Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2000, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2000, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000 17 Ensíma- rannsóknir á íslandi Bls. 20-21 Kynlíf í skokks Bls. 22 PlayStation Á myndinni hér til hliðar gefur að líta snjallkortið hans Bills Gates, Microsoft-mógúlsins umdeilda, sem var til sýnis á tölvu- sýningunni SafeNet 2000 sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Red- mond í Washingtonríki. Þar sýndi Gates m.a. hvernig snjallkort geta verulega aukið innra öryggi fyrir- tækja með því að hindra aðgang þeirra sem ekki hefðu slík kort að tölvum fyrirtækjanna. Snjallkort eru nú þegar komin í notkun að takmörkuðu leyti í Finn- landi og Kanada. Fyrirtækið Auð- kenni hf. hefur verið stofnað hér á landi í kringum útgáfu snjallkorta og var fyrr í vetur viðtal við fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, Guð- laug Sigurgeirsson þar sem hann útlistaði m.a. þá möguleika sem kortin bjóðá upp á. Meðal þess sem hann sagði var að til að byrja með yrðu sjálfsagt sérkort fyrir hverja verkun, eitt fyrir bankaviðskipti o.s.frv. Hins vegar benti hann á að í framtíðinni yrði mögulegt að geyma allar persónuupplýsingar á kortinu, s.s. sjúkrasögu, bankaupplýsingar og aðrar persónuupplýsingar. Fingrafór eða augnhimnuskönnun væru notuð til að staðfesta réttan eiganda. Á meðal þess sem hægt verður að nota kortin í eru kosning- ar í gegnum Netið. Sérfræðingar á sviði tækni- og internetöryggis sátu SafeNet 2000 ráðstefnuna og ræddu hnattrænt samstarf á sviði verndar persónu- upplýsinga neytenda, gæslu upplýs- inga og öryggismál Netsins, sem og innanhússneta fyrirtækja. GPS í baráttuna við aukakílóin Svissneskir visinda- menn hafa nú fundið nýja notkunarmögu- leika fyrir GPS-stað- setningartæknina og það er að hjálpa þeim er þjást af offitu að brenna aukakílóunum. Sendar eru festir við ofiltusjúk- lingana og fylgst er með ferðum þeirra. Með þessari aðferð ætla vís- indamennimir að reikna út orku- eyðslu og hreyfingu viðkomandi ofFitusjúklinga. Yves Shutz, prófess- or við Lausanne-háskóla, segir að með GPS sé hægt að fylgjast með staðsetningu, hraða og hreyFmgum fólks. „Með þessu móti getum við sýnt fólkinu fram á hvað það eyðir mörgum kaloríum yfir daginn og við dagleg störf auk æfmga.“ Það er trú Yves og kollega hans að fólk fái meira aðhald með þessu móti og geri sér grein fyrir því að það er betra að labba stigann heldur en að taka lyftuna. mmummmmmmumKmmmmmmmtmmummamamummamamm Genamengin næsta efnahagssprengja Nathan Myhrvold, fyrrverandi yfir- tæknifulltrúi hjá Microsoft, telur að genamengi manns- ins sé næsta stóra efnahagslega sprengjan sem muni ríða yfir heiminn líkt og tölvurnar og Net- ið hafa verið þangað til núna. „Rannsóknir á genamenginu mun hafa jafnmikil áhrif og tölvu- byltingin. Þær hafa möguleikann á því að endurskapa efnahagskerfi heimsins nákvæmlega eins og tölvurnar gerðu.“ Að mati Myhr- vold var kortlagning genamengis mannsins aðeins upphafið. Næsta skref verði að kortleggja hvern einasta einstakling, sjúkdóma- valdandi lífverur, plöntur og allt annað lífrænt í lífríki jarðar. Hann bendir á að þótt upphaf- lega kortlagningin hafi kostað mikinn tíma og mikla peninga þá eigi sífellt öflugri tölvur eftir að flýta fyrir rannsóknum með hverju árinu þar. Hann spáir svipaðri þróun og varð með tölv- urnar þar sem lögmál Moores gerði ráð fyrir að vinnslugeta tölva myndi aukast um 60% á ári. Microsoft mn.0rm Allt milli himins ogjaröar... Smáauglýsingar 550 5000 Skoðaðu smáug.lýsingarnar á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.