Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2000, Side 4
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2000
Búið er að gera tvær meiri háttar
breytingar á Monza-brautinni til að
bæta öryggi á henni en ekki eru all-
ir á eitt sáttir um að breytingarnar
séu til hins betra. Einnig hafa tveir
ökumenn, Salo og Fisichella, lent í
því að keyra út af við Ascari.
Breytingarnar voru gerðar á
fyrstu tveimur beygjunum, Prima
Variante og Seconda Variante, og er
það sérstaklega fyrri beygjan sem
menn deila um. Hún var upphaflega
hlykkur sem ökumennirnir gátu
skorið með þvi að keyra yfir kant-
ana.
Til að gera beygjuna öruggari
voru báðar beygjumar þrengdar til
Bland í poka
Leeds Vnited er á höttunum eftir Ali
Daei hjá Hertha Berlín. Liðiö hefur í
alllangan tíma haft augastað á
íranska landsliðsmanninum. Ef af
kaupunum veröur er talið að Leeds
þurfi að greiða um 300 milljónir fyrir
sóknarmanninn sem enn á eftir tvö
ár af samningi sínum við þýska liðið.
Merlene Ottey sigraði í 100 m hlaupi
á móti í Grikklandi í gærkvöld. Hún
hljóp á 10.99 sekúndum. Dennis
Mitchell vann sömu vegalengd hjá
körlunum, hljóp á 10,29 sekúndum
Peter Reid, knattspyrnustjóri Sund-
erland, hefur mikinn hug á þvi að
kaupa Ugo Ehiogu hjá Aston Villa.
Leikmaðurinn er metinn á 8 milljón-
ir punda.
Skoska liðið Celtic er á leikmanna-
markaðnum eins og nágrannar
þeirra i Glasgow Rangers. Celtic er
aö íhuga kaup á Alan Thompson hjá
Aston Villa sem verðlagður er á 2,5
mitljónir punda.
Svo gcetifarið að fyrirliði Barcelona,
Pep Guardiola, þurfi að gangast
undir aðgerð á öxl í kjölfar meiðsla
sem hann hlaut á æfingu með
spænska landsliðinu í fyrrakvöld. í
versta falli verður Guardiola frá t
fimm mánuði og ef það yröi niður-
staðan er þaö gífurlegt áfall fyrir
Barcelona og spænska landsliðið.
-JKS
De Boer til Rangers
Hollenski
landsliðsmaður-
inn Ronald De
Boer skrifaði í
gær undir fjög-
urra ára samning
við skosku meist-
arana í Glasgow
Rangers. De Boer
var í síðustu
viku orðaður við
Manchester
United en skoska
liðið gerði
Barcelona 600
milljóna króna
tilboð í Hollend-
inginn sem það
samþykkti. De
Boer var í 18
mánuði hjá
spænska liðinu
en þangað kom
hann frá Ajax.
Rangers hefur
ekki hætt leik-
mannakaupum
en í gær voru
sögusagnir á
kreiki að liðið
ætlaði einnig að
krækja í John
Hartson frá
Wimbledon.
-JKS
Viggó keppir
í Bretlandi
Keppnislið KTM Ísland/Coca-
Cola mun halda tii keppni í Bret-
landi um komandi helgi.
Viggó Viggósson, íslandsmeist-
ari í Moto-Cross 2000, mun keppa
á KTM 300 EXC i flokki áhuga-
manna í „Fast Eddy“- keppninni
á Hawkstone Park á sunnudag.
Keppt verður í tveimur flokkum,
flokki áhugamanna, u.þ.b. 300
keppendur, og flokki atvinnu-
manna, u.þ.b. 200 keppendur.
Viggó á góða möguleika á topp
10 sæti í keppninni og mun KTM-
liðið taka með KTM 300 hjólið
sem hann notaði tii þess að vinna
íslandsmeistaratitilinn í Moto-
Cross 2000.
Hjörtur Jónsson, sem hefur
verið keppnisstjóri undanfarin ár
i Enduro-keppnunum, mun
einnig verða með í fór ásamt
Guðmundi Bjamasyni en þeir
munu fylgjast með brautarlagn-
ingu 4-falds heimsmeistara í End-
uro, Paul Edmundson. Keppni
þessi er sú síðasta á árinu af 3 og
er líklegt að Paul Edmundson
komi til með að sjá um Breska
meistaramótið á næsta ári.
Karl Gunnlaugsson er
liðsstjóri liðsins en með í för
verða Jón Magnússon og Skúli
Ingason.
Rangárnar langefstar
Laxveiðitíminn er farinn að styttast í
annan endann, fyrstu laxveiðiánum
verður lokað á morgun fyrir veiði-
mönnum. Miklu færri laxar gengu í
veiðiámar en margir áttu von á. Laxa-
göngurnar era orðnar kraftminni en
fyrir nokkrum árum. Líklega hafa
veiðst um 23-24 þúsund laxar á móti 34
þúsund löxum fyrir ári.
Þó var það alls ekki gott veiðisumar,
en sumarið er reyndar ekki búið enn.
Það koma engar kröftugar laxagöngur
úr þessu, kannski þar sem laxveiðiár
hafa verið vatnslitlar eins og vestur í
Dölum. Laxá í Dölum er fræg fyrir góð-
ar göngur í september þegar laxinn hef-
ur verið í þaranum fyrir framan ósinn
og lætur sig hafa það að ganga í ána
þegar rigna tekur á haustin.
Laxá á Ásum stendur sig vel
Við skulum aðeins kíkja á stöðuna
núna. Rangárnar hafa gefið 3000 laxa
og era langefstar, siðan kemur Norðurá
í Borgarfirði með 1660 laxa, svo Þverá í
Borgarfirði með 1250 laxa, þá Selá í
Vopnafirði með 1050 laxa og Laxá í
Kjós með 900 laxa og hefur veiðin geng-
ið vel þar.
Sjóbirtingurinn er að hellast inn
þessa dagana og það virðist einnig vera
mikil lax í Laxá í Kjós. Síðan kemur
Grímsá í Borgarfirði með 880 laxa og
svo nokkrar veiðiár í hnapp, Laxá á
Ásum, Laxá í Leirársveit, Haffjarðará
og Blanda.
Laxá á Ásum með sínar tvær stangir
er búin að gefa yfir 700 laxa og ber höf-
uð og herðar yfir aðrar veiðiár landsins
að teknu tiiliti til stangafjölda. Ef við
tökum 10 stanga laxveiðiá sem dæmi,
þyrfti hún að gefa um 4000 laxa, til að
standast henni snúning.
Fleiri laxar en í fyrra úr Fnjóská
„Við erum komnir með 190 laxa á
land úr Fnjóksá og það er meira en allt
sumarið í fyrra, samt eru eftir 11 dag-
ar,“ sagði Sigurður Ringsted í gærdag,
er við spurðum um stöðuna í Fnjóska-
dalnum.
„Bleikjuveiðin hefur verið fin og ég
var þama við veiðar fyrr í sumar og
fékk 21 bleikju, þær stærstu vora fjögur
pund,“ sagði Sigurður.
- Síðan er mikið að gerast um helg-
ina, Sigurður, er það ekki veiðidagur
fjölskyldunnar í Fnjóksá?
„Jú, það er rétt. Við ætlum að halda
veiðidaginn um helgina og við geram
þetta í samvinnu við veiðifélag
Fnjóskár. Við ætlum að bjóða börnum
og bamabörnum, svo og öðrum nánum
ættingjum til veiða á laugardaginn og
sunnudaginn. Það á að mæta í veiðihús-
ið Flúðasel klukkan 9 árdegis hvom
dag. Þar era veittar allar upplýsingar
og veiðimenn úr Flúðum verða til að
leiðbeina og sýna réttu handtökin til að
ná þeim stóra,“ sagði Sigurður enn
fremur.
-G. Bender
Ekki er nóg meö aö fáir laxar veiöist í íslenskum ám þessa dagana
heldur eru sumir þeirra Ijótir. Hér er Vigfús Orrason meö hnúölax
sem hann veiddi í Hvammsá, hliðará Selár f Vopnafirði, á dögunum.
^ Formúlu 1 keppnin í Monza:
Ahyggjur af öryggi
að hægja á bílunum. Mun þrengra
er nú á milli horna og þegar keyrt
er út úr seinni beygjunni er staðan
á bílnum allt önnur en þegar fyrst
var komið inn í beygjuna.
Jean Alesi prófaði brautina áður
en æfingar hófust á þriðjudag og
var ánægður með breytingamar.
„Áður varðst þú að bremsa fyrir
fyrstu beygjuna og gefa svo í yfir
kantana. Núna er þetta þannig að
þú bremsar þangað til 80 metrar eru
í homið og þá beygir þú til hægri og
svo vinstri í stað vinstri og hægri
áður. Þú gerir þetta í fyrsta gír og
ferð lítils háttar upp á kantana en
ekki yfir eins og áður. Ef þú lendir
svo í vandræðum er hægt að keyra
út af á gömlu brautina. Breytingin
er fullkomnlega örugg.“
Ekki er víst að Alesi hafi tekið
það inn í myndina að hann var einn
og yfirgefinn við þessar prófanir en
ekki 21 bíll á fullu gasi í kringum
hann. Hinir ökumennirnir hófu
prófanir á þriðjudag og eru ekki
eins sáttir. Prima Variante er fyrsta
beygjan eftir ræsingu og henni er
náð nákvæmlega 10 sekúndum eftir
að bOamir yfirgefa ráslínuna. Þess
vegna hafa margir áhyggjur af þvi
hvað muni gerast á fyrsta hring og
að einhverjir bílar muni örugglega
ekki komast óskemmdir út úr fyrstu
beygjunni.
Olivier Panis sagðist hafa miklar
áhyggjur af þessu. „Það verða
nokkrir sem fara þarna út af þar
sem hún er of þröng. Ég held ekki
að hún sé örugg.“ Sumir hafa líka
áhyggjur af því að margir geti feng-
ið refsingu á þessum stað. Coult-
hard sagðist ekki geta ímyndað sér
hvað margir fengju refsingu þama.
Hugsanlega munu þó fjögurra daga
æfingar, sem núna standa yfir, gera
ökumönnunum kleift að læra inn á
beygjuna en ef ekki eru líkur á því
að keppnin á Monza verði söguleg.
-NG
íslandsmeistarar Víkings í
borðtennis taka þátt í Evr-
ópukeppni meistaraliða þetta
áriö og í fyrstu umferð dróg-
ust þeir gegn austurríska lið-
inu Linz. Viðureignin fer fram
í íþróttahúsi TBR í október
næstkomandi.
Frá vinstri: Sigurður Jóns-
son, Guömundur Stephen-
sen, Adam Haröarson og
Markús Árnason.
Frakkar verða fyrir blóðtöku:
Deschamps hættir
meö landsliöinu
Didier Deschamps hefur ákveðið
að hætta að leika með frönsku
heims- og Evrópumeisturunum í
knattspymu. Kveðjuleikur hans
verður gegn Englendingum á Stade
de France-leikvanginum á laugar-
daginn kemur. Það er franska
íþróttablaðið I’Equipe sem greindi
frá þessu í gær en Deschamps mun
tilkynna þessa ákvörðun sjálfur fyr-
ir leikinn gegn Englendingum.
Deschamps á að baki 102 lands-
leiki með Frökkum en fyrirliði hef-
ur hann verið í 55 leikjum. Hann
hóf atvinnumannaferilinn hjá
Nantes 1985 en fjórum árum síðar lá
leiðin til Marseille og Evrópumeist-
ari varð hann með liðinu 1993.
Hann lék síðan með ítalska liðinu
Juventus í fimm ár en síðasta tima-
bili eyddi hann hjá Chelsea. I sum-
ar keypti Valencia hann fyrir 450
milljónir.
-JKS
18 . - - ----.
Sport
dvsport@ff.is