Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2000, Síða 11
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2000
11
Hagsýni
Mörkinni 4 • 108 Reykjavík
Sími: 533 3500 • Fax: 533 3510 • www.marco.is
NýrvöruUsd
í dreifingu 1 dag
Leyfi mér ýmislegt
- segir Ágústa Johnson sem hefur þó hollustuna í fyrirrúmi
Það hefur verið sagt að ein helsta
ástæða þess að fólk borðar mikið af
skyndibitum og tilbúnum mat sé
tímaskortur. Við vinnum mikið og
þegar dagurinn er á enda er oft þægi-
legra og auðveldara að grípa með sér
eitthvað tilbúið heldur en að elda.
Ágústa Johnson er kona sem þekk-
ir þetta þvi auk þess að vinna úti rek-
ur hún heimili með sambýlismanni
sínum og tveimur bömum. Hún hefur
lengi verið viðloðandi heilsugeirann
og því lék okkur forvitni á að vita
hvernig matargerð og innkaupum er
háttað á hennar heimili. Við fengum
þvi að fljóta með þegar hún fór í
dæmigerðan innkaupaleiðangur í
Nóatún í Grafarvogi.
„Þetta sem ég er með í körfunni
núna eru frekar dæmigerð innkaup.
Ég kaupi undanrennu fyrir okkur en
bömin fá nýmjólk. Hér er líka ein
ferna af appelsínusafa sem ég kaupi
ekki' mikið af en ákvað að prófa þar
sem hann var á svo góðu verði. En
það verður að gæta þess að börnin
séu ekki drekkandi þetta allan daginn
þar sem svona drykkir fara svo illa
með tennurnar. Sama má segja um
gosdrykki. Það er ekki almenn notk-
un á þeim heima hjá okkur en við
fáum okkur þó stundum dietkók og
börnin fá stundum gos um helgar.
Þau verða að fá að vera með; ég er
ekki hlynnt því að vera með ein-
hverja öfgastefnu.
Engln magninnkaup
Ágústa kaupir yfirleitt inn fyrir um tvo
daga í einu og segir að magninnkaup
henti henni ekki. Matarkarfan kost-
aði um 4.200 kr. að þessu sinni.
Ég ætla að hafa fisk og kartöflur i
matinn i kvöld en ég er, eins og flest-
ir, mjög rútínugjöm i innkaupum og
kaupi mjög oft það sama. Ég legg þó
áherslu á að eiga mikið af ávöxtum
og grænmeti fyrir krakkana tfl að
hafa með sér í skólann og narta i eft-
ir að þau koma heim. Jógúrt og skyr
reyni ég alltaf að eiga tfl þar sem ég
og sambýlismaður minn borðum það
í morgunverð þó krakkarnir séu
hrifnari af morgunkomi, eins og
Cheeriosi.
Forðast frekar fitu en sykur
Ég hef aðeins fylgst með sykurum-
ræðunni undanfarið en er frekar
hlynnt því að skera niður fltuna. Ef
maður einblínir bæði á fltu og sykur
er ekki mikið eftir. Ég reyni að tak-
marka fituneysluna og svo forðast ég
bein sætindi. Ég veit að skyr með
ávöxtum er frekar sætt en það er
hollt þar sem það er mjög prótínríkt
og ef það er borðað án sykurs er það
Grænmeti og ávextir
„Maður verður að reyna að halda
þessu að börnunum en þau eru
hrifnari af ávöxtunum, “ segir Ágústa.
rosalega súrt. Manneskjan hefur þró-
ast þannig að hún er með mjög sæta
tönn.
Ég er engin öfgamanneskja. Ég
myndi samt segja að ég væri meðvit-
aðri um hollustu en margir og er
frekar samkvæm sjálfri mér dags dag-
lega. En ég leyfi mér líka ýmislegt,
eins og að baka vöfflur þegar gestir
koma í heimsókn, og svo er náttúr-
lega smákökubaksturinn að byrja fyr-
ir jólin. Því er ég að kaupa nýja upp-
skriftabæklinginn frá Nóa-Síríusi.
Ferskleikinn í fyrirrúmi
Ég er ekki mjög góð í spekúlera og
spá í innkaupin. Ég reyni samt að
kaupa ekki inn mikið í einu því
reynsla mín er sú að þegar ég geri
magninnkaup þá dagar hlutina uppi
og þeir vilja skemmast. Mér finnst
þægflegast að hugsa svona tvo daga
fram í tímann. Það á við bæði um
ferskvöru og annan mat en ég á þó yf-
irleitt hluti eins og hrísgrjón og
pasta. Ég man aldrei hvað er til og
því vfl ég frekar kaupa það sem ég
ætla að nota hverju sinni. Ég hef
aldrei komist upp á lag með að fara
t.d. í Bónus og kaupa mikið í einu.
Það er með allt svona að maður þarf
að gefa sér tima tfl að skipuleggja sig
en ég hef hugsað meira um að eiga
ferskan, góðan og hollan mat.
Þótt ég hafi leikið í auglýsingum
fyrir 1944-réttina fyrir mörgum árum,
þegar ég var bamlaus, þá kaupi ég yf-
irleitt ekki tilbúinn mat því ég vil
ferskleika umfram allt. En ég skil þá
sem era mikið að flýta sér og búa
kannski einir, að fá sér rétti eins og
1944, en fyrir fjölskyldu eins og mína
fmnst mér þetta ekki spennandi kost-
ur.
Ég fer ekki með mikinn pening í
matarinnkaupin. Ég kaupi t.d. lítið
kjöt og er sjaldan með eitthvað dýrt á
borðum. Ég elda a.m.k. fimm kvöld
vikunnar, auk þess sem við höfum
stundum bara eitthvert snarl eða
pitsu. Ég hef mjög gaman af því að
elda, sérstaklega þegar ég á von á
gestum. Svo finnst mér líka gaman að
reyna að gera hversdagsmatinn
spennandi og ég nota krydd mikið til
þess. Ég byrjaði sem bam að hafa
áhuga á mat og er því komin með
nokkuð góða reynslu í þeim efnum.
Sendir manninn með miða
Matarinnkaup heimilisins lenda að
mestu á mínum herðum og ég bý til
innkaupalista fyrir manninn þegar
hann fer að versla. Það er ekki mikið
um að hann fari í
búðina af
sjálfsdáð-
um.
Hann
kaupir
töluvert
öðru-
vísi
inn
ég,
hann
er dug-
legri
við að
prófa
nýja hluti.
Maður er sjálf
ur svo vanur
kaupa sömu
hlutina
og aftur að
það
kannski hindrar að maður sjái
annað. Það kemur þó fyrir að
hann kaupir eitthvað sem endar
svo í skápnum, auk þess sem
þaö kemur fyrir að hann
gleymir einhverju sem
hann er sendur til að
kaupa. Þetta eru allt afleið-
ingar þess að hann fer
sjaldnar í búðina en ég.
Ég versla yfir-
‘itt í Nóa
búðunum.
Stað-
en
aftur
INDVERSK HUSGOGN
LAMPAR
HEILSUDÝNUR
SÓFAR_____________
HVÍLDARSÓFAR
SKRIFBORÐ
koc
HVÍLDARSTÓLAR_____
ýmis tilboð
SÓFABORÐ
borðstofur
glafavörur _
rúmteppasett
Gott flskborö
„Mér finnst gott að versla hérna þar sem mér leiðist að kaupa mat í tilbún-
um pakkningum. Ég vil ákveða magnið sjálf, “ segir Ágústa.
Hvað kostar þetta?
Ágústa segist ekki kaupa
mikið af dýrum vörum
heldur leggur hún
áherslu á ferskan
og hollan mat.
DV-myndir Pjetur
setning
þeirra
hentar
mér,
auk
þess
sem hér
er gott
vöruúrval
og gott kjöt-
og fiskborð.
Mér fmnst líka
mikilvægt að
geta keypt ná-
kvæmt magn af
því sem ég þarf
og mér leiðast
vörur sem
búið er að
pakka inn fyr-
fram.
Svo
finnst
mér
það
líka
vera
plús
ég
safna
ferða-
punktum
á visakort-
ið mitt með
því að versla
hér.“
Þessi ferð í
búðina kostaði
um 4.200 kr. og
segir Ágústa að það
dugi fyrir tvo daga.