Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Blaðsíða 2
16
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000
33 -
Sport
Sport
Einkunnagjof
DV-sport
Breiöablik-Fram 1-0
Breiöablik (4-4-2)
Atli Knútsson, 4, Hjalti Kristjánsson, 3,
Þorsteinn Sveinsson, 3, Andri Mart-
einsson, 3, Árni K. Gunnarsson, 4, Ro-
bert Russel, 4, Hákon Sverrisson, 4,
Kjartan Einarsson, 3 (81., ívar Sigur-
jónsson, -), Hreiðar Bjamason, 4 (90.,
Björn Jakobsson, -), Bjarki Pétursson,
2, Marel Jóhann Baldvinsson, 5.
Fram (4-4-2)
Fjalar Þorgeirsson, 3, Baldur Knútsson,
2 (60., Bjarni Pétursson, 2), Valur Fann-
ur Gíslason, 2, Ásgeir Halldórsson, 3,
Eggert Stefánsson, 2, Sigurvin Ólafsson,
2, Steinar Guðgeirsson, 3, Ingvar Óla-
son, 3, Daði Guðmundsson, 4, Þorbjöm
Atli Sveinsson, 3 (60., Kristófer Sigur-
geirsson, 4,) Ronny Petersen, 3.
ÍA-Fvlkir 0-1
ÍA (4-3-3)
Ólafur Þór Gunnarsson, 3, Sturlaugur
Haraldsson, 4, Alexander Högnason, 3,
Gunnlaugur Jónsson, 5, Andri Karvels-
son, 2 (65., Baldur Aðalsteinsson, 3),
Pálmi Haraldsson, 3, Sigurður Jónsson,
2, Jóhannes Harðarson, 3, Kári Steinn
Reynisson, 2 (78., Jóhannes Gíslason, -),
Hjörtur Hjartarson, 2 (54., Uni Arge, 2),
Haraldur Hinriksson, 2.
Fylkir (4-3-3)
Kjartan Sturluson, 4, Helgi Valur Daní-
elsson, 4, Ómar Valdimarsson, 5, Þór-
hallur Dan Jóhannsson, 5, Gunnar Þór
Pétursson, 4, Gylfi Einarsson, 5, Sverr-
ir Sverrisson, 4, Hrafnkell Helgi Helga-
son, 3, Ssevar Þór Gíslason, 3 (66.,
Sturla Guðlaugsson, 3), Kristinn Tóm-
asson, 4 (85., Finnur Kolbeinsson, -),
Theódór Óskarsson, 4.
Grindavík-ÍBV 1-0
Grindavík (4-4-2)
Albert Sævarsson, 4, Ray Jónsson, 3,
Guðjón Ásmundsson, 4, Zoran Djuric, 3,
Óli Stefán Flóventsson, 4, Paul McS-
hane, 4, Goran Lukic, 3, Sinisa Kekic, 4,
Ólafur Öm Bjarnason, 4, Sverrir Þór
Sverrisson, 3 (56., Róbert Ó. Sigurðsson,
3), Scott Ramsay, 4 (87. Vignir Helga-
son, -).
ÍBV (4-4-2)
Birkir Kristinsson, 4, Páll Almarsson,
3, Hlynur Stefánsson, 3, Kjartan Ant-
onsson, 4, Hjalti Jóhannesson, 4, Páll
Guðmundsson, 4, Hjalti Jónsson, 3, Ingi
Sigurðsson, 3, Momir Mileta, 3 (69.,
Baldur Bragason, 3), Jóhann Möller, 3
(74., Steingrímur Jóhannesson, 3), Gor-
an Aleksic, 2 (62., Tómas Ingi Tómas-
son, 2).
Einkunnaskali DV-Sport
6................Stórkostlegur
5...................Mjög góður
4........................Góður
3 ...................í meðallagi
2 ......................Slakur
1..................Mjög lélegur
-.............Takmörkuð þátttaka
irs-----------
í? * LANDSS8MA
DEILDIN
UQD9
Fylkir 9 5 4 0 16-6 19
KR 10 5 3 2 15-9 18
Grindavík 9 4 4 1 11-5 16
ÍA 9 4 2 3 7-6 14
Keflavík 8 3 3 2 8-12 12
ÍBV 9 2 5 2 11-7 11
Fram 9 2 3 4 8-12 9
Breiðablik 9 3 0 6 11-16 9
Stjarnan 8 1 1 6 3-11 4
Leiftur 6 0 3 3 3-9 3
Markahæstir:
Andri Sigþórsson, KR.............7
Guðmundur Steinarsson, Keflavík 6
Gylfi Einarsson, Fylkir..........5
Hreiðar Bjamason, Breiðabliki ... 4
Ólafur Öm Bjamason, Grindavík . 4
Marel tryggöi
Blikum sigurinn
- gegn lánlausum Frömurum
Breiðablik hafði sigur á heima-
velli gegn afar slökum Frömurum í
gærkvöld. Lokatölumar urðu 1-0
sem voru í sjálfu sér úrslit við hæfi
því leikurinn var í heild tilþrifalítiU
þó að Blikarnir væru lengst af
sterkari aðilinn.
Leikurinn byrjaði reyndar afar
fjörlega. Á 6. mínútu varði Fjalar
ágætlega skot frá Kjartani Einars-
syni og Þorsteinn Sveinsson náði
ekki að hitta boltann úr frákastinu
fyrir opnu marki. Aðeins mínútu
síðar komst Þorbjörn Atli inn fyrir
vömina en skaut í þverslá. Blikar
fengu tvö hálffæri stuttu seinna en
á 20. mínútu urðu þeir fyrir áfalli
þegar Bjarki Pétursson fékk tvö gul
spjöld á sömu mínútunni, og þar
með rautt, fyrir að verjast tvisvar
aukaspymu of nálægt boltanum.
Afar óskynsamlega gert hjá Bjarka
þó að þær raddir heyrðust að Garð-
ar hefði mátt taka léttar á þessu.
Þetta breytti hins vegar ekki
leiknum að öðm leyti en því að
hann varð enn bragðdaufari. En á
lokamínútum hálfleiksins tóku
Blikar kipp. Fyrst kom Fjjalar
naumlega í veg fyrir að Ásgeir Hall-
dórsson gerði sjálfsmark en mínútu
síðar kom Marel Blikunum yfir þeg-
ar rangstöðuvörn Framara brást
illilega. Blikar héldu því með eins
marks forskot í leikhléið.
Síðari hálfleikur gekk svipað fyr-
ir sig. Nokkur hálffæri litu dagsins
ljós en ekkert mark kom og fyrir
vikið breyttist staðan ekki mikið.
Blikar vildu reyndar fá vítaspymu
eftir stundarfjórðungs leik þegar
Marel féll í teignum þegar hann og
Ásgeir áttust við en Garðar var ekki
á sama máli. Lítið annað gerðist í
leiknum og því hirtu Blikar öll stig-
in.
„Við sýndum mikinn karakter i
þessum leik og það var ekki hægt að
sjá að við hefðum leikið einum
færri mestallan leikinn. Það var góð
vinnsla í liðinu og Framarar fengu
varla opið færi í leiknum. Marel
styrkir okkur vissulega mikið en
fyrst og fremst var þetta sigur liðs-
heildarinnar og ég er virkilega
ánægður með strákana," sagði Sig-
urður Grétarsson, þjálfari Blika.
Marel var mjög ógnandi í leiknum
en auk hans spiluðu Ámi, Russel og
Hreiðar vel. „Þetta var hundlélegt
hjá okkur. Við fengum færi og
hefðum getað gert mark en kannski
er getan ekki meiri í liðinu núna
heldur en við sýndum. Markið var
mjög slysalegt en við spiluðum í
heildina mjög illa,“ sagði Steinar
Guðgeirsson, fyrirliði Fram. Daði
Guðmundsson var langbesti maður
liðsins en aðrir voru langt frá sínu
besta.
-HI
BreiðabSik-Fram 1-0
Hálfleikur: 1-0 Leikstaöur: Kópavogsvöllur. Áhorfendur: 850.
Dómari: Garðar Öm Hinriksson (3). Gœði leiks: 3.
Gul spjöld: Bjarki, Russel (Breiðabliki) - Ronny (Fram).
SkoU 14-14. Horn: 2-9. Aukaspyrnur fengnar: 17-11. Rangstödur: 4-2.
Mörkitu 1-0 Marel Jóhann Baldvinsson (45., komst einn inn fyrir vöm Framara
eftir stungusendingu Roberts Russel og skoraði í annarri tilraun).
Maður leiksins: Marel J. Baldvinsson, Breiðabliki
Grindavík blandar sér af alvöru í toppbaráttuna:
Taplausir heima
- en Eyjamönnum gengur áfram illa
Grindvíkingar stimpluðu sig af al-
vöm í toppbaráttu úrvalsdeildar með
sigri í Vestmannaeyingum í Grinda-
vík í gærkvöldi. Ólafur Örn Bjarna-
son skoraði sigurmark liðsins sem
hefur unnið alla heimaleiki sína og
það sem meira er, ekki fengið á sig
mark í Grindavík.
Leikurinn var lítið fyrir augað í
fyrri hálfleik og vægast sagt leiðin-
legur á að horfa. Leikmenn létu bolt-
ann oft ganga ágætlega sín á milli en
gerðu lítið til að koma honum á
sóknarmennina og sköpuðu sér fá
færi. Ólafur Öm átti tvö skot fram
hjá marki Vestmannaeyjaliðsins.
Seinni hálfleikur fór hins vegar fjör-
lega af stað og Páll Guðmundsson
átti skot í stöng Grindavíkurmarks-
ins á 51. mínútu eftir ágæta sókn
Vestmannaeyinga.
Grindvíkingar komu betur inn í
leikinn og voru öllu mefe með bolt-
ann og gekk ágætlega að verjast bit-
lítilli sókn gestanna. Þeir hins vegar
sóttu frekar rólega fram á völlinn
sem gaf Vestmannaeyingum færi á
að stilla upp í vörninni.
Um miðjan hálfleikinn skoruðu
síðan Grindvíkingar eina mark leiks-
ins þegar Ólafur Öm Bjamason vann
boltann á miðjunni og skoraði glæsi-
legt mark sem Birkir átti ekki mögu-
leik á að verja. Hjalti Jónsson skor-
aði síöan að hann taldi jöfnunar-
mark á sömu mínútunni en það var
dæmt af vegna rangstöðu og sluppu
Grindvíkingar þar með skrekkinn.
Þeir lögðu síðan áherslu á að verjast
það sem eftir var leiksins og tókst
það ágætlega þrátt fyrir að Vest-
mannaeyingar skiptu þeim Tómasi
Inga Tómassyni og Steingrími Jó-
hannessyni inn á.
Heimamenn léku oft á tíðum ágæt-
lega í leiknum og vörðust bitlítilli
sókn Vestmannaeyinga vel en fóm
sér fullrólega í sóknarleikinn og
náðu ekki að skapa sér ýkja mörg
færi I leiknum.
„Þetta var mjög sætur og þýðing-
armikill sigur hjá okkur. Það var
spuming hjá okkur hvort við ætluð-
um að vera þarna í efri hlutanum, að
vera menn eða mýs! Við sköpuðum
okkur ekki ýkja mörg færi en við
skoruðum eitt mark og það var nóg
til að vinna leikinn. Það er miklu
skemmtilegra að vera í þessari stöðu
heldur en vera í botnbaráttu eins og
við erum vanir. Það er bæði meiri
stemning innan liðsins og í bænum
þannig að nú er um að gera að halda
sér á jörðinni," sagði Guðjón Ás-
mundsson, fyrirliði Grindvíkinga,
kampakátur f leikslok.
Vestmannaeyjaliðið átti hins veg-
ar erfitt uppdráttar í leiknum. „Þetta
var frekar erfitt hjá okkur og við vor-
um í hálfgerðum eltingarleik við þá í
fyrri hálfleik. Það lagaðist aðeins í
seinni hálfleik en við erum ekki að
skapa okkur neitt. Það vantaði meiri
stuðning við sóknarmennina okkar
og sóknarleikurinn gengur mjög
hægt hjá okkur. Þetta var góður leik-
ur hjá Grindvíkingum í dag og þeir
áttu sigurinn skilinn. Það er hins
vegar nóg eftir af leikjum þar sem
allir eru að vinna alla. Við þurfum
að vinna áfram í okkar málum og
gera breytingar," sagði Hlynur
Stefánsson, fyrirliði ÍBV, í leikslok.
-FÓ
Fylkir vann IA og fór á toppinn á ný
Gylfi Einarsson, maður leiksins
„Þetta var fyrst og fremst baráttusigur af
okkar hálfu. Leikurinn einkenndist af miklu
miðjuþófl og mikilli baráttu, en mér fannst við
vera sterkari í leiknum og eiga þetta skilið. Við
erum að uppskera eins og við sáðum.
Það má helst þakka góðri liðsheild og
frábærum þjálfara við erum í fyrsta sæti deild-
arinnar eftir fyrri umferð mótsins, og í raun er
allt gott um þetta lið að segja. Hér eru allir að
leggja sitt af mörkum."
Þórhallur D. Jóhannsson, Fylki:
„Þetta er flnt, það verður alveg að segjast.
Það er auðvitað mjög ánægjulegt að vera efstir
þegar mótið er hálfnað. Nú erum við einu stigi
frá markmiði okkar, og þegar því er náð getum
við farið að setja okkur ný markmið.
Varnarleikurinn skiptir auðvitað miklu
máli, á meðan við fáum engin mörk á okkur er-
um við í það minnsta með eitt stig í leiknum,
og svo náum við venjulega að skora a.m.k. eitt
mark til að tryggja okkur stigin þrjú.“ -esá
enn jöfnuðu stigamet félagsins í efstu deild í gærkvöld
A brautinni
Colin Jackson, heimsmeistari í 110
grindahlaupi mun ekki taka þátt í Evr-
ópubikarkeppninni með breska lands-
liðinu um næstu helgi. Hann tognaði á
aftanlæris á móti í Þýskalandi um síð-
ustu helgi. Hann mun ganga í gegnum
mjög stranga sjúkraþjálfun á næstu
vikum svo hann nái sér fyrir breska úr-
tökumótið fyrir ÓL.
Merlene Ottey, sem nýverið fékk aftur
keppnisrétt, mun keppa á móti á Sar-
diníu annað kvöls og verður þetta
fyrsta mót hennar eftir að banninu var
aflétt. Hin fertuga Ottey hefur keypt á
alþjóðavettvangi í tvo áratugi og ÓL
munu vera hennar síðasta mót. Hún er
nú við æfingar í Ljubljana í Slóveníu.
Hún mun síðan keppa á úrtökumóti
Jamaíku fyrir ÓL dagana 21,-22. júlí.
Enska úrvalsdeildarlióid Everton hef-
ur samþykkt sölu á skoska landsliðs-
manninum Don Hutchison til Charlton
fyrir tvær og hálfa milljón punda. Leik-
maðurinn á eitt ár eftir af samningi
sínum við Everton en var settur á sölu-
lista eftir að hann neitaöi að skrifa und-
ir framlengingu á samningnum við fé-
lagið.
Jordi Cruyff fyrrum ieikmaður
Manchester United sem var gefið frjáls
sala, hefur skrifað undir árssamning
við spænska liðið Alaves.
Salih Heimir Porca lék ekki með Blik-
um gegn Fram vegna meiðsla. Þá lék
Hilmar Björnsson ekki með Frömur-
um vegna veikinda.
Óvist er hvort Ágúst Gylfason leikur
meira með Frömurum í sumar. Hann
hefur verið frá í nokkum tíma vegna
kviðslits og eru batahorfur óljósar.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í
blaðinu í gær að í fyrirsögn var
Magnús Magnússon sagður hafa
sett íslandsmet í kvartmílu. Hið
rétta er að Einar Birgisson setti
þetta glæsilega íslandsmet á
Novunni sinni þegar hann fór
vegalengdina á 10,699 sekúndum.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum. -ÓK/HI
„Allir sem einn...“, syngja KR-ingar í
lagi sínu en Fylkismenn nýttu sér þessi
góðu ráð vina sinna i vesturbænum til að
ná af þeim efsta sætinu á Akranesi í gær.
Fylkismenn sýndu að þeir eru með lið til
að halda út mótið og stefnan í Árbænum
getur ekki lengur verið að halda sér í
efstu deild í fyrsta sinn heldur að berjast
um titilinn í haust.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari Fylkis, er
búinn að skapa gríðarsterka liðsheild þar
sem menn eru tilbúnir að fórna sér hver
fyrir annan og sigursöngvarnir i bún-
ingsklefanum eftir leik lýsa vel hversu
gaman er að verða Fylkismaður í dag.
„Við erum komnir í þá stöðu nú að við
þurfúm að stefna hærra en við gerðum í
upphafi og það er ánægjuleg stund að
geta það í miðju móti. Það er fyrst og
fremst liðsheildin sem er að skapa þetta
og menn eru tilbúnir að hlaupa hver fyr-
ir annan. Þegar menn eru í góðu formi
og koma i leikinn til þess að fórna sér fyr-
ir Fylki þá myndast stemning og það er
gaman að lifa í dag. Nú er bara að njóta
stundarinnar og vonandi á eftir að vera
enn meira fjör í þessu," sagði Bjarni.
Sigurinn í gær táknaði vissulega
breytta tíma í Árbænum, hann var sá
fyrsti á ÍA í efstu deild frá upphafi eftir
sex töp í röð og Fylkismenn jöfhuðu jafn-
framt stigamet félagsins í efstu deOd frá
1993 og það þrátt fyrir að aðeins helming-
ur sé búinn af mótinu.
Leikurinn í gær var mjög i anda ís-
landsmótsins það sem af er. Liðin byggja
upp lið sín á sterkum vömum og skyn-
samlegu spili og því voru marktækifærin
af skomum skammti. Fylkismenn sýndu
í byrjun að þeir vom mættir af fullum
krafti en Skagamenn náðu aftur á móti
fljótlega tökum á miðjunni. Sóknarleikur
heimamanna var þó líflaus og sem dæmi
um það áttu Fylkismenn hættulegustu til-
raunina við mark sitt í fyrri hálfleik þeg-
ar sending Helga Vals Danielssonar aftur
til Kjartans markvarðar fór yfir hann og
rétt fram hjá markinu.
Fyrsta skot Skagamanna kom síðan
ekki fyrr en á 60. mínútu leiksins og það
var kannski til að lýsa vonleysi liðsins
í sókninni í gær að fjórum mínútum
IA-Fylkir 0-1
Hálfleikur: 0-6 Leikstaður: Akranesvöllur. Áhorfendur: 1620.
Dómari: Gylfi Þór Orrason (4). Gœði leiks: 3.
Gul spjöld: Engin.
SkoU 5-8. Hortu 5-4. Aukaspymur fengnar: 16-14. Rangstöður: 5-2.
Mörkitu 0-1 Sjálfsmark Jóhannesar Harðarsonar (56., renndi sér i boltann eftir aö
Theódór Óskarsson hafði verið kominn í gegn eftir sendingu Gylfa Einarssonar)
Maður leiksins: Gylfi Einarsson, Fylki
Grindavík-IBV 1
Hálfleikur: 0-0 Leikstaður: Grindavíkurvöllur. Áhorfendur: 450.
Dómari: Kristinn Jakobsson (5). Gceði leiks: 4.
Gul spjöld: Páll (ÍBV)
SkoU 12-17. Hortu 8-2. Aukaspyrnur fengnar: 16-15. Rangstöóur: 1-1.
Mörkitu 1-0 Ólafur Örn Bjarnason (76., með stórglæsilegu skoti frá vítateigslínu
eftir að Sinisa Kekic og Óli Stefán Flóventsson lögðu fyrir hann boltann).
Maður leiksins: Ólafur Örn Bjarnason, Grindavík
áður vom þeir búnir að aðstoða Fylkis-
menn við gerð sigurmarks þeirra, þegar
Jóhannesi Harðarsyni varð á að senda
boltann í eigið mark. Þetta var slysalegt
mark og synd að það skyldi skilja á milli
þessara liða en Fylkismenn fóru illa með
nokkur góð færi og urðu þvi að treysta á
heimamenn við að tryggja þeim stigin
þrjú aftur með heim í Árbæ.
Vamarleikmenn Fylkisliðsins fá sér-
stakt hrós fyrir leikinn í gær enda mættu
þeir hverri tilraun Skagamann af skyn-
semi og hleyptu nánast engu í gegn.
Hættulegustu tilraunir heimamanna
komu upp úr fóstum leikatriðum. Ómar
Valdimarsson og Þórhallur Dan Jóhanns-
son leika nú sitt fyrsta tímabil saman en
samvinna þeirra bendir frekar til að þeir
hafi leikið saman í fjölda ára.
Að sama skapi em vinnusamir leik-
menn nýliðanna fljótir að skapa fram á
völlinn og með Gylfa Einarsson sem
prímusmótorinn á miðjunni og Sverri
Sverrisson sem akkerið geta frískir sókn-
--------------------
* LANDSSÍMA
r -^k^DEILDIN
2000
Grindvikingar hafa enn ekki fengiö á sig
mark á heimavelli í sumar og Albert Sævars-
son hefur nú haldið marki sínu hreinu í 423
minútur í Grindavík. Fimmtán lið hafa hald-
ið marki slnu lengur hreinu á heimavelli í tlu
liða efstu deild, lengst héldu KR-ingar marki
sínu hreinu í 888 mínútur 1990 til 1991.
Síðastur til að skora í Grindavik var Vals-
maðurinn Kristinn Lárusson í 18. umferð-
inni í fyrrasumar. Sigurinn á iBV í gær var
fimmti heimasigur Grindarvíkurliðsins í röð.
Tómas Ingi Tómasson náði ekki að bæta
markaleysi Eyjamanna á útivelli. iBV hefur
ekki náð að skora i fjórum af síöustu fimm
deildarleikjum sínum og það eru komnar 297
mínútur siðan liðið gerði mark á útivelli í
deildinni. ÍBV hefur auk þess leikið sex úti-
leiki í röð án sigur þar af alla fjóra útileiki
sína á þessu sumri. -ÓÓJ
armenn liðsins verið vissir um að fá góða
bolta tO að vinna úr og það nýtti Theódór
Óskarsson sér vel og var mjög ógnandi.
Taktík Gylfa Orrasonar dómara um að
láta leikinn ganga gekk lengstum en ijótt
brot Alexanders Högnasonar á Sævari
Þór Gíslasyni um miðjan seinni hálfleik
og nokkrar ljótar tæklingar eftir það
gengu vissulega of langt og mátti refsa
með gulum spjöldum. Gylfi gaf þó ekkert
spjald í þessum leik sem hann stjómaði
af mikilli röggsemi að venju.
Skagamenn léku i gær fjórða heima-
leikinn í röð án sigurs og með sams kon-
ar sóknarleik og liðið beitti í þessum leik
er ljóst að stigin streyma ekki upp á
Skaga i bráð. Vömin er sterk en boltinn
strandar á miðjunni um ieið og
vængmenn og sóknarmenn eru svo gott
sem í feluleik. -ÓÓJ
Eystri-Rangá:
230 laxar á einni viku
Tók báðar flugurnar
Álftá á Mýrum hefur gefið I
laxa og veiðimenn sem vou ac
koma úr ánni veiddu 2 laxa og f
sjóbirtinga. Áin er orðin vatnslít
il en eitthvað er af fiski í henni.
Laxveiðin heldur áfram og löx
unum á land fjölgar. Veiðimenr
reyna og reyna, en árangurinn ei
reyndar mjög misjafn.
Fyrir nokkrum dögum vorr
tveir Bretar við veiðar í Laxá
Kjós og gekk veiðiskapurinr
ágætlega. Annar Bretinn var vic
veiðar og veiddi með „dropper'
sem sagt notaði tvær flugur, að
ferð sem erlendir veiðimenn noti
þónokkuð við veiðiámar hér.
Kastar þessi erlendi veiðimað-
ur i ána og allt í einu tekur lax
Upphefst þarna við Laxá hörku
brátta við fiskinn sem syndir upp
ána og gefur ekkert eftir. Eri
veiðimennirnir og íslenski leið
sögumaðurinn sem var með þeiir
alltaf að kíkja hvora fluguna fisk
urinn hafi nú tekið en það gengm
illa að sjá það og reyndar var þac
alveg ómögulegt.
Heldur baráttan áfram og fisk-
urinn fer miklu ofar, en að lokuir
er fiskinum landað og kom þí
sannleikurinn 1 ljós. Laxinn hafð:
tekið báðar flugumar enda hefui
hann líklega verið að hreinsa til
hylnum.
-G. Bendei
„Við þurfum ekki að kvarta
hérna við Eystri-Rangá en núna
hafa veiðst um 240 laxar og
dagsveiðin hefur verið mest 45 og
42 laxar,“ sagði Einar Lúðviksson
við Eystri-Rangá þegar DV
spurði um stöðuna í gærdag.
„Síðasta vika gaf okkur um 230
laxa og það eru laxar á hverju
flóði. Veiðimenn sem ég var að
tala við í morgun voru í miklum
fiski. Stærsti laxinn á land er 20
pund en mest eru þetta eins ár
laxar,“ sagði Einar.
Gengur vel í Ytri-Rangá
„Það eru komnir yfir hundrað
laxar hérna hjá mér og í fyrrdag
veiddust 25 laxar, í morgun veidd-
ust 10 laxar og eftir hádegi 10
líka,“ sagði Þröstur Elliðason við
Ytri-Rangá. „Þetta gengur ágæt-
lega þrátt fyrir mikinn hita við
ána núna,“ sagði Þröstur enn
fremur.
Rangárnar eru á góðri siglingu
þessa dagana og eru komnar sam-
tals með um 430 laxa, Norðurá í
Borgarfirði er efst eins og er með
600 laxa en það verður ekki
lengi með þessu áfram-
O N ^haldL
Gunnar Bender
og Stefán Kristjánsson
Flugunni kastað fyrir lax i Breiödalsá en nokkir laxar hafa veiöst f ánni og
mikiö af bleikju. DV-mynd ÞE
Ólafur Þórðarson:
Góðu sókn-
armennirnir
eru seldir
„Mér fannst þessi leikur vera
nokkuð jafn. Mikill bamingur hjá
leikmönnum, en kannski lítið um
fallegan fótbolta.
Ég veit ekki hvort þetta voru
sanngjörn úrslit, þeir voru
grimmari eftir markið, sem kom
auðvitað eins og kjaftshögg fyrir
mína menn. En mér fannst hins
vegar við vera betra liðið framan
af leiknum.
Það er alveg ljóst að vamarleik-
ur er betri en sóknarleikurinn hér
á landi. Enda alveg eðlilegt vegna
þess að um leið og góðir sóknar-
menn koma upp hér á landi em
þeir seldir utan,“ sagði Ólafur
Þórðarson, þjálfari ÍA. -esá