Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2000, Síða 12
■jf;
30
MÁNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2000
x>
:
► Mikil
verðlækkun
► Mikið
úrval bíla
► Fyrsta
afborgun
i apríl
2001
í dag
NBA-deildin um helgina:
15 ár
án sigurs
- Sixers gengur ekki vel í Alamodome
Philadelphia 76ers komu í Ala-
modome, heimavöll San Antonio,
með besta vinningshlutfalli í deild-
inni á laugardag en það hjálpaði
liöinu ekki til að vinna á þeim
draugi sem hefur alltaf fylgt þvi þar.
Sixers hafa ekki unnið á heimavelli
Spurs í tæp 15 ár, ekki síðan Julius
Erwing, Charles Barkley og Moses
Malone leiddu þá til sigurs i janúar
1986 og á því varð engin breyting um
helgina. Sjö leikmenn Spurs komust
í tveggja stafa tölur í stigaskorun í
leiknum á meðan Allen Iverson og
Theo Ratliff voru einir um það hjá
Sixers. Spurs hafa nú unnið alla
heimaleikina sína sjö í vetur.
Sacramento tók Seattle í bakarííð
í miklum stigaleik, 125-101, sem
jafnframt var mjög harður og meðal
annars þurfti gæðablóðið Patrick
Ewing að fara í sturtu í þriðja leik-
hluta eftir að hafa lent í rifrildi við
dómara.
Charlotte vann flmmta leik sinn í
röð þegar liðið mætti Cleveland.
Baron Davis náði annarri þrennu
sinni í síðustu þremur leikjum með
Homets og Lamond Murray skoraði
30 stig fyrir Cavs sem unnið höfðu
þrjá síðustu leiki sína.
Milwaukee Bucks hafa enn ekki
sigrað á útivelli eftir leiki helgarinn-
ar en þeir töpuðu fyrir Washington
Wizards sem reyndar hafa sjálfir
ekki verið að spila neitt sérstaklega
vel og eru neðstir í Atlantshafsriðl-
inum með 4-10. Chris Whitney var
sterkur á lokasprettinum hjá Wiz-
ards, skoraði átta af síðustu 13 stig-
um liðsins og þar af úr flmm víta-
skotum í röð á síðustu mínútunni.
Orlando Magic sigraði Atlanta
Hawks í annað sinn án stiarnanna
tveggja, Grants Hills og Tracys
McGradys, og Cuttino Mobley kom
af bekknum hjá Houston og skoraði
21 stig gegn Miami Heat.
Stockton heiöraöur
Joe Smith skpraði 20 stig á 20 mín-
útum í fyrsta leik sínum með Detroit
Pistons í sigri á Vancouver á föstu-
dag þar sem Pistons náðu að skora
flest stig sín í leik í vetur eða 118.
Þetta var sjöundi tapleikur Grizzlies
í röð.
John Stockto var heiðraður á
fóstudag fyrir að hafa jafnað met
Johns Havliceks, sem lék með
Boston á árum áður, fyrir flesta leiki
spilaða með sama félaginu eða 1270.
Stockton og félagar héldu upp á
tímamótin með 11. sigri þeirra í röð
á New Jersey Nets.
Paul Pierce setti persónulegt
stigamet með 41 stigi þegar Boston
vann Orlando á heimavelli. Jason
Kidd bætti við áttundu tvöfóldu
tvennu sinni á tímabilinu í 11.
heimasigri Phoenix í röð. -ÓK
Patrick Ewing og félögum í Seattle SuperSonics gekk vel á föstudaginn
gegn Clippers en þurftu að lúta í lægra haldi á laugardag fyrir Kings í
miklum stigaleik. Reuter
NBA-DiIlDIN
Úrslit á laugardag:
New York-Toronto ..........75-79
Sprewell 20, Johnson 11, Houston 10 -
Carter 25, Jackson 14, Oakley 12,
Willimson 12, Davis (18 frák.).
Orlando-Atlanta...........114-92
Miller 23, Hudson 21, Amaechi 15,
Outlaw 10 (12 frák.) - Terry 21, Hend-
erson 15, Wright 12.
Miami-Houston..............80-91
Jones 18 (5 stolnir), Mason 16 (10
frák.), Grant 15, Hardaway 15. -
Mobley 21, Francis 15, Thomas 13.
Charlotte-Cleveland ......109-98
Mashburn 30, Campbell 23, Davis 14
(10 frák., 11 stoðs.) - Murray 30, Miil-
er 17, Weatherspoon 13.
Washington-Milwaukee . . 107-100
Howard 24 (11 frák.), Hamilton 18,
Strickland 15 - Allen 37 (4 stolnir),
Cassell 22, Thomas 12.
Dallas-Denver............108-84
Nowitzki 24 (13 frák.), Nash 19, Davis
15. - McDyess 19 (10 frák.), Posey 12,
Pack 10.
San Antonio-Philadelphia . . 96-76
Anderson 16, Daniels 16, Elliott 12,
Robinson 12, Duncan 10 (3 varin) -
Iverson 21, Ratliff 19 (3 varin), Kukoc 9.
Portland-New Jersey ......86-84
Wallace 25 (3 stolnir), Pippen 14,
Smith 13, - Williams 17, MArbury 15,
Gill 15.
L.A. Clippers-Phoenix . 89-95 (frl.)
Odom 20 (11 frák., 3 varin), Dooling 13,
Miles 13 - Marion 26 (10 frák.), Robin-
son 25, Elie 15.
Golden State-Minnesota .. 114-93
Hughes 18, Jamison 18, Mills 17 -Gar-
nett 22 (12 frák.), Avery 12, Mitchell 11.
Sacramento-Seattle......125-101
Stojakovic 29, Webber 24 (14 frák., 5
varin), Turkoglu 17 (12 frák.) - Payton
26, Ewing 14, Patterson 14.
Úrslit á föstudag:
Atlanta-Philadelphia ......67-76
Henderson 17, Terry 13 (8 stoðs.),
Maloney 11 - Iverson 21 (2 varin),
Snow 14, Ratliff 12 (14 frák., 5 varin).
Boston-Orlando...... 103-98 (frl.)
Pierce 41, Walker 25 (14 frák.), Stith 10
- McGrady 26, Armstrong 16 (10
stoðs.) Amaechi 16, Outlaw (9 stoðs, 7
varin).
Cleveland-Miami ...........85-80
Jones 19 (4 varin, 5 stolnir), Hardaway
17, Mason 16 - Weatherspoon 16 (12
frák.), Gatling 15, Ilgauskas 14 (6 var-
in).
Detroit-Vancouver ........118-96
Stackhouse 31, Smith 20, Williams 10
- Abdur-Rahim 29 (12 frák.), Jones 16
(7 stoðs.), Bibby 11 (9 stoðs.).
Indiana-Washington........99-87
Rose 23, Miller 17, Harrington 16,
O’Neal 14 (12 frák.) - Hamilton 25,
Howard 15 (14 frák.), Richmond 13.
Milwaukee-Charlotte .... 90-106
Allen 21, Cassell 18, Thomas 11 -
Wesley 24, Mashbum 20, Davis 13 (11
stoðs.).
Denver-San Antonio.......102-92
Van Exel 27 (13 stoðs., 9 frák.),
McDyess 20 (5 varin) - Duncan 21 (14
frák.), Anderson 15, Robinson 12 (5
varin)
Phoenix-Golden State......80-74
Marion 19 (16 frák.), Kidd 18 (13 stoðs.,
4 stolnir), Robinson 13 - Hughes 18 (11
frák.), Jamison 17, Sura 16.
Utah-New Jersey ...........97-85
Malone 20, Manning 12, Marshall 11,
Stockton 10 (12 stoðs.) - Marbury 21,
Gill 19, Martin 15.
Seattle-L.A. Clippers.....98-81
Payton 23 (11 stoðs., 5 stolnir), Patter-
son 16, Baker 14 - Odom 14, Mclnnis
12, Olowokandi 10 (15 frák.).
L.A. Lakers-Minnesota . . 115-108
Bryant 29, O’Neal 28 (16 frák., 4 varin),
Fox 15 - Brandon 27, Gamett 19, Szcz-
erbiak 15.
Eftir leiki laugardagsins era 76ers
efstir í Atlantshafsriðlinum með 11-2
(84,6% vinningshlutfall) og Knicks i
öðm sæti með 8-6 (51,7%). I miðriðlin-
um er Cleveland efst með 9-4 (69,2%) en
fast á hæla þeim kemur Charlotte með
9-6 (60%). Miðvesturriðillinn er
hnífjafn á toppnum þar sem Utah er efst
með 9-3 (75%), þá næst San Antonio
með 9-4 (69,2%) og loks Dallas í þriðja
með 9-5 (64,3%). í Kyrrahafsriðlinum
em Suns efstir með 10-3 (76,9% vinn-
ingshiutfall) og Sacramento Kings em
aðrir með 9-3 (75%). Chicago em með
slakasta hlutfallið til þess, 1-11, eða
8,3%. -ÓK