Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2000, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000
15
Troufan fékk
aö líta krossinn
HK tryggöi sér oddaleik gegn
deildarmeisturum Aftureldingar á
miövikudag í úrslitakeppni handbolta karla
i gær.
Alexei Troufan fékk beint rautt spjald,
svonefndan kross, í fyrri hálfleik og var
útilokaöur frá leiknum auk þess sem
Mosfellingar þurftu aö leika manni færri
allan seinni hálfleik. Þetta er í fyrsta sinn
sem þessum dómi er beitt.
Á myndinni sést Alexei Troufan horfa á
leikinn út um hliöardyr aö búningsklefa
Aftureldingar.
DV-mynd E.ÓI.
Úrslitakeppni kvennakörfunnar:
Keflavík
Keflavík hefur borist mikill liðstyrkur í
úrslitakeppni kvenna í körfubolta því Erla
Reynisdóttir, sem nú stundar háskólanám í
Bandaríkjunum, kemur heim í páskáfríinu og
spilar með Keflavík í úrslitaleikjunum gegn KR
sem hefjast á fóstudag. Erla kemur heim á
fimmtudag og dvelur hér á landi til 13. aprfl.
Erla er landsliðskona og mikfl skytta en hún er
sem dæmi með bestu þriggja stiga nýtingu í 1.
deOd kvenna frá upphafí, hefur hitt úr 40,2% 3ja
stiga skota sinna á ferlinum (78 af 194).
Erla, sem er 21 árs bakvörður, var fyrirliði
Keflavíkurliðsins þegar það vann þrefalt 1998 og
skoraði þá 10,8 stig að meðaltali og hitti úr 52,2%
3ja stiga skota sinna (12 af 23) í úrslitakeppninni
og er ljóst að hún styrkir bikarmeistarana mjög
mikið fyrir spennandi úrslitaleOd gegn KR. -ÓÓJ
Soort
Þriöjudagur 28. mars 2000
dvsport@ff.is
Sund:
Ríkarður keppir
á bandaríska
meistaramótinu
Ríkarður Ríkarðsson reynir við
ólympíulágmarkið í 100 metra
flugsundi á bandaríska
meistaramótinu í Washington-fylki
á fimmtudaginn kemur. RikcU'ður er
sagður í góðu fomi um þessar
mundir en hann stundar nám við
háskólann í Denver samhliða
sundinu. -JKS
Páll á heimleiö
- ekki ákveðinn með hvaða liði hann leikur
Páll Þórólfsson, sem undanfarin tvö ár hefur leikið með þýska hand-
knattleiksliðinu TuSem Essen, hefur ákveðið að koma heim tU íslands
þegar tímabflinu ytra lýkur í maí. PáU sagðist við DV ekki vera búinn
að ákveða með hvaða liði hann léki á næstu leiktíð og ætlar hann að
halda þeim möguleika opnum.
„Mér stendur tU boða að vera áfram hjá Essen en hvað handboltann
varðar tel ég það ekki góðan kost. Þetta er búinn að vera ágætur tími hér
hjá Essen og ég hef lært mikið. Ég hef hins vegar verið óánægður með
það hvað ég hef lítið fengið að spreyta mig með liðinu,“ sagði PáU í sam-
tali við DV í gærkvöld.
George Kirby
er látinn
Englendingurinn George Kirby, sem þjálfaði knattspymulið
ÍA á árum áður, lést síðastliðinn föstudag, 66 ára að aldri, en
hann hafði átt við beinkrabbamein að stríða síðasfliðin tvö ár.
Kirby var þekktur fyrir störf sin sem þjálfari ÍA og nokkurra
enskra knattspymuliða.
Undir stjóm Kirbys unnu Skagamenn tvo íslandsmeistaratitla
og í tvígang kom hann ÍA í úrslit bikarkeppninnar.
-DVÓ
KR fær liðstyrk í úrslitakeppninni:
Jón Arnór spilar
með KR í kvöld
ÚrvalsdeUdarlið KR í körfuknatt-
leik hefur fengið leikheimUd fyrir
Jón Amór Stefánsson og er
fastiega búist við að hann
leiki með KR-ingum þegar
þeir mæta Njarðvikingum
i annari viðm-eign liðanna
í undanúrslitum úrvals-
deUdar í KR-húsinu í
kvöld. Jón Amór, sem er
17 ára, leikur stöðu íram-
herja eða skotbakvarðar,
hefur leikið undanfarin tvö
ár með Artesia mennta-
skólanum í Los Angeles.
Þar hefur hann getið sér gott orð og
fengið góða dóma fyrir frammistöð-
una í leikjum með skólanum.
„Jón Amór er góður leikmaður
og hann mun örugglega styrkja leik-
mannahópinn hjá okkur.
Ég geri fastiega ráð fyrir
því að hann leiki með okk-
ur gegn Njarðvíkingum.
Hann kemur úr góðum
skóla og hefur greinUega
bætt sig mikið sem körfu-
boltamaður,“ sagði Ingi Þ.
Steinþórsson, þjálfari KR-
liðsins, í samtali við DV í
gærkvöld.
Þess má geta að Jón
Arnór er bróðir Ólafs
handknattleiksmanns með þýska
liðinu Magdeburg.
-JKS
íslandsmet í sleggjukasti
ÍR-ingurinn Guðleif Harðardóttir bætti um helgina eigið íslandsmet i
sleggjukasti á móti í Tuscaloosa í Bandaríkjunum. Guðleif, sem verður
21 árs í næstu viku, kastaði sleggjunni 46,12 metra en gamla metið, sem
hún setti á móti í Hafnarfirði í maí á síðasta ári, var 45,27 metrar.
-GH