Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2000, Qupperneq 2
bílar
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 I>v
Kia Shuma:
Meö sportbílahjarta
Nú er komið nýtt umboð fyrir
Kia á íslandi og er það Kia-umboð-
ið, Flatahrauni 31 í Hafnarfirði.
DV-bílar höfðu Kia Shuma til
reynsluaksturs á dögunum og var
honum ekið nokkur hundruð kíló-
metra af ísleifi Karlssyni en hann
sér einnig um prófanir fyrir þátt-
inn Mótor á Skjá einum. Shuma
er sportlegasti Kia-bíllinn og verð-
ur bara að teljast nokkuð lagleg-
ur, allavega fyrir mína parta.
Góð vinnsla þrátt fyrir
sjálfskiptingu
Það sem ég var ánægðastur með
er vinnsla vélarinnar en þótt það
sé ekki eini kostur bílsins kom
það mér mest á óvart. Hann er
með fjögurra þrepa sjáifskiptingu
en margir af fjögurra strokka bíl-
um í dag líða fyrir hestaflatap
með sjálfskiptingunni. Vélin er 1,8
lítra, með tveimur yfirliggjandi
knastásum, og skilar 110 hestöfl-
unum bara vel, en billinn er
einnig fáanlegur með fimm gira
beinskiptingu. Hjólbarðastærð er
185/65R 14 á álfelgum og er varahjól-
ið einnig á álfelgu. Þar sem felgurn-
ar eru ekki stærri en þetta eru
bremsudiskamir í minna lagi fyrir
þennan spræka bíl en duga þó vel í
alla venjulega keyrslu. Diskabrems-
ur eru á öllum hjólum með hemla-
læsivörn en ég var ekki ánægður
með ástig á bremsupedalann sem
var frekar þungt þótt það stöðvaði
bílinn vel. Bíllinn er framdrifinn og
hefur tekist að fá jafnt grip á fram-
hjól i akstri sem gerir hann lipran í
Vindlínustuöull Shuma er mjög lítill, eða 0,29 Cd.
Frá 1. mars
eru allir notaðir
bílar Irá
hjá
Aðalbílasölunni
v/Nlihlatorg
Mikið úrval
góðra bíla á
góðu verði!
Komið og lílið á
úrvalið
stýri og ekki skemmir fyrir hraða-
næmt vökvastýri.
Vel búinn en vantar
aukabúnað
Kia Shuma er meðalstór fjöl-
skyldubíll og fer vel um ökumann
og framsætisfarþega en svolítið
þröngt fyrir þá að komast inn og út.
Aftur í er gott pláss fyrir þrjá með-
alstóra karlmenn. Rúðuvindur eru
rafknúnar bæði frammi og aftur í,
speglar rafstilltir og gaflhurð og
bensínlúga opnanleg innan frá.
Hljómflutningstæki eru mjög veg-
leg, með sex hátölurum, kassettu-
tæki og geislaspilara, en loftnetið
verður maður að draga upp sjálfur.
Farangursrýmið er 328 lítra en hægt
er að stækka það með því að leggja
niður aftursæti 40/60 í 528 lítra
þannig að plássið er gott í Shuma til
flestra hluta. Fjarstýrðar samlæs-
ingar og hreyfitengd þjófavöm er
einnig staðalbúnaður og löngu orðið
nauðsynlegt í alla bíla. Ekki er mik-
ið af aukabúnaði á boðstólum fyrir
Shuma, allavega ekki enn þá. Það
eina sem hægt er að fá er dráttar-
krókur, topplúga og vindskeið og þá
er það upptalið. Á móti kemur að
bíllinn er ríkulega búinn staðalbún-
Pláss fyrir ökumann og farþega er ágætt miöaö við stærð. Til dæmis er
Shuma aöeins 15 mm styttri en Toyota Avensis.
Kia Shuma er nokkuð fallegur og stilhreinn bíll með einföldum en samt sportlegum línum.
Kia Shuma
Vél: Bensín, með tveimur
yfirliggjandi knastásum
Strokkafjöldi: 4.
Þjöppun: 9,5:1
Rúmtak: 1793 rúmsentímetrar.
Hestöfl: 110 v. 5000 sn.
Snúningsvægi: 152 Nm./4500 sn.
Eyðsla í blönduðmn
akstri: 9,5 lítrar.
Bensíntankur: 50 lítrar.
Gírar: 5 gíra beinskipting eða
4 þrepa sjálfskipting.
Hemlar: Læsivarðir diskar.
Fjöðrun framan: Sjálfstæð
MacPherson.
Fjöðrun aftan: Sjálfstæð
gormafjöðrun með jafnvægisstöng.
Beygjuradíus: 4,9 metrar.
Lengd: 4475 mm.
Breidd: 1711 mm.
Hæð: 1415 mm.
Hjólahaf: 2560 mm.
Eigin þyngd: 1131 kíló.
Fjöldi hurða: 5.
Fjöldi sæta: 5.
Hjólastærð: 185/65 14.
Farangursrými: 328/528 lítrar.
Verð: 1.335.000 kr.
Verð sjálfskiptur: 1.390.000 kr.
Umboð: Kia-umboðið
aði. Öll stjómtæki fyrir ökumann
eru vel aðgengileg og útsýni úr bíln-
um gott.
Stíf en góð fjöðrun
Við akstur fannst mér bíllinn
vera frekar sprækur og sjálfskipt-
ingin skemmtilega gíruð. Við 90
km/klst. er snúningur vélarinnar í
tæpum 2000 á mínútu og er yfirgír
sjálfskiptingarinnar 0,700. Við
þannig aðstæður er bensíneyðslan 7
lítrar á hundraðið samkvæmt tölum
frá umboði. Fjöðrun á malbikuðum
vegi er frekar stinn og gerir það bíl-
inn nokkuð skemmtilegan í beygj-
um og þegar hraðinn er aukinn. Þó
er hann frekar stífur fyrir mal-
arakstur og vildi hann losna að aft-
an. Það getur hins vegar breyst við
aðra hleðslu í bílnum og alltaf spil-
ar loftþrýstingur dekkja inn í.
Fjöðrunin er sjálfstæð á öllum hjól-
um, MacPherson að framan og
þriggja stýfu með jafnvægisstöngum
að aftan. Ailir demparamir eru gas-
demparar sem er ótvíræður kostur.
Á malbikuðum vegi er veghljóð ekki
áberandi en of mikið á malarvegi og
hvort sem um er að kenna grófleika
dekkjanna eða ekki myndu aurhlíf-
ar að framan gera gæfumuninn að
mínu mati. -ÍK
Plúsar: Afl, sjálfskipting,
búnaður.
Mínusar: Bremsur,
aukabúnaður.
Mælaborðiö er tiltölulega einfalt en
smekklegt og þar er allt sem til þarf.
Til hægðarauka er miðjustokkurinn
opnanlegur að ofan og aftan.
Það er fallegt og sportlegt lag á aft-
urljósunum.
Skottiö opnast vel á Shuma og plássiö er allgott. Þó taka stór afturljósin dálftiö pláss til hliðanna.
Vélin er 1,8 lítra, með tveimur yfir-
liggjandi knastásum, og skilar bíln-
um vel áfram, einnig með sjálfskipt-
ingunni.