Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000 29 Sport i>v Áhyggjur veióimanna af fiskeldinu eu miklar þessa dag- ana og á hver veiðimaðurinn á fætur öðrum ryðst fram í ritvöll- inn. Þorsteinn Ólafs hóf leik- inn og síðan kom Bubbi Morthens með grein þar sem hann vildi að Siv Friðleifsdótt- ir segði af sér sem ráðherra. Báðir lýstu þeir félagar yfir miklum áhyggjum með það að auka eldi á norskum laxi. Má búast við að fleiri eigi eftir að skrifa um þetta efni á næstunni. Rjúpnaveióimenn sem við ræddum við vikunni sögðu að mikið væri um að menn væru á vélsleðum á rjúpnaveiðum í Skagafirði. Loksins þegar veiði- menn væru búnir að finna rjúpur kæmu sleðarnir á fleygi- ferð og fældu rjúpumar sem fótgangandi veiðimenn hefðu fundiö. Rjúpnaveiðin hefur gengið illa og veiðimaður sem er búinn að fara fimm sinnum til rjúpna hefur fengið fjórar rjúpur. Á sama tíma í fyrra var hann líka búinn að fara fjórum sinnum og hafði fengið 70 rjúpur. Hann er í vafa um hvað verður í jólamat- inn hjá honum í ár ef veiðin fer ekki að glæðast verulega. Árna Baldurssyni og veiðifé- laginu Lax-á ætlar vist ekki að verða skotaskuld úr því að fá er- lenda veiðimenn til veiða í nýj- asta afkvæmi þeirra, Blöndu. Þeir ætla vist að fjöimenna þangað til veiða næsta sumar, erlendu veiðimennirnir. Sportveiðiblaðið var að koma á götuna fyrir fáum dög- um og Veiðimaðurinn, sem Fróði gefur út, er væntanlegur í byrjun desember. I Sportveiði- blaðinu er meðal annars viðtal við Guðjón A. Kristjánsson, Teit Örlygsson, Óla Björn Kárason og Svavar Stein- grimsson. Ekki hefur heyrst hvað Veiðimaðurinn verður með í boði en það verður án efa fjölbreytt og fróðlegt efni. Dorgveiðimenn eru famir að hugsa sér til hreyfíngs og einn sem vissi reyndar að ísinn var ekki traustur athugaði málið fyrir fáum dögum. Það eina sem hann fann á vatninu var þunnur ís og ein og ein vök. Þar renndi hann niður færinu og fékk einn vænan urriða sem lét öllum Ul- um látum. Honum var sleppt skömmu seinna og sagði veiði- maður að langt yrði þangað tO hægt yrði að fara á dorg, aUa- vega í þessu vatni. Við fréttum af öðrum sem átti sumarbústað við ágæta laxveiðiá og þar gekk hann tU rjúpna fyrir fáum dögum. Rjúpnaveiðin gekk rólega en annað var með veiðiskapinn í ánni. Hann náði i flugustöngina og kastaði nokkrum sinnum. Ár- angurinn var góður og hann fékk tvo faUega sjóbirtinga. Sjó- birtingurinn er enn þá að ganga í sumar veiðiámar og verður að því fram að jólum.' -G. Bender „Ég er búinn að fara nokkrum sinnum tU rjúpna og það hefur gengið afar Ula. Við félagamir erum búnir að fá eina rjúpu og hún er ekki tU skiptanna um jólin," sagöi veiðimaður sunnan heiða sem hefur veitt lítið sem ekkert af rjúpu þetta árið Þetta er sagan sem flestir veiði- menn segja núna af rjúpnaveiðinni. Það er sama hvort það er sunnan, vestan, norðan eða austan heiða. Rjúpnaveiðin hefur gengið Ula og veðurfarið hefur ekki verið tU að bæta veiðiskapinn. „Það er snjóinn sem þarf tU að rjúpan hópi sig eitthvað saman og það þarf töluvert mikið af honum,“ sagði Sverrir Sch. Thorsteinsson á Homafírði er við spurðum um stöð- una en fyrir austan hefur veiðin gengið rólega eins og víða um land. DV-Sport hefur víða fregnir af rjúpnaveiðimönnum og sagan er nær aUs staðar sú sama: lítU veiði og ekki sést mikið af fugli. Háar veiðitölur hafa verið í gangi og það besta sem við fréttum af vom 60 fuglar á tveimur dögum. Reyndar eru auðvitað tU veiðimenn „Viö teljum okkur hafa ýmislegt gott í boði fyrir félagsmenn okkar og það eru nýjar laxveiöiár í söluskránni," sagði Bergur Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en fyrir fáum dögum kom söluskráin þeirra út fyrir árið 2001. „Nýju ámar eru Skógá undir Eyja- fjöUum og Úlfarsá sem við seldum reyndar í aðeins í fyrra,“ sagði Bergur enn fremur. í laxveiðinni eru þetta EUiðaárnar, Úlfarsá, Leirvogsá, Norðurá, Gljúfurá, Hítará, Krossá á Skarðsströnd, Fá- skrúð í Dölum, Sogið, Stóra-Laxá í Hreppum, Skógá undir EyjafjöUum og Laxá í Kjós. 1 sUungsveiðinni eru það Sogið, Hít- ará, Hítarvatn, Langavatn, Ljárskóga- vötn, Gufudalsá og Grenlækur. í sjóbirtingsveiðinni eru Tungufljót, Eldvatn á Brunasandi, Hörgsá og Gren- lækur. Á þessari upptalningu er hægt að finna ýmislegt gott fyrir veiðimenn á öllum aldri. Silungs- og sjóbirtingssvæðum fjölg- ar líka á hverju ári hjá félaginu enda fjölgar félagsmönnum líka. Þeir sem ætla að panta fyrir næsta sumar þurfa að drífa sig, tíminn er naumur. -G. Bender sem hafa veitt vel, eins og einn tannlæknir í Reykjavík sem fór fyr- ir skömmu við annan mann. Tann- læknirinn fékk 31 fyrri daginn en 27 þann seinni. Það þótti bara aUgott. Af einum fréttum við sem hefur farið vestur í Dali og hann hefur að- eins fengið fimm rjúpur og ekki séð mikið af fugli. Þrír firðinum og fengu 5 fugla. Tveir menn skutu 15 fugla á Bröttu- brekku og einn veiddi 7 rjúpur á Holtavörðuheiðinni. Svona mætti lengi telja, það er bara minna af rjúpu en var í fyrra og snjóinn vantar. -G. Bender gengu mikið Borgar- Lax- og silungsveiðimenn á öllum aldri geta fundið eitthvað við sitt hæfi hjá Stangaveiðifélaginu. - einhverjir munu borða eitthvað annað en rjúpur um jólin Jón Þ. Ingimundarson náði í jólamatinn þegar hann fór noröur og skaut þessar rjúpur. Veiöin hefur gengiö rólega það sem af er. DV- mynd G. Bender Jón Ingi Agústsson, flugu- hnýtari og bókarhöfundur, er byrjaður með námskeið í Veiði- búöinni í Hafnarfirði. Nám- skeiðin er vel sótt enda Jón einkar flinkur að hnýta flugum- ar. Hann hefur mikið verið við veiðar erlendis, t.d i Rússlandi. Fleiri ogfleiri veiðibúðir eru farnar að bjóða upp á þetta og í búð eins og Veiðihorninu hjá Ólafi Vigfússyni er alltaf hægt að fá sér sæti og hnýta eina og eina flugu. Margir nýta sér þennan möguleika. Margt gott - í boði hjá Stangaveiðifélaginu r >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.