Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Qupperneq 4
22 MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 Sport Toppleikurinn í 1. deild kvenna í körfubolta um helgina: Fráköstin - réðu miklu þegar KR vann Keflavík, 46-63, og fór á toppinn Fyrir viku endaði 33 leikja sigur- ganga KR-stúlkna á heimavelli og um helgina enduðu þær sjálfar 13 heimaleikjasigurgöngu Keflavíkur í deildinni með því að vinna öruggan 16 stiga sigur, 47-63, í toppslag 1. deildar kvenna á laugardaginn. Hildur Sigurðardóttir átti frábær- an leik fyrir KR og setti persónulegt met í stigum (24), fráköstum (13) og stoðsendingum (6) og það er ekki slæmt að gera það gegn toppliði á útivelli. Fyrirliðinn, Kristín Björk Jónsdóttir, reif sig líka upp úr lá- deyðu helgarinnar á undan, skoraði 17 stig og tók 11 fráköst. Þær tvær héldu uppi KR-sókninni sem þó hef- ur gengið betur (30% skotnýting og 24 tapaðir) en framlög þeirra Hönnu B. Kjartansdóttur og Helgu Þor- valdsdóttur vógu einnig mikið í varnarleiknum sem var mjög góður. Sú vörn sem Hanna og Helga hafa spilað á besta leikmann síðasta tímabils, Erlu Þorsteinsdóttir, í vetur er frábær enda hefur Erla að- eins skorað 9 stig á 76 mínútum gegn þeim, misnotað 16 af 19 skot- um og tapað 8 boltum. Keflavíkurliðið byrjaði leikinn skelfUega, frábær pressuvöm KR kom þeim greinilega mikið á óvart og þaö leið fimm og háif mínúta þar til það náði að skora fyrstu körfu sína. Þá vom komin 14 KR-stig á töfluna, 6 misheppnuð Keflavíkur- skot og sjö tapaðir boltar hjá heimastúlkum. KR hélt tökunum út fyrsta fjórðung og vann hann að lok- um með 19 stigum, 5-24. Keflavík tók sig á eftir þessa aga- legu byrjun, liöið vann næstu tvo fjórðunga (12-9 og 16-15) en KR-liðið hélt Keflvikingum þó ávallt i hæfi- legri íjarlægð og sigur vesturbæjar- stúlkna var aldrei í hættu. Þegar lið misnota 96 af 138 skotum ráða fráköstin miklu um útkomu leikjanna og svo var einnig á laugar- daginn. KR-stúlkur tóku 63% frá- kastanna, þar af 24 sóknarfráköst og fjórar af flmm frákastahæstu leik- mönnum leiksins voru úr vestur- bænum. KR vann óvænt svo öruggan sigur en þetta er enn eitt dæmið um hið jafna og skemmtilega mót sem er í gangi í 1. deild kvenna í vetur. Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdótt- ir, 13, Kristín Blöndal, 13 (8 tapaðir), Svava Ósk Stefánsdóttir, 6 (6 fráköst, 5 stoðsendingar, 4 varin), Theódóra Kára- dóttir, 6, Erla Þorsteinsdóttir, 5 (10 frá- köst, 4 varin), Sigríður Guðjónsdóttir, 2, Guðrún Ósk Karlsdóttir, 2. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir, 24 (13 fráköst, 6 stoös.), Kristín Björk Jónsdótt- ir, 17 (11 fráköst, 4 stoðs., 4 stolnir), Helga Þorvaldsdóttir, 7 (10 fráköst, 4 stoðs.), Gréta María Grétarsdóttir, 6, Hanna B. Kjartansdóttir, 5 (9 fráköst, 4 stolnir), Sigrún Skarphéðinsdóttir, 4. Stoke-liuerpool Deildarbikarinn á Sýn Huaða tromp hefur járnkallinn Guðjón Þórðarson uppi í erminni þegar hann mætir Frakkanum útsjónarsama Gerard Houllier. Liuerpool kemur í heimsókn, á Britannia Stadium á miðuikudaginn og í þetta sinn ekki af kurteisisástæðum. Þessum leik uilt þú ekki missa af! Tryggðu þér áshrift strax áskriftarsími / j 515 6100 Leikir KFÍ og Grindavík: Þrír sigrar á 20 tímum KFÍ og Grindavík mættust í þremur leikjum um helgina. Tveir þeirra voru í 1. deild kvenna en sá síðasti í Kjörís- bikamum. Leikjanna verður líklega helst minnst fyrir tímasetningu þeirra en þeir voru leiknir á 20 klukkutímum. Fýrsti leikurinn var á fóstudags- kvöldið. Heimastúlkur í KFÍ lögðu strax gmnninn að öruggum sigri í fyrsta leikhluta. Staðan eftir hann var 25-3. I öðrum leikhlutanum var mun- urinn kominn í 35 stig, 40-5, og eftir það var bara formsatriði fyrir KFÍ að klára leikinn. Grindavikurstúlkurnar gáfust þó aldrei upp og unnu m.a. síð- asta leikhlutann, 28-17. Lokatölur urðu síðan 76-49. Jessica Gaspar gladdi augu margra með 17 frábæmm stoðsendingum í öll- um regnbogans litum. Auk þess skor- aði hún 15 stig og tók 14 fráköst og náði því glæsilegri þrennu. Hjá Grindavík var það helst Petrúnella sem stóð upp úr og setti hún 14 stig. Sigríður átti góðan leik í vörninni og tók 7 fráköst. Allir leik- menn KFÍ fengu að spreyta sig í leiknum og þar á meðal stúlkur sem voru að stíga sín fyrstu skref í 1. deildinni. StigKFÍ: Sólveig H. Gunnlaugsdóttir 16, Jessica Gaspar 15 (14 frák., 17 stoðs., 6 stolnir), Tinna B. Sigmundsdóttir 11, Fjóla Eiríksdóttir 11, Anna Sigur- laugsdóttir 10, Stef- anía H. Ásmunds- dóttir 7, Sesselja Guðjóns- dóttir 2, Gyða Níelsdóttir 2, Hansína Gunnarsdóttir 2. Stig Grindavíkur: Petr- únella Skúladóttir 14, Sig- ríður Ólafsdóttir 10, Ólöf Pálsdóttir 8, Jovana L. Stef- ánsdóttir 5, Rut Ragnars- dóttir 4, Bára Vignisdótt- ir 2, Sigurrós Ragnars- dóttir 2, Ema Magnús- dóttir 2, Sandra D. Guð- laugsdóttir 2. Einbeitingarleysi Á laugardagsmorg- un var komið að öðmm leik liðanna í 1. deild kvenna. Grindavíkurstúlkur komu nú ákveðnar til leiks og það var engu líkara en að heimastúlkur héldu að um algjört formsatriði yrði að ræða. Þær virkuðu einbeitingarlausar og vömin var ekki sú sama og í leiknum á fóstudag. Þær vom þó heppnar að Grindvíkingar hittu illa úr opnum skotum og það var einungis þess vegna sem þær leiddu eftir fysta hluta, 15-10. í öðmm leikhluta náðu þær þó að sýna sitt rétta andlit og unnu þann hluta 19-0. Staðan í hálfleik var 34-10. Leikurinn jafnaðist nokkuð í síðari hálfleik og voru lokatölur ieiksins 66-34. Stefanía lék besta leik sinn í vet- ur. Hún skoraði 15 stig og tók 10 frá- köst. Jessica skoraði grimmt en haíði ekki alveg sama augað fyrir stoðsend- ingum og kvöldið áður. Jovana Stef- ánsdóttir spilaði vel fyrir Grindavik og Ólöf átti einnig góðan leik. Stig KFÍ: Jessica 25 (7 stoinir), Stefanía 15 (10 frák.), Sólveig 10, Tinna 8, Fjóla 6, Heiga S. Ingimarsdóttir 2. Stig Grindavikur: Jovana 9, Rut 7, Sandra 4, Petrúnella 4, Sigríður 3, Erna 3, Sigurrós 2, Bára Hlín Vignisdóttir 2. Allt er þegar þrennt er Klukkan 14 á laugardag, eða aðeins tveimur tímum eftir að fyrri leik laug- ardagsins lauk, var komið að Kjörís- bikarleik þessara liða. Hann var keim- líkur fyrri leikjun- um tveimur og þró- aðist á svipaðan hátt. Staðan í háif- leik var 38-21 og greinilegt að þreyt- an var farin að setja svip sinn á bæði lið- in. Stefanía, Jessica, Tinna og Sólveig léku vel hjá KFÍ en Sandra Guð- laugsdóttir var góð í liði Grindavikur og skoraði nær helm- ing stiga liðsins. Þar með lauk þremur leikjum á innan við sólar- hring á milli þess- ara liða. KFÍ-liðið sýndi mátt sinn og megin þegar ein- beitingin var til staðar og er til alls líklegt í vetur. Grindavíkurliðið er ungt að ámm en ljóst að gífur- lega efnilegt lið er að fæðast undir stjóm Péturs Guð- mundssonar. Flestar stelpnanna eru enn þá í grannskóla og verður gaman að fylgjast með þróuninni næstu árin en ljóst er að þarna er efniviður í stór- veldi í framtíðinni. Stig KFÍ: Jessica 17, Stefanía 17, Tinna 14, Sólveig 13, Anna 6, Fjóla 4. Stig Grindavikur: Sandra 21, Sigríður 10, Rut 4, Ema R. 2, Bára H. Vignisdóttir 2, Ólöf H. Pálsdóttir 2. -isa Jessica Gaspar, KFÍ: Sló stoðsend- ingametið ■ Erlendur leik- maður KFÍ i 1. deild kvenna í körfu, Jessica Gaspar, sló um helgina stoð- sendingametið i efstu deild kvenna meö því að gefa 17 stoðsendingar í fyrsta sigri KFÍ á Grindavík. Gaspar sló met Öldu Leifar Jónsdóttur frá 15. mars 1999 sem átti þá 14 stoðsendingar fyrir ÍS gegn Njarðvík. -ÓÓJ Staðan í 1. deild kvenna KR 7 5 2 434-359 10 Keflavík 6 4 2 378-316 8 KFÍ 6 4 2 355-296 8 ÍS 7 3 4 430-399 6 Grindavík 6 0 6 239-466 0

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.