Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2000, Side 7
Það er til fólk sem er hreinlega óþolandi og enginn fær gert við því. Slíkir karakterar eru auðvitað misjafnlega óþolandi enda er hægt að vera óþolandi á ólíklegustu sviðum. Hér er Fókuspróf fyrir fólk sem velkist í vafa um hvort það sé óþolandi eða ekki. ■■ uj 1 Ertu með vasadiskó hvert sem þú ferð og syngur hástöfum meö? Ertu ungpólitíkus? 2 Tekurðu börnin þín með í vinn- una og brosir stolt(ur) meðan þau stífla faxvélina, taka tölv- urnar úr sambandi og klína hor í föt samstarfsfélaga þinna? 3Færðu lánaðan pening á barnum þótt þú eigir sjálf(ur) fullt af pen- ingum og borgar aldrei aftur? 4 5 6 7 8 Hringirðu full(ur) I fólk á næturnar og heldur ræðu um kvótakerfið? Notarðu aldrei svitasprey en gengur samt í sama bolnum á hverjum degi? Reynirðu sífellt að ná trúnaði fólks til þess eins að æða slúðrandi og hvíslandi um með íbyggið blik! augunum? Mætiröu í allar veislur sem þú fréttir af án þess að vera boðið? 10 11 12 13 14 15 16 Ertu samkeppnisfíkill og eignast enga vini á vinnustaðnum því þú ætlar alltaf að gera bet- ur en hinir og setur út á allt sem aðrir gera? Baktalarðu eftir henti- semi en brosir svo framan í þá sömu með silkimjúkri stimamýkt? Segirðu bara .humm, pöh...“ þegar maki þinn vill eiga rómantíska kvöldstund? Lýgurðu að systur þinni í fjölskyldu- boði aö maðurinn hennar hafi hald- ið fram hjá henni og sé með lek- anda og hlærð eins og vitleysingur þegar hún ræðst á hann? Skellirðu á vini þína ef þeir hafa ekki tíma til að hitta þig? Daðrarðu við alla sem þú hitt- ir því þér finnst það smart og hlærð meinlega ef fólki finnst það vandræðalegt? Eyðiröu sjötíu prósentum eða meira af þínum frítíma á Kaffibarnum? Sefurðu bara hjá frægu fólki og finnst þú ósjálfrátt vera stórt númer sjálf(ur) fyrir vikið þótt þú hafir aldrei gert nokkurn skapaðan hlut sem þykir tíð- indaverður? Heyrist mikið skrjáf í popppokanum þínum þegar þú ferð ! bíó? Ferðu á kaffihús og gerir þér upp hósta þeg- ar fólkið á næsta borði kveikir! sígarettu? Attu aldrei sígarettu sjálf(ur) en keðjureykir samt? 9 Borðarðu svo mikið af trefjaríkum og hollum mat að þú rekur stans- laust við og heldur bara áfram að japla á rúgbrauöinu þínu meðan aðr- ir I kringum þig missa matarlystina? Rnnst þér þú ein(n) hafa vit á því hvað er smart og hvað er púkó og hikar ekki við að sýna vandlætingu þína þegar einstæð þriggja barna móðir labbar fram hjá þér í joggingbuxum og gamalli úlpu? Gerirðu hvað sem er til að komast! fjöl- miðla og lætur þig engu skipta þótt les- og áhorfendur séu orðnir pakksaddir af þér? 26 Lestu frumsamin Ijóð eftir sjálfa(n) þig I hvert skipti sem einhver heimsækir þig? Seturðu geislaspilarann ! botn og spilar gömul diskólög nótt eftir nótt og kærir þig kollótta(n) þegar nágrannarnir grátbiðja þig um að hætta því? 31 Ertu kattaeigandi í fjölbýl- ishúsi þar sem allir vilja losna við köttinn þinn? Ert þú einn af þeim sem yfirtekur l útvarpsþætti þegar hlustendur Steinþegirðu með fýlubros á vör alla virka daga og samkjaftar ekki um helgar? 17 18 19 mega hringja inn og náðir hápunkti lífs þín þegar þú úthúðaðir samkyn- hneigðum í Þjóðarsálinni? Ertu með landsbyggðarremb- ing og álítur Vestfirðinga betur gefna en annað fólk? 28 Notarðu orðið „list"! þriðju hverri setningu? Lemurðu flöl- skylduna þína? 29 Ertu alltaf fruntalegur á veitinga- húsum, jafnvel þótt þjónustan sé þrýðileg og maturinn góður? 0-0: Þú ert algjör geðlufsa sem þorir ekki að æmta né skræmta af ótta við að fara í taugarnar á öðrum. Það er allt I lagi að vera óþolandi ann- að slagið enda eiga allir sllkar stundir. Taktu þér tak og ræktaðu leiðindapúkann í þér. 1-10: Þú veist að það er fínt kikk að vera óþol- andi öðru hverju og nýtur þess í tætlur þegar þú leyfir þér það. Innst inni skammastu þ!n fyrir hegðunina en glottir samt við tilhugsunina að enginn er fullkominn. Þér tekst samt ekki að vera óþolandi til lengdar enda er það frekar uppátæki hjá þér en persónueinkenni. 10-20: Þú getur verið hreinasta pina en fólk fýr- irgefur þér það af því aö þú átt þínar góðu hliðar lika þótt það grilli æ sjaldnar í þær. Þö væri þér hollast að hemja leiðindin því annars er hætt við að þú eigir enga vini eftir smátíma ef þaö er ekki byrjað að grynnka á vinahópnum nú þegar. Þér finnst kannski einum of gaman að vera óþolandi en reyndu að breyta til og þykja meira gaman að vera skemmtilegur. Það er öllum fyrir bestu. 20-31: Þú ert herra eöa frú óþolandi og engum bjóðandi að vera i þ!num félagsskap lengur en í þrjár mínútur. Eiginlega er leit að jafn óþolandi manneskju og þér. Þess vegna ættir þú að leita til geðlæknis sem hefur úthald í að sitja yfir þér í klukkutíma á viku. Líklega er þér ekki viðbjarg- andi en reyndu samt því annars er hætt við að þú verðir myndskreyting við orðið óþolandi í orðabók.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.