Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2000, Page 4
18
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
'■
Jenson Button hefur verið boðið að taka þátt í nýrri railkeppni á
Kanaríeyjum sem er kölluð „The Race of Champions."
Keppnin verður með útsláttarfyrirkomulagi og keppa þrír frá
hverju landi. Keppnin fer fram 8.-10. desember. „Jenson hefur mik-
inn áhuga á að koma,“ segir Fredrik Johnson sem skipuleggur
keppnina. „Hann bíður nú eftir jáyrði frá Frank Williams og við
erum vongóðir um að hann fái að taka þátt.“
Fyrir Bandaríkin keppa Danny Sullivan, sigurvegari úr Indy
500, og World Superbike meistarinn Colin „Texan Tomado" Ed-
wards. Fyrir Finnland keppir fjórfaldi heimsmeistarinn
Tommi Makinen og fyrrum Le Mans sigurvegarinn JJ Lehto.
Meðal þeirra sem keppa fyrir ítaliu er GP500 hetjan Valentino
Rossi. Ef Button tekur þátt koma ráð frá fóður hans sér eflaust
vel en hann var meistari í rallíkrossi. -NG
- bræla á miðunum hjá skipstjóra Stoke City
Bromwich Albion er í flórða sæti
1. deildar með 29 stig eftir 15 leiki
eftir að hafa verið í botnbaráttu á
síðasta keppnistimabili.
Megson var sem kunnugt er
rekinn frá Stoke í nóvember á síð-
asta ári, til þess að rýma fyrir
Guðjóni Þórðarsyni, þrátt fyrir að
hafa verið valinn knattspymu-
stjóri októbermánaðar skömmu
áður. Stoke var, undir stjórn Meg-
sons, í sjöunda sæti deildarinnar
með 29 stig eftir 17 leiki. Hann
fékk ekkert fjármagn þann tima
sem hann var hjá félaginu og
þurfti oftar en ekki að selja sína
bestu leikmenn upp 1 skuldir fé-
lagins.
140 milljónir króna
Inn kom Guðjón Þórðarson,
ferskur eftir að hafa gert frábæra
hluti með íslenska landsliðið í tvö
ár þar á undan, og með honum
fjársterkir íslendingar sem
keyptu stóran hlut í félaginu.
Guðjón fékk fullar hendur fiár,
keypti íslensku landsliðsmennina
Brynjar Gunnarsson og Bjarna
Guðjónsson fyrir tæpar 100 millj-
ónir, fékk úrvalsdeildarleikmenn-
ina Frode Kippe og Arnar Qunn-
laugsson lánaða og endaði að lok-
um í sjötta sæti, einu sæti ofar en
Gary Megson var með liðið þegar
hann var rekinn í nóvember.
Stoke vann að vísu deildabikar
neðrideildarliða en tapaði fyrir
Gillingham í undanúrslitum um-
spils um sæti i 1. deild og var því
sömu spomm og haustið áður.
Miklar væntingar
Miklar vonir voru
bundnar við Stokeliðið í
haust. Markmið Guð-
is Þórðarsonar var
einfalt: Að koma
)ke upp i 1.
deild. Skaga-
maður-
inn
Stef-
án
Þórðarson kom til félagsins í sum-
ar og haldið var í æfmgaferð til Is-
lands. Seint verður sú ferð talin
vera frægðarfór. Stoke lék þrjá
leiki og gerði jafntefli í þeim öll-
um, gegn ÍA og 1. deildar liðunum
KAog Víkingi. Þessir leikir, þótt
spilaðir væru í byrjun undirbún-
ingstímabils Stoke, gáfu ákveðin
fyrirheit um styrkleika Stokeliðs-
ins. Guðjón setti pressu á leik-
menn sína fyrir tímabilið og sagð-
ist hafa reiknað það út að liðið
þyrfti að ná tveimur stigum af
hverjum þremur, þ.e. 92 stigum í
heildina, til þess að lenda í tveim-
ur efstu sætum deildarinnar og
komast sjálfkrafa upp í 1. deild.
Nú strax, þegar Stoke hefur spilað
13 leiki í deildinni, er liðið komið
sex stigum á eftir áætlun og situr
í 10. sæti deildarinnar. Tapið gegn
efsta liði deildarinnar, Walsall,
sýnir að Stoke er töluvert á eftir
bestu liðunum í deildinni og ljóst
að Guðjón á ærið verkefni fyrir
höndum ætli hann sér að koma
þessu liði upp 11. deild í vor.
Honum hefur ekki tekist að
skapa þann stöðugleika i leik liðs-
ins sem hann hefur vonast eftir.
Liðið getur spilað frábærlega á
góðum degi, samanber sigurinn
gegn Charlton í deildabikamum,
en dettur þess á milli niður í tóma
meðalmennsku.
Ríkharöur kemur
Guðjón Þórðarson bindur mikl-
ar vonir við að Rikharður Daða-
son sé maðurinn sem komi skriði
á hlutina hjá Stoke. Það er
kannski ekki skrýtið. Ríkharður
hefur verið með markahæstu
mönnum í Noregi þrjú ár í röð en
spurningin er hversu lengi hann
verður að aðlagast hraðanum sem
ríkir í ensku 2. deildinni. Ef Rík-
harður kemst fljótt inn í leik liðs-
ins kemur hann til með að styrkja
lið Stoke mikið en ef hann lend-
ir í basli gæti tímabilið orðið
ansi erfitt fyrir Guðjón og hans
menn nema penmgamennimir
rífi upp veskið og snari út fjár-
munum til að Guðjón geti styrkt
liðið eins og þurfa þykir tíl að
ná settum markmiðum.
-ósk
Tölíræði DV-Sport í handboltanum:
Stjörnufólkið
sterkt á sjö
metrunum
- Arnar og Nína hafa nýtt öll sín víti
Arnar Pétursson Nína Kristín Bjömsdóttir
Amar Pétursson og Nína Kristín Björnsdóttir
úr Stjörnunni hafa nýtt öll 29 vítin sín í
Nissandeild karla og kvenna 1 vetur. Nína hefur
farið 16 sinnum á vítalínuna og Amar Pétursson
13 sinnum. Nína var sjálfskipuð vítaskytta frá
fyrsta leik og hefur tekið öll víti kvennaliðsins en
Arnar fékk ekki að vera vítaskyttan fyrr en
félagar hans í liðinu höfðu misnotað 5 af fyrstu
sjö vitum liðsins. Stjarnan er því aðeins með 9.
bestu vítanýtinguna í karladeildinni.
Lágmörk til þess að komast á lista yfir bestu
vítaskyttuna í deildunum er að skora úr tveimur
vítum að meðaltali í leik þannig að leikmenn á
listanum hafa þurft að skora úr 10 vitum. Efstu
menn ú hvorri deild eru eftirtalin:
Besta vítanýting í Nissandeild karla:
Amar Pétursson, Stjörnunni .......100% (13/13)
Valdimar Grímsson, Val ............91% (11/10)
Hilmar Þórlindsson, Gróttu/KR .... 88% (17/15)
Halldór Ingólfsson, Haukum ........85% (26/22)
Guðmundur Pedersen, FH.............79% (14/11)
Jón Andri Finnsson, ÍBV............76% (21/16)
Besta vítanýting í Nissandeild kvenna:
Nína K. Bjömsdóttir, Stjörnunni . . 100% (16/16)
Hafdís Hinriksdóttir, FH...........86% (21/18)
Heiða Guðmundsdóttir, ÍR.........82,4% (17/14)
Harpa Melsteð, Haukum............81,8% (22/18)
Marina Zoueva, Fram ...............81% (36/29)
Ásdís Sigurðardóttir, KA/Þór ......75% (16/12)
-ÓÓJ
Jenson Button boöið í rallið
Aðalfundur Landssambands stangaveiðifélaga
„Það verður nóg að gera um helgina
hjá okkur en fimmtugasti aðalfundur
Landssambands stangaveiöifélaga verð-
ur haldinn klukkan nlu til tólf á laug-
ardagsmorguninn. Síðan verður ráð-
stefna um laxveiðina frá eitt til
næstum fjögur og svo verður afmælis-
hófið klukkan fjögur," sagði Ragnar
Hólm, formaður Landssambands
stangaveiöifélaga, í
samtali við DV-Sport
í gærdag.
Fundurinn verð-
ur haldinn í Biósal
á Hótel Lotfleiðum
Eftir hádegi verð-
ur ráðstefna: Lax-
veiöi á nýrri öld,
sjókvíaeldi á norskum laxi við strendur
íslands og stangafjöldi í íslenskum
veiðiám. Þetta verður í Biósal Hótel
Loftleiða kl. 13 til 16. Ráðstefnustjóri
verður Þór Jónsson, fréttamaður og rit-
ari stjórnar LS. Verður þar rætt ýmis-
legt, eins og: Veldur stangaflöldi óhóf-
legu veiöiálagi? Er úöldinn eðlilegur
með hliðsjón af veröi veiðileyfa og
veiðivon? Til að ræða þessar áleitnu
spurningar hafa framsögu þeir Magnús
Jónasson laxveiðimaður og Ámi Isaks-
son, veiðimálastjóri.
Sjókvíaaeldi
Síðan verður skipt um umræðuefni
og rætt um sjókvíaeldi á norskum laxi
við strendur íslands, hvort það sé
hættulaust og hvort það kann að valda
hruni islenska laxastofnsins. Málið er
aðkallandi því að áform um að hefja
eldi af þessu tagi eru langt á veg kom-
in. Til að ræða þetta umdeilda mál hafa
framsögu þeir Jónatan Þórðarson,
fiskilíffræöingur og eldismaður, og Óð-
inn Sigþórsson, formaður Landssam-
bands veiðifélaga.
Fyrirspurnir veröa leyfðar að lokn-
um erindum um hvort umræðuefnið
um sig og orðið gefið laust í lok ráð-
stefnunnar. Síðan endar dagurinn á af-
mælishóf í Víkingasal Hótel Loftleiða
en Landssamband stangaveiðifélaga
heldur upp á 50 ára afmæli sitt kl. 16 til
18.
-G.Bender
Gengi enska 2.
deildar liðsins Stoke
City i vetur hefur
ekki verið eins og
forráðamenn,
þjálfari og stuðn-
ingsmenn félagsins
vonuðust tO. Guð-
jón Þórðarson,
þjálfari liðsins,
hefur sett
stefnuna á
sæti í 1.
deild að ári
en eins og
i hefur verið
ila nú í byrj-
un keppnistíma-
bilsins virðast
þær væntingar
vera óraunhæfar.
Megson gengur
Á meðan Stoke
er í mótvindi geng-
ur fyrrum stjóra
Stoke, Gary Meg-
son, sem er við stjórn-
völinn hjá 1. deildar
liðinu West
Bromwich Al-
bion, allt í
haginn.
West