Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2000, Síða 2
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
18
tölvui tíkni og vísinda
Beta-prófanir á Mac OS X:
Fámennur en hávær hópur kvartar
- en meirihlutinn viröist sáttur
Nú þegar nokk-
uö er liðið á
beta-prófanir á
nýja stýrikerf-
inu, Mac OS X,
sem koma á út á
Makkann
snemma næsta árs, hafa nokkrar
kvartanir borist frá „fámennum en
háværum hópi“ Makkavina eins og
talsmaður Apple-fyrirtækisins orð-
aði það.
Nýja stýrikerfið hefur tekið
stakkaskiptum frá gamla stýrikerf-
inu sem hefur lítiö breyst í ein 16
ár,og búið að breyta útlitinu mikið.
Svo mikið hefur því verið breytt að
heyrst hafa raddir um að Windows
sé oröið líkara gamla Makkastýri-
kerfinu heldur en Mac OS X. Afleið-
0 0 0
Finder
íki Ife ! * i ; A | j ® 23
Compuler Home , Favoriles Apps Docs -j j Users
Sitems í* MyComputer
= QD
Mac OS X
Network
Server
Audio CD
FireWíre Drive
'vmmmmmmmmmmmmm^mmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmm
Mac OS X er afar breytt frá fyrri stýrikerfum Makkans eins og sést á leitar-
vélinni hér fyrir ofan.
k,
_____b__________________
Finnur Báröarsson, umsjónarmaö-
ur Makka.is, segir Makkasamfélagiö
hér heima bfða í ofvæni eftir Mac
OS X.
ingamar eru þær aö heittrúaðir
Makkanotendur hafa sumir hverjir
hakkað sig inn í hugbúnaðinn og
breytt verkun sumra hluta eða bætt
inn gömlum pörtum.
Vini manns rænt
Makkavinurinn Angus Mclntyre
lýsti angist sinni á vefsíðu Macln-
Touch, vefmiðils sem sérhæfir sig í
fréttum af Makkanum. Hann sagði
m.a: „Þegar ég vinn á Mac OS X líð-
ur mér eins og gömlum vini hafi
veriö rænt af geimverum. Eitthvað
hefur náð stjóm á tölvunni minni
og ég veit ekki hvað það er.“ Hann
bætir við að þaö versta við þetta sé
að líða eins og algjörum byrjanda
upp á nýtt. Hann hefur notað og for-
ritað fyrir Makkann í tíu ár en sit-
ur nú fyrir framan tölvuna og skil-
ur hvorki upp né niður og finnur
ekki gömlu góðu íkonana sína.
Stýrikerfi aldarinnar
Ken Baraskin, yfirmaður markað-
setningar á Mac OS X, segir kvart-
anir koma frá fámennum en hávær-
um minnihlutahópi innan Makka-
samfélagsins. Hann segir enn frem-
Nýja stýrikerfið hefur
tekið stakkaskiptum
frá gamla stýrikerfinu
sem hefur lítið breyst í
ein 16 ár og búið að
breyta útlitinu mikið.
Svo mikið hefur því
verið breytt að heyrst
hafa raddir um að
Windows sé orðið lík-
ara gamla Makkastýri-
kerfinu heldur en Mac
OSX.
ur aö flestir sem hafi prófað stýri-
kerfið líki vel. „Fólk elskar það. Við
höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð
frá langflestum." Það virðist líka
vera sem svo að þeim sem ekki lík-
ar við stýrikerfið verði hreinlega að
venjast hinu breytta útliti.
Finnur Bárðarsson, umsjónar-
maöur Makka.is, segist ekki hafa
heyrt kvartanir hér heima frá fólki
sem sé að prófa Mac OS X. Þvert á
móti séu flestir ánægðir með breyt-
ingamar og mikil eftirvænting ríki
i Makkasamfélaginu hér á landi.
Hann er sammála útskýringu
Apple-fyrirtækisins að hér sé lík-
lega um fámennan en háværan hóp
sé að ræða. Finnur varar þó fólk við
sem notar Makka en er ekki búið að
sjá Mac OS X því breytingarnar sé
miklar og af hinu góða og fullyrðir
að þetta eigi eftir að verða stýrikerfi
aldarinnar.
Álit ehf. opnar nýjan vélasal
Býður upp á nýja þjónustu
- svokallaða kerfisvistun (ASP)
Álit ehf. hefur
nú opnað véla-
sal í Múlastöð-
inni við Ár-
múla. Álit leig-
ir vélasalinn af
Landssímanum
og afhenti Agnar Már Jónsson,
framkvæmdastjóri sölusviðs Sím-
ans, Guðna B. Guðnasyni, fram-
kvæmdastjóra Álits, aðgangskort
að vélasalnum við hátíðlega at-
höfn fimmtudaginn 7. des. Með
opnun starfseminnar í Múlastöð
telur Álit sig geta boðið betri
þjónustu í rekstri tölvukerfa fyr-
ir viðskiptavini. Einnig býöur
Álit nú nýja þjónustu sem felst í
vistun tölvukerfa (ASP) auk þess
sem vélasalurinn uppfyllir allar
öryggiskröfur sem gerðar eru til
starfsemi slíkrar þjónustu, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Tilgangurinn með rekstri véla-
salarins er að mæta sívaxandi eft-
irspurn fyrirtækja um að fela
þriðja aðila rekstur og umsjón
tölvukerfa sinna. Fyrirtæki sem
tengjast vélasal Álits munu
þannig fá afnot af miðlægum bún-
Tilgangurinn með
rekstri vélasalarins er
að mæta sívaxandi
eftirspurn fyrirtækja
um að fela þriðja aðila
rekstur og umsjón
tölvukerfa sinna. Fyrir-
tæki sem tengjast
vélasal Álíts munu
þannig fá afnot af
miðlægum búnaði og
notendakerfum sem
eru í vélasalnum.
aði og notendakerfum sem eru í
vélasalnum. Álit veitir síðan
þjónustu sem felur i sér daglega
umsjón og rekstur á hug- og vél-
búnaði. Með þessu móti eiga fyr-
irtæki að geta einbeitt sér frekar
að kjarnastarfsemi í stað þess að
byggja upp slíka aðstöðu sjálf
með tilheyrandi kostnaði og auk-
inni þörf fyrir sérfræðinga við
uppbyggingu og rekstur tölvu-
kerfa. Þessi þróun er að ryðja sér
til rúms í þróuðum upplýsinga-
samfélögum víðs vegar um heim.
Vélasalurinn er tengdur við
varaaflsbúnað og er meö sjálf-
virkt eldvarnarkerfi, upphækkað
kerfisgólf og kæli- og öryggiskerfi
sem tryggir að kerfin halda
áfram vinnslu þrátt fyrir raf-
magnsleysi eða truflanir. Við
hönnun og uppbyggingu kerfa i
salnum var öryggi, skalanleiki og
sveigjanleiki hafður að leiöar-
ljósi. Til að tryggja rekstrarör-
yggi í upplýsingavinnslu eru all-
ur búnaður og grunnþjónusta
höfð tvöföld.
Guöni B. Guönason, framkvæmdastjóri Álits efh., tekur hér viö aö-
gangskorti aö vélasalnum frá Agnari Má Jónssyni, framkvæmdastjóra sölu-
sviös Símans.
Enn um
FinePix
Það gleymdist að minnast á að
FinePix 40i myndavélin sem var í
DV-heimsprófi í síðasta blaði er
hægt að kaupa í Ljósmyndavörum,
Skipholti 31. Einnig er vert að
benda á FinePix 4700 zoom eða
FinePix 4900 zoom myndavélarnar
fyrir þá sem vilja meiri stjórn en
„point & shoot“ (miða og mynda).
Þeim sem hafa áhuga á að kynna
sér betur þessar vélar er bent á vef-
slóðimar www.fuiifilm.is eða
vv ww.steves-digicains.com (sem er
ein besta heimasíðan um stafrænar
myndavélar).
Fyrir þá sem almennan áhuga
hafa á ljósmyndun er sérstakiega
bent á að fá í hendur stafræna
myndavél. Það er mjög þægilegt að
geta tekið mynd og skellt henni
beint inn í tölvuna, unnið hana til
og sent hana með póstforriti til vina
og vandamanna eða prentað út.
Að lokum ein ábending fyrir þá
sem eru að leika sér með stafrænar
myndavélar. Stundum er hægt að
nota svokallaða filtera til að breyta
myndum þegar þær eru teknar,
EKKI nota þá! Það er mun betra að
taka myndina eðlilega en nota síðan
forrit (Photoshop, Photopaint eöa
önnur forrit) til að breyta myndun-
um, litum eða áferð. Álltaf er best
að eiga upprunalegu myndina
óbreytta. -HÞG
Astsjúkur naggrís opnar
heimasíöu
Naggrísinn
Sooty, sem ætt-
aður er úr
Himalajafjöllun-
um en er borinn
og barnfæddur i húsdýragarðin-
um Little Friends Farm í Suður-
Wales, hefur fengið sína eigin
heimasíðu eftir ótrúleg afrek
með hinu kyninu. Sagan er sú
að Sooty hvarf einn daginn og
fannst ekki fyrr en tveim dögum
seinna í miðjum hóp 24 kven-
kyns einstaklinga af sömu teg-
und sem einnig eiga heimili í
húsdýragarðinum. Þegar hann
var færður i sitt eigið búr svaf
hann í tvo heila sólarhringa á
eftir. Ástæðan fyrir þessum
mikla svefni kom í ljós 10 vikum
seinna þegar „kærustur" Sooty
eignuðust samtals 42 unga. Hægt
er að kynnast Sooty nánar á
heimasíðunni
www.fai-mpark.fsnet.co.uk.
Þess má geta að Sooty var gerð-
ur heiðursfélagi i Stringfellow-
næturklúbbnum sem er í eigu
herra Stringfellows nokkurs
sem mun vera með frægari
kvennabósum Bretlandseyja.
Opera 5 vafrinn ókeypis
Nú er hægt fá
Opera 5 vafrann
frítt á heimasíðu
Opera Software,
framleiðanda
vafrans. Opera-vafrinn er ólíkt
stóru vö|runum tveim, Internet
Explorer og Netscape, afar litill í
sniðum þegar borin er saman
stærð. Hægt er að fá hann í
tveimur gerðum. Annar getur
lesir Javamál og er sá 9,5 MB.
Hinn les ekki Java og er aðeins
2MB. Það að vafrinn er svona lít-
ill hefur víst lítið með gæðin að
gera að sögn framleiöenda.
Hann vinnur miklu hraðar en
stóru vaframir frá AOL og
Microsoft. Auk þess á hann að
vera alveg jafn öruggur ef ekki
öruggari. Aðeins er einn auglýs-
ingaborði á vafranum fría sem
getur ekki talist mikil truflun.
Hægt er aö nálgast eintak á
www.opera.com.
Microsoft kaupir
leikjafyrirtæki
Microsoft hefur
tilkynnt að það
ætli að festa
kaup á tölvu-
leikjafyrirtækinu
Digital Anvil sem er í Austin,
Texas. Skilmálar kaupanna vora
ekki tilkynntir nema hvað að
talsmaöur Microsoft sagði að
fyrirtækiö myndi eignast réttinn
á öllum leikjum sem Digital An-
vil hefur gefið út eða er að þróa
núna. Meðal þeirra leikja sem
verið er að framleiða núna er
þrívíddar geimbardagaleikurinn
Freelancer sem koma mun út á
næsta ári, auk annars leiks sem
kemur út á X Box leikjatölvuna
sem Microsoft kemur með á
markað seint á næsta ári. Fyrir-
tækin hafa verið í samstarfi sið-
an 1997. Microsoft hefur áður
keypt tölvuleikafyrirtæki, þ. á
m. Bungie Software Products
Corp. Það er spurning hvað
bandarísk yfirvöld segja við
þessu.