Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2000, Page 5
Ifókus Vikan 13. október til 19. október What Lies Beneath er hrollvekja úr smiðju Robert Zemeckis. Hann fAlA' +:i liðs við sig Harrison zord og hina íðilfögru lichelle Pfeiffer og jgist hafa reynt að setja sig í spor tchcock við tökur á myndinni. í kvöld sýna sgnboginn, Stjörnubíó og Sambíóin af- :sturinn. ið sr að hún skjóti áhorfendum skelk í bringu með sígildum brögðum og óþægilegri þögn, fremur en tæknibrellum og hávaða eins og nú tiðkast i Hollívúdd. Framleið- andi og leikstjóri myndarinnar er Robert Zemeckis. Hann segist hafa reynt að hugsa um hvað meistari hryllingsmyndanna, Al- fred Hitchcock, myndi gera ef hann hefði nútímatækni, og unn- ið eftir því. Zemeckis er frægast- ur fyrir að leikstýra Forrest Gump og Back to the Future I & II. Mikið af samstarfsfólki hans frá gerð Forrest Gump kem- ur hér við sögu, en þess er ekki að vænta að What Lies Beneath komist í hálfkvist við vinsældir hennar, þrátt fyrir að Cynthia Martinez hafi séð um blóma- skreytingarnar. Hvað býr undir niðri? Dr. Norman Spencer (Harrison Ford) hefur slæma samvisku yfir mishreinu mjöli í pokahorninu. Það er rúmt ár síðan hann sleit trúnaði við konu sína, Claire (Michelle Pfeiffer), og kíkti upp í rúm til annarrar kvensu, en um það er spúsa hans enn grunlaus. Framhjáhaldi Normans er lokið og allt virðist ganga honum í hag- inn, en nú tekur Claire að heyra undarlegar raddir og sjá svip ungrar konu á rölti um heimili sitt og nágrenni. Norman tekur ekki mark á umkvörtunum sinn- ar heittelskuðu, vísar þeim frá á grundvelli móðursýki og ímynd- unarveiki og sendir hana á fund sálfræðings. Smám saman verður Claire ljóst að konan dularfulla lætur ekki hunsa sig og vill ræða betur við þau hjónin. Gaman að hryllingi Aðalleikarar myndarinnar eru Harrison Ford og Michelle Pfeiffer, en þau hljóta dygga aðstoð frá fjöl- breyttu liði aukaleikara. Bæði eru þau miklar kempur i bransanum. Ford fékk óvænt tækifæri til að leika Hans Óla í Stjörnustríði George Lucas og hefur síðan þá leikið í of mörg- um stórmyndum. Sömu sögu er að segja af Pfeiffer, hún hefur skilað ólíkum hlutverkum í margri milljónaræmunni. Legið undir kókaínkónginum Tony Montana og barist við Batman í kattarlíki til dæmis. Pfeiffer seg- ist hafa haft mikinn áhuga á hryllingsmyndum frá unga aldri og þótt skemmtilegt að fá tæki- færi til að prófa að leika í slíkri undir stjórn Zemeckis. bíllinn...ferðalagiö...fjallahjólið...hljómtækin...tölvan...og allt hitt...tryggðu þitt hjá TM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.