Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2000, Qupperneq 2
16
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2000
25
Sport
Sport
Stoke City vann góðan útisigur á
Oldham í 2. deild ensku
knattspyrnunnar í gærkvöld. Úrslit í
öðrum leikjum urðu þessi í 2. deild:
Cambridge-Bury 3-0, Bristol
Rovers-Reading 0-1, Wigan-Preston 0-1
og leik Gillingham og Cardiff frestað.
Stoke er sem stendur í 7. sæti 2.
deildar með 67 stig en Gillingham er í
6. sætinu með 68 stig og á tvo leiki til
góða á Stoke City.
í 1. deild voru tveir leikir á dagskrá.
Port Vale og Charlton gerðu jafntefli,
2-2, og jafntefli varð einnig
niðurstaðan hjá WBA og fpswich, 1-1.
Ronaldo er óðum að ná sér af meiðsl-
um í hné en hann hefur ekkert leikið
með Inter í fjóra mánuði. Nú eru allar
líkur á þvi að hann verði með í úrslita-
leiknum í bikarkeppninni þegar Inter
mætir Lazio í næstu viku.
Norðmaðurinn Ole Martin Aarst er
sagður á leiðinni frá belgíska liðinu
Ghent til Tottenham eftir að tímabil-
inu lýkur 1 vor. Aarst hefur leikið
mjög vel í vetur og er markahæstur í
belgísku deildinni með 24 mörk I 29
leikjum.
Rivaldo, knattspyrnumaður ársins,
segist ekki hafa áhuga að leika fyrir
Manchester United ef honum byðist.
Hann segist viss um að bestu deildirn-
ar í heiminum séu á Spáni og á Ítalíu.
Rivaldo er samningsbundinn
Barcelona til ársins 2003.
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, var ekki mjög
ánægður með frammistöðu sinna
manna gegn Real Madrid í gærkvöld.
Þetta er lélegasti Ieikur okkar á
stórmóti í áraraðir og Mark Bosnich
bjargaði okkur algjörlega í þessum
leik,“ sagði Ferguson eftir leikinn.
Falur Harðarson komst ekki á blað
þegar Honka tryggði sér oddaleik gegn
Huima í átta liða úrslitum finnsku
deildarinnar í fyrrakvöld en Helgi
Jónas Guófinnsson skoraði 16 stig
sama kvöld í 71-57 útisigri Antwerpen
á Brussel í belgísku deildinni en
Antwerpen er þar f 2. sæti. Helgi hitti
úr öllum fjórum þriggja stiga skotum
sínum í leiknum. -SK/ÓÓJ
EPSON
OEILOIIM
í fyrsta sinn í sögu
úrslitakeppninnar í körfubolta er
ekki lið frá Reykjanesbæ í úrslitum
því annaðhvort Njarðvík eða
Keflavík höfðu verið í úrslitum
íslandsmótsins samfellt frá 1984.
Friðriki Inga Rúnarssyni mistókst
að koma liði sínu í lokaúrslitin um
íslandsmeistaratitilinn sjötta árið í
röð en hann hafði farið með
Grindavík 1995-1997 og Njarðvík
1998-1999 í úrslitaleikina. -ÓÓJ
NBA-DEILDIN
Úrslit leikja í nótt:
Washington-New Jersey . .102-93
Whitney 18, Howard 16, Williams 15 -
Van Horn 24, marbury 13, Gill 10.
Charlotte-Boston .......112-105
Mason 27, Coleman 25, Jones 25 -
Anderson 23, Walker 22, Pierce 18.
Miami-Cleveland .........111-85
Mashbum 17, Mouming 15, Haidaway 14 -
Person 14, Boykins 12, Kemp 10.
Orlando-San Antonio .... 107-97
Amaechi 24, Armstrong 23, Atkins 16 -
Robinson 30, Daniels 14, Duncan 13.
Milwaukee-Chicago.........92-73
Cassell 19, Allen 18, Robinson 14 -
Brand 18, Artest 16, Carr 11.
Minnesota-Atlanta.........86-76
Garnett 18, Smith 18, Avery 13 -
Jackson 13, Terry 11, Ellis 10.
Toronto-Detroit .........104-88
McGrady 28, Carter 24, Curry 14 -
Hill 32, Stackhouse 28, Moore 12.
Dallas-Sacramento.......105-102
Finley 38, Strickiand 21, Nowitzki 13 -
Williamson 20, Divac 16, Delk 14.
Seattle-Denver...........106-93
Gránt 26, Payton 21, Barry 15 -
McCloud 28, McDyess 17, Posey 13.
LA Clippers-Utah Jazz . . . 93-103
Anderson 20, Olowokandi 16, Taylor 16 -
Malone 34, Russell 18, Stockton 12.
Phoenix-LA Lakers.........83-84
Hardaway 23, Robinson 20, Johnson 14 -
O'Neal 32, Horry 11, Harper 10.
Vancouver-Houston .... 102-100
Bibby 27, Rahim 21, Dickerson 19 -
Francis 30, Mobley 18, Cato 16.
Brenton tryggði Grindavík sæti í úrslitum:
Síðasta
sekúndan
- réð úrslitum í háspennuleik
Grindvíkingar rétt sluppu með sig-
ur gegn Haukum í hádramatiskum
leik í Strandgötunni í gær, þar sem
ekki var mikið um áferðafallegan
körfubolta en mikið um baráttu og
spennu. Gestirnir tryggðu sér sigur á
síðustu sekúndubrotum leiksins og
lauk leiknum 56-59.
„Þetta var mjög athyglisverður leik-
ur, við vissum að úrslitin myndu ráð-
ast á síðustu stundu því við vorum að
leika gegn mjög góðu liði. Leikurinn
hefði getað farið á hvorn veginn sem
er,“ sagði Brenton Birmingham eftir
leik, en hann skoraði einmitt sigur-
körfuna þýðingarmiklu.
„Mér hefur ekki gengið vel á þess-
um velli í tvö ár, eins hefur liðið mitt
átt í miklum erfiðleikum að hitta körf-
una hér, en í kvöld tókst okkur að
spila góðan varnarleik og varna því að
þeir gæfu í og ynnu leikinn.
Góö forysta Hauka í hálfleik
Staðan í hálfleik var 28-21 og litu
málin ekki vel út fyrir gestina frá
Grindavík. Haukar voru hins vegar að
spila ágætan leik og höfðu undirtökin
nærri allan fyrri hálfleik. Bestir í liði
Hauka voru Jón Arnar og Sigfús, þó
svo að sá fyrmefndi þyrfti nokkur
skot á körfu til að koma sér í gang.
f þeim síðari hins vegar var greini-
legt að Grindvíkingar ætluðu sér ekki
svo glatt að gefa frá sér sigurinn.
Strax eftir þriggja mínútna leik náðu
þeir að jafna leikinn og stuttu síðar að
vinna sér inn sex stiga forskot. Brent-
on Birmingham var allur að koma til
eftir slakan fyrri hálfleik og var fyrir-
liðinn, Pétur Guðmundsson, einnig
grimmur á vellinum.
Leikurinn í járnum
Haukarnir gáfust þó ekki upp og
var það mestmegnis Jóni Amari að
þakka að þeir héldu í við gestina. Lyk-
ilmenn eins og Guðmundur Bragason
og Marel Guðlaugsson voru ekki að
leika sinn besta leik og sér þá vem-
lega á Haukaliðinu. Sóknarleikur
Hauka var ekki góður og um miðbik
síðari hálfleiks kom afar slæmur kafli
þar sem ekkert stig var skorað á rúm-
um sex mínútum.
T0 að bæta fyrir þennan slæma
kafla tóku þeir góða rispu og tókst að
jafna leikinn á rúmum tveim mínút-
um. Þrjár mínútur voru þá til
leiksloka og var leikurinn þá í járnum
þar til gestirnir héldu í sókn í stöð-
unni 56-56 og aðeins 15 sekúndur til
leiksloka. Með góðri leikfléttu sem
lauk með sendingu frá Pétri á Brenton
sem stóð einn og óvaldaður undir körf-
unni tókst títtnefndum Brenton að
skora sigurkörfuna. Að launum fékk
hann svo vítakast sem hann var ekki í
vandræðum með að nýta sér.
Bestur í liði Grindvíkinga var
Alexander Ermolinskij sem var eins
og klettur í vörninni og skoraði
þýðingarmikil stig á þeim tíma sem
liðið þurfti sem mest á að halda.
-esá
KR-ingar fjólmenntu i
Njarövík og studdu
frábærlega viö bakiö
á sínum mönnum i
Ljónagryfjunni.
DV-mynd E. Ól.
- KR-vörnin hélt Njarðvík í 55 stigum
■ Sw
i
Brothættir og vantaði trúna
Friðrik Rúnarsson, þjálfari Njarðvíkinga, var ekki eins
sáttur en bar höfuðið hátt engu að síður. „Við vorum
brothættir í þessum leik og náðum okkur aldrei á strik. Það
var eins og það vantaði trúna og svo var allt sem heitir
samkennd og samstaða ekki til staðar. Þeir spiluðu fast og
fengu að komast upp með það. Það er alltaf verið að tala um
hversu miklum meiðslum þeir hafa lent í en aldrei minnst á
meiðslin hjá okkur, þar sem margir menn hafa verið meiddir
upp á síðkastið. Við höfum aldrei verið að væla í fjölmiðlum
heldur bara bitið á jaxlinn. Við vorum ekki nógu sterkir á
svellinu í kvöld og verðum bara að taka þessu þó þetta séu
mikil vonbrigði þar sem við ætluðum okkur lengra. Það kemur
dagur eftir þennan dag og við mætum tvíefldir næst. Ég óska
KR-ingum bara til hamingju og það er mjög jákvætt að lið úr
Reykjavík skuli spila til úrslita þetta árið og vonandi verður
það til þess að vekja upp áhuga á því svæði,“ sagði Friðrik.
-BG
KR vann sætan sigur á Njarðvíking-
um, 55-78, i Njarðvík i gærkvöldi þegar
liðin mættust í hreinum oddaleik um
hvort liðið færi áfram i úrslit ísland-
mótsins. Leikurinn var mjög fast spilað-
ur allan tímann og voru KR-ingar greini-
lega tilbúnir í þennan leik. Þeir spiluðu
hörkuvörn í 40 mínútur og eru ekki
mörg lið sem fara til Njarðvíkur og fá á
sig einungis 55 stig.
14 stig frá KR í röö
KR-ingar byrjuðu leikinn mun betur
og náðu að skora 14 stig í röð í upphafi
leiks og voru þar með búnir að ná und-
irtökunum sem skiptir miklu máli í leik
eins og þessum. Vömin var aðdáunar-
verð og gekk lítið hjá heimamönnum að
skora. KR-ingar spiluðu eins fast og
dómaramir leyfðu og nýttu sér það
hversu mikil harka var leyfð. Keith
Vassell var nánast óstöðvandi í fyrri
háifleik og gerði 17 stig á meðan hittni
Njarðvíkinga var í algjöru lágmarki.
Sem dæmi um hittni þeirra hittu þeir
aðeins úr 6 vítaskotum af 15 tilraunum.
Njarðvíkingar reyndu að breyta um leik-
aðferð og fóru í svæðisvöm. Það tók KR-
inga 5 mínútur að skora á móti þeirri
vöm en þeir héldu sér á floti á meðan
með því að stoppa sóknir Njarðvíkur á
sínum v£illarhelmingi.
Þegar KR fann svar við svæðisvöm-
inni prófuðu Njarðvíkingar að pressa
allan völl en KR átti í engum vandræð-
um með þá vöm. Þegar flautað var til
hálfleiks hafði KR 13 stiga forskot, 24-37.
Munurinn niöur í sjö stig
Njarðvíkingar spiluðu betur eftir hlé
og fundu leiöir til að skora á móti vörn
KR-inga og náðu að minnka muninn í 7
stig og nóg eftir af leiknum. Þá komu
gestimir með þrjár 3ja stiga körfur í röð
og munurinn kominn í 16 stig. Njarðvík-
ingar gerðu allt sem þeir gátu en ailtaf
voru KR-ingar með svör á reiðum hönd-
um og stað þess að Njarðvík næði að
minnka muninn tóku KR-ingar sig til og
juku hann. Þegar lokaflautið gall var 25
stiga sigur gestanna staðreynd og þeir
vel að honum komnir.
Liösvörnin frábær
Þessi sigur KR-inga verður að teljast
sigur liðsheildarinnar þar sem liðsvörn-
in var frábær. Keith Vassell var at-
kvæðamestur í stigaskorinu en allir 10
leikmenn liðsins komust á blað. Ingi
Steinþórsson, þjáffari KR, spilaði á öll-
um sínum mönnum, í báðum háifleikun-
um, enda breidd liðsins ótrúlega góð.
Hjá Njarðvík var fátt um fína drætti og
enginn sem stendur upp úr. Liðið hrein-
lega mætti ofjörlum sínum á þessu
kvöldi og dagsformið var KR-inga. Leik-
menn gáfu ailt í þetta en hlutimir tókust
ekki að þessu sinni. Ýmislegt hefur
gengið á í þeirra herbúðum og þeim var
ekki ætlað að vinna þetta árið.
Ingi Steinþórsson, þjálfari KR, var
sáttur við líflð og tilveruna að
leikslokum. „Við náðum mikilli
stemningu fyrir þennan leik og ætluðum
okkur áfram. Við kláruðum dæmið og ég
er stoltur af strákunum. Vömin hjá
okkur var lykillinn að þessum sigri og
ekki oft sem maður fær bara 55 stig á sig
í þessu húsi. Ég setti unga og fljóta
stráka á Teit, sem er þeirra lykilmaður,
og ég vissi að hann var orðinn þreyttur.
Hann er að spila í um 35 mínútur í leik
og í svona rimmu, þegar leikið er annan
hvern dag, þá hlýtur eitthvað að gefa
eftir. í sókninni gekk boltinn vel en eins
og ég segi þá var það vömin sem vann
þennan leik. Dómaramir gerðu sín
mistök en svona er það nú bara og menn ^ -
verða aö taka því,“ sagði Ingi.
Með breiðari hóp en Grindavík
En hvemig líst honum á Grindavík
sem mótherja sína í úrslitum? „Mér líst
mjög vel á það að fá Grindavík. Við
höfum miklu breiðari hóp en þeir og
spilum á miklu fleiri mönnum í hverjum
leik. Þeir eru að spila mikið á sömu
mönnunum alla leiki og t.d. fær Brenton
aldrei hvild. Þetta höfum við fram yflr
þá og sérstaklega ef það kemur til 5.
leiks þá höfum við þetta,“ sagði Ingi að
lokum.
-BG
4*:
NBA-deildin:
0’Neal best-
ur í mars
Shaquille O’Neal, leikmaður
Los Angeles Lakers, var í gær
útnefndur leikmaður mars-
mánaðar í NBA-deildinni í
körfuknattleik. Þetta kom fáum
á óvart því kappinn hefur að
undanförnu verið hreint
óstöðvandi með liði sínu sem
státar af langbesta árangrinum
í deildinni í vetur. Shaq skor-
aði að jafnaði 33 stig í leik í
mánuðinum og tók 15,3 fráköst.
Þetta var í þriðja skiptið í
vetur sem hann hlýtur þessa
viðurkenningu.
Menn vestra eru á einu máli
um að Shaq sé að leika sitt
besta tímabil í deildinni. -JKS
Nýtt varnarmet í Ljónagryfjunni
KR-ingar héldu Njarðvíkursókninni í 55 stigum í
f jónagryfjunni í Njarðvík í gær en Njarðvík hefur aldrei skorað
jafnfá stig í leik síðan að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984.
Það eru tæp 15 ár síðan Njarðvík náði ekki að fylla upp i 60 stigin
á heimavelli, eða þegar Keflavík hélt nágrönnum sínum í 57
stigum 22. nóvember 1985. -ÓÓJ
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu:
United og Bayern
standa vel að vígi
Manchester United og Bayem Múnchen standa vel að vígi eftir fyrri leikina gegn
andstæðingum sfnum í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi.
Manchester United náði jöfnu gegn Real Madrid á Spáni í markalausum leik og áttu
bæði lið möguleika á að stela sigrinum. Dwight Yorke skoraði mark fyrir United sem
dæmt var af vegna rangstöðu á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks. United á heimaleikinn
eftir á Old Trafford og möguleikar Evrópumeistaranna eru óneitanlega meiri.
Bayem náði að jafna metin á heimavelli Porto og stendur vel að vígi með
heimaleikinn til góða eftir hálfan mánuð. Jardel náði forystunni fyrir Porto á 47.
mínútu en tíu mínútum fyrir leikslok tókst Sergio að jaftia eftir góða aukaspyrnu
Steffans Effenbergs. Fernendo Santos, þjálfari Porto, var ekki sáttur í leikslok. „Ég
vorkenni mínum mönnum og þeir áttu svo sannarlega skilið að sigra í þessum leik,“
sagði Santos eftir leikinn. í kvöld leika Chelsea og Barcelona á Stamford Bridge og
Valencia og Lazio á Spáni.
•óK
Þú gælir verið á leið i
Njarðvík (24) 55 - KR (37) 78
7-4, 7-18, 14-18, 16-25, 20-29, 21-33, 22-37, (24-37), 32-29, 34-41, 36-50, 40-52, 40-58,
44-62, 46-70, 49-72, 51-78, 53-78.
2 ■): i
Riley Inge
Logi Gunnarsson
Teitur Örlygsson
Páll Kristinsson
Friðrik Stefánsson
Hermann Hauksson
Fráköst: Njarðvík 31, KR
47.
3ja stiga: Njarövík 25/6,
KR 26/7.
Dómarar (1-10): Helgi
Bragason og Kristinn
Albertsson (4).
Gceði leiks (1-10): 8.
Keith Vassell
Jónatan Bow
Jesper Sörensen
Ólafur Jón Ormsson
Jón Amór Stefánsson 8
Víti: Njarðvik 23/11, KR
20/17.
Áhorfendur: 850.
Arnar Kárason
Jakob Sigurðarson
Steinar Kaldal
Magni Hafsteinsson
Guðmundur Magnússon 2
Grindvíkingarnir Pétur Guðmundsson og Bjarni Magnússon fagna hér að ofan sigri á Haukum í Strandgötu í gær og um leið
sæti í úrslitaeinvíginu við KF). DV-mynd Hilmar Þór
Maöur leiksins: Keith Vassell, KR. ■ ■ Maður leiksins: Alexander Ermolinskij, Grindavík.
Haukar(28) 56 > Grindavík (21) 59
0-1, 5-3, 10-5, 15-11, 18-14, 18-20, 20-26, (28-21), 28-28, 30-36, 40-39, 4(M8, 48-50,
53-53, 54-56, 56-56, 56-59.
#
Sigfús Gizurarson
Jón A. Ingvarsson
Stais Boseman
Marel Guðlaugsson
Guðmundur Bragason
Ingvar Guðjónsson
Fráköst: Haukar 30,
Grindavík 30.
3ja stiga: Haukar 7/18,
Grindavík 8/22
Dómarar (1-10): Jón
Bender og Kristinn
Albertsson (7).
Gceði leiks (1-10): 5.
Brenton Birmingham 16
Pétur Guömundsson 11
A. Ermolinsku 10
Bergur Hinriksson 10
Dagur Þórisson 6
Sævar Garðarsson 3
Guðlaugur Eyjólfsson 1
Víti: Haukar
Grindavík 5/11
Áhorfendur: 600.
12/16,
Taktu þátt í skemmtíiegum leik!
Hlustaðu á Bylgjuna og lestu smáauglýsingar DV
Taktu þátt í skemmtilegum leik með
Bylgjunni og DV og þú gætir verið á leið
í vikufrí með fjölskylduna í boði
Samvinnuferða-Landsýnar.
Hlustaðu á framhaldssmásöguna um
DavíðVilberg í morgunþætti Ivars
Guðmundssonar á Bylgjunni á
hverjum morgni. Svarið við
spurningunni finnur þú í
smáauglýsingum DV.
Leikurinn er léttur og skemmtilegur. Þú safnar a.m.k.
7 réttum svörum og sendir til DV fyrir 12. apríl og
kemst í pott þar sem möguleiki er á að vinna
glæsilega vikuferð í sumarhús í Hollandi í boði
Samvinnuferða-Landsýnar. Einnig eru í boði
10 skemmtilegir vinningar á dag til þeirra
sem hringja með rétt svar til Bylgjunnar kl. 14.30.
Útsendingasími Bylgjunnar er 567
SBBjægteg
Í‘i 'f '.