Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2000, Page 4
26 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 2000 ' Innlausnarverð er höfuðstóll vextir, vaxtavextir og verðbætur. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Reykjavík, 31. október 2000 SEÐLABANKIÍSLANDS SDort Leifur dæmir hjá Helga og félögum Leifur Garðarsson körfuknattleiksdómari hefur verið tilnefndur af FIBA til að dæma tvo leiki í Evrópukeppni fé- lagsliða í Belgíu i næsta mánuði. Þann 14. nóvember dæmir Leifur leik Telindus Antwerpen og BKSlovakofarma frá Slóvakíu i riðlakeppni Saporta-keppninnar, sem er nokkurs konar Evr- ópukeppni bikarhafa. Daginn eftir dæmir Leifur hjá Helga Jónasi Guðfinnssyni og félögum í FLV Athlon Leper er þeir mæta UNICAJA Malaga frá Spáni í riðla- keppni Korac-keppninn- ar. Leifur var efstur I ein- kunnagjöf DV-Sport í fyrra og hefur byrjað best allra dómara í ár en hann hefur meðalein- kunnina 8,5 úr fyrstu sex leikjunum. -ÓÓJ veit nákvæmlega til hvers ég ætlast af honum og hann þekkir mín áform,“ segir Jackson. Cobe Bryant mun leiða leik Lakers ásamt O’Neal og hann er kokhraustur fyrir átökin fram undan: „Við Shaq viljum báðir vinna titilinn aftur. Það þýðir að okkur mun takast það.“ Menn ættu ekki að vanmeta San Antonio Spurs SA Spurs mætir með sterkt lið til leiks. Tim Duncan er orðinn góður af meiðslum í hné eftir aðgerð og skot- bakvörðurinn Derek Anderson er kominn til liðsins, mikið til fyrir til- stilli Duncans. Fleiri lið munu eflaust blanda sér í baráttuna. Þar má nefna Seattle Supersonics sem fengið hefur Patrick Ewing til liðs við sig frá New York Knicks. Ewing er bjartsýnn á gott gengi Seattle og liðið hefur alla burði til að ná langt. „Ég kom til Seattle af einni ástæðu; til að ná í hringinn," sagði Patrick Ewing. -SK Emma frá keppni í vetur Skíðakonan unga Emma Furuvik, sem er í Europa Cup-liði íslands í alpagreinum, slasaðist á æfingu á Hintertux í Austurríki fyrir skömmu. Viö læknisrannsókn í Stokkhólmi kom í ljós að teygst hafði á krossbandi þannig að hún þarf að fara í aðgerð. Meiðsli hennar gera það að verkum að hún mun ekki keppa á skíðum í vetur. Emma, sem er aðeins 19 ára, er ein af efnilegustu skíðakonum landsins. Hún stundar nú nám við skíðamenntaskólann í Thorsby í Svíþjóð og útskrifast þaðan næsta vor. sLahV Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Flokkur 1983-2.fi. Lokagjalddagi 01. 11. 2000 Innlausnarverð* á kr. 10.000,00 kr. 96.930,60 Jackson segist vera með mun betra lið en í fyrra Phil Jackson, þjálfari meistar- anna í Lakers, er kokhraustur fyr- ir tímabilið og fullyrðir að Lakers muni tefla fram mun betra liði en í fyrra. „Við erum mun betri en á síð- ustu leiktíð," segir Jackson og er ánægður með að tekist hefur að leysa ýmis vandamál varðandi Glen Rice. Þá hefur Lakers keypt Horace Grant en hann vann þrjá meistaratitla með Chicago Bulls undir stjóm Jacksons. „Grant er snjall frákastari í framfor og hann dvsport@ff.is Kvíaeldiö gæti haft óbætanleg áhrif - segir Ragnar H. Ragnarsson, formaöur LS „Á 50. aðalfundi Landssam- bands stangaveiðifélaga, sem haldinn var um liðna helgi, voru samþykktar tvær harð- orðar ályktanir sem beint er til stjórnvalda," sagði Ragnar Hólm Ragnarsson, formaður Landssambands stangaveiðifé- laga, í samtali við DV-Sport í gærdag. „Annars vegar var ályktað gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi á norskum laxi sem talið er að geti haft óbætanleg áhrif á ís- lenska laxastofna. Hins vegar var vitnað til laga um lax- og silungsveiði þar sem segir að veiðimálastjóri verði að heim- ila sérstaklega allar fram- kvæmdir „í eða við veiðivatn sem hætta er á að hafi áhrif á lífríki vatnsins". Dregið er í efa að alltaf sé farið að lögum þegar menn ráðast í fram- kvæmdir á árbökkunum og spilla þar með búsvæði fiska. Á ráðstefnunni, sem haldin var í tengslum við aðalfund- inn, leiddu saman hesta sína Jónatan Þórðarson, fiskilíf- fræðingur og eldismaður, og Óðinn Sigþórsson, formaður Landssambands veiðifélaga. Óðinn vandaði ekki stjómvöld- um kveðjumar og minnti þau á 12 ára gamla samþykkt um að leyfa aðeins laxeldi á norsk- um laxi í strandeldi en ekki sjókvíaeldi. Þeir ræddu um fyrirhugað kvíaeldi á laxi og kom margt merkilegt fram í máli beggja. Stangaveiðimenn hafa mikl- ar áhyggur af þessu sjókvíaeldi sem gæti haft mikil áhrif á ís- lenska laxastofna seinna meir og það kom berlega í ljós á fundinum. „Við treystum stjómvöldum til að gera enga vitleysu í þessu máli, það er mikið í húfi,“ sagði Ragnar Hólm í lokin. Ragnar var end- urkjörinn formaður LS til eins árs. -G. Bender Cobe Bryant og Shaquille O’Neal með hluta sigurlaunanna frá í fyrra. O’Neal á heldur betur eftir að finna fyrir risavöxnu liði Portland í vetur. Bryant er hvergi banginn og fyrst hann og Shaq vilji vinna titilinn aftur þá verði það auðvitað þannig. Reuter Slagurinn um NBA-titilinn í körfuknattleik hefst innan skamms og er búist við mjög harðri rimmu. Helst er rætt um Los Angeles Lakers, sem hefur titil að verja, Portland Trailblazers og San Antonio Spurs sem hugsanlega meistara. Ljóst er að lið Portland Trailblaz- ers verður allt annað en árennilegt í vetur. Auðkýfingurinn Paul Allen, eigandi Trailblazers og einn af eig- endum Microsoft, hefur sankað til sín risum fyrir átökin. Til Portland eru komnir þeir Dale Davis (2,11 m) og Shawn Kemp (2,08 m). Greinilegt er að Portland mun tefla fram mjög há- vöxnu liði í vetur því fyrir eru hjá liðinu þeir Arvydas Sabonis (2,21 m) og Rasheed Wallace (2,11 m). Þessi sveit er ekki árennileg og öruggt að ShaquOle O'Neal mun fá nóg að gera þegar LA Lakers mætir Portland. Nú þegar er beðið eftir leikjum liðanna með mikilli eftirvæntingu. Portland gaf frá sér sigur gegn Lakers i undan- úrslitum deildarinnar í fyrra í 7. leik. Með nýju turnunum skartar Portland mun meiri breidd og öruggt að valinn maður verður í hverju rúmi. „Við áttum að vinna titilinn i fyrra. Við verðum með mun meiri breidd í vetur og ég er bjartsýnn á tímabilið," sagði Mike Dunleavy, þjálfari Portland.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.