Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Blaðsíða 18
2 > í f ó k u s Hjátrú er eitthvað sem allir Islendingar ættu að tileinka sér að nýju eftir að hafa vanrækt þá ágætu hefð um langt skeið. í dag er föstu- dagurinn 13. október sem gerist víst ekki á hverjum degi. Dagurinn í dag er sem sagt til- valinn til að krydda aðeins tilveruna og gerast dálítið frík. Og það er alveg á hreinu að í fram- tfðinni gengur þú ekki undir stiga, þú passar þig á svörtum köttum og svona til að krydda þetta aðeins færðu þér eitt stykki héraloppu til að þú sért algerlega seif. Þar með er þó ekki allt talið. Ef þú ætlar algerlega að gull- tryggja þig skaltu passa þig á því að kveikja ekki í sígarettunni með kertisloga því þá drep- urðu sjómann, ekki máttu brjóta spegil því þá hvílir ógæfan á þér í sjö ár og svo verðurðu að passa þig á að snúa skeifunni þinni rétt, ann- ars fer allt i hönk. Sem betur fer er þó að koma vetur þvi annars þyrftirðu að passa þig sérstaklega á þvi að drepa ekki járnsmið, Is- lendingum hefur aldrei vegnað vel ef þeir verða fyrir því óhappi. Þetta ætti að duga. dag- urinn í dag og þeir næstu eru ekki vel til falln- ir til að þrjóta þessar gullnu reglur. ú r f ó k u s Útvarpsþátturinn Ding Dong er giörsamlega bú- inn að vera og stjórnendur hans líka, fyndnasti maður íslands og hinn ágæti útvarpsmaður Doddi litli. Frá því að Radíó fór í loftið fyrr á árinu höfum við þurft að sitja undir þeim félögum á þesta tíma i útvarpinu og þó þeir reyni og reyni eru þeir hreinlega ekki neitt fyndnir. Á íslandi höf- um við einn útvarpsþátt á þessum nótum sem gengur upp og sá ber heitið Tvíhöfði. Aðrir kom- ast ekki í hálfkvisti við þá og, eins og gefur að skilja, hljóta þeir að lenda í því að taka upp sömu dagskrárliðina eða að minnsta kosti svipaða. Þetta einkennir Ding Dong og er alveg hreint sorglegt að heyra hvernig þeir þæði lepja allt upp eftir Tvíhöfða og eins hversu illa það er gert. Þar sem þeir félagar eru ekki fyndnir er alveg furðu- legt hvers vegna þeim var fengið þetta verkefni þegar þeir geta ekki komist sómasamlega frá hlutum eins og það sem þeir kalla Mál dagsins eða símaöt sem snúast öll um kúk og piss. Ef stefna stöðvarinnar er á annað borð að halda úti spjallþætti á daginn væri þá ekki máliö að fá menn sem hafa um eitthvað að spjalla? Mætti þá heldur biðja um að stöðvunum væri skipt aft- ur upp svo maöur geti að minnsta kosti skipt á milli þegar þeir fara að tala. Nú er komið haust og tekið að kólna all svakalega í veðri. Sandalarnir og stuttu pilsin komin lengst inn í skáp og vetrarfötin frá því í fyrra komin fremst í hillurnar. En hverju skal klæðast? Verða fórnarlömb tískunnar með blöðrubólgu og kalbletti á óþægilegum stöðum fram á vor eða leyfir tískan í vetur klæðnað sem hæfir veðrátt unni? Eru það úlpur eða kápur, pils eða buxur, háir hælar eða lágir? Afgreiðsludöm urnar í tískuvöruverslununum vita líklega manna best hvað verður í tísku í vetur og hér á eftir eru þær spurðar spjörunum úr um það auk þess hvað þær eru sjálfar hrifnar af. Nafn/búö? Adda í Dýrinu. / hvernig fötum ertu? Ég er I fötum úr þúðinni, síðum Humanoid buxum og ullarpeysu frá Laundry Industry. Strigaskórnir eru mfnir eigin. Hver eru uppáhaldsfötin þín dg/eöa merki? Það eru svo mörg merki. Hér í búðinni er það til dæmis Isabella Marant. Annars eru þaö Antonio Berardi, Alberta Ferretti og Chloe hönnunin frá McCartney. Restir eru að gera góða hluti. Ég er buxnakona alveg frá a til ö. Hvaö er í tísku í vetur? Litirnir sem eru í tísku í vetur eru grænn, rauður, appelsínugulur og beislitaður, svo er það alltaf svartur. I vetur á fólk að klæða sig vel, dúða sig I peysu, húfu, vettlinga og trefil. Stíllinn f vetur er sem sagt að klæða sig vel og skynsamlega. Uppáhaldsbúðin þín fyrir utan búöina sem þú vinnur í? Spúútnik, þar sem maður getur gramsað, og Urban Outfitters í London. Hvaö er þaö mesta sem einn kúnni hefur eytt í búðinni þinni? Líklega um sextíu þúsund krónur. íslendingar eru ekki mikið fýrir að versla f stórum upp- hæðum. Þeir eru meira fyrir að geyma og skipta greiðslum. Við erum öll á lánum, brjóstin, fötin, jeppinn og málsverðurinn á Rex er á Visa. Nafn/búö? Heiðdís Anna í Smash. / hvernig fötum ertu? Ég er í bol og peysu frá Extra.is, sem er fs- lensk hönnun, og buxum frá Deres. Hver eru uppáhaldsfötin þín og/eöa merki? Mér finnst fötin frá Extra.is mjög flott en ég er samt engin merkjamanneskja. Ég hef gaman af öllum fötum en klæðist mest buxum þessa dagana. Uppáhaldsflfkin er kápa sem ég var að kaupa mér frá Extra.is. Hvaö er í tísku í vetur? Að vera maður sjálfur. Tískan fer mikið eft- ir smekk hvers og eins. Kamellitur og bux- ur svipaðar frá því sem var á hippatímabil- inu er áberandi í vetur en í bland við nýtt. Hver er uppáhaldsbúöin þín fyrir utan búö- ina sem þú vinnur i? Morgan f Kringlunni. Hvaö er þaö mesta sem einn kúnni hefur eytt í búöinni þinni? Einhvern tímann kom sjómaður sem keypti föt fyrir fjörutíu eða fimmtfu þúsund krón- ur. Nafn/búö? Inga í Spútnik. / hvernig fötum ertu? Ég er f kjól, netsokkabuxum og bol úr búð- inni. Hver eru uppáhaldsfötin þín og/eöa merki? Ég er mikil kjólakona og er mikið fyrir litrík föt og glimmer og glans. Hvaö er í tísku í vetur? Það er mikið um föt eins og voru áberandi á áttunda áratugnum, bolir með pönkútliti. leðurpils og notuð gallapils sem eru saum- uð úr buxum. Kjólar eru ekki mikið í tfsku nema helst skyrtukjólar. Gróf belti og gling- ur eru Ifka mjög vinsæl og f okkar búð eru það allavega litir og mynstur sem eru ráð- andi. Svo er það gullið; nælur, armbönd og sfðir eyrnalokkar. Hver er uppáhaldsbúöin þín fyrir utan búö- ina sem þú vinnur í? Karen Millen er búðin sem mig langar til að versla í þegar ég verð rík. Hvaö er þaö mesta sem einn kúnni hefur eytt í búöinni þinni? Mesta sem ég veit um eru þrjátíu þúsund krónur. Nafn/búö? Kolbrún f Top Shop. í hvernig fötum ertu? Ég er f svörtum Top Shop rúllukragabol, gallabuxum og með belti. Ég á skóna sjálf og það eru bara þægilegir vinnuskór. Hver eru uppáhaldsfötin þín og/eöa merki? Ég er mest í Top Shop fötunum og er yfir- leitt í gallabuxum eða pilsum yfir buxur. Hvaö er í tísku í vetur? Kamellitur er mjög ríkjandi og einnig er mikið um beisaða og brúna liti. Rúllukraga- peysur og tweedbuxur eru líka inni f vetur. Stígvél sem eru ekki með háum hæl held- ur frekar f laginu eins og venjuleg stfgvél, bara fínni, eru vinsæl, sem og önnur stíg- vél. Uppáhaldsbúöin þín fyrir utan búöina sem þú vinnur i? Búðir með öðruvfsi föt og notuð föt eins og Spútnik og Dýrið. Hvaö er þaö mesta sem einn kúnni hefur eytt í búöinni þinni Ég hef afgreitt mest fyrir fimmtfu þúsund krónur. hverjir voru hvar Klaustrið heldur sinu striki með nýjum skemmt- anastjórum (Gústa og Örvari) og nýju dansgólfi. Þar var sjóðheitt Salsakvöld á föstudaginn í sam- vinnu við FM 957 og Sauza þar sem Dj Carlos spilaði salsatónlist og Jorge sýndi salsadansa, Sumarstúlkur Bylgjunnar og Séð og heyrt héldu veislu eftir krýninguna f fylgd með Ásgeiri Kol- beins Bylgjukalli, Jóhanni Erni dansara, og Gumma Gonzales. Bjarki Sig. og Hvati, útvarps- menn á fm957, voru á sveimi og FM trukkurinn stóð blikkandi fyrir utan - hvers vegna, voru þeir að flýta sér? Heiða Valmikistúlka glóði að vanda og Marinó Sveins athafnamaður leit yfir heiðar og hitti Árna Elliott plötusnúð og skemm't- anastjóra frá Akureyri. Sumir sáu vfst til Clark Kent???? Á laugardaginn mættu svo Barði í Bang Gang og Maggi Jóns Gus Gus gaur. Utandeildarliðið FC Kiddi hélt uppskeruhátíð í kjallaranum og þar gaf að líta Jóa Ara barþjón, Andrés á Prikinu og Ófeig af Lindinni. Siggi John, eigandi hinnar um- deildu verslunar Taboo, og Magga, konan hans, voru ánægð með nýja gólfið sem og Bjöm Steph- ensen módel og herra Skandinav- ía og Marín Manda sem kom Fjölnislaus í þetta skiptiö (ekki eru þau hætt saman eina ferðina enn?). Það var fullt út úr dyrum á Astró um sfðustu helgi og segja kunnugir að það sé greinilegt að fólk sé fegið að vera komið „heim". Ingvar Guðmunds., eig- andi Salatbarsins, hélt uppi fjörinu hjá stórum hópi kvenna alla helgina, Play- boy-stelpurnar Arna og Díana Dúa voru glæsilegar að vanda ásamt vinkonum sfnum, Heiðar Austmann, Gassi-gír, Auður, Pétur Árna, Kalli Lú, Jói Jó, Haraldur Daði, Erling, Þór Bæring (sem hélt steggjapartí fyrir bróðir sinn) og Hulda Bjarna voru i rífandi stuði. Stöðvar 2 liðið var ekki jafnglatt eftir fjölmiðlamótið f knattspyrnu karla. Fremstur í flokki stöðvarmanna hinn knái og alltaf káti Valtýr Björn. Simbi og Svavar Örn snigluðust um staðinn og voru að tískulöggast, Eva flugfreyja og vinkonur voru á staðnum eins og Elva „Miss Teen", Hera og vinkonur þeirra. Andri Már Heimsferðakóng- ur, Þorsteinn og Gummi Ben voru á kantinum, Nanna „Mbl.is" og Ya- smine voru sjóðheitar á troðfullu dansgólfi. Bjarni og Jói dansari spjölluðu saman eins og kraftakarl- arnir Magnús Ver, Sölvi Fannar, Stjáni „Fittness", Hjalti Úrsus og Andrés „stóri". Enginn þeirra var þó víst jafnflottur og Bjössi „World Class" meö vatn f glasi. Strákarnir Valli og Siggl Hlö tóku sófann f beinni annað kvöldið og fylgdu þeim Dóra, Sigga Halla, Dóri Ijósmyndari og allt hitt liðið sem lyftir sér víst aðeins upp eftir showið. Hlín Hawain Tropic pæja og vinkonur voru brosandi út f eitt alla helgina. Jón Gunnar Geirdal og Gummi Gonza- les voru uppstrflaðir að vanda. Einnig sást til Gunnu Inwear pæju og vinkvenna, GK-drottning- anna, Brynju „Carter", Ingó (var hann ekki í Rikshaw fýrir hundrað árum?), Magga, Kalla og hins staffsins af Brasserí Borg. Þarna sást auk þess til Önnu og Svabba ásamt einhverju eld- hressu Planet-liöi, Ástu Björg Talstelpu og vin- konum, Siggu, Mundu, Heiðu Valmiki-skutlu og Jóns Kára athafnamanns. Á Astro sást líka glitta í Árna Gunnar og Sunnu, Clinton-bræður, Þór Jón háloftahetju, Hjalta í Betrunarhúsinu, Hebba Skímóstrák, Röggu konu Eiðs Smára og vinkonur og ívan Burkna stflista. Seinna sást til Philippe Golden Eye og Láru, Luca Costic fót- boltaþjálfara, Bryndísar Hölm, Gauja og Einars Kristjáns, Rúnars Róberts og Sonju. Vinirnir Unnar í Japis, Óli Kani, Óli f B.T-tölvum og Jón Geir FM-kall voru pollró- legir á efri hæðinni. Ingi, Öggi Euróvisfonkall og Helgi Björns voru í rífandi stuði. Unnar úr hr. ísland- keppninni var þarna og Ei- ríkur f Sambfóunum, um- vafinn stúlkum rétt eins og venjulega, Ragna og Halldór Bachmann lög- fræðingur, Ingi I Sælunni og vinkonur hans, hver annarri fríðari á snopp- unni. Tíska* Gæði* Betra verð 18 f Ó k U S 13. október 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.