Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
DV
Fréttir
íslensk f jölskylda í hættu stödd þegar skýstrókar æddu yfir Alabama á laugardag: E33SSSESSI
Leituðum skjóls
á baðherberginu
- segir Elísabet Pálmadóttir
„Við vorum sem betur fer öll
heima þegar almannavarnaflauturn-
ar byrjuðu að væla um hádegisbil á
laugardag. Skömmu síðar heyrðum
við í lögreglubílum sem fóru um
hverfiö til að vara fólk við því að
vera utandyra. Við kveiktum undir-
eins á sjónvarpinu og gátum fylgst
með ferð skýstróksins í beinni út-
sendingu. Þannig sáum við hvenær
hann nálgaðist borgina og hvenær
tími var kominn til að leita skjóls.
Við vorum öll skelkuð og yngsti son-
ur okkar, sem er 6 ára, varð mjög
hræddur," sagði Elisabet Pálmadóttir
sem býr ásamt eiginmanni sínum,
Pétri Guðmyndssyni, fyrrverandi
kúluvarpara, og fjórum börnum
þeirra í bænum Tuscaloosa í Ala-
Morgunblaösritst j óri:
Beðiö eftir að
Matthías kveðji
„Það er ekki
rétt að búið sé
að ráða nýjan
ritstjóra hjá
Morgunblað-
inu. Matthías
Johannessen
er ekki hættur
og við ætlum
okkur að
kveðja hann
áður en
ákvörðun um
nýjan ritstjóra
verður tekin,“
sagði Hallgrím-
ur Geirsson, framkvæmdastjóri Ár-
vakurs, útgáfufélags Morgunblaðs-
ins, í samtali við DV í gærkvöld.
Undanfama daga hefur heyrst
orðrómur um að gengið hafi verið
frá ráðningu nýs ritstjóra. Að sögn
Hallgríms hafa staðið yfir skipu-
lagsbreytingar á ritstjóm Morgun-
blaðsins að undanfomu og þeim
mun ekki lokið.
„Það verður ekkert að frétta af
þessu máli fyrr en í janúar."
- Hafið þið einhvem sérstakan í
huga?
„Nei, það hefur ekki verið tekin j
ákvörðun um til hverra verður leit-
að,“ sagði Hallgrímur Geirsson.
-aþ
—
Flugdólgamálið:
Lögreglan
farin utan
Tveir lögreglumenn sem starfa
á Keflavíkurflugvelli lögðu í gær
af stað áleiðis til Mexíkós þar sem
þeir munu mæta farþegunum fjór-
um sem var vísað úr Flugleiðavél
fyrir skömmu vegna óspekta um
borð. Lögreglumennirnir flugu til
Minneapolis þar sem þeir höfðu
viðdvöl í nótt en þeir halda ferð-
inni áfram í dag og eru væntan-
legir til Puerta Vallarta í Mexíkó
síðdegis.
Hlutverk lögregluþjónanna er
að sjá til þess að fyrrnefndir far-
þegar verði til friös á heimleið-
inni. Lögreglufylgdin er að kröfu
Flugleiða og þurfa farþegarnir að
bera allan kostnað af ferð lög-
regluþjónanna. Mexíkóhópurinn
er væntanlegur hingað til lands á
morgun.
-aþ
Matthías
Johannessen
- fer um áramót
bamaríki í Banda-
ríkjunum. Elisa-
bet og Pétur hafa
búið í Alabama í
sex ár. Hún lauk
nýverið meistara-
gráðu í uppeldis-
fræðum og Pétur
útskrifast í vor
sem afbrotafræð-
ingur.
Öflugir ský-
strókar gengu yfir Tuscaloosa, 100
þúsund manna borg, um hádegisbil á
laugardag og mældist sá stærsti um 5
kílómetrar að breidd. Skýstrókarnir
sem gengu yfir Tuscaloosa voru þeir
mannskæðustu síðan 1932 en í gær-
kvöld höfðu tíu manns fundist látnir
og tveggja lítilla barna var enn sakn-
að.
Húsin veikbyggö
„Ég kveikti stréix á sjónvarpinu og
þar var sagt frá því að skýstrókar
væru í aðsigi og myndu að líkindum
ganga yfir borg-
ina. Það er enginn
kjallari í húsinu
þannig að við leit-
uðum skjóls á
baðherberginu
sem er glugga-
laust og inni í
miðju húsi. Allir
fóru i skó því ef
eitthvað hefði
gerst þá er alltaf
hætta á að fólk slasi sig á glerbrotum.
Það er oft mælt með því að fólk fari
inn á baðherbergin því þar eru vegg-
ir gjarna þykkari en annars staðar í
húsinu. Það væsti ekki um okkur á
baðherberginu þótt þröngt væri en
bróðir Péturs dvelur hjá okkur og við
erum því sjö í heimili. Við höfðum
kveikt á sjónvarpinu frammi í stofu
og til alirar guðs lukku fór rafmagn-
ið ekki af. Skýstrókurinn fór yfir á
nokkrum mínútum og við heyrðum í
fréttunum hvenær allt var um garð
gengið," sagði Elísabet.
Skýstrókarnir voru um stundar-
fjórðung að ganga yfir Tuscaloosa og
mældist sá sterkasti á yfir 80 kíló-
metra hraða. Húsin í Alabama eru,
að sögn Elísabetar, ekki eins ramm-
lega byggð og hér á landi. Hún segir
að húsið þeirra sé í meðallagi gott en
allt gler sé til dæmis einfalt.
„í rauninni eru bestu húsin hér
ekki eins vel byggð og sumarbústað-
irnir heima á íslandi. Við teljum okk-
ur mjög lánsöm að hafa sloppið og
eyðileggingin sem blasti við okkur í
gær þegar við fórum að skoða ham-
farasvæðin var hrikaleg. Trén höfðu
mörg klofnað í tvennt og hjólhýsa-
hverfi höfðu svo gott sem jafnast við
jörðu. Það var sorglegt að horfa upp
á þetta og vont til þess að hugsa að
fjölmargar fjölskyldur eru á götunni
nú rétt fyrir jólin,“ sagði Elísabet
Pálmadóttir í Tuscaloosa í Alabama í
samtali við DV í gærkvöld.
Sjá nánar um skýstrókinn
á bls. 19 -aþ
Elísabet
Pálmadóttir.
Pétur
Guömundsson.
Gáttaþefur fræðir bornin um hollustu
Þegar fréttaritari DV átti leiö í verslunina Samkaup í Grindavík bar fyrir augu kunnuglega sjón því Gáttaþefur hafói
brugöiö sér til byggöa og var aö ná í eitthvaö hollt oggott til aö setja i skóinn hjá stilltum og þægum krökkum. Hann
notaöi tækifæriö og fræddi krakkana Um hollustu grænmetis og ávaxta og sagöist aldrei gefa sælgæti í skóinn. Þeg-
ar sá gamli fór aö tala um siginn fisk meö hangifloti og kæsta skötu eða hákarl uröu börnin skrýtin á svipinn en gátu
þó tekiö undir aö haröfiskur væri nú ágætur.
Tveir menn drukknuðu í Vestmannaeyjum:
BHreiðin
Mennirnir tveir sem fundust látn-
ir í höfninni í Vestmannaeyjum á
laugardaginn hétu Eiður Sævar
Marinósson og Guðbjörn Guð-
mundsson. Eiður Sævar var 61 árs
gamall, til heimilis að Hrauntúni 18,
Vestmannaeyjum. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og uppkomin börn.
Guðbjörn var 59 ára gamall, til
heimilis að Áshamri 75 í Vest-
mannaeyjum. Hann lætur einnig
eftir sig eiginkonu og uppkomin
börn.
Að sögn Tryggva Kr. Ólafssonar,
rannsóknarlögreglumanns í Vest-
mannaeyjum, sást síöast til mann-
anna þegar þeir fóru saman í bíltúr
um klukkan níu á fóstudagskvöldið.
Um hádegi daginn eftir höfðu ætt-
ingjar samband við lögregluna og
tilkynntu hvarf þeirra. Skömmu síð-
ar varð vegfarandi var við bílinn í
höfninni, en þá var farið að fjara út.
fannst í
Eiður Sævar Guðbjörn Guð-
Marinósson. mundsson.
Farþeginn fannst látinn í bílnum,
spenntur í bílbelti. Ökumaðurinn
fannst í höfninni, skammt frá biln-
um.
Mennirnir munu hafa farið á svo-
kallaðan bryggjurúnt en að sögn
Tryggva er óvíst hvernig slysið bar
að.
„Það er erfitt að átta sig á því
hver tildrög slyssins voru. Ökumað-
urinn gæti hafa tekið beygjuna of
höfninni
snemma eða hreinlega misst bara
stjórn á bílnum," sagði Tryggvi.
Slydda var þetta kvöld í Vestmanna-
eyjum. Taliö er að slysið hafi orðið
á milli klukkan 21 og miðnættis en
lögreglan varö ekki vör við bíl
mannanna þetta kvöld.
Þetta er annað áfallið sem ríður
yfir Vestmannaeyjar á einni viku
en sem kunnugt er brann frystihús
ísfélags Vestmannaeyja að miklum
hluta til þann 9. desember og leikur
grunur á að um íkveikju hafi verið
að ræða. Vegna þess hve fáliðuð lög-
reglan í Vestmannaeyjum er hefur
rannsóknin á láti mannanna tveggja
seinkað rannsókninni á brunanum.
Lögreglan i Vestmannaeyjum bið-
ur þá sem gætu hafa orðið Eiðs
Sævars og Guðbjarnar varir á fostu-
dagskvöldið að hafa samband við
sig í síma 481 1666. -SMK
Aðstoði Bolvíkinga
Einar K. Guð-
finnsson þingmaður
leggur til að stjóm-
völd hjálpi til við að
endurreisa starf-
semi rækjuverk-
smiðjunnar Nasco á
Bolungarvík, sem
lýst var gjaldþrota
fyrir stuttu, í gegnum Byggðastofnun.
Fréttastofa Ríkissjónvarpsins greindi
frá.
Fá að setja upp jólaljós
Eldri borgarar sem búa við Vitatorg
hafa fengið leyfi hússtjómar til að
setja upp jólaljós á svölum íbúða
sinna. Þeim hafði áður verið tilkynnt
að vegna höfundarréttar arkitekta
væri ekki ætlast til að íbúar skreyttu
svalir sínar. Rikissjónvarpið greindi
frá.
Erlendum ferðamönnum fjölgar
Erlendum ferðamönnum hefur fjöig-
að um 41.000 það sem af er þessu ári
miðað við sama tima í fýrra sam-
kvæmt fréttatilkynningu sem Feröa-
málaráð hefúr sent frá sér. Mest fjölg-
un hefur orðið á ferðamönnum frá
Bretlandi og Bandaríkjunum. Mbl.
greindi frá.
Þingmenn í frí
Þingfundum var frestað til 23. janú-
ar síðastliðinn föstudag. Miklar annit'
vora hjá þingmönnum þar sem mörg
lög vom samþykkt. Hasarinn var því-
líkur að lög voru afgreidd á allt niður
í 20 sekúndur og var líkast því að þing-
menn væru í akkorði. Mbl.is sagði frá.
Flestar nefndir
Menntamálaráðuneytið hefur flestar
nefndir á sínum snærum eða 238. Þetta
er um helmingi meira en næsta ráðu-
neyti sem er heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið. 1103 sinna störfum í
þessum nefndum. Fréttastofa Ríkissjón-
varpsins greindi frá.
70-80% birgða söluhæf
Eftir könnun á birgðum sem ekki
brunnu í eldsvoðanum í frystihúsi ísfé-
lags Vestmannaeyja um síðustu helgi
hefur komið í ljós að 70-30% birgða
era söluhæf vara. Vísir.is sagði frá.
íkveikjufaraldur hérlendis
íkveikjur hafa stóraukist nú á sein-
ustu vikum. Oftast er um smábruna að
ræða þar sem kveikt er í ruslagámum
eða öðru smálegu sem þó hefði getað
valdið miklu tjóni. Stærstu og þekkt-
ustu íkveikjumar eru þó bruni ísfé-
lagsins í Vestmannaeyjum og íkveikj-
an í stigagangi fjölbýlishúss við Flúða-
sel í Breiðholti. Mbl. sagði frá.
Mikil lyfjaneysla á Litla-Hrauni
Dæmi eru
um að sumir
fangar á
Litla-Hrauni
fái allt að 25
töflur af
verkjalyfjum
og öðrum lyfj-
um á dag. Ari Thorarensen, formaður
fangavarðasambands íslands, segir
þetta eitt mesta áhyggjuefnið í málefn-
um Litla-Hrauns. Yfirlæknir fangelsis-
ins segir þetta eðlilegt þar sem oft sé
um að ræða lyfjagjöf fyrir langt leidda
fíkniefnaneytendur sem þarf að trappa
niður. Fréttastofa Ríkissjónvarpsins
greindi frá.
Röng aðferðafræði
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra gagnrýndi í gær aðferðafræði
kennara í kjaraviðræðum við ríkið.
Menntamálaráð-
herra segir kennara
hafa í upphafi ein-
blínt um of á
ágreiningsmálin og
grunnskólakennarar
hafi farið mun skyn-
samlegri leið. RÚV
sagði írá. -HT -