikinn. „Það eru allir leikir úrslitaleikir og við slökum á í restina og því fór sem fór. Við fengum óþarfar brott- vísanir sem þeir nýttu sér mjög vel, það er fullt eftir og þetta verður bara upp á líf og dauða,“ sagði Atli Hilm- arsson, þjálfari KA. „Það var sárt og erfitt að tapa bik- arúrslitaleiknum og við eram von- andi að rífa okkur upp úr því spennufalli að tapa honum. Deildin er það jöfn að við urðum að vinna. Þetta eflir sjálftraustið og gerir okk- ur ánægða og glaða á æfmgurn aft- ur,“ sagði Arnar Pétursson, fyrirliði Stjörnunnar. Birkir ívar Guðmundsson, i Stjömumarkinu, var mikilvægur í lokin og varði átta af síðustu 11 skotum Norðanmanna og náði loks að stöðva Heimir Ámason sem gerði 7 mörk úr fyrstu 9 skotum sín- um. Amar Pétursson lék líka vel sérstaklega undir lokin en það mun- aði miklu fyrir KA-menn að hvorug- ur Daninn fann fjölina sína í þess- um leik. -ÓÓJ Guðmundur Beuediktsson og félagar hans í belgiska liðinu Geel, töpuðu iyrir rússneska liðinu St. Petersburg, 3-0, i æfingaleik á hebnavelli Geel um helgina. Guðmundur kom inn á eftir leikhléið en þá var staðan orðin 3-0. Dunaferr frá Ungverjalandi, Portland San Antonio frá Spáni, danska liðið Kolding og Ljubljana frá Slóveníu eru komin í undanúrslit i Evrópukeppni bikarhafa í handbolta. Dunaferr sló óvænt út þýska liðið Lemgo samanlagt, 46-42, Portland lagði Cantabria frá Spáni, 60-50, Kolding vann Trieste frá ttaliu, 46-45 og Ljubljana sigraði Jugopetrol frá Júgóslavíu samanlagt, 55-48. í EHF-keppninni eru Metovic frá Júgóslavíu, þýska liðið Flensburg, Braga frá Portúgal og Slovenje frá Slóveníu komin í undanúrslitin. Metkovic sigraði Ciudad frá Spáni samanlagt, 50-49, Flensburg hafði betur gegn GOGfrá Danmörku, 52-46, Braga sigraði júgóslavneska liði Liveen, 50-46 og Slovepje hafði betur gegn Viking frá Noregi, 62-51. Stjarnan: Hilmar Þórlindsson 6/1 (12 skot), Amar Pétursson 3 (6 stoðsendingar), Eduard Moskalenko 5 (6 skot, 3 stoðsendingar), Sæþór Ólafsson 3, Björgvin Rúnarsson 2, Rögnvaldur Johnsen 2, Konráð Olavson 1/1. Varin skot: Birkir ívar Guðmundsson 15/0 (af 35, 43%) Brottvisanir: 10 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 2 af 3. Heimir Öm Ámason 7 (11 skot), Guðjón Valur Sigurðsson 4 (6 skot), Lars Walther 3 (15 skot, 4 tapaðir, klúðraði 12 sóknum), Halldór Sigfússon 3/2 (4 stoðsendingar), Magnús A. Magnússon 2 (2 skot), Bo Stage 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 5/1 (af 18/2, 28%), Hörður Flóki Ólafsson 9 (af 18/1, 50%) Brottvisanir: 8 mínútur. Vítanýting: Skorað úr 2 af 2. Maöur leiksins: Birkir ívar Guömundsson, Stjörnunni. Hilmar Þórlindsson, Edurad Moskalenko og Einar Einarsson fögnuöu vel í lokin þegar Stjarnan vann KA og þar meö sinn fyrsta leik eftir tapleikinn í bikarúrslitaleiknum á dögunum. DV-mynd E. ÓL. 0-2, 2-2, 2-3, 5-3, 5-5, 7-5, 7-7, 9-7, 9-9, 11-11 (13-13), 13-14, 14-14, 14-16, 15-17, 17-17, 17-18, 18-19, 20-19, 20-20, 22-20. Helgi Sigurðsson og félagar hans í Panathinaikos gerðu markalaust jafntefli gegn Kalamata i grísku A- deildinni í knattspymu í gær. Helgi kom inn á 58. mínútu leiksins. Olympiakos hefur 3 stiga forskot á toppi deildarinnar eftir 21 umferð. Liðið hefur 57 stig, Panathinaikos er i 2. sæti með 54 stig og OFI er í þriðja sæti með 45 stig. Grindavik vann Víói, 6-0, í gær í Reykjaneshöllinni í Suðumesjamótinu í knattspymu. Sverrir Þór Sverrisson gerði 2 mörk og Guómundur Bjarnason, Sinisa Kekic, Paul McShane og Róbert Sigurðsson gerðu eitt mark hver. -GH/ÓÓJ Áhorfendur: 300 Dómarar (1-10): Gísli Jóhannsson og Gœói leiks (1-10): 6. Hafsteinn Ingibergsson (6). Meistaradeildin í knattspyrnu af staö aftur í kvöld: Stórleikur í Madrid J MMEISTARADEILDIH A-riöill: Porto 2 2 0 0 3-0 6 Barcelona 2 110 6-1 4 Hertha 2 0 111-2 1 Sparta Prag 2 0 0 2 0-7 0 ósigrað I riðlakeppninni. Liðin unnu góða sigra í heimalöndum sínum um helgina. Real tók erki- fjenduma í Barcelona í bakariið og sigraöi 3-0 og Bæjarar unnu auð- veldan sigur á Frank- fúrt, 4-1. Þrír í fremstu víglínu Madridarliðið teflir fram sama liði og lagði Börsunga á sannfærandi hátt og verða þrír menn, Fernando Morientes, hinn Raul Gonzales, Femando sókndjarfi leikmaöur Real Morients og Nicoals An- Madrid. Meistaradeildin í knattspymu hefst aftur í kvöld en ekkert hefur verið leikið í deildinni síðan í byrjun desem- ber. Fjórir leikir era á dagskrá í kvöld. í C-riðlinum mætast Dynamo Kiev og Rosenborg í Úkraínu og á á Spáni er sannkallaður stórleikur þegar Real Madrid tekur á móti Bayem Múnchen. í D-riðlinum era einnig tveir leikir. Marseille tekur á móti Chelsea og í Róm mætast Lazio og Feyenoord. Fjórir leikir annaö kvöld Annað kvöld era svo fjórir leikir. í A-riðlin leika Barcelona og Porto og Hertha Berlin og Sparta Prag og í B- riðlinum mætast Fioreninta og Val- encia og Manchester United og Bor- deaux. Mikil spenna er í Madrid fyrir viðureign stórliðanna Real Madrid og Bayem Múnchen en bæði lið era elka, í fremstu víglínu. Bæjarar geta ekki teflt fram sínu sterkasta liði. Jens Jeremies tekur út leikbann og Carsen Jancker er meidd- ur. Lothar Mattaús, Mehmet Scholl og Bixente Lizarazu verða allir með en þeir hvíldu í leiknum gegn Frankfúrt um helgina. Chelsea ekki tapaö síðustu 14 léikjum Chelsea vonast til að halda sigurgöngu sinni áfram en liðið hefúr nú leikið 14 leiki í röð án taps. Engin meiðsli era í herbúðum Chelsea og koma þeir Dennis Wise, Frank Leboeuf og Celestine Babayaro allir inn i liðið en þeir voru ekki með i leiknum gegn Watford um helgina. Marseille verður að vinna leikinn i kvöld til að eygja möguleika á að kom- ast áfram en liðinu hefur ekki vegnað vel á síðustu misserum. Ámi á bekknum? Norsku meistaramir í Rosenborg eiga erfiðan leik í vændum en þeir sækja Dynamo Kiev heim í Kænugarö. Dynamo-liðið hefúr tapað báðum leikj- um sínum og verður að vinna til að eiga raunhæfa möguleika á að komast áfram og sömu sögu er að segja um lið Rosenborgar. Heimamenn eiga í vand- ræðum með lið sitt en nokkrir lykil- menn, þar á meðan sóknarmaðurinn Sergie Rebrov, era meiddir. Hjá Rosenborg er óvíst hvort sókn- armaðurinn, Jan Derek Sörensen, geti leikið en hann hefúr átt við meiðsli að stríða. Ekki er komið á hreint hvort það verður Ámi Gautur Arason eða Jöm Jamtfall sem mun standa í marki Rosenborgar en síðustu fregnir herma að meiri líkur séu á að Jamtfall verði fyrir valinu. -GH B-riöill: Fiorentina 2 110 2-0 4 Man.Utd 2 10 13-2 3 Valencia 2 10 13-3 3 Bordeaux 2 0 110-3 1 C-riöill: R.Madrid 2 2 0 0 5-2 6 B.Múnchen 2 110 3-2 4 Rosenborg 2 0 112-4 1 D.Kiev 2 0 0 2 2-4 0 D-riöill: Chelsea 2 110 3-1 4 Lazio 2 110 2-0 4 Feyenoord 21014-3 3 Marseille 2 0 0 2 0-5 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.