Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2000, Blaðsíða 2
18 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2000 Sport ____$ Sport Kristján Helgason á HM í Snóker: 2-7 undir gegn Lee Kristján Helgason snókerspilari er 2-7 undir gegn Englendingnum Stephen Lee eftir fyrstu niu rammanna í leik þeirra í 32 manna úrslitum á heimsmeistaramótinu í snóker sem fram fer i Sheffield á Bretlandi en viðureign þeirra heldur áfram í dag. Kristján náði að enda vel í gærkvöld og vann síðasta rammann, 83-1, en hann hafði þá tapað fimm römmum í röð eftir að hafa unnið þriðja rammann, 92-32. Þeir Kristján og Lee hefja leik að nýju klukkan hálftvö að íslenskum tíma í dag en sá kemst áfram í 16 manna úrslit sem fyrr vinnur tíu ramma í þessum leik. -ÓÓJ NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt Washington-Boston .......114-81 Whitney 25, King 12, Howard 12 - Fortson 17, Pierce 16, Anderson 15. New York-Detroit ........100-88 Houston 29, Sprewell 16, Thomas 14 - Stackhouse 24, Moore 14, Crotty 12. Atlanta-New Jersey .... 111-109 Ellis 16, Terry 16, Jackson 15 - Van Horn 24, Harris 22, Perry 20. Cleveland-Charlotte......88-103 Sura 20, Miller 16, Kemp 15 - Wesley 23, Coleman 21, Mason 16. Miami-Toronto .............97-73 Carter 17, Mashbum 16, Mouming 10 - Carter 17, McGrady 15, Brown 10. Chicago-Philadelphia ......89-93 Brand 26, Anstey 17, Benjamin 12 - Snow 20, Kukoc 18, Lynch 16. Dallas-L.A.Lakers ......112-102 Finiey 25, Nash 23, Cebellos 21 - O'Neal 38, Bryant 16, Rice 15. Denver-Utah ............105-104 LaFrentz 32, Gatling 19, Van Exel 15 - Padgett 13, Giliiam 12, Vaughn 12. Phoenix-Houston..........98-107 Robinson 20, Hardaway 20, Livin^ton 19- Anderson 35, Francis 27, Mobley 24. L.A. Clippers-Portland . . .100-116 Nesby 20, Anderson 20, Odom 15 - Smith 24, Pippen 18, Grant 15. Sacramento-Seattle......112-119 Webber 23, Williams 23, Stojakovic 20 - Payton 33, Vin Baker 23, Lewis 22. Úrslitin í fyrrinótt Orlando-Milwaukee........83-85 Atkins 18, Garrity 15, Armstonrg 14, Maercer 13 - Thomas 21, Casseil 19, Allen 12. Philadelphia-Indiana.....90-92 Iverson 24, Lynch 16, Hill 12 (14 frák.), Snow 12 (12 stoðs.) - Mullin 21, Rose 20, Smits 16, Croshere 14. San Antonio-Vancouver . . 100-93 Robinson 27, Johnson 24, Danieis 12 - Dickerson 29, Abdur-Rahim 27. Golden State-Minnesota . . 96-101 Hughes 33, Davis 13, Cummings 12 - Brandon 21, Smith 14, Garnett 13, Sealy 13. Þaó var misjafnt gengiö hjá liðum Barcelona í gærkvöld því ísraelska lið- ið Maccabi Tel Aviv sló Barcelona út úr fjögurra liða úrslitum Evrópu- keppninnar í körfubolta með 65-51 sigri í Thessaloniki á Grikklandi. Maccabi-liöið mætir gríska liðinu Panathinaikos í úrslitum á fimmtudag en Grikkirnir unnu 81-71 sigur á tyrkneska liðinu Efes Pilsen í troð- fullri 7000 manna höll. Dennis Irwin leikur ellefta tímabilið í röð á Old Traford eflir að hann gerði nýjan árs samning við Manchester United í gær. Irwin, sem er 34 ára, hef- ur leikið meira en 350 leiki fyrir félag- ið frá því að hann kom þangað frá Old- ham í júní 1990 auk þess að leika 50 landsleiki fyrir írska landsliðiö. Charles Barkley verður með Houston á ný í kvöld í lokaleik liðsins gegn Vancouver í NBA-deildinni í körfu- bolta. Barkley er að leika sitt 16. og síðasta tímabil i deildinni en hefur ekkert veriö með Rockets síðan 8. des- ember er hann reif vöðvafestingu í læri. Barkley segist ætla að enda feril- inn á sínum forsendum og því ætlar hann að spila þennan lokaleik Hou- ston í vetur þar sem liðið kemst ekki í úrslitakeppnina í ár. -ÓÓJ Sebastian, fyrirliði Fram: Héldum út „Það var ánægjulegt að geta klárað 60 mínútur án þess að missa niður forskot. Við höfum alltaf verið að missa niöur minna og minna forskot svo það hlaut að koma að því að við héldum út,“ sagði Sebastian Alexandersson, markvörður og fyrirliði Fram. „Vörnin á stóran þátt í sigrinum en hún var mjög öflug. Þessi leikur segir hins vegar ekkert um hvemig framhaldið verður. Leikurinn á flmmtudaginn verður örugglega mjög erflður og Haukarnir koma vitlausir til leiks eftir útreiðina hér. Baráttan heldur áfram og nú verðum við bara að koma okkur niður á jörðina fyrir næsta leik. Ég spái því hins vegar enn að þetta fari í fimm leiki.“ -HI Einn nýliði Þrír borðtennismenn hafa ver- ið valdir til að keppa fyrir ís- lands hönd á Evrópumóti A- landsliða sem fram fer í Bremen f Þýskalandi. Mótið hefst á föstu- daginn langa og því lýkur þann 29. apríl. íslenska liðið skipa þeir Adam Harðarson, Guðmundur E. Steph- ensen og Sigurður Jónsson. Þjálf- ari liðsins er Kínverjinn Hu Dao Ben. ísland keppir í sterkum riðli á mótinu en með íslandi í riöli verða ísrael, Litháen, Malta og ír- land. Tvær efstu þjóðimar kom- ast áfram og upp úr hverjum riðli. Ljóst er að róðurinn verður erfiður íslenska liðinu en góður árangur liðsins á HM í Malasíu í febrúar sl. gefur fyrirheit um góðan árangur á mótinu. Ein breyting var gerð á ís- lenska liðinu. Sigurður Jónsson var valinn nú í stað Markúsar Árnasonar sem lék á HM i Malasíu en hann kemst ekki með liðinu til Þýskalands vegna anna í námi. -SK Barcelona og Valencia í undanúrslit meistaradeildarinnar: Fram vann tíu marka sigur í fyrsta leik um titilinn í handbolta Tvö spænsk lið, Barcelona og Val- encia, komust áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í gær og munu mætast en í kvöld fara seinni tveir leikirnir fram. Barcelona vann Chelsea, 5-1, í fram- lengdum og dramatískum leik en Börsungar voru yfir, 3-1, líkt og Chel- sea í fyrri leiknum en skoruðu tvö mörk í framlengingunni og urðu auk þess manni fleiri eftir að Celestine Babarayo var rekinn út af um leið og hann fékk dæmda á sig vítaspyrnu fyrir að brjóta á Luis Figo í upphafi framlengingar. Börsungar byrjuðu leikinn vel og Rivaldo og Luis Figo komu þeim yfir í fyrri hálfleik en þögn sló á leikvanginn þegar Tore Andre Flo minnkaði mun- inn eftir mistök markvarðar Barca. Sjö mínútum fyrir leikslok náöi Dani að koma Barcelona í 3-1 og þar með jafna stöðu innbyrðis við Chelsea. Rivaldo fékk tækifæri til að tryggja sínu liði undanúrslitasætið fimm min- útum fyrir leikslok en skaut þá fram hjá úr víti en skoraði síöan af öryggi úr fyrrnefndu víti í framlengingunni. Patrick Kluivert innsiglaði síðan sig- urinn með fimmta markinu. Gianluca Vialli, þjálfari Chelsea, sagði að það hefði orðið liðinu að falli að hugsa of mikið um að verjast í fyrri hálfleik en þrátt fyrir að hann og leik- mennirnir væru svekktir gætu þeir ekki verið annað en stoltir af að hafa veitt einu besta liði keppninnar verð- uga keppni. 16 horn gegn einu ■* Valencia gat leyft sér aö tapa, 0-1, fyrir Lazio í Róm, þökk sé 5-2 sigri í fyrri leiknum. Juan Veron skoraði eina mark Lazio sem hafði yfirburði í leiknum og fékk 16 horn gegn einu en leikmenn Rómarliðsins náðu ekki að ógna vörn Spánverjanna að ráði, fyrir utan tvö góð færi auk marksins. -ÓÓJ Patrick Kluivert innsiglaöi 5-1 sigur Barcelona á Chelsea. Hér er hann í baráttu í leiknum í gær. Leikmenn Chelsea fögnuöu gríðarlega þegar Tore Andre Flo minnkaöi muninn í 1-2 á Nou Camp í Barcelona gær og kom Chelsea í 4-3 í innbyrðisviöureignum en þrjú mörk Börsunga tryggöu þá áfram í undanúrslit. annað stærsta tapið í lokaúrslitum úrslitakeppninnar í handbolta er Fram vann, 30-20, í Safamýri Framarar sýndu allar sínar bestu hliðar þeg- ar þeir lögðu arfaslaka Hauka með tíu marka mun, 30-20, á heimavelli sínum í Safamýrinni í gær en þetta er annar stærsti sigur liðs í lokaúr- slitunum um íslandsmeistarabikarinn. Framar- ar höfðu undirtökin frá byrjun og virðast ekki árennilegir í þeim átökum um íslandsmeistara- titilinn sem fram undan eru. Ljóst hvert stefndi í byrjun Framarar byrjuðu leikinn strax betur og var snemma ljóst hvert stefndi. Haukarnir virtust sakna Óskars Ármannssonar töluvert því lítil yfírvegun var í sókninni. Yfirleitt var reynt að skjóta úr vonlausum færum úr hominu eða yfir hávaxna Framvömina og þegar þeir fengu opin færi var Sebastian oft réttur maður á réttum stað. Framarar léku hins vegar skynsamlega í sókninni, biðu færis og nýttu þau vel en þó ber þess að geta að markverðir Hauka náðu sér eng- an veginn á strik. Munurinn jókst því jafnt og þétt og þó að Haukar næöu að minnka muninn í 11-9 þegar rúmar tvær mínútur vom eftir virt- ust þeir einhvem veginn aldrei líklegir til að ógna Fram. í leikhléi munaði þremur mörkum og skoraði Gunnar Berg Viktorsson siðasta markið í hálfleiknum á lokasekúndunum eftir að stillt hafði verið upp í aukakast fyrir hann. Gunanr Berg fór mik- inn i fyrri hálfleiknum og skoraði þá fimm mörk. í síðari hálfleiknum hertu Framarar enn tök- in en margir biðu þó spenntir eftir því hvort þeir myndu missa niður forskotið eins og þeim hefur verið tamt að gera. En nú féllu þeir ekki í þá gildru heldur virtust þeir eflast eftir því sem leið á leikinn og fundu Haukar aldrei svar við stórleik þeirra. Sami vandræðagangurinn var hjá þeim bæði í sókninni og í markvörslunni og virtust þeir hreinlega ekki vera tilbúnir í þessi átök. Framarar náðu níu marka forskoti þegar rúmar fimm mínútur voru eftir og þá voru úr- slitin löngu ráðin og bæði lið létu varamenn spreyta sig á lokamínútunum. Framarar voru geysisterkir í þessum leik og ef þeir halda svona áfram er ekki að spyrja að leikslokum. Liðsheildin öll var mjög öflug hjá Fram. Sebastian varði mjög vel í markin, Gunn- ar Berg og Kenneth Ellertsen léku vel í sókn- inni, sem og Björgvin og Njörður. Þá má ekki gleyma frammistöðu Olegs Titov í vörninni sem var mjög mikilvæg. Ekki steinn yfir steini hjá Haukum Það stóö varla steinn yfir steini hjá Haukum allan tímann og verða þeir að taka sig verulega saman í andlitinu ef þeir ætla sér að vinna leik í þessari rimmu. Það var helst Petr Bamruk sem lét eitthvað að sér kveða en aðrir voru langt frá sínu besta. Liöið virtist sakna Óskars Ármanns- sonar sárt en hann kom ekki inn á í leiknum þrátt fyrir að vera á leikskýrslu og sem dæmi um vandræðaganginn reyndu þeir fjóra mis- munandi menn á miðjunni. Þeir geta leikið mun betur en þeir gerðu í þessum leik. -HI Kýnntái^verðaThýjustu i rannlsóknir, íj landbúnaði nýj u n g a rtT, ve I um*OHgJ t æ kj umKTíf i ð, í; s ve i t i n nífo ,f I Guðmundur Karlsson, þjálfari Hauka: Umsjón efnis: Arndís Þorgeirsdóttir, sími 550 5823. Umsjón auglýsinga: Selma Rut Magnúsdóttir, sími 550 5720, netfang: srm@ff.is Skoraði meðan markvörðurinn meig Guðmundur Karlsson, þjáifari Hauka, var ekki sáttur eftir leikinn. „Þetta er lélegasti leikur okkar frá áramótum og við virtumst hreinlega ekki hafa trú á verkefninu þegar á reyndi og á móti blés.“ Guðmundur sagði að vissu- lega hefði liðið saknað Óskars Ármannssonar. „Það afsakar hins vegar ekki að menn séu með tómt bull í gangi sókn eftir sókn og hlaupa siðan ekki aft- ur í vörnina þegar bolta er glatað. Það sama má segja um markvörsluna, þeir tóku ekki þau skot sem þeir áttu að taka og fóru ekki í hornin sín. Það er eins og að hugarfarið hafi ekki verið í lagi en við erum mun betri held- ur en við sýndum í þessum leik. Við þurfum nú að nota tímann til að finna lausnir til að sigrast á Fram-liðinu. Við erum ekki hættir." -HI 2-0, 3-2, 7-3, 8-5, 11-6, 11-9 (13-10), 16-11, 17-13, 20-14, 22-15, 23-17, 27-18, 30-19, 30-20. MW Kenneth Ellertsen 7/5, Gunnar Berg Viktorsson 6/1, By Guðmundur Helgi Pálsson 4, Björgvin Þór Björgvinsson 3, Njörður Ámason 3, Róbert Gunnarsson 3, Guðjón Drengsson 2, Vilhelm Bergsveinsson 2. Varin skot: Sebastian Alexandersson 18/1. Brottvísanir: 8 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 6 af 6. Athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er föstudagurinn 28. apríl. Netfang auglýsingad. auglysingar@ff.is Bréfsími: 550 5727 Sá einstæði atburður átti sér stað, í fyrstu umferð norsku bikarkeppninnar, að sigurmarkið var skorað meðan markvörðurinn var að létta á sér eftir leikhlé. Atvikið átti sér stað í leik þriðju deildar liðanna, Sumadal og Sunndal, síðastliðinn sunnudag. Eftir venjulegan leiktíma var staða 0-0 og því þurfti að framlengja leikinn. í leikhléi framlengingarinnar var svo komið að markvörður Sumadal, Olav Káre Fiske, gat ekki lengur beðið með að kasta af sér vatni. Dómarinn flautaði leikinn á að nýju meðan Fiske stóð við marksúlu sína og meig. Þetta sáu andstæðingamir og nýttu sér með því að senda boltann I autt markið. Það þarf ekki að taka það fram að leikmenn Sumadal undu úrslitunum illa og létu dómarann bæði heyra og finna fyrir óánægju sinni. -GÞÖ Áhorfendur: 700 Gœði leiks (1-10): 6. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (6). Næststærsti sigurinn Aðeins einu sinni áður hefur lið unnið stærri sigur en tíu marka sigur Fram, 30-20, á Haukum í gær, í úrslitarimmu úrslita- keppninnar frá 1992, en Valsmenn unnu FH-inga með 12 marka mun í fyrsta leik 1993, 31-19, og unnu loks einmvigið 3-1. -ÓÓJ Fimm heimasigrar Framarar stöðvuðu þriggja leikja sigurgöngu Hauka á útivelli í gær. Haukar náðu þannig aðeins að jafna metið í úrslitakeppninni en Framarar unnu aftur á móti sinn fimmta heimaleik í röð í úrslitakeppninni. -ÓÓJ Kjetil Ellertsen 4/2, Petr Baumruk 3, Gylfi Gylfason 3, 'wMW Aliaksandr Shamkuts 2, Jón Karl Bjömsson 2/1, Halldór Ingólfsson 2, Sigurður Þórðarson 2, Sigurjón Sigurðsson 1, Vignir Sævarsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 3 og Jónas Stefánsson 2. Brottvísanir: 10 mínútur. Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Fram 30 (13) - Haukar 20 (10) Maöur leiksins: Sebastian Alexandersson, Fram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.