Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2000, Side 1
15
Þriðjudagur 18. júlí 2000
Hollendingur
kemur til KR
íslands- og bikarmeistarar KR leita nú
leiða til þess að styrkja leikmannahóp
sinn fyrir átök komandi mánaða. Á
morgun kemur til þeirra Hollendingur-
inn Arthuro ten Heuvel. Hann er 21 árs
gamall með fortíð í hollensku liðunum
Ajax, Haarlem og Volendam. Samkvæmt
umboðsmanninum Ólafi Garðarssyni
sem fer með hans mál er hér á ferðinni
fljótur og leikinn leikmaður sem hefur
aðallega spilað sem vinstri bakvörður
eða miðjumaður. Hann verður til
reynslu hjá KR í nokkra daga áður en
forráðamenn félagsins taka ákvörðun
um framhaldið.
Nicolic rekinn
frá Selfossi
C-deildarlið Selfoss hefur rekið þjálf-
ara sinn, Goran Nikolic, eftir að liðið
hefur tapað fimm leikjum í röð og er
komið niður í sjöunda sæti í deildinni.
Mestar líkur eru á að Kristinn Bjöms-
son taki við Selfossliðinu af Nicolic sem
lék einnig með Selfossi en hættir því
jafnframt í framhaldi af brottrekstrin-
um. Nicolic þjálfaði lið KVA á undan
Selfossliðinu en hann er fyrsti þjáifarinn
í efstu þremur deildunum til að missa
starf sitt í sumar.
Mattháus hættir
hjá MetroStars
Þýski knattspyrnumaðurinn
Lothar Mattháus mun ekki spila
fleiri leiki fyrir bandaríska liðið
New York MetroStars. Matthaus,
sem gekk til liðs við félagið í lok
mars, mætti ekki í æfingaferð hjá
félaginu í síðustu viku og voru for-
ráðamenn og þjálfari MetroStars
afar ósáttir við framkomu Þjóð-
verjans og vilja ekki hafa hann
lengur.
Þar með er ljóst að farsæll knatt-
spyrnuferill Lothars Matthaus,
sem orðinn er 39 ára gamall, er að
kveldi kominn og verður sjóna-
sviptir af þessum frábæra knatt-
Lothar Mattháus er farinn frá spymumanni. -ÓHÞ
MetroStars. Reuters
Blind á ÓL
Bandaríski 1500 m hlauparinn Marla
Runyan tryggði sér sæti í ólympíuliði
Bandaríkjamanna á sunnudag þegar
hún lenti í þriðja sæti í greininni, á
4:06,44 mín., á úrtökumóti fyrir ÓL í
Sydney. Þetta væri kannski ekki í frá-
sögur færandi nema hvað Runyan er
nánast blind og er nýstigin upp úr erfið-
um meiðslum. Það sem meira er, Runy-
an trúði því ekki að hún hefði náð svona
langt, ekki vegna blindunnar, heldur
meiðslanna. Hún er fyrsti löglega blindi
íþróttamaðurinn sem nær sæti í banda-
rísku ólympíuliði.
-ÓHÞ/ÓÓJ/ÓK
C-dómarar í meirihluta í efstu deild kvenna en í minnihluta í C-deild karla:
Osamræmi i domaramalum
- A-dómarinn Gylfi Þór Orrason brýtur
A-deild kvenna
Dómgæsla í Landssíma-
deild karla hefur verið mjög
góð í sumar og flestir eflaust
sammála um aö íslenska
dómararstéttin sé vel mönn-
uð þessa dagana. En það eru
ekki allir knattspymuleik-
menn landsins sem fá að
njóta dómgæslu okkar bestu
dómara.
Nú er svo komið fyrir
Landssímadeild kvenna, sem
hefur sjaldan verið skemmti-
legri en i sumar, að C-dómar-
ar eru þar i meirihluta og að
enginn A-dómari dæmdi
fyrstu 34 leiki sumarsins.
Það má líta svo á að fyrstu
tvær deildir karla hafi for-
gang á okkar bestu dómara
en það er komið út í mikið
misrétti miili kynjanna þegar
A- og B-dómarar em í mikl-
um meirihluta í C-deild karla
á sama tíma og þeir eru í
minnihluta hjá stelpunum.
DV-Sport skoðaði tölfræðina
yfir hvaða dómarar hafa
blað í stórleik KR og Breiðabliks í kvöld
dæmt í þessum tveimur
deildum í sumar og má sjá
niðurstöður þeirrar athugun-
ar í skífuritum hér til hliðar.
Til skýringar má nefha að
A-dómari dæmir í efstu deild
og neðar, B-dómari hefur rétt
til þess að dæma í B-deiId og
neðar og C-dómari hefur rétt
til þess að dæma i C-deild og
neðar. Allir þessir dómarar
hafa hins vegar rétt til þess
að dæma í efstu deild
kvenna.
karla
Tímamót á KR-velli í
kvöld
Það verða reyndar tíma-
mót í kvöld í Landssímadeild
kvenna í stórleik KR og
Breiðabliks í Frostaskjólinu.
Leikinn mun dæma Gylfi
Þór Orrason, einn okkar
bestu dómari, og er hann
fyrsti A-dómarinn til að
dæma í deildinni í sumar á
meðan sjö leikir í C-deild
karla hafa verið dæmdir af A-
dómurum í sumar. -ÓÓJ