Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2000, Blaðsíða 1
17
Miövikudagur 16, ágúst 2000
Island-Svíþjóð í kvöld kl. 18.45
í kvöld mætast lið íslendinga og Atli segir að þar sem leikurinn
við Svía sé undirbúningsleikur fyr-
ir forkeppni heimsmeistaramótsins
vilji hann nýta tækifærið til að
skoða leikmenn hetur, eins og Eið
Smára sem hefur lítið leikið með
landsliðinu að undanfórnu.
Sömuleiðis kaus hann að byrja
með Árna Gaut i markinu í þessum
leik þvi að í undanfomum fjórmn
leikjum hefur Birkir staðið í mark-
inu í tvo og hálfan leik, Árni Gaut-
ur hins vegar í einn og háifan.
Annars er byrjunarliðið skipað á
þennan hátt:
Svia á Laugardalsvellinum, en
viðureignin er liður í Norðurlanda-
mótinu í knattspyrnu. Atli Eð-
valdsson landsliðsþjálfari hélt
blaðamannafund í gærkvöld þar
sem hann tilkynnti byrjunarliðið
og útskýrði áherslur í leik íslenska
liðsins.
Árni Gautur í markinu
Byrjunarlið íslands er að mestu
leyti eins og við mátti búast. Helstu
breytingamar er val Áma Gauts
Arasonar í markmannsstöðuna og
Eiðs Smára Guðjohnsen í stöðu
framherja við hlið Ríkharðs Daða-
sonar. Helgi Sigurðsson var í þeirri
stöðu í leiknum gegn Möltu og
skoraði þrjú mörk i þeim leik.
Markvörður: Árni Gautur Arason, Ros-
enborg.
Vörtu Hermann Hreiöarsson, Wimble-
don, Eyjólfur Sverrisson, Hertha Berlin,
Pétur Marteinsson, Stabæk, og Auðun
Helgason, Viking.
Miðvallarleikmenn: Tryggvi Guð-
mundsson, Tromso, Rúnar Kristinsson,
Lilleström, Brynjar Björn Gunnarsson,
Stoke, Þórður Guðjónsson, Las Palmas.
Sáknarleikmenn: Rikharður Daðason,
Viking, Eiður Smári Guðjohnsen, Chel-
sea.
Varamenn: Birkir Kristinsson, ÍBV,
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren, Amar
Grétarsson, Lokeren, Helgi Kolviðsson,
Ulm, Helgi Sigurðsson, Panathinaikos.
Henrik Larsson á bekknum
Lið Svía er vitaskuld fimasterkt
og til að undirstrika það setja þeir
sóknarmanninn skæða, Henrik
Larsson, á bekkinn. Lið þeirra
verður stillt upp i 4-3-3 og er skip-
að eftirfarandi leikmönnum:
Markvörður: Magnus Hedman, Coventry.
Vamarmenn: Roland Nilsson, Helsing-
borg, Teddy Lucic, AIK, Patrik Anders-
son, Bayern Munchen, Olof Mellberg,
Racing Santander.
Miðvallarleikmenn: Daniel Anders-
son, Bari, Johan Mjallby, Celtic, Magnus
Svensson, Brondby.
Sóknarleikmenn: Fredrik Ljunberg,
Arsenal, Kennet Andersson, Fenerba-
hge, Marcus Allbáck, Örgryte.
Varamenn: Magnus Kihlstedt, Brann,
Michael Svensson, Halmstad, Anders
Svensson, Eifsborg, Henrik Larsson,
Celtic, Hákan Mild, Gautaborg, Stefan
Selakovic, Halmstad, Anders Svensson,
Elfsborg. -esá
U-21 landsliðin
leika í dag
ísland og Svíþjóð, U-21 liðin,
mætast á Keflavíkurvelli kl.
14.00 í dag. Sigurður Grétarsson,
þjálfari liðsins, mun þar eigast
við sitt fyrsta verkefni sem
landsliðsþjálfari og er með nýjan
hóp. Um síðustu áramót voru
þeir sem voru fæddir 1977 og
1978 „útskrifaðir" úr U-21 lands-
liðinu og nýr hópur myndaður.
Flestir leikmenn í þeim hópi eru
fæddir árin ‘79 og ‘80.
Til gamans má geta þess að
þeir leikmenn sem eru fæddir
‘81, (Ómar Jóhannsson, Guð-
mundur Viðar Mete, Helgi Valur
Daníelsson og Indriði Sigurðs-
son), eiga möguleika á að leika
með U-21 landsliðinu næstu fjög-
ur árin.
Landsleikir íslands
og Svíþjóöar
Þegar fortíðin er skoðuð kem-
ur margt forvitnilegt í ljós en
þessi lið hafa 9 sinnum mæst í
gegnum tíðina. Úrslit leikja lið-
anna eru eftirfarandi:
Lið íslands er talið á undan í úr-
slitum leikjanna:
1995, EM, í Stokkhólmi .......1-1
1994, EM, í Reykjavík.........0-1
1988, VL, í Reykjavík.........0-1
1983, VL, í Reykjavík.........0-4
1980, VL, í Halmstad .........1-1
1977, VL, í Reykjavík.........0-1
1973, VL, í Gautaborg.........0-1
1954, VL, í Kalmar............2-3
1951, VL, í Reykjavík.........4-3
VL=Vináttulandsleikur; EM=For-
keppni Evrópumótsins
Af þessu má sjá að í þessum 9
landsleikjum hafa Svíamir unn-
ið í 7 viðureignum og í tvö skipti
var niðurstaðan jafntefli. íslend-
ingar hafa þvi aldrei unnið Svía.
Ekki nóg með það, heldur hefur
ísland aldrei skorað mark gegn
Svíum á Laugardalsvellinum,
þar sem leikið verður í kvöld.
Leikurinn árið 1951 fór nefnilega
fram á gamla Melavellinum.
Síðasti leikur landanna fór
fram í Stokkhólmi árið 1995 og
var liður í forkeppni EM 1996.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli
og skoraði Amar Gunnlaugsson
mark íslands strax á 3. mínútu.
Thomas Brolin jafnaði fyrir Sví-
ana. Hvorugur þeirra leikur í
kvöld.
Góð byrjun
hjá Atla
Atli Eðvaldsson hefur byrjað
einstaklega vel sem landsliðs-
þjálfari. Hann hefur til þessa
leikið 4 leiki og þar af hafa þrír
unnist og einum lyktað með jafn-
tefli. Landsleikir undir stjórn
Atla til þessa:
Lið íslands er talið á tmdan í úr-
slitum leikjanna:
2000, NM, gegn Noregi..........0-0
2000, NM, gegn Finnlandi.......1-0
2000, NM, gegn Færeyjum .......3-2
2000, VL, gegn Möltu...........5-0