Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2000, Blaðsíða 1
KR-ingar innbyrtu 6. sigurinn í röð í körfuboltanum
19
Beckham hefur sýnt
mestan stöðugleika
- segir Franz Beckenbauer
FVrrum landsliðsmaður Þjóðverja í knattspyrnu og nú stjómarmaður í
Bayern Múnchen sagði i gær að i sínum huga myndi hann kjósa David
Beckham hjá Manchester United í vali á leikmanni ársins hefði hann kosn-
ingarétt í kjörinu. Mikil spenna ríkir um það hvaða
knattspymumaður hlýtur þessa eftirsóttu nafnbót sem
kunngjörð verður i næstu viku. Beckenbauer hrósar
Beckham í hástert og segir hann ráða yfir miklum hæfi-
leikum sem eigi eftir að koma enn betur í ljós á næstu
árum.
„Sterkasta hlið hans er stöðugleikinn og hann verður
án efa ofarlega í kjörinu. Það eru nokkrir sterkir leik-
menn sem einnig koma til greina og má þar nefna
Rivaldo hjá Barcelona og Zidane hjá Juventus. Þetta eru
allt frábærir leikmenn,“ sagði Beckenbauer. -JKS
Emmanuel Petit tíl hægri og Gert Verheyen
kljást hér um knöttínn í viöureign Barcelona og
Club Brúgge á Nou Camp i gærkvöld. LiÖin
skildu jöfn en Barcelona vann tyrri leikinn í
Belgíu og komst áfram. Pelit er óánægður í
herbúðum Börsunga og vill fara Ira félaginu en
þangaö kom hann frá Arsenal á sl. sumri.
Reuters
Þurfum stuðning
- Haukar mæta Sandefjord í Evrópukeppninni á sunnudag
„Ég er búinn að skoða norska liðið í nokkrum
leikjum á myndbandi og það engin spurning um
að þarna er á ferð öflugt lið. Ég tel Sandefjord
jafnbetra en Bodö, sem við lögðum að velli í sið-
ustu umferð, en það er ekki eins gott og Braga-
liðið sem við lágum fyrir í forkeppni meistara-
deildarinnar. Ég myndi segja að við ættum jafna
möguleika gegn Sandefjord en það er alveg ljóst
að við þurfum að vinna með 4-5 marka mun á
heimavelli til að eiga möguleika að komast
áfram,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
en á sunnudagskvöldið mæta Haukar liði
Sandefjord í 3. umferð EHF-keppninnar. Síðari
leikurinn fer síðan fram um aðra helgi í Noregi.
Sandefjord lagði júgóslavneska liðið Banja
Luka í síðustu umferð. Norska liðið vann íyrri
leikinn á heimavelli með átta mark mun en tap-
aði leiknum í Júgóslavíu með sjö marka mun
svo tæpara gat það ekki verið.
Viggó sagði að norska liðið keyrði á hraða-
upphlaupum og sóknir liðsins væru stuttar eins
og hjá Bodö. Sandefjord hefði í sínu liði mjög
öfluga vinstri handarskyttu og yrði að hafa gott
auga með henni á sunnudagskvöldið.
„Við erum klárir í slaginn og ætlum okkur
áfram í keppninni. Ég myndi telja möguleika
okkar ágæta með góðum leik hér heima og öguð-
um leik ytra. Það voru viss vonbrigði að ekki
skyldu fleiri áhorfendur koma á síðasta Evrópu-
leik okkar en þar spilaði örugglega inn í að leik-
urinn var sýndur beint í sjónvarpi. Leikurinn
við Sandefjord verður ekki i sjónvarpi og það er
alveg ljóst að við þurfum á góðum stuðningi
áhorfenda að halda,“ sagði Viggó Sigurðsson.
-JKS
Figo
bestur
Luis Figo, dýrasti
leikmaður heims,
hefur verið valinn
besti leikmaður
heims af lesendum
timaritsins World
Soccer. Figo fékk
26% atkvæða les-
enda en í öðru sæti
varð Zinedine Zida-
ne, leikmaður
Juventus, og þriðji
Andriy Shevchenko,
leikmaður AC Mil-
an. Brasilíumaður-
inn Rivaldo hlaut
sömu kosningu í
fyrra en hann var
einnig valinn besti
knattspyrnumaður
heims hjá FIFA á
síðasta ári.
-ÓK
Holland
lið ársins
Hollenska lands-
liðið í knattspyrnu
var í gær útnefnt
besta landslið árs-
ins. Það var Alþjóða
knattspymusam-
bandið sem komst
að þessari niður-
stöðu og studdist
við heildarárangur
liðsins yfir árið.
Fyrir utan tapið
gegn ítölum á Evr-
ópumótinu töpuðu
Hollendingar aðeins
einum leik í 14
viðureignum. Bras-
ilíumenn höfðu sex
árin á undan verið
kjömir bestir.
-JKS
Lennon
til Celtic
Svo virðist sem
Leicester og Celtic
hafi komist að sam-
komulagi um kaup-
verðið á Neil
Lennon og í gær-
kvöld stefndi í það
að n-irski landsliðs-
maðurinn mætti á
æfingu hjá Glasgow-
liðinu í dag. Kaup-
verðið er talið um
700 milljónir króna.
Martin O’Neill,
knattspy rnustj ór i
Celtic og fyrmm
stjóri hjá Leicester,
hefur verið á hött-
unum eftir Lennon
síðan hann tók við
Celtic í haust. Hann
telur að Lennon
komi til með að
styrkja miðjuna hjá
Celtic til muna.
-JKS