Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
•4
A
21 árs bið á enda?
Michael
Schumacher er
maðurinn sem
getur bundið
enda á 21 árs bið
Ferrari eftir
heimsmeistara-
titli í Formulu 1
kappakstri.
Ferrari átti
síðast heims-
meistara 1979 en
um næstu hegi
getur Schumach-
er tryggt heims-
meistaratitilinn
er næstsíðasta
keppni Formulu
1 keppninnar fer
fram í Japan.
Schumacher
nægir ekki að-
eins að sigra í
keppninni held-
ur þarf helsti
keppinautur
hans, Mika
Hakkinen að
ganga frekar illa.
Einmitt þetta
gerðist í síöustu
keppni og ríkir
mikil spenna fyr-
ir keppnina í
Japan. -SK
Frá undírritun samnings KKÍ og Kjöríss til þriggja ára í gær.
DV-mynd E.ÓI
Kjörís í stað eggjabændanna
Körfuknattleikssam-
band íslands og Kjörís
hafa komist að sam-
komulagi og undirritað
þriggja ára samning
þess efnis að Kjörís
verði styrktaraðili bik-
arkeppninnar í
körfuknattleik sem und-
anfarin ár hefur verið
styrkt af Samtökum
eggjabænda og nefnd
Eggjabikarinn.
Baráttan um Kjörís-
bikarinn hefst annað
kvöld. Um bikarinn
leika 16 bestu liðin frá
leiktíðinni í fyrra. Lið
númer 16 mætir liði
númer 1 og svo koll af
kolli. Liðin leika fyrst á
heimavelli þess liðs sem
varð neðar í röðinni í
fyrra en um er að ræða
úrvalsdeildarliðin 12 og
fjögur efstu liðin í 1.
deild karla.
Kjörís er þriðji styrkt-
araðili bikarkeppninnar
í körfuknattleik en áður
hafa íslenskar getraunir
og Samtök eggjabænda
styrkt keppnina og hún
borið nafn fyrirtækj-
anna.
í fyrstu leikjum
Kjörísbikarsins annað
kvöld mætast ÍA-
Njarðvík, Stjarnan-KR,
KFÍ-Þór Ak„ SnæfeU-
Tindastóll og Þór Þ.-
Grindavík. Liðin leika
síðan á ný á sunnu-
dagskvöld. 8 liða úrslit,
undanúrslit og úrsiita-
leikur eru síðan á
dagskrá helgina 19.-21.
október. -SK
Formula 1:
Ecclestone
neitar að
selja
Bernie Ecclestone svarar
orðróminum um að bílarisarnir
í Formulu 1 ætli að kaupa hlut í
sjónvarpsréttarfyrirtæki formúl-
unnar á þann veg að hann ætli
ekki að selja.
Bílaframleiðendurnir sem
taldir eru vera DaimlerChrysler,
Fiat, Ford, Renault og BMW
hittust á bDasýningunni í París í
gær til að ræða hugsanlegt boð
þeirra í 30% hlut í SLEC,
fyrirtæki Bernies Ecclestones
sem á allan sjónvarps- og
auglýsingarétt af formúlunni.
Ecclestone á 50% í SLEC eftir að
hafa selt þýska fjölmiðlarisanum
EM.
Hann hefur sagt BBC Online
að hann hafi engan áhuga á að
losa sig við meira. „Enginn
hefur talað um að kaupa bréfm.
Við munum ekki selja okkar
hlut í fyrirtækinu," sagði
Ecclestone. „Það verður fundur
meðal framleiðendanna en ég
veit ekki hverjir mæta og hvort
hann verður í dag.“
Það lítur því út fyrir að
framleiðendurnir verði að leita á
náðir EM.TV ef þeir viija
eignast hlut. Þýska fyrirtækið
hefur orðið fyrir vonbrigðum
með fjárfestinguna og gæti þvi
haft áhuga.
Talið er að bílarisarnir vilji
kaupa sig inn í formúluna til að
tryggja fjárfestingu sína í henni
og einnig hafa af því tekjur. Þeir
myndu líklega vinna með
Ecclestone sem hefur heitið að
stjóma formúlunni meðan hann
er enn þá ofar moldu.
Hvannadalsá í ísafjarðardjúpi:
Hrun
„Laxveiðin var svakalega róleg í
Hvannadalsá í sumar. Ætli það
hafi ekki komið á land um 10 laxar
og mjög lítið af bleikju, nánast
ekki neitt,“ sagði veiðimaður sem
hefur veitt þá nokkra í Hvanna-
dalsá í gegnum tíðina.
Reyndar má segja það sama um
laxveiðiámar í Djúpinu að engin á
hafi verið slappari en Hvanna-
dalsáin og niðurstaða sumarsins er
hrun.
„Það gengu ekki margir laxar í
hana í sumar. Það er eitthvað
meira en lítiö að gerast. Þegar
Hvannadalsá gaf best var hún í 200
löxum og munurinn er orðinn ansi
mikill," sagði veiðimaður sem
veiddi lax í henni í sumar, einn af
þeim fáu sem komu á land.
í Laugardalsá í ísafjarðardjúpi
veiddust 155 laxar og Langadalsá,
semlíkaerí Djúpinu, gaf ámilli
70 og 80 laxa.
Bleikjuveiðin var góð í Langa-
dalsánni, þó svo hún renni í sjó í
næsta nágrenni við Hvannadalsá
þar sem lítið veiddist.
Krossá gaf aðeins 33 iaxa
„Veiðin gekk ekki vel hjá okkur,
við fengum aðeins 33 laxa og það er
ekki mikið. Það er alls staðar
minni veiði héma í Dölunum í lax-
inum,“ sagði Trausti Bjamason,
bóndi á Á á Skarðsströnd, er við
spurðum um lokatölumar úr
Krossá á Skarðsströnd.
„Ég veit ekki hvort það verður
dregið á í klak núna héma í veiði-
ánum. Það vantar meiri lax til
þess,“ sagði Trausti.
Það er sama hversu vel er rýnt í
veiðitölur úr Dölunum, alls staðar
er laxveiðin minni en áður. í
sumum veiðiánum er hún næstum
helmingi minni. Nægir þar að
nefna Haukadalsá og Laxá í Döl-
um.
-G. Bender
„Gassinn*
með birting
Guömundur R. Jónsson, KR-ingur og liösstjóri landsliösins í knattspyrnu,
meö 7,5 punda sjóbirting úr Laxá í Kjós. Með honum er sonur hans, Elías,
meö annan minni.
Nokkrir iþróttamenn sem
tóku þátt í Ólympíuleikunum í
Sydney hafa ekki skilað sér í
ílugvélar sem áttu að flytja þá
frá Ástralíu. Hér má nefna box-
ara frá Gabon, fjóra íþróttamenn
frá Georgíu og lyftingamann frá
Túnis.
Allir þessir íþróttamenn áttu
pantað far til síns heima og var
farangur sumra þeirra kominn
um borð í flugvélar er þeir hlupu
á brott. íþróttamennirnir hafa
.vegabréfsáritun sem gildir til 1.
nóvember en hafi þeir ekki skil-
að sér þá verður þeirra leitað.
Michael Owen, sóknarmaður
Liverpool í enska boltanum, hef-
ur i fyrsta skipti lýst því yfir að
hann hafi áhuga á að leika með
öðru liði en Liverpool. Dietmar
Hamann, Þjóðverjinn í liði
Liverpooi, hefur hvatt Owen til
að líta í kringum sig og er ekki
ólíklegt að þessi snjalli sóknar-
leikmaður fari að hugsa sér til
hreyfings.
Michael Owen verður í eldlín-
unni um næstu helgi þegar hann
verður í fremstu röð ásamt
Andy Cole er Englendingar
mæta Þjóðverjum í undankeppni
HM.
-SK