Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2000, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2000
Taldir
Vísindamenn
frá Kenía og
Frakklandi
hafa fundið leif-
ar mannapa,
sem þeir telja
að sé með elstu forfeðrum mann-
kyns, sem hafði þann eiginleika að
geta gengið á afturfótunum. Fundur-
inn átti sér stað hinn 25. október
síðastliðinn í Tugen-hæðunum i
Ekki er búið að aldurs-
greina beinin en vitað
er að bergið sem þau
fundust íerum 6 millj-
ón ára gamali, mun
eldra en þeir stein-
gervingaforfeður sem
hingað tíl hafa fundíst.
tölvu-i tikní og vlsínda
19
Steingervingar finnast í Kenía:
elstu forfeður mannkvns
Kenía. Ekki er búið að aldursgreina
beinin en vitað er að bergið sem þau
fundust í er um 6 milljón ára gam-
alt, mun eldra en þeir steingerv-
ingaforfeður sem hingað til hafa
fundist.
Talið er að beinin séu úr a.m.k.
fimm einstaklingum. Ástæðan fyrir
því að vísindamennirnir telja að ap-
arnir hafi getað gengið á afturfótun-
um er heillegur lærleggur sem var
á meðal beinanna. Það hversu
sterkbyggður hann er bendir til
hæfileika til að ganga á tveim fót-
um. Rannsóknir á beinum handa og
fingra gefa einnig vísbendingu um
hæfileika til að ferðast um í trjám.
Á fréttamannafundi sem vísinda-
mennirnir héldu til að kynna fund-
inn kom fram að þrátt fyrir að þess-
ir steingervingar væru þeir elstu
sem fundist hefðu af forfeðrum
mannkyns hefðu þeir verið langt á
veg komnir i þróun til upprétts
gangs.
Þróun í átt að uppréttum gangi virðist hafa átt sér staö fyrr en vísindamenn hafa hingað til taliö, samkvæmt stein-
gervingunum nýju.
MyMP3.com á ný:
Nú borgar fólk árgjald
- og fær 500 diska eöa 25 ókeypis
MP3.com hefur
nú á ný opnað
MyMP3.com
þjónustusíðu
sína þar sem tón-
þyrstir netverjar
geta komið sér upp diskasöfnum.
Þjónustan á MyMP3.com verður
því með nokkuð breyttu sniði frá því
sem var. Um tvenns konar þjónustu
er hægt að velja núna. Annars vegar
getur fólk náð sér í allt að 25 geisla-
diska því að kostnaðarlausu. í staðinn
þarf fólk að sætta sig við auglýsinga-
flóð á síðunni sem borgar brúsann.
Hinn kosturinn er að borga 49,95 doll-
ara (ca 4.000 ísl.kr.) í árgjald. Þetta
gerir fólki kleift að ná í og geyma allt
að 500 geisladiska auk litils magns af
auglýsingum.
Samiö við David Bowie
MP3.com var eitt af fyrstu fyrir-
tækjunum sem gerði netverjum
kleift að nálgast tónlist á MP3 formi
frítt á Netinu í stórum stíl.
Síðastliðið vor var fyrirtækið hins
vegar lögsótt af útgáfufyrirtækjum,
stórum sem smáum, og sá þann kost
vænstan að loka á MyMP3.com þar
sem hægt var að nálgast og geyma
Óvild hljómplötuútgefenda á streymi
ókeypis tónlistar um Netiö kom fyrst
almennilega í ijós þegar þessi maður,
Shawn Fanning, stofnaði Napster-fyr-
irtækiö sem gerði fólki kleift að skipta
á tónlist beint sín á milli.
ókeypis tónlist. Fyrirtækið hefur nú
náð samkomulagi við öll stóru út-
gáfufyrirtækin og tekið upp sam-
starf við þau.
Nú fyrir stuttu gerði David Bowie
einnig samning við MP3.com um að
öll hans tónlist væri fáanleg á
MyMP3.com. Enn eru þó mál fyrir
dómi gegn nokkrum litlum útgáfu-
fyrirtækjum.
Lítil trú árangri
Þrátt fyrir þessa útkomu hjá
MP3.com stendur barátta útgáfufyr-
irtækjanna gegn Napster-fyrirtæk-
inu enn yflr í réttarsölum Banda-
ríkjanna. Napster kom með nýja
þjónustu fyrir MP3-þyrsta netverja
sem gerði þeim kleift að skiptast á
tónlist hver hjá öðrum með þvi að
hlaða niður Napster-forritinu i stað
þess að þurfa að sækja það í tölvur
Siðastliðið vor var fyr-
irtækið hins vegar Iðg-
sótt af útgáfufyrir-
tækjum, stórum sem
smáum, og sá þann
kost vænstan að loka
á MyMP3.com þar
sem hægí var að nálg-
ast og geyma ókeypis
tónlist, Fyrírtmkið hef-
ur nú náð samkomu-
lagl víð öll stóru út-
gáfufyrírtækin og tek-
ið upp samstarf við
fyrirtækisins sjálfs. Einhverjar
þreifingar hafa verið með samvinnu
milli Napster og útgáfufyrirtækj-
anna en ekkert komið út úr því.
Margir eru reyndar efíns um
ágæti nýju þjónustunnar hjá
MP3.com og sjá ekki fyrir sér að
fólk sé tilbúið að fara að borga fyrir
það að ná í tónlist á Netinu. Hægt er
að taka mörg dæmi þar sem fólki er
boðið eitthvað á Netinu og því síðan
í sjálfsvald sett hvort það borgar
fyrir. Nú seinast hætti Stephen
King útgáfu nýjustu bókar á Netinu,
gefin út kafla fyrir kaíla, þar sem
hlutfall þeirra sem borguðu fyrir þá
kafla sem þegar voru komnir út var
ekki nógu hátt. Annað sem mun
koma til með að hindra fólk í að
borga er að Napster er enn við lýði
auk skjalaskiptiforrita eins og Gnu-
tella sem enginn einn á og engan er
því hægt að kæra.
Tónlistarmenn skiptast í tvo hópa þar sem annar hópurinn stendur með útgáfufyrirtækjunum en hinn segir skjala-
skiptaforritin af hinu góða, eins og Fred Durst úr rokksveitinni Limp Bizkit.
Nýjar myndir frá Mars:
Setlagaberg eftir
vötn eða innhöf
Talið er að allt að 3,5
milljarða ára saga sé
falin í þessum klettum
og þ.a.l. saga Mars allt
frá þvípláneian var
- hentugt fyrir steingervingamyndun
Enn eru geim-
vísindamenn
að finna fleiri
ummerki á
Mars sem
benda til þess
að vatn hafi verið á yfirborði
plánetunnar.
Fyrir stuttu bárust myndir sem
sýndu gil og ruðninga sem talið
er að séu eftir rennandi vatn. Nú
hefur Mars Global Surveyor
geimfarið, sem er á hringbraut
um Mars og tók líka myndirnar
af giljunum, sent frá sér nýjar
myndir sem sýna kletta sem
byggðir eru upp af greinilegum
setlögum í botnum gíga. Lögun og
uppbygging klettanna er sú sama
og finnst hér á Jörðinni þar sem
áður fyrr voru stór vötn eða inn-
höf.
Þessi nýja uppgötvun hefur vak-
ið mikinn spenning á meðal
þeirra sem áhuga hafa á rann-
sóknum á rauðu plánetunni.
Klettar sem þessir á Jörðinni eru
fjársjóðskistur vísindamanna af
ýmsum gráðum þar sem mikið af
steingervingum finnst í setlögum
klettana. Talið er að allt að 3,5
milljarða ára saga sé falin í þess-
Ef eltthvert líf var (eða
er, eins og sumir vílja
halda fram) á Mars þá
er helst að finna sann-
anlr um það í setlðg-
um sem þessum.
um klettum og þ.a.l. saga Mars
allt frá því plánetan var heit og
rök, eins og kenningar halda
fram. Ef eitthvert líf var (eða er,
eins og sumir vilja halda fram) á
Mars þá er helst að finna sannan-
ir um það í setlögum sem þessum.
Það vekur einnig vonir að áriö
1996 héldu nokkrir stjarnfræðing-
Eins og sést á myndinni er greinileg lagskipting í yfirboröinu, líkt og finnst
á jörðinni þar sem stór vötn eða innhöf hafa eitt sinn verið.
ar því fram að þeir hefðu fundið hafi þeim tekist að sanna mál sitt
steingervinga örvera í loftsteins- á fullnægjandi hátt þá hefur það
broti ættuðu frá Mars. Þótt ekki heldur aldrei verið afsannað.