Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Page 1
15
íl UEFA-BIKARINH
Úrslit í gærkvöld:
2. umferð - fyrri leikir
Tirol Innsbruck - Stuttgart . . 1-0
Lillestrom - Alaves ........1-3
Hertha Berlín-Amica Wronki 3-1
Inter Milan - Vitesse.......0-0
Rauöa Stjarnan - Celta Vigo . 1-0
OFI Krít - Slavia Prag.....2-2
AEK Aþena - Herfolge.......5-0
Basel - Feyenoord ..........1-2
Halmstad - 1860 Munchen . . . 3-2
Parma - Dinamo Zagreb......2-0
Espanyol - Grazer...........4-0
Liverpool - Slovan Liberec . . . 1-0
Lausanne - Ajax ............1-0
Wisla Krakow - Porto.......0-0
Rayo Vallecano - Viborg .... 1-0
Nantes - MTK Búdapest......2-1
Boavista - Roma ............x-x
Bordeaux - Celtic..........1-1
Lokamotiv - ASK Inter ......1-0
Club Brugge - St. Gallen .... 2-1
Blcsnd í poka
Rúnar Kristinsson var í byrjunar-
liði Lilleström sem tapaði fyrir
spænska liðinu Alaves á heimavelli.
Rúnar fór síðan af leikvelli á 78. mín-
útu.
Eyjólfur Sverrisson lék ekki meö
Hertha Berlín en liðið vann pólska
liðið Amica Wronki á Ólympíuleik-
vanginum í Berlín. Aðeins 13 þúsund
áhorfendur voru á leiknum.
Emilie Heskey tryggði Liverpool sig-
ur á Slovan Liberec tveimur mínút-
um fyrir leikslok. Robbie Fowler mis-
notaði vítaspyrnu. Tékkneska liðið
lék skynsamlegan leik og verður síð-
ari leikurinn örugglega Liverpool erf-
iður.
Celtic stendur ágætlega að vígi eftir
jafntefli við Bordeaux á útivelli. Það
var Henrik Larsson sem jafnaði fyr-
ir skoska liðið úr vítaspyrnu í fyrri
hálfleik.
-JKS
Naumur sigur
fí
Emeilie Heskey
landaði sigrinum
fyrir Liverpool
skömmu fyrir
leikslok í fyrri
leiknum gegn
Slovan Liberec í
UEFA-bikarnum á
Anfield Road í
gærkvöld.
Reuters
Winne ekki með KR
Nú er orðið endanlega ljóst að Skotinn David Winnie
kemur ekki aftur til íslandsmeistara KR í knattspyrnu.
Ekki er þó útilokað að kappinn leiki hér á landi næsta
sumar því lið af höfuðborgarsvæðinu í 1. deild hafa lýst
yfir áhuga á að fá hann í sínar raðir. Winne er ekki að
leika í Skotlandi í vetur en hann ákvað að taka sér alveg
hvíld frá knattspyrnuiðkun.
-JKS
Geir komst ekki í úrslit
Geir Sverrisson komst ekki í úrslit í 200 metra hlaupi
á ólympíumóti fatlaðra í Sydney í gær. Hann hljóp í und-
anúrslitum á 23,50 sekúndum og varð í 9. sæti. Gunnar
Öm Ólafsson synti 200 metra skriðsund í undanrásum á
2:22,01 mínútum og komst ekki í úrslit. Pálmar Guð-
mundsson synti 200 metra skriðsund á 2:23,45 mínútum
og komst ekki í úrslit. -JKS
Kiel tapaði
Þýskalandsmeistararnir Kiel í
handknattleik töpuðu á heimavelli
fyrir Wallau Massenheim, 26-28, í
úrvalsdeildinni í gærkvöld. Kiel
hafði eins marks forystu i hálfleik,
13-12, en gestimir léku mjög vel í
síðari hálfleik, þó enginn betur en
markvörðurinn Zoran Djoric. Wis-
lander og Perunicic skoruðu 7 mörk
hvor fyrir Kiel og þeir Immel og
Rose 7 mörk hvor fyrir WaOau.
Magdeburg og Wallau eru efst með
16 stig.
-JKS
Gísli víkur úr þjálfarastólnum
Jón Arnar Magnússon.
Jón Arnar Magnússon frjálsíþróttamaður er
ekki hættur að keppa og hefur ákveðið að halda
áfram í minnst tvö ár en hins vegar er samstarfi
hans og Gísla Sigurðssonar þjálfara lokið. „Verk-
efni okkar Gísla var einfaldlega búið og nú er ég
hka kominn suður en hann enn fyrir norðan. Það
er líka alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Það
þýðir ekkert að hætta. Ég ætla kannski að hluta
að þjálfa mig sjálfur en ætla að leita til sérfræð-
inga og reyndra manna í greinunum hér heim. Ég
er búinn að vera með einn þjálfara lengi og flest-
ir aðrir í þessu eru með fleiri en einn. Ég hef náð
mér vel af meiðslunum og læknisskoðun sýndi að
ég er við hestaheilsu," sagði Jón Amar í gær. -ÓK
Undankeppni HM kvenna í handknattleik:
Báðir leikirnir við
Slóvena hér á landi
Samningar hafa tekist um að báöir leikir íslands og Slóveníu í und-
ankeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik fari fram hér á
landi. Leikið verður 1. og 3. desember. Sigurvegarinn úr þesari viðureign
mætir síðan þjóð frá úrslitakeppni Evrópumótsins sem verður í desem-
ber í Rúmeníu en leikimir verða í mai á vori komanda. Verkefnið gegn
Slóvenum er verðugt en spennandi. Undirbúningur fyrir leikina hefst af
fullum krafti þegar hlé verður gert á deildinni 12. nóvember en hún hefst
að nýju eftir áramótin. -JKS