Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2000, Page 3
16
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 2000
33
Sport
Sport
ÍBV-Valur 25-14
0-1, 2-3, 5-4, 8-5, 9-8, (12-10), 13-10,
14-11, 17-12, 20-13, 21-14, 25-14.
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Tamara
Mandizch, 13/7 (16/7), Gunnleyg
Berg, 3 (3), Amela Hegic, 2 (6), Ingi-
björg Ýr Jóhannsdóttir, 2 (7), Bjarný
Þorvarðardóttir, 2 (3), Anita Andrea-
sen, 1 (3),. Eyrún Sigurjónsdóttir, 1
(1) , Anita Ýr Eyþórsdóttir, 1 (2).
Mörk úr hradaupphlaupum: 3
(Tamara, Amela, Gunnleyg)
Vitanýtinp: Skorað úr 7 af 7.
Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 20 (34/2 59 %, eitt viti
i'ram hjá)
Brottvisanir: 6 mínútur.
Valur:
Mörk/viti (skot/viti): Árný Björg ís-
berg, 5 (12), Kolbrún Franklín, 3/2
(4/3), Elfa Björk Hreggviðsdóttir, 2
(2) , Anna M. Guðmundsdóttir, 2 (8),
Eivör Pál Blöndal, 2 (4), Marín S.
Madsen, 1 (10).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 0.
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/viti (skot á sig): Berg-
lind Hansdóttir, 15 (40/7 38 %).
Brottvisanir: 14 mínútur.
Rautt spjald: Hafrún Kristjánsdóttir
fyrir 3x2 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur Er-
lendsson og Aðalsteinn Ömólfs-
son (5).
tíœöi leiks (1-10): 7.
Áhorfendur: 107.
Maöur leiksins: Tamar Mand-
izch, ÍBV
k
Staðan hjá stelpunum
Haukar 7 7 0 182-132 14
Stjarnan 8 7 1 176-149 14
Fram 8 5 3 202-159 10
Grótta/KR 8 5 3 193-159 10
FH 8 4 4 191-175 8
Víkingur 8 4 4 167-151 8
iBV 7 4 3 139-144 8
KA/Þór 7 1 6 134-174 2
Valur 8 1 7 118-174 2
ÍR 7 0 7 95-180 0
NIS5AN
Stórleikur
- hjá Vigdísi og Tamöru Mandizch hjá ÍBV gegn Val
„Þetta var meiri háttar hjá okkur í
seinni hálfleik. Við þurftum greini-
lega smátíma i fyrri hálíleik til að
læra hver á aðra, enda hafa Tamara
og Anita bæst við hópinn á undan-
fórnum dögum, en svo small þetta hjá
okkur í seinni hálfleik. Við vorum
ekkert þreyttar eftir Evrópuleikinn,
heldur tel ég að við þurfum einfald-
lega smátíma til að þróa okkar leik.
Tamara bætir leik okkar mikið, bæði
í sókn og vörn, en hún þarf samt sem
áður að komast betur inn í þetta hjá
okkur. Útlitið hjá okkur er dálítið
annað en í upphafi móts, núna mætir
maður glaður í hvern leik og ég get í
það minnsta lofaö því að við eigum
eftir að berjast fram á siðustu sek-
úndu til að halda titlinum í Eyjum,"
sagði Vigdís Sigurðardóttir, fyrirliði
ÍBV, 6110: leik þeirra gegn Valsstúlk-
um í gærkvöldi.
ÍBV sigraði í leiknum með ellefu
mörkum, 25-14, og er ljóst aö liðið á
eftir að veita toppliðum deildarinnar
harða keppni í vetur ef heldur fram
sem horfir.
Valsstúlkur byrjuöu vel
Það leit þó ekki út fyrir að íslands-
meistararnir væru að taka á móti bik-
armeisturunum í upphafi leiks. Bæði
lið mæta með gjörbreyttann leik-
mannahóp í vetur enda báru upphafs-
mínútur leiksins þess merki. Vals-
stúlkur sýndu þó betri takta framan
af, Árný Björg ísberg fór fyrir sínu
liði og skoraði þrjú glæsileg mörk fyr-
ir Val. Gestimir höföu frumkvæðið
framan af en þegar rúmlega tiu mín-
útur voru búnar af hálfleiknum
komust Eyjastúlkur í fyrsta skipti yf-
ir, 4-3. Eftir það lét ÍBV forystuna
aldrei af hendi í leiknum, Valur jafn-
aði reyndar leikinn í næstu sókn en í
hálfleik var munurinn orðinn tvö
mörk, 12-10.
Sigurbjörn Óskarsson hefur heldur
betur náð að hrista upp í leikmönnum
ÍBV i leikhléi því ÍBV skoraði úr
fimm fyrstu sóknum sínum í seinni
hálfleik á meðan gestirnir svöruðu að-
eins einu sinni og ÍBV komið með af-
gerandi forystu.
Valsstúlkur áttu engin svör við
sterkum varnarleik ÍBV, liðið skoraði
aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik,
þar af eitt úr vítakasti. Eyjastúlkur
léku hins vegar við hvern sinn fingur
en fremstar í flokki fóra þær Tamara
Mandizch, Vigdís Sigurðardóttir og
Gunnleyg Berg, sem var drjúg við að
fiska víti og brottvísanir á Valsliðið.
ÍBV er mikill fengur í leikmanni eins
og Mandizch, bæði getur hún afgreitt
skotin sjálf en kostur hennar felst
einna helst 1 góðum vamarleik og
hvernig hún leitar samherja sína
uppi.
Valsliðiö brotnaði hins vegar gjör-
samlega við mótlætið sem það fékk í
upphafi seinni hálfleiks, liðinu gekk
ekkert í sóknarleik sínum en spilaöi
þó sómasamlegan vamarleik mestan
hluta leiksins. Berglind Hansdóttir
stóö sig vel í marki gestanna en ljóst
er að liðið verður að bæta sóknarleik
sinn til muna.
Alltaf svona
„Þetta er alltaf svona hjá okkur, við
eram sterkar í fyrri háhleik en svo
hrynur þetta alltaf hjá okkur í seinni
hálfleik og við missum hreinlega
dampinn. En við erum að bæta okk-
ur í hverjum leik og það kemur fljót-
lega að því að við náum að halda út
heilan leik. Við munum nota þetta
hlé sem verður á deildinni til að bæta
okkur, æfa stíft og koma sterkar til
leiks eftir áramót. Við erum hins veg-
ar mjög ungt lið, margar að stíga okk-
ar fyrstu spor í meistaraflokki þannig
að þetta tekur tíma fyrir okkur en
þetta batnar með hverjum leik þannig
að ég er bara nokkuð bjartsýn á fram-
haldið," sagði Berglin Hansdóttir,
markvörður Vals. -JGI
Uppskeruhátíð
- barna og unglinga hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
„Ungir veiðimenn fóru til veiða í
fimm ár og vötn á síðasta starfsári og
samtals veiddi hópurinn 137 laxa og
og aflinn var 111 kg,“ sagði Ari Þórð-
arsson á uppskeruhátíð barna og
unglinga hjá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur sem haldin var fyrir
nokkra og þótti takast vel.
„í vetur má búast við miklu af
starfi nefndarinnar og ferð okkar
krakka til veiðifélags í Danmörku,"
sagði Ari meðal annars á uppskeru-
hátíðinni.
Þarna vora veitt verðlaun fyrir
stærstu fiskana sem veiddust í sum-
ar. Magni Þór Konráðsson veiddi
flesta fiskana í Reynisvatni eða
fimmtán, Rannar Carl Tryggvason
veiddi næstflesta eða tólf í Reynis-
vatni og aflahæsta stelpan var Þór-
anna Júlíusdóttir sem veiddi þrjá
fiska í Reynisvatni.
Fannar Þór Sigurðsson veiddi
flesta fiska, átta í Elliðavatni. Björn
Einar Björnsson veiddi flesta fiska
eða fjóra í Elliðaánum, Elvar Örn
Friðriksson veiddi flesta laxfiska
eða fjóra í Elliðaánum og Hrönn
Bjarnadóttir var aflahæsta stelpan
með einn lax en þetta var í fyrra
skiptið sem hópur fór í ána. í seinna
skiptið í Elliðaánum veiddi Guð-
björg Jónasdóttir stærsta fiskinn
þegar hópurinn veiddi þar í ágúst.
Hákon Bjarnason veiddi flesta fiska
eða tvo í Laxá í Kjós og Vignir Már
Lýðsson fékk verðlaun fyrir að
sleppa 4 punda hrygnu í Laxá i Kjós.
Einnig fékk Örn Amarsson verð-
launapening og farandbikar fyrir að
veiða stærsta fiskinn á þessu sumri,
hann veiddi 8,4 punda hrygnu á
maðk í Borgarstjóraholu í Elliðaán-
um.
Pálmi Gunnarsson talaði síðan við
hópinn um að umgangast veiðilend-
ur okkar af varkámi. G.Bender
Verðlaunahafar á uppskeruhátíö Stangaveiðifélags Reykjavíkur ásamt Pálma Gunnarssyni. DV-mynd Bergur
Bland í
Watford tapaði sínum
fyrsta leik í 1. deild ensku
knattspymunnar í gær-
kvöld. Watford lék á heima-
velli gegn Sheffleld Wed-
nesday og sigruðu gestim-
ir, 1-3. Heiðar Helguson
lék fyrri hálfleikinn hjá
Watford en var síðan skipt
út af í leikhléi. Watford er i
efsta sætinu með 39 stig eft-
ir 16 leiki en Fulham er
i öðm sæti með 38 stig
eftir 15 Ieiki. Norwich
sigraði Birmingham, 1-0,
en leik Sheffieid United og
Fulham var frestað.
Stoke gerði jafntefli við
Northampton, 2-2, á úti-
velli í 2. deildinni.
Kavanagh og O’Connor
skoruðu fyrir Stoke í leikn-
um. Brynjar Björn Gunn-
arsson, Bjarni Guðjóns-
son og Stefán Þórðarson
voru í byrjunarliði Stoke.
Rikharður Daðason kom
inn á fyrir Stefán á 81. mín-
útu. Stoke er nú i 7. sæti
með 27 stig. Walsall og
Wigan eru í efsta sæti með
34 stig.
Talið er líklegt að Stuart
McCall verði boðin knatt-
spyrnustjórastaðan hjá
Bradford sem rak Chris
Hutchings í fyrradag.
McCall mun stjóma tíma-
bundið þangað til að annað
verður ákveðið.
Manchester City leitar
þessa dagana að sóknar-
manni og hafa ýmis nöfn
verið nefnd til sögunnar.
Nafn Eiðs Smára
Guðjohnsen hjá Chelsea
hefur skotið upp koliinum
og eins er Marian Pahars
hjá Southampton ofarlega
á blaði. -JKS
Met hjá Mosfellingum?
Topplið Hauka leikur við Aftureldingu í fyrsta leik 8.
umferðar Nissan-deildar karla í handbolta í kvöld og fer
leikurinn fram á Ásvöllum og hefst klukkan átta. Haukar
hafa unnið sjö fyrstu leiki sína sem er besta byrjun félagsins
í 12 liða deild en Haukar unnu mest áður Qóra fyrstu leiki
sina 1993-94 og léku þá án taps í níu fyrstu leikjum sínum.
Mosfellingar hafa aftur á móti tapað síðustu þremur leikjum
sinum sem er jöfnun á félagsmeti liðsins í efstu deild og setja
því nýtt vafasamt met tapi þeir leiknum á Ásvöllum í kvöld.
Tölfræðin á útivelli er ekki Aftureldingu í hag því liöið hefur
tapað sjö af síðustu níu leikjum sínum á útivelli. -ÓÓJ
- sagði Stefán Hilmarsson söngvari og leikmaður Hraðlestarinnar
Valur (3), eða hraðlestin eins og lið-
ið vill láta kalla sig, tók á móti ÍR í 32-
liða úrslitum bikarkeppni HSÍ. Þrátt
fyrir að Valsmenn hafi sent stjörnu-
prýtt lið til leiks máttu þeir þola tap,
12-23, eftir að hafa verið undir í hálf-
leik, 6-11.
„Þetta var verulega gaman. Við átt-
um í fullu tré við þá mestallan tím-
ann. Þeir voru einfaldlega heppnir að
fara með sigur af hólmi og ekki laust
við að vanmat hafi verið í okkar her-
búðum. Okkur vantaði Bjarna Áka-
son fyrirliða og munar um minna.
Sjáifur er ég meiddur og gat því ekki
beitt mér 100% en það er ijóst að við
mætum enn sterkari til leiks næsta
vetur,“ sagði Stefán Himarsson, leik-
maður Vals og söngvari með meiru,
eftir leikinn.
Það tók heimamenn í Val rétt tæpar
10 mínútur að skora fyrsta markið og
var þar að verki Ágúst Jóhannsson.
Oftar en ekki varði vöm gestanna skot
Valsmanna sem voru í hinu mesta
basli með að skora.
Ingi Rafn sýndi þó að hann getur
ýmislegt ennþá og Ágúst reyndi að
spila fyrir augað. Örvar Runólfsson
varði vel í markinu þegar hann leysti
af Ólaf Ben. Hjá ÍR var Einar Hólm-
geirsson góður og Óiafur Sigurjónsson
skoraði grimmt í byrjun leiks.
Mörk Vals: Ingi Rafn Jónsson 5, Einar
Örn Birgisson 3, Ágúst Jóhannsson 2,
Gunnar Kvaran 1, Lárus Sigurðsson 1.
Mörk ÍR: Ólafur Sigurjónsson 5, Einar
Hóbngeirsson 5, Brynjar Steinarsson 3,
Finnur Jóhannsson 2, Erlendur Stefánsson
2, Kári Guömundsson 2, Bjartur Sigurðsson
1.
Engir möguleikar
Annar flokkur Vikings átti enga
möguleika í Eyjamenn í gærkvöld i
Víkinni. Víkingsliðið naut tilvistar
Einars Jóhannessonar og Páls Björg-
vinssonar sem léku fyrr á árum við
góðan orðstír. Eyjamenn byijuðu leik-
inn af krafti og skoruðu mörg mörk úr
hraðaupphlaupum, fyrst og fremst fyr-
ir markvörslu Gísla Guðmundssonar
sem varði hátt i tuttugu skot í fyrri
hálfleik. Eyjamenn unnu fyrri hálfleik
með 15 mörkum (4—19) og í seinni hálf-
leik lét þjálfari ÍBV, Boris Bjami,
óreyndari menn spila leikinn til að fá
reynslu. Páll Björgvinsson sýndi góð
tilþrif af og til i leiknum en ekki er
hægt að taka leikmann út úr hjá Vík-
ingi, þeir voru einfaldlega að spila við
miklu betra lið.
Seinni hálfleikur var ekki mikið
fyrir augað enda úrslitin löngu ráðin.
Állir leikmenn Eyjamanna fengu að
spila og gerðu það sem þeir þurftu til
að leggja Víking að velli. Síðan má
spyrja hvort það sé sniðugt hjá Vík-
ingi að láta annan flokk sinn spila
leik sem þennan og fá tuttugu marka
skell, 14-34.
Mörk Víkinga: Páll Björgvinsson 4, Guð-
laugur Hauksson 4, Þórir Júlísson 3, Þráinn
Magnússon 2, Jón G. Viggósson 1.
Mörk ÍBV: Sigurður Stefánsson 7,
Eymar Kruger 6, Jón Andri Finnsson 5,
Svavar Vignarsson 5, Erlingur Richardson
4, Arimas Sroveles 3, Kári Kristjánsson 2,
Davíð Óskarsson 1, Sigþór Friöriksson 1.
KA-menn í og úr gír
KA-menn unnu átta marka sigur,
34-26, á Breiðabliki á Akureyri í gær.
Breiðabliksmenn náðu að halda í við
KA-menn fyrstu þrjár mínútumar í
fyrri hálfleik. KA-menn settu þá í
annan gír og náðu sjö marka forystu
fljótt. Hörður Flóki var hrikalegur í
marki KA og varði hvert skotið á fæt-
ur öðru. Breiðabliksmenn gáfu þó
hins vegar ekki eftir og náðu að jafna
leikinn þremur sekúndum fyrir lok
fyrri hálfleiks, 16-16. Breiðabliksmenn
höfðu yfirhöndina í seinni hálfleik og
voru alltaf fyrri til að skora. Það var
svo ekki fyrr en um miðjan seinni
hálfleik að KA komst aftur yfir. Atli
Hilmarsson, þjálfari KA, setti Kára
Guðmundsson í markið og Atli Arn-
órsson var kominn inn á hjá KA. KA
jók svo forskotið hægt og sígandi og
var komið í fimm marka forskot þegar
um fimm mínútur voru eftir af leikn-
um. Orri Hilmarsson var að spila
best í liði Breiðabliks og hélt því inni
í leiknum á tímabili. Hjá KA fóru
Guðjón Valur og Halldór Sigfússon á
kostum.
Mörk KA: Halldór Sigfússon 10/3, Guð-
jón Valur Sigurðsson 8/4, Sævar Árnason 5,
Andreas Stolmokas 5, Giedrius Cserni-
avskas 4, Erlingur Kristjánsson 1, Arnór
Atlason 1
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 19/1,
Kári Garðarson 8
Mörk Breiðabliks: Orri Hilmarsson 6,
Halldór Guðjónsson 3/3, Slavisa Rakonovic
5, Björn Hólmþórsson 4, Gunnar B. Jónsson
3, Davíð Ketilsson 2, Zoltan Belányi 1, Stef-
án Guðmundsson 1.
Varin skot: Rósmundur Magnússon 6/2.
Öruggt gegn Ögra
Stjaman vann öruggan sigur á Ögra
í Laugardalshöllinni í gær, 23-40. Sig-
ur Stjörnunnar var þó ekki öruggur i
upphafi og hafði Garðabæjarliðið að-
eisn fjögurra marka forustu i hálfleik,
14-18. Jóhann Ragnar Ágústsson gerði
8 mörk fyrir Ögra, Senad Fazlovic var
með fimm mörk, Hjáhnar Öm Péturs-
son gerði fjögur og Árni Jóhannsson
skoraði 3. Hjá Stjörnunni skoruðu
þeir David Kekilja og Konráð Olavson
átta mörk hvor, Hafsteinn Hafsteins-
son gerði 6, Magnús Sigurðsson og
Bjami Gunnarsson voru með fjögur
og Sigurður Viðarsson og Arnar Pét-
ursson bættu við tveimur mörkum
hvor. -BG/BB/JJ/ÓÓJ
og lauk sinni árlegur
þattöku í bikarkeppni
handboltans í gær. Hér
taka nokkrir liömenn
liösins Ólaf Beneditksson
markvöröur traustataki^
DV-mynöB. Ól. jm
Meistaradeild Evrópu:
Graz slær í gegn
- Glasgow Rangers situr eftir - gerði jafntefli við Monaco
Austurríska liðið Sturm Graz
vann D-riðlinn í riðlakeppni meist-
aradeildar Evrópu í knattspyrnu
þegar liðið náði jafntefli við
Galatasaray í Istanbul í gærkvöld.
Sturm Graz var af mörgum spáð
neðsta sætinu i riðlinum en liðið
sló rækilega í gegn og vann m.a.
alla sína leiki á heimavelli.
Leikmenn Sturm Graz trylltust
af gleði i gærkvöld og ekki var
fögnuðurinn minni í heimaborg
liðsins þar sem varla sást hræða á
ferli meðan á leiknum stóð.
Glasgow Rangers nýtti sér ekki
heimavöll sinn gegn Monaco og
kemst ekki áfram úr riðlinum en
fær sæti í UEFA-bikarnum eins og
öll önnur lið sem hafna í þriðja
sæti síns riðils.
Arsenal tapaði stórt fyrir Do-
netsk i Úkraínu en Arsenal hafði
fyrir leikinn tryggt sér sigurinn í
riðlinum. Tvö mörk voru dæmd af
Arsenal vegna rangstöðu.
Lyon hreppti annað sætið í
C-riðli en Olympiakos fer í
UEFA-bikarinn. Lyon komst áfram
á útimarki gegn grfska liðinu.
-JKS
X Ímeistaradeildin
A-riðill:
Spartak Moskva-Real Madrid . . l-ö
1-0 Nijtap (47. sjálfsm.)
Sporting-Leverkusen............9-0
R. Madrid 6 4 1 1 15-8 13
S. Moskva 6 4 0 2 9-3 12
Leverkusen 6 2 1 3 9-12 7
Sporting 6 0 2 4 5-15 2
B-riðill:
Sparta Prag-Lazio ...........0-1
0-1 Ravanelli (43.)
Leikmenn Shaktar Donetsk fagna einu marka sinna gegn Arsenal á
heimavelli í gærkvöld. Reuters
Shaktar Donetsk-Arsenal . . . 3-0
1-0 Atelkin (34.), 2-0 Vorobei (57.), 3-0
Bielik (66.)
Arsenal 6 4 11 11-8 13
Lazio 6 4 11 13—4 13
Donetsk 6 2 0 4 8-15 6
S. Prag 6 1 0 5 6-13 3
C-riðill:
Lyon-Olympiakos .............1-0
1-0 Laigle (2.)
Valencia-Heerenveen..........1-1
1-0 Alonso (10.), 1-1 Venema (38.)
Valencia 6 4 1 1 7-4 13
Lyon 6 3 0 3 8-6 9
Olympiakos 6 3 0 3 6-5 9
Heerenveen 6 114 3-9 4
D-riðill:
Galatasaray-Sturm Graz .... 2-2
1-0 Penbe (30.), 1-1 Yuran (63.), 2-1
Jardel (75.), 2-2 Yuran (80.)
Rangers-Monaco .............2-2
1-0 Miller (3.), 1-1 da Costa (38.), 2-1
Mols (52.), 2-2 Simone (77.)
Sturm Graz 6 3 1 2 9-12 10
Galatasaray 6 2 2 2 10-13 8
Rangers 6 2 2 2 10-7 8
Monaco 6 2 13 13-10 7
Stjörnuvörnin
- tryggði sætið í 8 liða úrslitum í 20-16 sigri á Gróttu/KR
„Það var allt lagt undir og baráttan
var á kostnað gæðanna í þessum leik.
En það er sigurinn sem skiptir máli og
hann vannst á frábærri vöm og mark-
vörslu í síðari hálfleik," sagði Siggeir
Magnússon, þjálfari Stjömunnar, eftir
að hsms stúlkur tryggðu sér sæti í 8 liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ með 20-16
sigri á Gróttu/KR í Ásgarði í gær-
kvöldi.
Það er óhætt að taka undir það að
leikurinn var i heildina nokkuð langt
frá því að vera vel leikinn. í fyrri hálf-
leik brá þó einstaka sinnum fyrir
ágætu spili hjá báðum liðum. Stjaman
byrjaði á því að komast í 3-1 en þá
komu fjögur mörk í röð frá Gróttu/KR
sem hafði frumkvæðið það sem eftir
lifði hálfleiks. Forskotið var þó aldrei
meira en tvö mörk og jafnt var í leik-
hléi, 10-10.
Arfaslakur seinni hálfleikur
Síðari hálfleikurinn var hins vegar
arfaslakur hjá báðum liðum, einkum til
að byrja með, og það eina sem i raun
gladdi augað var vöm Stjömunnar og
góð markvarsla Liönu Sadzon fyrir aft-
an hana. Þær þurftu reyndar ekki mik-
ið að hafa fyrir hlutunum í vörninni
því sóknarleikur Gróttu/KR virtist að-
allega byggjast upp á því að láta Ágústu
eða Öllu enda með skoti sem var oft
slakt og auðvelt fyrir vörnina eða
Liönu að verja ef þær hittu markið á
annað borð. Sóknarleikur Stjörnunnar
var síðan lítið skárri og til marks um
þetta voru aðeins gerð þrjú mörk á
fyrstu fimmtán mínútum síðari hálf-
leiks, þar af tvö þeirra á fyrstu þremur
minútunum.
Aðeins rættist þó úr leiknum þegar
Grótta/KR tók leikhlé í stöðunni 15-12
þegar 11 og hálf mínúta var eftir. Þá
fóru Gróttu/KR-stúlkur að nýta betur
homin og línuna og þá náðu þær að-
eins að klóra í bakkann en í stööunni
17-16 skaut Alla úr vonlausu færi einu
sinni sem oftar, Liana varði og Stjarn-
an gerði þrjú síðustu mörk leiksins.
Þurftu ekki stórleik
Stjarnan var betri aðilinn í þessum
leik þegar mest á reyndi en þær þurftu
þó engan stórleik til að vinna. Margrét
Vilhjálmsdóttir var öflug í fyrri hálf-
leik ög Liana varði vel, einkum í síðari
hálfleik.
Hjá Gróttu/KR var fátt um flna
drætti þegar á heildina er litið. Alla og
Ágústa, sem venjulega bera uppi sókn-
arleik þeirra, voru heillum horfnar í
leiknum og var skotnýting þeirra arfa-
slök. Sú eina sem sýndi lit var Ragna
Karen Sigurðardóttir sem kom sterk
inn í hægra hominu á lokakaflanum en
því miður náði hún ekki að drífa félaga
sína með sér.
Mörk Stjömunnar: Margrét Vilhjálmsdóttir
5, Nína K. Björnsdóttir 5/2, Guöný Gunn-
steinsdóttir 4, Halla María Helgadóttir 3/2,
Hrund Grétarsdóttir 2, Jóna Margrét Ragn-
arsdóttir 1.
Varin skot: Lijana Sadzon 17/1.
Mörk Gróttu/KR: Alla Gokorian 5, Ragna
Karen Sigurðardóttir 3, Jóna Björg Pálma-
dóttir 2, Eva Þórðardóttir 2, Eva Björk
Hlöðversdóttir 2, Ágústa Edda Björnsdóttir 2.
Varin skot: Þóra Hlíf Jónsdóttir 10. -HI
Margrét Vilhjálmsdóttir var
markahæst Stjörnustúlkna
í gær. Margrét skoraði
fimm mörk þegar Stjörnu-
liöiö sló út Gróttu/KR.
Lijana Sadzon, mark-
vöröur Stjörnunnar, varöi
17 af skotum Gróttu/KR-
stúlkna f gær.